Morgunblaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 283. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lokakafli
Njálssögu
Myndasagan Blóðregn
kemur út á morgun 36
Eivör
Pálsdóttir
Hefur unnið sér nafn fyrir
frábæran söng B12
Sælkeri á
sunnudegi
Pasta með salsiccie- og
rósmarínsósu B8
BÖRN með
einhvers kon-
ar þroskafrá-
vik eiga mest
á hættu að
verða lögð í
einelti en 27%
barna með
slík vandamál
eru lögð í ein-
elti á móti 14% annarra barna. Þetta
kemur fram í niðurstöðum rannsóknar
sem náði til 10.000 norrænna barna á
aldrinum 2–17 ára.
Börn sem eru ofvirk, með geðraskanir
eða eiga við offituvanda að stríða eru í
mestri hættu á að verða fyrir einelti.
Jón Páll Hallgrímsson, ráðgjafi hjá
Regnbogabörnum, segir að flestir ein-
staklingar sem leita til Regnbogabarna
eigi við einhvers konar þroskafrávik að
stríða. „Það er eins og það sé ekki um-
burðarlyndi hjá landanum fyrir einhverju
sem er öðrvuvísi,“ segir Jón Páll og bætir
því við að það megi rekja beint til sam-
skiptahátta fullorðins fólks. „Samfélagið
hér hefur breyst svo mikið og kröfurnar
eru orðnar svo miklar. Bilið milli fólks
hefur breikkað töluvert. Í staðinn fyrir að
þjappast saman og vera góð hvert við
annað þá er fólk umtalsillt og bregst jafn-
vel illa við ef einhverjum gengur vel.
Þetta smitar út frá sér og til barnanna,“
segir Jón Páll.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að það
er mikill munur milli Norðurlandanna á
fjölda barna sem lögð eru í einelti. Ísland
er þar næstneðst í röðinni en hér er gert
ráð fyrir að um 10% barna séu lögð í ein-
elti. Í Svíþjóð er þessi tala 7% en 23% í
Finnlandi. Um 19% danskra barna eru
lögð í einelti og 15% norskra.
Norræn rannsókn á einelti
Um 10%
barna hér
sæta einelti
Börn sem eru með ein-
hvers konar þroskafrávik
eru í mestri hættu
UM sex hundruð menn undir forustu Ítala vinna
nú við dýrustu framkvæmdir Íslandssögunnar
uppi á hálendi Austurlands. Þessir starfsmenn
veifa vegabréfum 27 þjóða og tala enn fleiri
tungumál og eiga fátt annað sameiginlegt en að
vinna við að reisa virkjun og að geta ekki borið
nafn staðarins fram.
Enginn er kominn á þennan kuldalega en til-
komumikla stað til að setjast að og njóta nátt-
úrufegurðarinnar. Stefnan er sett á að safna
peningum og koma sér heim.
Því er gullgrafarablær á Kárahnjúkum þótt
sumir hafi þurft að grafa eftir sínu gulli sokka-
lausir og illa skóaðir.
„Maður er hérna bara til að græða, ekkert
annað,“ segir Faustino Silva, fjörutíu og eins árs
Portúgali. Hann segist hafa tvö þúsund evrur á
mánuði sem séu tvöföld, jafnvel þreföld laun
sem trésmiður á borð við hann fær í Portúgal.
Uppgrip fyrir Silva, en óvíst hvort verkalýðs-
hreyfingin telur það sanngjarnt eða reglum
samkvæmt fyrir tíu tíma vinnu á dag, sex daga
vikunnar. Sömu sögu virðist vera að segja af öll-
um sem rætt var við. Þetta er vel borguð vinna,
oftast er talað um tvöföld laun miðað við heima-
landið en misvel borguð eftir hvaðan menn
koma. Að því ógleymdu að víða er enga vinnu að
fá. Silva er þó ekkert óánægður. Hann segist
vera vanur að vinna að svona stórverkefnum, í
vinnubúðum í framandi landi. „Svona vinna er
alltaf erfið. Aðstæður eru ekki svo slæmar mið-
að við margt sem ég hef kynnst.“
Kalsastörf við Kárahnjúka
Morgunblaðið/Kristinn Daglaunamenn á fjöllum/B1 & 4–7
BANDARÍSKIR alríkislög-
reglumenn hafa yfirheyrt tví-
tugan námsmann sem talinn er
hafa komið dúkahnífum og öðr-
um grunsamlegum hlutum fyrir
í tveimur farþegaflugvélum, er
varð til þess að fyrirskipuð hef-
ur verið leit í öllum bandarísk-
um farþegaflugvélum, sem eru
alls um sjö þúsund talsins.
Í yfirlýsingu frá bandaríska
dómsmálaráðuneytinu segir, að
rannsókn málsins bendi til að
ekki stafi frekari hætta af
námsmanninum. „Það er ekkert
sem bendir til þess, að þetta mál
tengist á nokkurn hátt hryðju-
verkum,“ sagði talsmaður
bandaríska heimavarnaráðu-
neytisins.
Pakkar sem innihéldu dúka-
hnífa, leir, bleikiklór og hót-
unarbréf fundust við reglu-
bundna leit í tveimur vélum
flugfélagsins Southwest á
fimmtudaginn. Leitað var í öll-
um 385 vélum félagsins, en ekki
fundust fleiri pakkar.
Michael Barr, sem stjórnar
þjálfun flugöryggisráðgjafa í
háskólanum í Suður-Kaliforníu,
segir að það sé að öllum lík-
indum of djúpt í árinni tekið hjá
lögregluyfirvöldum að fyr-
irskipa leit í öllum bandarískum
farþegaflugvélum. „Þetta er
einhver sem vill benda á, að
þrátt fyrir að öryggisgæsla á
flugvöllum eigi að heita hert
hafi hann getað farið með dúka-
hnífa um borð,“ segir Barr.
Embættismenn taka í sama
streng og segjast telja að náms-
maðurinn hafi ekki haft hryðju-
verk í huga, heldur einungis
viljað ögra samgöngu-
öryggisstofnuninni (TSA), sem
sett var á fót í þeim tilgangi að
auka öryggi á bandarískum
flugvöllum í kjölfar hryðjuverk-
anna 11. september 2001, þegar
dúkahnífar voru notaðir til
flugrána.
Haft er eftir heimild-
armönnum að námsmaðurinn
hafi undanfarna mánuði sent
TSA bréf þar sem hann hafi
sagst ætla að afhjúpa bresti í
samgönguöryggiskerfinu í
Bandaríkjunum.
Fyrirskipa leit í sjö þús-
und farþegaflugvélum
Washington. AFP.
NUNNUR úr Góðgerðarreglunni á
Indlandi ganga yfir Péturstorgið í
Vatíkaninu í gær, en búist er við á
fjórða hundrað þúsund rómversk-
kaþólskum pílagrímum til Rómar í
dag til að fylgjast með þegar Jó-
hannes Páll páfi II tekur móður
Teresu, sem lést fyrir sex árum, í
tölu hinna blessuðu, sem er fyrsta
skrefið í að hún verði gerð að dýr-
lingi. „Hún var dásamleg mann-
eskja, svo sannarlega guðsgjöf.
Hún hugsaði einungis um annað
fólk,“ sagði einn pílagrímanna.
Enginn hefur komist jafn fljótt í
tölu hinna blessuðu og móðir Ter-
esa. Syam Prasad Babu, fyrrver-
andi járnbrautastarfsmaður á Ind-
landi sem kvaðst hafa læknast af
nýrnasjúkdómi eftir að hafa beðið
til móður Teresu skömmu eftir að
hún lést, var kominn til Rómar frá
Kalkútta. „Móðir Teresa hugsaði
um mig,“ sagði hann.Reuters
Móðir
Teresa í
tölu hinna
blessuðu
GEORGE W. Bush
Bandaríkjaforseti hét því í
gær að veita Filippseying-
um aðstoð við að koma
lögum yfir íslamska upp-
reisnarmenn í samtökun-
um Abu Sayyaf og leggja
ríkjum í Suðaustur-Asíu
lið í að uppræta Jemaah
Islamiyah, samtök sem
tengd eru hryðjuverka-
samtökum Osama bin Ladens, al-Qaeda.
„Stjórn mín og stjórn ykkar vinna að sama
markmiði. Við munum koma lögum yfir Abu
Sayyaf,“ sagði Bush er hann ávarpaði filipps-
eyska þingið í gær, fyrstur bandarískra for-
seta í rúm 40 ár. Bush sagði ennfremur, að
Bandaríkjamenn myndu veita aðstoð við
endurnýjun og umbætur á filippseyska
hernum, sjá um þjálfun hermanna og leggja
fram fjárhagsaðstoð. Forsetinn tók ekki
fram hversu há sú aðstoð yrði.
Bush heitir
aðstoð
Manila. AFP.
George W. Bush
♦ ♦ ♦