Morgunblaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 57
VAXTARBRODDURINN í ís-
lenskri kvikmyndagerð er nú
um stundir í heimildar- og
stuttmyndagerð, segir Sæbjörn
Valdimarsson, í lofsamlegum
dómi um stuttmyndina Síðasta
kynslóðin: Boðorðin 10. Leik-
stjóri er Bragi Þór Hinriksson
og hann sér líka um handrit,
klippingu og framleiðslu.
Myndin er sýnd á Kvik-
myndahátíð Eddunnar í Regn-
boganum, sem lýkur á sunnu-
daginn, en búið er að ákveða
að sýna myndina áfram eftir
hátíðina um óákveðinn tíma.
Bragi er ánægður með við-
tökurnar, sem myndin hefur
fengið. „Viðbrögðin hafa eig-
inlega bara verið jákvæð. Ég
er alveg í skýjunum,“ segir
hann. „Þetta er mikil hvatning.
Maður renndi alveg blint í sjó-
inn.“
Myndin var tekin upp á viku-
tímabili í sumar. „Hún var
hálfkláruð fyrir um mánuði en
þá sýndi ég myndina þeim í
Skífunni sem eru með Regn-
bogann. Þeim leist vel á hana
og vildu fá hana á hátíðina,“
segir Bragi og það varð úr.
Allt var sett á fullt í eft-
irvinnslunni og hljóð klárað og
tæknivinna.
Rekur framleiðslufyrirtæki
Þetta er fyrsta mynd Braga,
sem er 29 ára gamall, en hann
segist samt hafa verið viðloð-
andi kvikmyndagerð lengi. „Ég
er búinn að vera nánast í þessum
bransa síðan ég var 12 ára en
þetta er fyrsta myndin mín,“ segir
Bragi en hann rekur framleiðslu-
fyrirtækið Hreyfimyndasmiðjuna.
„Ég er að gera mikið af auglýs-
ingum og þá mjög mikið fyrir bíó-
húsin.“
Hann segir það hafa hjálpað að
vera með fyrirtækið. „Það er
grunnurinn að því að geta gert
þessa mynd því maður er búinn að
koma sér upp það miklu af tækj-
um. Myndin er gerð alveg á minn
kostnað. Ég fjármagnaði hana
100% sjálfur, engir styrkir,“ segir
Bragi en myndin kostar samt sitt.
„Þetta getur verið dýrt ef
maður reiknar saman allt sem
þarf til. En það vill svo til að
ég á kameru og klippigræjur.
Ég nota þetta allt og innkalla
alla greiða.“
Öll brotin á einum degi
Síðasta kynslóðin: Boðorðin
10 fjallar um ungan athafna-
mann, jakkafataklæddan
Range Rover-eiganda, sem
brýtur öll boðorðin á einum
degi. „Myndin sprettur uppúr
því sem maður heyrir dags-
daglega í fréttum, eins og um
viðskiptasiðferði,“ segir Bragi.
„Það kom upp þessi hugmynd
að fjalla um boðorðin 10. Þeg-
ar ég settist niður og fór að
búa til sögu sá ég að það væri
hægt að brjóta öll boðorðin í
réttri röð, sama daginn eins og
að drekka vatn í nútíma-
samfélagi,“ segir Bragi sem
stúderaði m.a. Biblíuna mikið í
kringum gerð myndarinnar.
„Þetta er dæmisaga. Manni
finnst svolítið traðkað á náung-
anum í daglegu lífi og svona
maður með peninga er í góðri
aðstöðu til þess.“
Á fleiri hátíðir?
Bragi segir að myndin virð-
ist hafa áhrif á fólk. Hann er
sérstaklega ánægður með aðal-
leikarann, Hafstein Gunnar
Hafsteinsson. „Hann er al-
gjörlega óreyndur. Við kynnt-
ust í gegnum auglýsingu sem
ég var að gera. Við tókum hann
að gamni í prufu og það gekk
svona vel. Hann blómstraði í þessu
hlutverki.“
Næst á dagskrá hjá Braga er að
reyna að koma myndinni á fleiri
kvikmyndahátíðir. „Ég er búinn
að senda myndina á nokkrar há-
tíðir og er að bíða eftir að fá svar
hvort maður fái inni. En þetta er
góð byrjun, myndin fær þann
stimpil að hún hefur verið valin á
kvikmyndahátíð og ég er ofsalega
þakklátur fyrir það. Þetta er rosa-
leg vítamínsprauta.“
Stuttmyndin Síðasta kynslóðin:
Renndi blint í sjóinn
ingarun@mbl.is
Boðorðin 10 hefur fengið góðar viðtökur
Morgunblaðið/Þorkell
Leikstjóri myndarinnar er Bragi Þór Hin-
riksson og hann sér líka um handrit, klipp-
ingu og framleiðslu.
Myndin fjallar um ungan athafnamann, sem
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson leikur, en
hann brýtur öll boðorðin á einum degi.
!"
#$%
" &
'(
'!"
)
%
*
'% +,"
*
$ * *
- &.