Morgunblaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Íbúum starfssvæðis Heilsugæslunnar Grafarvogi
er boðið upp á influensubólusetningar
mánud. 20. október og þriðjud. 21. október
kl. 10:00 - 12:00 báða dagana.
Starfsfólk Heilsugæslunnar Grafarvogi
Reykjavík, 19. október 2003.
Influensubólusetningar
Heilsugæslunni Grafarvogi
Spöngin 35, 112 Reykjavík. Sími 585-7600.
Heilsugæslan
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík www.hr.is
Lögmannshlíðarsókn
Djákni
Sóknarnefnd Lögmannshlíðarsóknar auglýsir
hér með eftir djákna til starfa við Glerárpresta-
kall á Akureyri.
Glerárprestakall er ungt og vaxandi prestakall
með liðlega 7000 sóknarbörnum. Tveir prestar
þjóna nú prestakallinu. Starf djákna verður
með áherslu á uppbyggingu barna- og ungl-
ingastarfs auk fræðslu.
Frekari upplýsingar um fyrirhugað starf og
starfstíma veitir sóknarprestur, sr. Gunnlaugur
Garðarsson. Umsóknum um starfið skal skila
í lokuðu umslagi þannig merktu: Djákni Glerár-
kirkju v/Bugðusíðu, 603 Akureyri. Umsóknum
skal skila eigi síðar en 14. nóvember nk.
Sóknarnefnd Lögmannshlíðarsóknar.
Viðhald og viðgerðir á gömlum
timburhúsum
Á þessu námskeiði verður farið í endurbætur og viðgerðir utan-
húss. Bóklegt og verklegt nám. Áhersla verður lögð á viðgerðir
og smíði glugga og hurða samkvæmt gömlu handverki. Einnig
verður leiðbeint um mat á skemmdum og val á efni til endur-
bóta. Námskeiðið hefst föstudaginn 31. október og lýkur laug-
ardaginn 15. nóvember.
Námskeiðið verður haldið í Miðbæjarskóla og á verkstæði á
Grettisgötu 46. Námskeiðsgjald er kr. 16.900.
Leiðbeinandi: Þórhallur Hólmgeirsson.
Húsgagnaviðgerðir
Kennd eru undirstöðuatriði í fínsmíði og hvernig á að gera upp
húsgögn og antíkmuni. Nemendur mæta með eigin húsgögn til
lagfæringar. Námskeiðið stendur í 7 vikur og hefst fimmtudag-
inn 30. október.
Námskeiðsgjald er kr. 16.000.
Leiðbeinandi: Þórhallur Hólmgeirsson.
Listasaga - síðdegisnámskeið
Veitt er innsýn í heim listaverka með tónlistarívafi. Fjallað verð-
ur um helstu tímabil listasögunnar frá upphafi myndgerðar
fram á okkar daga. Safnaheimsóknir. Námskeiðið stendur í 7
vikur og hefst þriðjudaginn 28. október.
Námskeiðsgjald er kr. 10.500. Leiðbeinandi: Þorsteinn Egg-
ertsson.
Myndlist
Teikning - kennd eru undirstöðuatriði í teikningu og leiðbeint
um notkun ýmissa teikniáhalda.
Vatnslitamálun - kennd er blöndun lita og mismunandi að-
ferðir í vatnslitamálun. Námskeiðin standa í 7 vikur hvort og
hefjast laugardaginn 1. nóvember.
Námskeiðsgjald er kr. 13.900.
Leiðbeinandi: Þorsteinn Eggertsson.
Innritun stendur yfir í Miðbæjarskóla,
Fríkirkjuvegi 1. Sími 551 2992
Netfang: nfr@namsflokkar.is http://www.namsflokkar.is
HRINGBRAUT 119, 4. HÆÐ
ALGERLEGA ENDURNÝJUÐ, BJÖRT
og skemmtileg 2ja herbergja íbúð á þess-
um sívinsæla stað auk sérstæðis í bíla-
geymslu. Nýtt parket á gólfum, ný eldhús-
innrétting og ný innrétting á baði. Glæsi-
leg sameign. Verð 11,9 millj.
Upplýsingar gefur Árni sölumaður
í símum 595 9014 og 897 4693
Skúlagötu 17
Sími 595 9000
holl@holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
www.holl.is
NÚ STANDA fyrirdyrum árvissirLjóðatónleikarGerðubergs, en þeirhafa verið fastir við-
burðir í tónlistarlífi borgarbúa
síðastliðin 15 ár.
Sunnudaginn 19. október nk. er
komið að þeim Guðrúnu Jóhönnu
Ólafsdóttur mezzósópran og
Inese Klotiñu píanóleikara frá
Lettlandi.
„Ég syng fyrst þrjú íslensk
lög,“ segir Guðrún Jóhanna um
efnisskrá tónleikanna. „Ég fékk
Jón Ásgeirsson til að tónflytja
niður fyrir mig lag hans Hjá
lygnri móðu, sem hann gerði ljúf-
mannlega, og við flytjum það;
einnig Brúðkaupið eftir Jón Lax-
dal en það á rætur að rekja til
Gunnlaugs sögu. Ég hef ekki
heyrt aðra syngja þetta lag, en
það er þó eitt af mínum uppá-
haldslögum, mjög dramatískt og
leikrænt og meðleikari minn
Inese Klotiña var fljót að ná því
– enda er hún rosalega góður pí-
anóleikari. Þriðja íslenska lagið
er Vöggukvæði – Litfríð og ljós-
hærð, eftir Emil Thoroddsen. Þá
vindum við okkur í þýsku tón-
skáldin; ég syng nokkur ljóð úr
Spænsku ljóðabókinni eftir Hugo
Wolf og tvö ljóðanna úr Sieben
frühe Lieder eftir Alban Berg,
Næturgalann og Nótt.“
Besti ljóðaflokkurinn fyrir konur
Eftir hlé flytja Guðrún Jó-
hanna og Inesa ljóðaflokkinn
Haugtussu – eða Stúlkuna á fjall-
inu, eftir Grieg. „Við höfum flutt
þennan flokk áður og af þeim
ljóðaflokkum sem ég þekki,
finnst mér þessi sá besti sem
saminn hefur verið fyrir konu.
Karlarnir hafa Vetrarferðina,
Malarstúlkuna fögru og Dichter-
liebe. Inesa er líka hrifin af þess-
um flokki Griegs, enda er píanó-
parturinn góður, þannig að
píanóið fær líka að blómstra.“
Guðrún Jóhanna og Inese hafa
þegar flutt Haugtussu víðs vegar
um Bretland, og því í góðri æf-
ingu. „Ljóðin og tónlistin eru
hvor tveggju mjög falleg. Mér
finnst næstum því að ég sé að
syngja á íslensku. Ljóðin eru eft-
ir Arne Garborg og samin á ný-
norsku, sem er ennþá nær ís-
lensku en sú norska sem við
heyrum oftast. Ljóðmálið og tón-
málið höfðar hvort tveggja sterk
til mín og mér finnst ég skilja
það mjög vel, og betur en margt
annað í erlendri tónlist. Ég hafði
nú aldrei hugsað um Letta sem
einhverja sérstaka frændur okk-
ar, en Inesa finnur líka til
tengsla við þennan norræna flokk
– við höfum fundið til sam-
norrænnar kenndar við það að
vinna að þessu. Í ljóðunum eru
sterkar náttúrustemmningar og
smalastúlkan sem sungið er um
er mikið náttúrubarn. Hún býr í
fjöllunum, verður ástfangin og
lendir í ástarsorg og lýsingin á
henni er sérstök – og mér finnst
hún alveg eins geta verið ís-
lensk.“
Guðrún Jóhanna og Inesa
Klotiña kynntust í Guildhall-
skólanum í London meðan þær
voru þar báðar við nám. „Mað-
urinn minn heyrði í Inesu á tón-
leikum, og sagði að ég yrði endi-
lega að reyna að komast í að
vinna með henni. Þá var hún ekk-
ert að vinna með söngvurum –
var í einleikaradeild; en við
ákváðum þó að fara að vinna
saman. Hún er konsertpíanisti,
en eftir einleikaranámið fór hún í
meðleikaradeildina. Ég man vel
eftir því þegar hún kom fyrst
með mér í tíma hjá söngkenn-
aranum mínum, Lauru Sarti –
sem kenndi líka Diddú og Þóru
Einarsdóttur – þá sagði Laura:
Þú verður að halda í þennan pí-
anóleikara eins og þitt eigið líf!
…og það hef ég gert. Ég vona að
áheyrendur í Gerðubergi verði
jafnhrifnir af henni og ég og aðr-
ir sem í henni heyra.“
Guðrún Jóhanna lauk meistara-
gráðu í söng og prófi frá óperu-
deild Guildhall School of Music
and Drama í London fyrr á þessu
ári, og býr enn þar í borg. Sagt
var frá því í fréttum í vor er Guð-
rún Jóhanna vann ljóðasöngs-
verðlaunin í hinni virtu bresku
Kathleen Ferrier-söngkeppni.
Þar heyrði umboðsmaður nokkur
í Guðrúnu Jóhönnu og bauðst til
að taka hana upp á sína arma.
„Hún sendi mig í prufu í Kom-
ische Oper í Berlín, sem gekk
mjög vel. Ég syng þar næsta vet-
ur – en veit ekki ennþá hvað. Ég
er líka að prufusyngja fyrir fleiri
óperuhús og hljómsveitarstjóra,
en er jafnframt að halda tónleika
bæði hér heima og úti, bæði með
Inese og öðrum píanóleikurum.“
Var ekki hrifin af óperutónlist
Guðrún Jóhanna hefur verið ið-
in við að halda ljóðatónleika, en
oft eru ungir söngvarar upptekn-
ari af því að koma sér áfram í
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir debúterar í Gerðubergi
Ljóðasöngurinn
á sterk ítök í mér
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir: „Á ljóðatónleikum er maður í sterkara persónu-
legu sambandi við áheyrendur sína.“
Skreytingar við öll tækifæri
Laugavegi 63 • sími 551 2040