Morgunblaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 49
SMS tónar og tákn
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 49
Afmælisþakkir
Kæru ættingjar og vinir.
Þakka ykkur innilega fyrir gjafir, símtöl, skeyti
og annað, sem gladdi mig á 80 ára afmælinu
mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Vilborg Eiríksdóttir,
Hofsvallagötu 20, Reykjavík.
Afmælisþakkir
Innilegar kveðjur og þakkir sendi ég öllum þeim
sem heiðruðu mig og glöddu með nærveru sinni,
gjöfum og kveðjum á 100 ára afmæli mínu
30. september síðastliðinn.
Vinarhugur ykkar yljar og gleður.
Guð leiði ykkur og verndi.
Karvel Ögmundsson,
Njarðvíkum.
Á LANGRI ævi hef ég ekki gert
neitt í því að skrifa í blöð, en nú finn
ég þörf til að biðja Morgunblaðið að
birta fyrir mig nokkrar línur, ef það
mætti verða til að vekja athygli á
frekju og yfirgangi svokallaðra
„sportveiðimanna“ með skrifum sín-
um um fugla og ekki síður þegar
þeir eru komnir á jeppum með
byssu út í náttúruna að elta rjúpu.
Frá því að ég var unglingur hef
ég ásamt mörgum öðrum unnið að
því og það hefur verið okkar áhuga-
mál, að gróðursetja og rækta skóg
norðan við Akrafjall, þar er nú orð-
inn fallegur skógur. Hér áður fyrr
var alltaf rjúpa í Akrafjalli en hefur
nú um nokkurt skeið varla sést þar
rjúpa. Hér fyrir nokkrum árum
verptu tvö til þrjú rjúpnapör í skóg-
inum hjá okkur og það var gaman
þegar kom fram á sumarið að fylgj-
ast með þeim með ungana sína, átta
til tíu í halarófu á eftir. Rjúpan
verður spök þegar hún kynnist
mannfólkinu og ekki er verið að
áreita hana. Já, þetta er nú liðin tíð
en gæti komið aftur ef umhverf-
isráðherra fær frið til að koma því
fram sem hún er að gera, að friða
rjúpuna.
Ég heyrði um það í október á síð-
asta ári að menn í smalamennsku
hefðu séð rjúpnahóp í Akrafjalli. Ég
sá það, að á þriðja degi eftir að
mátti skjóta rjúpu fór stór jeppi ak-
andi upp á Akrafjall og þá vissi ég
strax hvað klukkan sló. Ekki hef ég
haft spurnir af því að rjúpa hafi síð-
an sést í Akrafjalli og engin kom
rjúpan til okkar í skóginn í vor. Já,
en kannski fer að birta aftur í þess-
um málum því Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra gaf í vor út
reglugerð um friðun rjúpu í þrjú ár.
Þá bregður svo við að skotveiði-
menn sætta sig ekki við það og hafa
skrifað hvern langhundinn eftir
annan til að reyna að gera lítið úr
störfum þeirra manna sem hafa
rannsakað líf rjúpunnar og gáfu Siv
ráð þegar hún gaf út sína reglugerð,
en mér finnst þessir æðstu prestar
þeirra skotveiðimanna vera aumk-
unarverðir og vinna fyrir slæmt
málefni.
Það er annars alveg ótrúlegt
hvaða augum sumir menn sjá fugla
og hugsa út í lífríki þeirra í nátt-
úrunni, samanber það sem einn að
æðstu prestum skotveiðimanna
sagði, að það væri athugandi að
leyfa skotveiði á hrossagauk.
Hvernig hugsar svona maður út í
lífríki fugla á Íslandi. Þurfum við
kannski að leita læknis fyrir hann
og getur þá læknir nokkuð að gert?
Nei, nú þarf almenningur að fylgj-
ast vel með þessum málum. Mér
skilst að samkvæmt skoðanakönnun
sé meira en helmingur landsmanna
á móti skotveiði á rjúpu.
Rjúpa var hér á Íslandi þegar
menn komu hér að landi fyrir 1100
árum og gegnum aldirnar þurftu
menn að veiða rjúpu, því þá var lítið
um mat, en nú er það villimennska
að skjóta rjúpu sér til gamans og ég
vona svo sannarlega að Siv takist
það sem hún ætlar sér, en ég veit að
hún á í baráttu við hóp manna sem
eiga erfitt.
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON,
Grenigrund 32,
Akranesi.
Það þarf að friða rjúpuna
Frá Guðjóni Guðmundssyni
ÞESSI skrif eru ekki til að ófrægja
einn ævisagnaritara og frægja ann-
an, enda getur enginn skrifað ævi-
sögu manns nema
maður sjálfur og
skrifi maður ævi-
sögu er maður að
skrifa um sjálfan
sig. Annars þarf
ekki að rekja
þessa ævisögu-
sögu. Stór orð
hafa fallið: Þjóð-
areign, málsókn,
réttlæti, ritfrelsi,
skoðanafrelsi. En
eitt orð hefur hvergi heyrst; kurteisi.
Hvernig ætlum við að umgangast
þjóðareign eða réttlæti eða ritfrelsi –
ef ekki er hægt að sýna gamalli konu
kurteisi? Ef gömul kona skiptir
skoðun kemur það engum við. Hún
skuldar engum skýringu. Það er
einsog við þykjumst búa í stórborg
en ekki litlu plássi og varði ekki um
gömlu konuna í plássinu. Þykjumst,
– því að í stórborgum viðgengst oft
meiri kurteisi. Það er rétt svo að
menn séu byrjaðir að bjóða hér góð-
an daginn, komið langt framá árið
2003.
Er ekki hægt að viðurkenna ást
konu til manns af því að hann er
þjóðareign? Kannski er hún líka okk-
ar eign, kannski erum við eign hvert
annars. Hún hellti uppá kaffi fyrir
hann meðan hann skrifaði sögurnar
sínar eða var það kannski hann sem
hellti uppá fyrir hana? Það er nauð-
synlegt að það sé hellt uppá í þessu
plássi. Þessvegna ættum við að sýna
henni þá lágmarks kurteisi að hafa
skoðanaskipti ánþess að við verðum
alvarlega vitlaus. Þar ætti forsætis-
ráðherra að ganga á undan með góðu
fordæmi og rétta fram höndina ef
lykilfarið í lófanum svíður ekki
ennþá svo sárt.
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR
rithöfundur.
Um
kurteisi
Frá Elísabetu Jökulsdóttur
Elísabet Jökuls-
dóttir rithöfundur.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Gömul og þekkt bátasmiðja á Vesturlandi. 6 starfsmenn. Mikil verkefni og
góður hagnaður. Gæti hentað til flutnings hvert á land sem er.
Stór heildverslun með neytendavörur.
Þekkt barnafataverslun í Kringlunni. Mjög góður rekstur.
Veitinga- og skemmtistaður í miðbænum til sölu eða leigu. Gæti verið
hentugt fyrir veisluþjónustur.
Lítið rótgróið iðnfyrirtæki sem framleiðir plastglugga, hurðir og sólstofur.
Góð verkefnastaða. Gæti hentað til flutnings út á land.
Þekkt heildverslun með gjafakort o.fl. Ársvelta 40—50 m. kr.
Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu.
Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.
Lítill söluturn í nágrenni miðbæjarins. Verð aðeins 2 m. kr.
Foldaskáli, Grafarvogi. Söluturn í sérflokki með myndbönd, grill og ís.
Stöðug velta og góð afkoma.
Raftækjaverslunin Suðurveri auk heildverslunar. Rótgróið fyrirtæki með
ágæt umboð. Miklir framtíðarmöguleikar.
Lítil sérverslun með fatnað í mjög góðu húsnæði við Laugaveg. Þekkt
umboð.
Þekkt dekurstofa. Nudd, Eurowave, hljóðbylgjutæki, leirpottur, ljós,
naglaborð. Aðveld kaup. Rekstrarleiga með kauprétti kemur til greina.
Ein besta lúgusjoppa landsins. Mikil sala í grilli. Góður hagnaður.
Tveir pizza „take-out“-staðir úr stórri keðju. Vel staðsettir með öllum
búnaði.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
L.A. Café Laugavegi. Góður matsölu- og skemmtistaður með 100 sæt-
um. Löng og góð rekstrarsaga.
Bílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4—5 starfsmenn. Vel tækjum
búið, í eigin húsnæði á góðum stað.
Glæsileg tískuvöruverslun í stórri verslunarmiðstöð. Góð viðskiptasam-
bönd.
Kaffi Espresso í Grafarvogi. Nýtt og glæsilegt kaffihús á besta stað í
Spönginni. Miklir möguleikar. Auðveld kaup.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Traust jarðverktakafyrirtæki á Austurlandi óskar eftir duglegum og heið-
arlegum meðeiganda sem hefur reynslu á þessu sviði. Viðkomandi
verður að leggja fram a.m.k. 10 m. kr. í peningum. Mjög góð verkefna-
staða og mikil tækifæri framundan.
Vélaverkstæði í Keflavík með alhliða málmsmíði. Vel tækjum búið.
Gott fjárfestingartækifæri. Stórt hótel á landsbyggðinni í öruggri útleigu.
Skipti á fasteign í Reykjavík koma til greina.
Hálendismiðstöðin Hrauneyjum er fáanleg til rekstrarleigu með kaup-
rétti. Gisti- og veitingastaður með mikla sérstöðu og góðan rekstur.
Mjög gott tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu sem hefur gaman af há-
lendinu og langar að eignast eigið fyrirtæki.
Gott fyrirtæki með flúðasiglingar til sölu að hluta eða að öllu leyti. Mikill
vöxtur - miklir möguleikar.
Þekkt heildverslun með tæki og búnað fyrir byggingaverktaka.
Rammamiðstöðin, Síðumúla, óskar eftir sameiningu eða samstarfi við
rekstur sem fer saman við rammagerð - gallerí.
Lítil en þekkt heildverslun með trésmíðavélar o.fl. Góð umboð. Tilvalið
fyrir trésmið sem vill breyta um starf.
Glæsileg snyrtivöruverslun á Laugavegi. Eigin innflutningur að hluta.
Þekkt sérverslun með 130 m. kr. ársveltu. Rekstrarhagnaður 11 m. kr.
Tveir thailenskir skyndibitastaðir ásamt ísbúð. Mikil velta og ört vax-
andi.
Gæludýraverslun í Keflavík. Skemmtilegt tækifæri fyrir dýravini.
Rótgróinn lítill matsölustaður í Hafnarfirði. Mjög gott fyrirtæki fyrir kokk
eða fólk sem kann að elda góðan heimilismat.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Ísbúð, myndbönd og grill á góðum stað í austurbænum. Gott tækifæri.
Söluturn og myndbandaleiga í Hafnafirði, tilvalið sem fyrsta fyrirtækið.
Verð 4,5 m. kr.
Glæsileg efnalaug í góðu hverfi. Eigið húsnæði.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658