Morgunblaðið - 19.10.2003, Side 35

Morgunblaðið - 19.10.2003, Side 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 35 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða þér ævintýraferð með sérflugi sínu til einnar fegurstu eyju Karíbahafsins, Dóminíska lýðveldisins. Hér getur þú valið um glæsilegan aðbúnað, spennandi kynnisferðir og notið lífsins við fegurstu aðstæður. Glæsileg 4 og 5 stjörnu hótel í boði og í öllum tilfellum nýtur þú traustrar þjónustu farar- stjóra Heimsferða sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Síðustu sætin Verð kr. 69.950 Flugsæti og skattar. Verð kr. 89.950 Flug, skattar, gisting á Barcelo Colonia, 7 nætur. Íslensk fararstjórn. Karíba- hafið 13. nóvember frá kr. 69.950 Sérflug Heimsferða Munið Mastercard ferðaávísunina Glæsihótel við ströndina UNDIR fyrirsögninni „Stórvirki 20. aldar“ var eftirtektarverðum áfanga náð á bráðum aldarfjórðungs löngum ferli Caput-hópsins sem fremstu framvarðarsveitar okkar í nýrri listmúsík. Það gerðist á Tí- brártónleikum s.l. miðvikudags þeg- ar Le marteau sans maître eftir Pierre Boulez var flutt á Íslandi í fyrsta sinn, ásamt Pierre lunaire eft- ir Arnold Schönberg er síðast var hér á dagskrá fyrir meira en tuttugu árum. Aðsóknin var eftir því mynd- arleg (sumpart að vísu fyrir öflugri forkynningu í fjölmiðlum en algeng- ast er), jafnvel þótt tónleikagestir næðu ekki alveg að fullskipa 300 sætin í Tónlistarhúsi Kópavogs. Le Marteau fyrir altrödd, alt- flautu, víólu, gítar, víbrafón, xylorimbu og slagverk er sögufrægt verk. Það aflaði höfundi sínum heimsathygli eftir frumflutning þess í Þýzkalandi 1955, enda fyrir löngu orðið skylduhlustunarefni í háskóla- kúrsum í tónsögu 20. aldar. Á hinn bóginn virðast, a.m.k. enn sem kom- ið er, mun færri þekkja það af eigin reynslu en afspurn. Vitaskuld ber ekki að útiloka að til sé fólk sem hlustar á „Herralausan hamarinn“ sér til einskærrar ánægju. En tón- félagsfræðingar (sé svoleiðis fólk líka til) myndu trúlega geta sýnt fram á aðra og veigameiri þætti að baki frægð verksins en lýðhylli. Nefnilega fyrst og fremst hvað smíðin er óhemju flókin og gerir fá- dæma nákvæmikröfur til flytjenda. Um það segir líka meira en mörg orð, að líða skyldi nærri hálf öld áð- ur en hérlendir hljómlistarmenn treystu sér loks til atlögu við þetta vandmeðfarna „völundarhús tóna og orða“, eins og það var kallað í tón- leikaskrá. Þar kemur að því sérkennilega fyrirbæri okkar tíma er fyrrgetnir fræðingar gætu nefnt stöðutákn örðugleikans. Eftir að kjörorði vín- arklassíkur um að listinni beri að fela listina var með róttækustu framúrstefnu 20. aldar de facto snú- ið í andhverfu sína, hlaut hlustunar- gildið fyrir áheyrendum óhjákvæmi- lega að þoka fyrir þeim „status“ meðal kollega, sérhæfðra flytjenda og vilhallra gagnrýnenda er tón- skáld gátu hlotið fyrir að semja ill- eða óspilanleg verk. Og vitanlega um leið þeir fáu hljómlistarmenn er við þau réðu. Kannski er nýjasta einstaklingsdæmið um það hér um slóðir þegar Kolbeinn Bjarnason flautuleikari kleif mannskaðatind Ferneyhoughs, Unity Capsule, fyrir fjórum árum. Ætli sé ekki óhætt að spá að flutn- ingur Caputs verði sömuleiðis í minnum hafður sem álíka glæsileg hópframmistaða, þegar senn fimm- tugur hamar Pierres Boulez var fyrst klifinn á Íslandi. Fyrir viðmið- unarsnauðan hlustanda, er síðast heyrði verkið af hljómplötu fyrir álíka löngu og þegar fyrirmynd þess Pierrot Lunaire var fyrst flutt hér á landi, var alltjent næsta vonlaust að greina snöggan blett á leiftursnarpri spilamennsku Caputinga. Þeir lyftu hér sannkölluðu grettistaki með að virtist lygilega lítilli fyrirhöfn, þrátt fyrir sífelld takttegundaskipti – snyrtilega slegin af stjórnandanum, Guðmundi Óla Gunnarssyni – og mýgrút fingur- og heilabrjóta af að- allega hrynrænum toga. Og þó að undirrituðum væri að mestu hulið hvað héldi 40 mínútna langri smíð- inni saman í formi (torskilinn symb- olískur ljóðatexti Renés Char bætti þar lítið úr skák, enda varð maður sjaldnast var við tónræna textamál- un að hætti Pierrots Lunaire), brá samt fyrir furðumörgum litríkum stöðum, þó að ekki gætti jafnskýrra andstæðuflata og í verki Schön- bergs. Söngkaflar voru í minnihluta, en mynduðu – þrátt fyrir fjölda „ósönghæfra“ risatónbila – engu að síður músíkalskasta efnisþátt verks- ins í framúrskarandi öruggri túlkun hins hljómmikla danska mezzosópr- ans Helene Gjerris. Eftir hlé var komið að hinu kabar- ett-kennda expressjóníska sjöþætta verki Arnolds Schönbergs (1874– 1951) Pierrot Lunaire Op. 21 (1912) fyrir „Sprechstimme“, C-/G-flautu, klarínett/bassaklarínett og píanó- kvartett. Það er samið á „atónölu“ milliskeiði tónskáldsins áður en Schönberg gekk alfarið tólftónaað- ferð sinni á hönd, og fullkomlega í anda hins súrrealíska ljóðaflokks Alberts Giraud í þýzkun O. E. Hartlebens. Þrátt fyrir áberandi framsækni fyrir sinn tíma eru tjá- brigðin í raun rómantísk, þótt undir yfirvarpi fáránleikans sé, enda Pét- ur í tunglinu meðal vinsælustu verka þessa mikla múrbrjóts módernism- ans í dag. Smíðin er álíka löng og Le Marteau en með afbrigðum litskrúð- ug og fjölbreytt, m.a. þökk sé mis- munandi áhöfn fyrir hvern þátt, og borin uppi af bæði sterku ljóðrænu textanæmi og óbrigðulum tökum á hljóðfærarithætti. Skilaði hljóðfærasextettinn öllum þeim kostum til lýtalausrar fulln- ustu með spilamennsku í þvílíkum úrvalsflokki að unun var á að hlýða allt til enda. Talsöngur Helene Gjerris var að sama skapi vel út- færður og myndrænn, þótt ekki byði hlutverkið upp á sömu söngrænu til- þrif og í Boulez, auk þess sem styrk- vægið, a.m.k. ofan af hliðarsvölum, virtist Gjerris nokkuð í óhag. Eftir sem áður var frammistaðan tví- mælalaust glæsileg nelka í hnappa- gati flytjenda, er áttu vissulega er- indi sem ómælt erfiði. Kom það ekki sízt fram af eldheitum undirtektum áheyrenda, er gátu líkt og í fyrra verkinu stuðzt við skáldlegar þýð- ingar Þorsteins Gylfasonar í tón- leikaskrá. Hin torkleifu stöðu- tákn örðugleikans TÓNLIST Salurinn Boulez: Le marteau sans maître. Schön- berg: Pierrot Lunaire. Helene Gjerris mezzósópran og CAPUT hópurinn (Kol- beinn Bjarnason C- & altflauta, Pétur Jónasson gítar, Guðmundur Kristmunds- son víóla, Pétur Grétarsson víbrafónn, Steef van Oosterhout xylorimba, Frank Aarnink slagverk, Daníel Þorsteinsson píanó, Guðni Franzson klarínett/ bassaklar., Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Þórunn Ósk Marínósdóttir víóla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló.) Stjórnandi: Guð- mundur Óli Gunnarsson. Miðvikudaginn 15. október kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.