Morgunblaðið - 21.10.2003, Side 52
KVIKMYNDIN Bana Billa (Kill
Bill) eftir Quentin Tarantino er á
toppnum í Bandaríkjunum og var
frumsýnd hérlendis um helgina.
Förðunarmeistarinn Heba Þór-
isdóttir sér um förðun í myndinni og
hefur góða reynslu af því að vinna
með Tarantino. „Þetta var alveg frá-
bært. Quentin er algjör meistari á
tökustað. Hann er mikill snillingur.
Til dæmis notar hann enga „monit-
ora“ á settinu heldur situr fyrir
framan myndavélina. Þetta er mjög
óvenjulegt og minnir á gömlu leik-
stjórana,“ segir hún.
Maður orða sinna
Tarantino er maður orða sinna
eins og Heba hefur komist að en að-
dragandinn að því að hún fór að
vinna við myndina er skemmtilegur.
„Ég fór í heimsókn á tökustað á
Jackie Brown. Ég hafði áður verið að
vinna með David Lynch og þegar ég
kom fannst mér það minna á stemn-
inguna á tökustað hjá David. Bæði
tilfinningin á tökustaðnum og hvern-
ig hann rekur hann. Það er mikið
hlegið og haft gaman af
hlutunum. Andrúms-
loftið var alveg frá-
bært,“ segir Heba, sem
kom þessum áhuga til
skila. „Ég sagði við
hann: Quentin, ég verð
að fá að vinna með þér í
næstu myndinni þinni,
mér er alveg sama þótt
ég verði að sópa gólf!
Hann hringdi í mig sex
árum seinna og sagði:
Heyrðu ég man alltaf eftir því þegar
þú sagðist vilja vinna í minni næstu
mynd. Núna er ég að fara að gera
mynd,“ segir hún um upphafið.
Tvídrangar og Beverly Hills
Heba hefur búið í 16 ár í Los Ang-
eles og býr þar með tveimur sonum
sínum. Hún kom til borgarinnar í
þeim tilgangi að læra förðun rúm-
lega tvítug að aldri. Hún býr svo vel
að eiga stórfjölskyldu í Los Angeles
en tvær systur hennar búa þar einn-
ig og er önnur þeirra gift Sigurjóni
Sighvatssyni. „Á meðan ég var í
skólanum byrjaði ég að vinna á setti
með Jonna, að sjá um matinn þar og
svona og líka læra enskuna,“ segir
hún.
Hún hefur m.a. starfað með David
Lynch í Tvídröngum (Twin Peaks),
bæði í þáttunum og myndinni, og
líka vinsælu framhaldsþáttunum
Beverly Hills 90210. Heba vann við
gerð rokkmyndbanda í mörg ár og
svo líka auglýsingagerð. Einnig hef-
ur hún starfað við tímarit og segir að
vart sé hægt að finna betri borg en
Los Angeles að búa í sem förð-
unarmeistari þótt hún viðurkenni að
hún sakni Íslands, sérstaklega eftir
heimsóknir.
Enginn harðstjóri
Hún segir gott að vinna með Tar-
antino. „Hann hlustar á alla, til
dæmis ef einhver kemur fram með
góða hugmynd og hugmyndin er not-
uð, þá færðu verðlaun. Hann er eng-
inn harðstjóri,“ segir Heba, sem
dvaldi í Kína við tökur í nokkra mán-
uði.
„Áhugi Quentins á kvikmyndum,
bæði að horfa á þær og
eins að búa þær til, er
svo smitandi að í enda
dags vildu fáir fara
heim! Þetta var eins og
að fara heim til Quent-
ins að leika sér. Við vor-
um eins og samrýnd
fjölskylda,“ segir Heba.
Hún segir handbragð
Tarantinos auðþekkj-
anlegt. „Í öllum slags-
málaatriðunum sérðu
alveg að Quentin er að leikstýra
þeim. Hann leikstýrði þessu frá A til
Ö og hans handbragð er á öllu,“ segir
hún. Master Yuen Wo Ping var ráð-
gjafi Tarantinos í bardagaatriðunum
en leikstjórinn útfærði þau sjálfur
öfugt við það sem var í t.d. í Matrix-
myndunum þar sem Yuen Wo Ping
sá alfarið um útfærsluna.
Áhersla á augun
Áherslan var lögð á augun í förð-
uninni en Tarantino vildi hafa förð-
unina náttúrulega. „Það var gaman
að vinna að förðuninni með honum.
Hann vildi fá náttúrúlega förðun á
alla. Myndin er tekin í anda mynda-
sagna og fannst mér viðeigandi að
leggja aðaláhersluna á augun á leik-
urunum. Eins og með Daryl Hannah
þá var það mikil áskorun þar sem
hún er bara með eitt auga (en hitt
hylur leppur). Spurningin var hvern-
ig maður gat gert hana áberandi.
Fólk notar svo mikið augun til að tjá
sig. Það var gaman að reyna að vinna
úr því. Við notuðum mikið af fölskum
augnhárum og þess háttar til að
draga augun fram,“ segir Heba.
Aðspurð segir Heba ánægjulegt
að taka þátt í mynd, sem nýtur svona
velgengni. „Það er náttúrulega rosa
gaman,“ segir Heba sem fór á frum-
sýninguna á Bana Billa í New York
og Los Angeles.
Cate Blanchett næst
Vinna við kvikmyndir er mikil
tarnavinna og vinnudagurinn oft
langur. „En sem betur fer er Quent-
in ekkert sérlega morgunglaður
þannig að við byrjuðum ekkert á
ókristilegum tíma nema þegar við
vorum að taka úti. Vinnudagurinn er
langur og í Kína unnum við oft 17–18
tíma á dag,“ segir Heba.
Heba er komin til Rómar þar sem
hún dvelst í tvo mánuði í vinnu við
nýjustu mynd Wes Andersons (The
Royal Tenenbaums). Um er að ræða
myndina Life Aquatic, þar sem
Heba verður sérlegur förð-
unarmeistari Cate Blanchett, en
einnig leika í myndinni Bill Murray,
Anjelica Huston, Owen Wilson og
Willem Dafoe.
Heba er ánægð með að vera komin
aftur í kvikmyndabransann eftir
nokkurt hlé. „Þetta er erfiður bransi,
en mér finnst þetta skemmtilegt.“
Heba Þórisdóttir er förðunarmeistari í Bana Billa, nýrri mynd frá Quentin Tarantino
Hringdi sex
árum seinna
Leikkonurnar Lucy Liu (O-Ren Ishii) og Julie Dreyfus (Sofie Fatale) úr Bana Billa slappa af ásamt Hebu Þór-
isdóttur í grillveislu, sem haldin var í góða veðrinu í Kaliforníu í tengslum við myndina.
Heba að störfum á settinu á Bana Billa. Hér er hún að setja blóð í augun á
Chiaki Kuriyama, sem leikur Go Go Yubari.
Íslensk kona hafði yfirumsjón með förðun í
nýjustu mynd Quentins Tarantinos. Inga Rún
Sigurðardóttir ræddi við Hebu Þórisdóttur í
Los Angeles um samskiptin við meistarann.
ingarun@mbl.is
Áhugi Quentins
á kvikmyndum
er svo smitandi
að í enda dags
vildu fáir fara
heim! Þetta var
eins og að fara
heim til Quent-
ins að leika sér.
52 ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í myndinni.
Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
SG DV
Empire Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
Sýnd kl. 6.
SG MBLSG DV
Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05 og 10.15.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í myndinni.
Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10. B.i. 16.Kl. 6 og 8. B.i. 14.
6 Edduverðlaunl
SG DV
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
ATH!AUKASÝNINGKL. 9.05
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 10.