Morgunblaðið - 26.10.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 290. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Espólín
frá Espihóli
Norðmaður leitaði heimilda um
Espólína fyrr og nú | Sunnudagur B5
Rætur í
Hamrahlíð
Lífsorka og sköpun einkenndi
starfsemi Diabolus | Fólk 50
Aftur í
djassinn
Van Morrison í hlutverki djass-
söngvara á nýrri plötu | 20
Í NOREGI er skattaálagningin birt á Netinu
og þar er hún opin öllum, jafnt börnum sem
fullorðnu fólki. Í sumum skólabekkjum hefur
borið á því, að börnin hafi verið flokkuð í 10
efstu og 10 neðstu miðað við skatta eða tekjur
foreldranna og þeim, sem eru á botninum,
finnst sem þau séu lögð í einelti.
Margir hafa haft samband við umboðs-
mann barna og fjármálaráðuneytið og sagt
frá því hvernig þessar upplýsingar eru not-
aðar og oft sem einhvers konar skemmti- eða
stríðnisefni. Kom þetta fram í Aftenposten.
Að frumkvæði norska fjármálaráðuneytis-
ins verður lagt fram frumvarp á þingi um að
takmarka aðgang að skattskrám, til dæmis
með því að hafa þær ekki á Netinu nema í
þrjár vikur. Segir Anne-Sissel Skånvik, deild-
arstjóri, að fjármálaráðuneytinu hafi borist
margvíslegar upplýsingar um það hvernig
þær séu misnotaðar, meðal annars af glæpa-
lýð, sem velji fórnarlömb sín út frá þeim.
Skattskrár
á Netinu
auka einelti
FYRSTI vetrardagur stóð ekki undir nafni á
höfuðborgarsvæðinu í gær, laugardag, en
hlýtt loft fór yfir landið og klukkan sex um
undanfarin ár. Þessar ungu stúlkur kunnu
að meta blíðuna og léku sér undir skýja-
myndum í grjótinu við Kópavogskirkju.
morguninn var 7 stiga hiti í Reykjavík. Sam-
kvæmt upplýsingum Veðurstofu hefur með-
alhiti í október verið á bilinu 2 til 5 gráður
Morgunblaðið/Kristinn
Vetur heilsaði með hlýindum
RÚSSNESKUR námuverkamaður veifar til við-
staddra eftir að búið var að bjarga honum úr
tveggja sólarhringa langri prísund í námu í í
Novoshakhtinsk í Suður-Rússlandi í gær. Búið
var að bjarga ellefu námamönnum um hádegið að
íslenskum tíma en a.m.k. einn þeirra var illa hald-
inn. Yfirvöld sögðu að staðfest væri að a.m.k. 33
námamenn væru á lífi en alls voru 46 innilokaðir.
AP
Bjargað
úr prísundinni
MIKIL ólga er í Rússlandi eftir
að forstjóri Yukos-olíurisans,
Míkhaíl Khodorovskí, var hand-
tekinn á flugvelli í Síberíu, yfir-
heyrður og síðan ákærður fyrir
skatt- og fjársvik. Segja frétta-
skýrendur að þessir atburðir
kunni að draga dilk á eftir sér og
forystumenn í stjórnmálum og
viðskiptalífi Rússlands höfðu
þegar lýst áhyggjum sínum.
Khodorovskí var handtekinn á
flugvellinum í Novosibirsk eld-
snemma í gærmorgun. Vopnaðir
sérsveitarmenn gerðu áhlaup á
flugvél hans og var síðan flogið
með Khodorovskí til Moskvu þar
sem hann var yfirheyrður.
Khodorovskí er einn af ríkustu
mönnum Rússlands, einn þeirra
sem auðguðust í lagalegu ringul-
reiðinni eftir hrun Sovétríkjanna.
Stalínískir stjórnarhættir?
Saksóknarar í Rússlandi hafa
um nokkurra mánaða skeið rann-
sakað Yukos á grundvelli grun-
semda um skattsvik og þjófnað á
eigum ríkisins. Fréttaskýrendur
segja hins vegar að rannsóknirn-
ar séu að hluta til liður í pólitísku
valdatafli og að með aðgerðunum
í gær hafi Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, m.a. verið að refsa
Khodorovskí fyrir að styðja
stjórnarandstöðuöfl í landinu.
Grígorí Javlinskí, leiðtogi Jab-
loko-umbótaflokksins sem nýtur
stuðnings Yukos, sakaði Pútín
einmitt um það á föstudag að
hafa innleitt stalíníska stjórnar-
hætti að nýju í Rússlandi. „Þetta
minnir okkur á fortíðina, hefur
sömu einkenni og það kerfi sem
búið var til í Rússlandi á þriðja
áratugnum. Í dag búum við við
kapítalisma með stalínískri
ásjónu,“ sagði Javlinskí.
Moskvu. AFP, AP.
Pútín leggur til at-
lögu gegn olíurisa
sjálfstæðri rannsókn um langan tíma
og vakti athygli ríkissaksóknara og
lögreglu á málinu í sumar. Í framhaldi
af umræðum sem urðu um samskipti
Samkeppnisstofnunar og lögreglu og
ákæruvalds sagðist Bogi Nilsson rík-
issaksóknari álíta að það færi þvert
gegn markmiðum um skilvirkni og
hagkvæmni í rannsóknum á brotum á
samkeppnislögum að tveir aðilar
rannsökuðu sama málið samhliða en
tók fram að lögin bönnuðu það ekki.
Bogi Nilsson segist enn þeirrar
skoðunar að svona mál ætti að af-
greiða í einum farvegi og hafi hann til-
kynnt Samkeppnisstofnun formlega
að rannsókn lögreglu væri hafin.
RÍKISSAKSÓKNARI hefur tilkynnt
Samkeppnisstofnun með formlegum
hætti að lögreglurannsókn sé hafin á
ætluðum brotum olíufélaga og starfs-
manna þeirra á samkeppnislögum.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari lýsti
þeirri skoðun sinni í ágúst að æskilegt
væri að slík rannsókn væri í einum
farvegi og ítrekar hann þá skoðun
sína nú í samtali við Morgunblaðið.
Samkeppnisstofnun heldur áfram
með sína rannsókn.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra hefur tekið til rannsóknar ætl-
uð brot þriggja olíufélaga og starfs-
manna þeirra á samkeppnislögum.
Samkeppnisstofnun hefur unnið að
Spurður að því í hverju það felist seg-
ir ríkissaksóknari að hann geti ekki
sagt Samkeppnisstofnun hvað henni
beri að gera. Hins vegar telji hann að
stofnunin verði nú að taka tillit til
hagsmuna lögreglurannsóknarinnar.
Í því sambandi nefnir Bogi að þeg-
ar starfsmenn Samkeppnisstofnunar
eigi samskipti við þá sem hugsanlega
verða sakborningar í málinu verði
þeir að taka tillit til þeirra reglna sem
gætt er við lögreglurannsóknir, m.a.
um að þeir þurfi ekki að svara spurn-
ingum um sakarefnið eða veita lið sitt
við að upplýsa ætluð brot. Þetta sé ein
af grundvallarreglum rannsóknar op-
inberra mála. Þá nefnir ríkissaksókn-
ari að þetta verði einnig að hafa í huga
við kynningu á gögnum málsins fyrir
hugsanlegum sakborningum í lög-
reglurannsókninni, það kunni að fara
í bága við hagsmuni rannsóknarinnar.
Halda áfram rannsókn
Ásgeir Einarsson, yfirlögfræðing-
ur Samkeppnisstofnunar, segir að
rannsókn sé haldið áfram en vill að
öðru leyti ekki tjá sig um málið. Sam-
keppnisstofnun kynnti olíufélögunum
í byrjum árs skýrslu um fyrri frum-
athugun sína og hefur fengið andsvör
frá Olíufélaginu hf. Komið hefur fram
að stofnunin er að vinna skýrslu um
frumathugun á öðrum atriðum.
Ríkissaksóknari tilkynnir Samkeppnisstofnun um rannsókn lögreglu
Verða að taka tillit til hags-
muna lögreglurannsóknar
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu
sögðust í gær reiðubúin að íhuga
tilboð George W. Bush Banda-
ríkjaforseta um að ef þau legðu
kjarnorkuáætlanir sínar til hliðar
myndu Bandaríkjamenn gefa út
skriflega yfirlýsingu þess efnis
að engin áform væru uppi um
hernaðaraðgerðir gegn landinu.
Norður-Kóreumenn höfðu
upphaflega hafnað málamiðlun
Bush sem hann viðraði þegar
hann var staddur í Bangkok í
Taílandi fyrir viku. Sögðust þeir
þá ekki sætta sig við neitt minna
en formlegt samkomulag við
Bandaríkin.
Mildari af-
staða Norð-
ur-Kóreu
Seoul. AP.