Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 10
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins og utanríkisráðherra, sagðist í ræðu í upphafi miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins í gær vera sannfærður um að misrétti felist í hrein- um og tærum markaðslausnum í heilbrigðisþjón- ustunni. „Þeir eru fjölmargir sem stíga nú fram á op- inberum vettvangi og tefla fram töfralausnum í heilbrigðismálunum. Umræða um jafnmikilvæg mál er vissulega af hinu góða, en nauðsynlegt er að hún byggist á þekkingu og sanngirni. Þegar um er að ræða heilbrigðismál verður að hafa í huga að á bak við tölur um kostnað við aðgerðir og þjón- ustu eru margvíslegar sögur, einstakar sögur – jafnvel kraftaverk. Sjúkir fá bót meina sinna, njóta bestu mögulegu þjónustu sem hægt er að fá og hver og ein slík saga er í raun einstakur við- burður og fullkomin réttlæting í sjálfu sér á því að bjóða upp á fullkomna heilbrigðisþjónustu,“ sagði Halldór. Hann sagði að það sem horft væri til í þessum efnum væri markaðslausnin og sagði síðan: „Gæt- um við verið viss um að sjúklingurinn hefði getað greitt lyfin án þess að samfélagið kæmi þar nærri, eða dýra aðgerð? Værum við viss um að markaðs- lausnin hefði skilað heilbrigðu barni aftur í faðm foreldra sinna?“ Halldór sagði að þetta mætti ekki skilja á þann veg að hann væri á móti fjölbreytileika í þessum efnum. Hins vegar væri þjónustan og gæði hennar lykilatriði og okkur bæri skylda til að tryggja góða þjónustu og veita nauðsynlegt öryggi í heilbrigð- ismálum. „Eru markaðslausnirnar í heilbrigðis- þjónustunni hagur hins sjúka? Eða eru menn kannski að tala um hagsmuni heilbrigðisstéttanna og fyrirtækjanna þegar þeir halda fram markaðs- lausnum með miklum látum? Og hverjir eru svo hagsmunir skattborgaranna?“ Höfum náð miklum árangri Halldór sagði í ræðunni ennfremur að alþjóð- legar mælingar staðfestu að við hefðum náð mikl- um árangri í að treysta stoðir efnahagslífsins og leggja grunn að áframhaldandi hagvexti og vel- megun. Vék hann meðal annars að ferðaþjónust- unni og þeim miklu möguleikum sem í henni fæl- ust og sagði að gert væri ráð fyrir að fjöldi ferðamanna hingað til lands myndi tvöfaldast á næstu sjö árum eða fram til ársins 2010. Nýjar farþegaþotur þyrfti til að flytja þessa farþega og hver og ein þeirra veitti 200 manns atvinnu. Halldór sagði að við Íslendingar stæðum nú við upphaf nýs hagvaxtarskeiðs. „Það sem er einstakt við þessi tímamót nú, er að drifkrafturinn kemur úr nýrri átt. Það er ekki hér á höfuðborgarsvæð- inu sem boltinn byrjaði að rúlla. Í dag er Austur- land miðpunktur athyglinnar. Það er ekki síst Austurland sem fyrirtækin horfa til, hvort sem um er að ræða banka, verslanir eða þjónustufyrir- tæki. Flugþjónusta eykst, fólki fjölgar, fasteigna- verð hækkar, verktakar hefjast handa, barist er um byggingarlóðir. Það blasir nýtt Austurland við hverjum sem þangað kemur þessa dagana,“ sagði hann í ræðunni. Hann sagði að Framsóknarflokk- urinn hefði tekið að sér málaflokka atvinnu- og byggðamála. „Við erum stolt af verkum okkar síð- ustu árin, og erum hvergi nærri hætt. Við höfum mikinn metnað fyrir hönd íslensks atvinnulífs, hvar á landinu sem er og viljum leggja okkar af mörkum til að búa því sem best skilyrði. Hlutir gerast ekki af sjálfu sér. Það þarf alltaf eitthvert afl til að koma hlutum af stað og á réttan stað. Það er hlutverk ríkisins að skapa skilyrði til þess að at- vinnulíf hér á landi blómstri. Við höfum gripið til aðgerða í því sambandi. Tekjuskattur fyrirtækja er t.a.m. með því lægsta sem þekkist,“ sagði hann. Halldór sagði einnig að hann væri þeirrar skoð- unar að menntamál væru einhver mikilvægustu verkefni samfélagsins í framtíðinni, bæði hvað snerti öll skólastigin og einnig símenntun og end- urmenntun. Lagði hann til að málefnanefnd mið- stjórnar yrði falið að setja á laggirnar sérstakan umræðuhóp um menntamál sem myndi skila skýrslu til miðstjórnar, sem hægt yrði að nýta í ríkisstjórnarsamstarfinu og almennri stefnumót- un í flokksstarfinu til framtíðar. „Enn á ný hefur Framsóknarflokkurinn tekið á sig mikla ábyrgð í stjórn landsmála og framþróun samfélagsins. Það gerum við á grundvelli hug- sjóna okkar og framtíðarsýn. Það gerum við á grundvelli bjartsýni okkar á framtíð Íslands, en um leið þess raunsæis sem er nauðsynlegt til að koma málum fram. Við gerum það í einlægum vilja til að láta gott af okkur leiða. Við gerum það ekki í þeim anda að við getum leyst allt sem steðjar að, heldur fullviss um að ekkert fái stöðvað framþróun samfélagsins ef skynsamlega er staðið að málum. Verkefnin blasa hvarvetna við. Við skulum ræða þau hér og þau mál sem okkur brenna í brjósti. Að því loknu skul- um við ganga samhent af fundi til okkar verka. Samstaðan og samvinnan hafa ávallt verið okk- ar styrkur. Þess vegna erum við það sem við erum og þess vegna hefur íslensk þjóð falið okkur ábyrgð,“ sagði Halldór að lokum. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, fjallaði meðal annars um heilbrigðismál í ræðu sinni á miðstjórnarfundi flokksins í gær Sannfærður um að misrétti felist í markaðslausnum Morgunblaðið/Kristinn FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGMENN spara ekki alltaf stóru orðin í umræðum á Alþingi. A.m.k. hafa þau ekki verid spöruð síðast- liðnar þingvikur. Og í vikunni gengu skeytin a víxl milli Framsókn- arflokksins og Samfylkingarinnar. Til að mynda líkti Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherra, Halldóri Ás- grímssyni, við strút sem stingi höfð- inu í sandinn og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra líkti Samfylk- ingunni við sundurlausan her, sem væri ómerkilegur í málflutningi. Guðni fullyrti ennfremur að Össur Skarphéðinsson væri með höfuðverk; sagðist sjá það „langar leiðir úr ræðustól“ og Össur sagði að eina lausnin á vanda sauðfjárbænda væri að skipta um landbúnaðarráðherra. „Herra forseti. Hæstvirtur utan- ríkisráðherra er nýlega kominn frá Afríku og ég býð hann velkominn úr þeirri miklu för,“ sagði Össur í upp- hafi ræðu sinnar um utanríkismál á fimmtudag. „Ef hæstvirtur utanrík- isráðherra hefur farið nógu norð- arlega kann að vera að hann hafi séð þar á ferðalögum sínum sérkennilega fuglategund sem lifir á jaðri eyði- marka. Hún er þekkt um víða veröld fyrir þá sérkennilegu háttsemi sína að ef hún sér eitthvað sem er óþægi- legt eða hún hræðist, þá stingur hún höfðinu í sandinn. Þá líður strútnum miklu betur því að heimurinn lítur svo miklu betur út fyrir honum ofan í sandgryfjunni heldur en uppi, í raun- veruleikanum sem við hin lifum og hrærumst í.“ Bætti Össur því við að honum fyndist þessi aðferð strútsins lýsa best nálgun utanríkisráðherra gagnvart þeim vandamálum sem blöstu við í utanríkismálum líðandi dags. „Hæstv. ráðherra hefur valið þann kost að stinga höfðinu í sandinn og lætur eins og það séu engin vandamál,“sagði Össur ennfremur. Fyrr í vikunni fór fram umræða um vanda sauðjárbænda. Þar féllu einnig stór orð. „Herra forseti. Mað- ur verður sífellt hissa þegar madur hlustar a Samfylkinguna í hvers lags brotum hún er. Þetta er sundurlaus her sem er óvæginn og ómerkilegur í málflutningi,“ sagði Guðni Ágústs- son, eftir að Jóhann Ársælsson, þing- maður Samfylkingarinnar, hafði lýst því m.a. yfir að það væri engin fram- tíðarlausn fólgin í því að greiða sauð- fjárbændum 140 milljónir kr. Síðan sagði ráðherra: „Kemur ekki svarti herinn úr Samfylkingunni hér upp í dag…“ Eftir að þessi orð féllu, kall- aði einhver úr þingsal spyrjandi: „Svarti herinn?“ Guðni útskýrði ekki nánar hvað hann ætti við með þeirri líkingu en hélt áfram og sagði að honum leiddist málflutningur Sam- fylkingarinnar. „Mér finnst hann ekki málefnalegur. Ég sé að formað- ur Samfylkingarinnar fær höfuðverk yfir þessu öllu saman,“ bætti ráð- herra við og fór síðan að útskýra vanda sauðfjárbænda. Össur, sem fram að þessu hafði ekki tekið til máls í umræðunni um sauðfjárbændur, sá greinilega ástæðu til að svara fyrir sig. „Það þýðir ekkert fyrir hæstvirtan ráð- herra að koma hingað og hella fúk- yrðum yfir þá þingmenn sem benda á þá augljósu staðreynd að á meðan hæstvirtur ráðherra hefur setið á rassinum sínum aðgerdarlít- ill…hefur fjarað undan sauð- fjárbændum.“ Síðan sagði hann: „Ég spyr frú forseti, er ekki eina lausnin á vanda sauðfjárbænda í dag sú að skipta um landbúnaðarráðherra?“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, heyrðist þá kalla úr þingsal: Hvaðan á sá nýi að koma? Seinna þegar Guðni kom aftur í pontu, fór hann aftur að tala um meintan hausverk Össurar: „Herra forseti. Ég sá það langar leiðir úr ræðustól áðan að háttvirtur þing- maður Össur Skarphéðinsson er með höfuðverk í dag. Málflutningur hans er fyrir neðan allar hellur. Auðvitað hefur sýnt sig að Samfylkingin kann ekkert í landbúnaðarmálum og hefur aldrei kunnað.“ Bætti hann því auk- inheldur við að enginn skildi ræður Jóhanns Ársælssonar um kvótakerf- ið í sjávarútvegi. Fyrir þá sem fylgjast með utanfrá eru snerrur sem þessar langt frá því að vera vinsamlegar eda „dipló“ ef svo má að orði komast. Þrátt fyrir það er þó iðulega farið eftir þing- sköpum og þingvenjum, þ.e. venju- lega er sagt: háttvirtur þingmaður eða hæstvirtur ráðherra. Af þeim sökum getur því verið öfugsnúið að heyra þingmenn segja t.d. að „hæst- virtur ráðherra“ sitji á rassinum að- gerðalaus! Eða að ræður „háttvirts þingmanns“ séu afskaplega leið- inlegar. Þegar betur er að gáð rista þessi hörðu ummæli þó sjaldnast mjög djúpt. Þeir sem verða, að því er virð- ist, afar reiðir í þingræðum eru a.m.k. ótrúlega fljótir að jafna sig; þannig sér maður oft þingmenn sem hafa tekist harkalega á í þingsalnum, sitja saman eftir snerrurnar í öðrum sal; matsal þinghússins og ræða þar saman í sátt og samlyndi um allt önn- ur og hversdagslegri málefni… þ.e. málefni sem þeir geta verið sammála um.      Skeytin ganga á víxl EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is STURLA Gunnarsson, kvikmyndaleikstjóri í Kanada, ætlar að taka upp kvikmynd hér á landi næsta sumar og verður myndin að öllu leyti tekin upp hér á landi. Þetta kom fram í ræðu Halldórs Ás- grímssonar, formanns Framsóknarflokks- ins, á miðstjórnarfundi í gær. Sagði Hall- dór að myndin yrði tekin upp á Hornafirði og næmi kostnaður hundruðum milljóna króna. Halldór sagði að fleiri stór kvikmynda- verkefni væru til skoðunar og hefðu lög um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, sem Framsóknarflokkurinn hefði beitt sér fyrir, hleypt nýju lífi í þennan iðnað hér á landi og væri það í langflestum tilvikum landsbyggðin sem nyti góðs af. Kvikmynd tekin upp á Hornafirði næsta sumar Halldór Ásgrímsson, Siv Friðleifsdóttir og Guðni Ágústsson á miðstjórnarfundinum í gær. LAXAR af eldisuppruna eiga stóra hlutdeild í hærri veiðitölum í laxveiði í norskum laxveiðiám síðustu sumur og þess vegna gefa tölurnar falska mynd af ástandi villtra stofna í land- inu, að sögn Orra Vigfússonar for- manns NASF, Norður-Atlantshafs- laxasjóðsins sem segist undrast þær fullyrðingar í grein Gísla Jónssonar dýralæknis fisksjúkdóma hjá emb- ætti yfirdýralæknis á Keldum, í Morgunblaðinu í vikunni, að góð veiði í norskum ám síðustu ár bendi til að allt sé þar með felldu. Í raun séu villtir laxastofnar í landinu í lág- marki. „Ég er með nýjar tölur úr skrán- ingum í norskum laxveiðiám. Um 20% laxveiðinnar í Alta í fyrrasumar er eldislax, 48% í Namsen og nýlegar tölur sýna 65% í Vosso og 71% í Oeselva, svo ég nefni nokkrar af þeirra frægustu laxveiðiám. Og sum- arið 2002 voru 65% allra stangar- veiddra laxa í ám í Hörðalandi eld- islaxar. Þetta eru nýjar og nýlegar tölur sem lagðar hafa verið fram um strokufiska í laxveiði. Þetta er það sem Gísli Jónsson er að kalla met- veiði síðustu árin,“ segir Orri. Orri bætti við að hann væri ósáttur við framgöngu Gísla Jónssonar í um- ræðunni um þá ógn sem talin er stafa af eldislaxi í nábýli við villta laxa. Eldislax úr slysinu í Neskaupstað, sem veiddist í Breiðdalsá í haust. Eldislax fals- ar veiðitölur FÉLAGSMENN í Félagi bókagerð- armanna hafa samþykkt að sækja um aðild að Alþýðusambandi Ís- lands, samkvæmt niðurstöðu alls- herjaratkvæðagreiðslu sem fram fór í byrjun nóvember. Á kjörskrá voru 1.186 og greiddu 450 atkvæði eða tæplega 38%. Já sögðu 347, eða 77,1%, og nei sagði 91, eða 20,2%. Auðir og ógildir voru 12 eða 2,7%. Samkvæmt ákvörðun aðalfundar um atkvæðagreiðsluna þurfti samþykki 2⁄3 hluta greiddra atkvæða til að aðild teldist samþykkt. Félagið hefur staðið utan sam- bands launafólks allt frá sameiningu þriggja félaga í Félag bókagerðar- manna árið 1980. Fram að þeim tíma höfðu Hið íslenska prentarafélag og Bókbindarafélag Íslands verið aðilar að ASÍ og voru meðal stofnfélaga sambandsins, en Grafíska sveina- félagið stóð utan þess. FBM samþykk- ir aðild að ASÍ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.