Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 42
DAGLEGT LÍF
42 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opið laugardaga
kl. 10-16
Yfirhafnir
í úrvali
Ullarúlpur
Heilsársúlpur
Hattar og húfur
Þ
eir jólasveinar nefndust,
– um jólin birtust þeir,“
segir meðal annars í
jólasveinakvæði Jóhann-
esar úr Kötlum, og víst
er að íslensku jólasveinarnir eru nú
að búa sig undir að arka til byggða
enda nálgast jólin óðfluga. Móðir
þeirra Grýla er líka að rumska, sem
og maður hennar Leppalúði, og jóla-
kötturinn er eflaust farinn að sleikja
út um.
Listamaðurinn Brian Pilkington
gæddi þetta hyski nýju lífi í bókinni
Jólin okkar, sem Mál og menning
gaf út árið 2001, þar sem hann brá
skemmtilegu ljósi á fjölskyldu jóla-
sveinanna og íslenska jólasiði í máli
og myndum, við hlið hinna sígildu
Grýlu- og jólasveinakvæða Jóhann-
esar úr Kötlum, sem fyrir löngu eru
orðin samofin íslenskri þjóðarsál. Og
nú er jólasveinafjölskyldan komin á
kreik á ný, í þetta sinn í formi
styttna, sem eru svo listilega hann-
aðar að engu er líkara en þær stígi
ljóslifandi út úr bókinni.
Unnið með hvert smáatriði
Það er Sólarfilma sem stendur að
þessari útgáfu, í samvinnu við Brian
Pilkington, en stytturnar eru fram-
leiddar í Kína. Sjálfur er listamað-
urinn afar sáttur við hvernig til hef-
ur tekist við framleiðsluna á
styttunum og í sama streng taka eig-
endur Sólarfilmu, hjónin Kathleen
Bearden og Þórhallur Birgisson.
„Við fórum á sýningu í Hong Kong
og völdum þessa framleiðendur úr
hópi fjölmargra sem þar voru, þótt
þeir væru ekki ódýrastir. En okkur
leist best á þessa, enda fullvissuðu
þeir okkur um að þeir myndu ekki
hætta fyrr en við yrðum fullkomlega
ánægð með útkomuna, og þeir hafa
staðið við sitt,“ sagði Þórhallur.
„Þetta hefur líka tekið sinn tíma
enda varð ég að senda gríðarlegan
fjölda leiðréttinga fram og aftur í
tölvupósti á framleiðsluferlinu. Eitt
sinn sendi ég þeim til dæmis Hurða-
skelli til baka því ég var ekki ánægð-
ur með hendurnar á honum. Þannig
unnum við okkur áfram með hvert
smáatriði þar til við vorum öll mjög
ánægð með framleiðsluna,“ bætti
Brian við.
„Stytturnar eru handmálaðar og
gerðar úr efni sem kallað er á fag-
málinu „polyresin“, en við köllum á
íslensku resín. Það efni er notað í
þorrann af styttum, sem eru sam-
bærilegar að gæðum við jólasveina
Sólarfilmu,“ sagði Þórhallur enn-
fremur og bætti því við að samhliða
útgáfu á styttunum hefðu verið
hönnuð sérstök jólaspil, kökudiskur,
viskustykki og svunta, með myndum
af þessum sérstæðu „jólafígúrum“
Pilkingtons, jólasveinunum þrettán,
Grýlu, Leppalúða og jólakettinum.
Hugmyndin væri að koma þessum
varningi einnig á markað erlendis,
en stytturnar eru seldar í vönduðum
umbúðum með texta á ensku eftir
Kathleen, þar sem gerð er grein fyr-
ir hverjum og einum fjölskyldu-
meðlimi. Þráinn Bertelsson skrifar
íslenska textann.
Fastur sess í þjóðarsálinni
Birgir Þórhallsson og Snorri
Snorrason flugmaður stofnuðu Sól-
arfilmu árið 1961 og í upphafi var
áhersla lögð á útgáfu á litskyggnum
af íslensku landslagi og eldfjalla- og
eldgosamyndum. Fyrirtækið hóf
brátt að gefa út póstkort og síðar
tækifæriskort af ýmsu tagi. Sól-
arfilma gefur enn út póstkort enda
þótt öll önnur kortaútgáfa hafi verið
seld úr rekstrinum fyrir nokkrum
árum. Nú einbeitir Sólarfilma sér að
framleiðslu og útgáfu á minjagrip-
um, gjafavöru og póstkortum.
„Við höfum verið í samstarfi við
Brian Pilkington í tíu ár og þegar við
sáum útfærslu hans á íslensku jóla-
sveinunum og foreldrum þeirra í
bókinni Jólin okkar vissum við að
hér var eitthvað á ferðinni sem vert
var að skoða nánar. Niðurstaðan
varð þessi og við eigum ekki von á
HÖNNUN| Styttur af íslensku jólasveinunum í útfærslu listamannsins Brians Pilkingtons
Jólasveinafjölskyldan
stígur fram úr bók
Morgunblaðið/Ásdís
Listamaðurinn: Brian Pilkington, til hægri, ásamt eig-
endum Sólarfilm, hjónunum Kathleen Bearden og Þór-
halli Birgissyni, og frumkvöðlinum Birgi Þórhallssyni.
Bjúgnakrækir:
Níundi var
Bjúgnakrækir,
brögðóttur og
snar.
Jólasveinarnir: Segja vil ég sögu af sveinunum þeim, sem brugðu sér hér
forðum á bæina heim. Bræðurnir allir saman komnir.