Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 13 DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Málstofu um alþjóðlegar fjárfestingar, sem haldin var í Gerð- arsafni í gær á vegum Landsbanka Íslands, að allt benti til að Lands- sími Íslands yrði seldur á næstu mánuðum. „Nú er hafinn undirbún- ingur að því að selja Landssíma Ís- lands. Markaðsaðstæður hafa breyst á undanförnum misserum og því er það mat ríkisstjórnarinnar að nú sé lag til að færa þetta mikla fyrirtæki úr höndum ríkisins og til einkaaðila. Að ýmsu er að hyggja við sölu þessa fyrirtækis og nauðsynlegt að vanda mjög allan undirbúning. En allt bendir til að af sölunni geti orðið á næstu mánuðum og hefur þá verið stigið mjög stórt skref í einkavæð- ingarferlinu sem staðið hefur nú í rúman áratug,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra fór vítt og breitt um íslensk efnahagsmál í ræðu sinni og ræddi meðal annars komandi kjarasamninga. Sagði hann að stöðugleiki í efnahagsmálum byggðist mjög á því að kjarasamn- ingar væru skynsamlegir og miðuð- ust að því að tryggja viðvarandi kaupmáttaraukningu launafólks. „Framundan er nú ný lota kjara- samninga. Það mun reyna á laun- þegasamtök og vinnuveitendur að ná skynsamlegum kjarasamningum sem tryggja vinnufrið og skila laun- þegum raunverulegum kjarabótum sem fá haldið. Skynsamlegir kjara- samningar eru forsenda þess að okkur Íslendingum takist að nýta okkur ávinninginn af hagvexti kom- andi ára og því hvílir mikil ábyrgð á viðsemjendum. Það gefur ástæðu til bjartsýni að forystumenn launþega hafa lýst því yfir að þeir muni leggja áherslu á stöðugleika í efnahagsmál- um og lága verðbólgu. Þannig geta þeir aukið kaupmáttinn. Ég vil sér- staklega vekja athygli á ummælum formanns Starfsgreinasambandsins sem sagði nýverið að í ljósi reynslu undanfarinna kjarasamninga væri skynsamlegt að semja til lengri tíma, því lengri samningar gæfu launafólki færi á að semja um meiri kaupmátt en gerlegt er í styttri samningum. Slíkir samningar væru líklegir til að tryggja meiri stöðug- leika. Ég tel að þessi yfirlýsing gefi fyrirheit um að þótt fast verði tekist á í kjarasamningum á næstu miss- erum muni sú hugsun ráða för að markmiðið er aukinn kaupmáttur, stöðugleiki og öflugt íslenskt at- vinnulíf.“ Evran gerði hagstjórn erfiðari Þá ræddi Davíð um hagstjórnina á Íslandi og sagði að takmörk væru fyrir því hversu langt væri hægt að ganga í því að beita aðgerðum í rík- isfjármálum til að jafna hagsveiflur. „Stjórntæki Seðlabankans eru öflug og gjaldeyrisforði bankans dregur úr líkum á því að snöggar breyt- ingar verði á gengi gjaldmiðilsins. Rétt er að hafa það í huga þegar rætt er um þessi hagstjórnartæki hins opinbera að það eru takmörk fyrir því hversu langt er hægt að ganga í því að beita aðgerðum í rík- isfjármálum til að jafna hagsveiflur. Mjög stór hluti opinberra útgjalda felst í að veita borgurunum mikil- væga þjónustu, svo sem menntun og heilsugæslu. Óráðlegt er að þessi þjónusta rísi og hnígi um of með hagsveiflunni. Frá þessu sjónar- horni er í rauninni auðveldara og sársaukaminna að mæta skamm- tímasveiflum með ráðstöfunum í peningamálum. Þessi staðreynd breytir engu um mikilvægi þess að ríkissjóður taki fullan þátt í því að hamla gegn þenslu en hún hlýtur að vekja menn til umhugsunar um hversu erfið öll hagstjórnin yrði ef Ísland gerðist aðili að hinni sameig- inlegu mynt ESB. Þar með flyttist allur þunginn af hagstjórninni yfir á ríkisfjármálin og erfitt að gera sér í hugarlund að sú skipan mála yrði heilladrjúg fyrir Ísland. Rannsóknir benda til þess að íslenska hagkerfið fylgi ekki hagsveiflu helstu evruríkj- anna. Þau verkefni sem bíða ís- lenskra stjórnvalda á næstu miss- erum og árum yrðu margfalt þyngri og flóknari ef stýrivextir hér mið- uðust við að rífa af stað hagvöxt ríkja á borð við Þýskaland og Frakkland en ekki að því að halda aftur af þenslu eins og hér er raun- in.“ Hafþór Hafsteinsson, forstjóri flugfélagsins Atlanta, sagði í ræðu sinni í málstofunni að vöxtur Atlanta væri mestur í fraktflugi og á næstu árum sæi hann fram á viðvarandi vöxt á því sviði. Á næsta ári yrði vöxtur í fraktflugi 6,8%. Hafþór fór einnig yfir helstu ástæður þess af hverju alþjóðlegt fé- lag eins og Atlanta væri með höf- uðstöðvar á Íslandi. Hann sagði að þar kæmi til lágur skattur á fyr- irtæki, hér væri bankakerfið skil- virkt og samkeppnishæft, samskipti við hið opinbera væru jafnframt skilvirk og sveigjanleg og hér á landi væri menntunarstig hátt og því væri aðgangur að vel menntuðu fólki í stjórnunarstöður góður. Þá væri landið hátæknivætt sem væri ein af ástæðum þess að hér væri gott að vera. Í máli Hafþórs kom einnig fram að Atlanta er orðið tíunda stærsta félag á Íslandi með 250 milljónir dollara í ársveltu, 18,9 milljarða króna, og yrði um 300 milljónir á því næsta, eða um 22,7 milljarðar króna. Þá kom fram í ræðu hans að eig- infjárhlutfall félagsins er um 30%. Þá tók til máls einn af æðstu yf- irmönnum álfyrirtækisins Alcoa Inc., sem meðal annars ber ábyrgð á öllum álbræðslum félagsins í heim- inum, Bent Reitan. Reitan fjallaði um framkvæmdir Alcoa á Austurlandi og væntanlega álverksmiðju sem stefnt er að að hefji álframleiðslu árið 2007. Sagði Reitan að miðað við heildar- fjárfestingu félagsins á Austurlandi eyddi Alcoa þar að meðaltali um 1,5 milljónum Bandaríkjadala, eða 113,3 milljónum króna, á hverjum einasta degi fram að gangsetningu verk- smiðjunnar árið 2007. Þurfa að auka álneyslu Reitan sagði að verksmiðjan á Ís- landi væri mjög mikilvæg Alcoa-fyr- irtækinu þar sem Evrópubúar væru miklir eftirbátar Bandaríkjamanna í álneyslu. Auka þyrfti álneyslu í ríkj- um álfunnar og þar léki Fjarðaál stórt hlutverk. Reitan hvatti einnig Íslendinga, líklega meira í gamni en alvöru, til að setja aukinn kraft í neyslu sína á áli, en hann sagði að að meðaltali væri álneysla á hvern Ís- lending 17 kíló á ári en álneysla á hvern Evrópumann væri 22,2 kíló. Reitan talaði lofsamlega um allt er snerti samskipti fyrirtækisins við Íslendinga og Austfirðinga og sagði að hér á landi væri allt fyrir hendi til að verkefnið heppnaðist vel. „Þegar við komum erum við að koma til að vera, eins og sést á því að við gerum orkusamning til 40 ára. Í Bandaríkj- unum eru starfandi verksmiðjur sem settar voru á stofn í upphafi síð- ustu aldar. Af því má sjá að við tjöld- um til meira en einnar nætur.“ Reitan sagði að koma Alcoa til Reyðarfjarðar myndi verða byggð- arlaginu mikil lyftistöng, eins og þegar sæi stað í mikilli uppbyggingu sem hafin væri á staðnum. Morgunblaðið/Þorkell Á fundinn var boðið viðskiptavinum Landsbankans og erlendum bankamönnum. Morgunblaðið/Þorkell Davíð Oddsson ræddi um framfarir og horfur í íslensku efnahagslífi. Allt bendir til sölu Landssíma Íslands á næstu mánuðum Alcoa eyðir 113 milljónum á dag á Austurlandi til 2007 VERIÐ er að ganga frá samn- ingum um kaup Baugs Group á meirihluta í tískuvörukeðjunni Oasis Stores í Bretlandi. Verð hlutarins sem Baugur kaupir er um 20 milljarðar króna. Stjórn- endur Oasis Stores, sem komu að verslanakeðjunni fyrir fáein- um árum, munu eiga hlut í henni með Baugi. Oasis Stores er með um 350 sölustaði í Bret- landi og fyrirtækið rekur einn- ig fjölda verslana í öðrum lönd- um. Ein Oasis-verslun er á Íslandi og er hún í Kringlunni. Oasis Stores er í eigu PPM Ventures, sem er hluti af fjár- málafyrirtækinu Prudential. PPM Ventures tók í júlí árið 2001 þátt í yfirtöku stjórnenda á Oasis Stores. Þá var fyrirtæk- ið skráð á markað og verðið var 55 milljónir punda, eða um 7 milljarðar króna. Baugur kaupir Oasis Stores SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki ástæðu til aðgerða vegna kvörtunar Sparisjóðs Reykjavíkur (SPRON) yfir viðskiptaháttum Búnaðarbanka Íslands í tengslum við notkun bankans á skrá yfir stofnfjár- eigendur. SPRON taldi að Búnaðarbankinn hefði brotið gegn 20. grein samkeppnislaga með því að rita niður upplýsingar um stofnfjáreigendur upp úr skrá sem geymd er hjá SPRON. Í 20. grein laganna kemur fram að óheimilt sé að hafast nokkuð það að sem brýtur í bága við góða viðskiptahætti eða eitt- hvað það sem er óhæfilegt gagnvart hagsmunum neytenda. Í kvörtuninni kemur einnig fram að SPRON telji Búnaðarbankann hafa brotið gegn 21. grein sam- keppnislaga með auglýsingum sem birtar voru 1. og 2. ágúst og sýndu samanburð á tilboðum fimm stofnfjárfesta annars vegar og hins vegar tilboðum starfsmannasjóðs SPRON í stofnféð. Samkeppn- isráð vísar þeim lið kvörtunarinnar frá þar sem ekki er talið sýnt að Búnaðarbankinn hafi komið að þessum auglýsingum. Atvik málsins eru þau að í bréfi dagsettu 3. júlí 2002 óskaði Kristján Þorbergsson hrl. eftir því fyr- ir hönd SPRON að Samkeppnisstofnun stöðvaði vinnslu Búnaðarbankans með skrá yfir stofnfjár- eigendur í SPRON. Áður hafði stjórn SPRON neit- að fimm stofnfjáreigendum í SPRON um aðgang að skránni, sem þeir eiga rétt á að fá samkvæmt lögum sparisjóðsins. Í kvörtun SPRON til sam- keppnisyfirvalda kemur fram að Búnaðarbankinn hafi fengið aðgang að skránni með óheiðarlegum hætti. Því er lýst að bankastjórar Búnaðarbankans hafi ritað starfsmönnum SPRON bréf og reynt að snúa þeim gegn stjórnendum sparisjóðsins, eins og það er orðað í ákvörðun Samkeppnisráðs. Taldi SPRON að með þessu athæfi hefði Búnaðarbank- inn, vegna samvinnu sinnar við stofnfjáreigend- urna fimm, brotið gegn 20. grein samkeppnislaga. Aðgangur að skrá átti að vera heimil Í umsögn Búnaðarbanka Íslands um fyrrnefnt bréf, dagsettri 4. júlí 2002, er þessu mótmælt. Þar er gerð grein fyrir óánægju fimm stofnfjáreigenda SPRON með fyrirhugaða hlutafjárvæðingu spari- sjóðsins. Segir að stjórn SPRON hafi ekki veitt stofnfjáreigendum nægilegar upplýsingar um um það á hvaða gengi hlutum þeirra í SPRON yrði skipt út fyrir hlutafé í SPRON við hlutafjárvæð- ingu en fimmmenningarnir hafi viljað gera stofn- fjáreigendum grein fyrir því. Ástæða þess að nálg- ast hafi þurft umrædda skrá með þeim hætti sem gert var, að lesa hana inn á segulband og skrifa upp eftir því, hafi verið sú að stjórn SPRON hafi ekki viljað afhenda hana í lögmætu formi. Í umsögn Búnaðarbankans segir ennfremur að það sé fráleitt að halda því fram að bankinn hafi brotið gegn 20. grein samkeppnislaga. Nær sé að SPRON hafi framið slíkt brot með framferði sínu. Bankinn hafi ekki geymt skrána yfir stofnfjáreigendur í sínu tölvukerfi og ekki komið að vinnslu hennar að öðru leyti en því að aðstoða við að finna símanúmer og ná í stofnfjáreigendur. Í ákvörðun Samkeppnisráðs segir að fyrir liggi að SPRON hafi verið óheimilt að meina fimmmenn- ingunum og Búnaðarbanka aðgang að skránni. Jafnframt hafi Búnaðarbanki ekki brotið gegn lög- um um persónuvernd með notkun á skránni yfir stofnfjáreigendur. Þykir því sýnt að Búnaðarbank- inn hafi ekki brotið gegn samkeppnislögum í þessu máli. „Ekki er ástæða til aðgerða af hálfu sam- keppnisráðs í máli þessu,“ eru ákvörðunarorð Sam- keppnisráðs í málinu. Samkeppnisráð aðhefst ekki í máli Sparisjóðs Reykjavíkur Búnaðarbankinn og fimmmenningarnir máttu afrita skrá yfir stofnfjáreigendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.