Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 78
ÍÞRÓTTIR 78 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HELGI Kolviðsson, leikmaður Kärnten í Austurríki, var í gær val- inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu sem leikur gegn Mexíkó í San Francisco í næstu viku. Helgi kemur inn í hópinn í stað Jóhannesar Harðarsonar, Groningen, en forráðamenn liðsins meinuðu honum að fara í ferðina og voru í fullum rétti til þess þar sem beiðni KSÍ um að fá leikmanninn lausan barst of seint. Helgi hefur leikið 29 leiki með A- landsliði Íslands, síðast á móti Eist- um í Tallinn í nóvember á síðasta ári. Val landsliðsþjálfaranna Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar á Jóhannesi í landsliðshópinn vakti töluverða athygli enda hefur Skagamaðurinn lítið fengið að spreyta sig með hollenska liðinu Groningen frá því hann gekk í raðir þess fyrir þremur árum. „Ástæðan fyrir því að hann var valinn var sú að við vorum að leita að miðjumanni sem væri í góðri æf- ingu og þó svo Jóhannes hafi ekki spilað með aðalliðinu, þar sem þjálfaranum hefur verið bannað að tefla honum fram, hefur hann spil- að með varaliði félagsins. Við fór- um vandlega yfir 21 árs liðið til að athuga hvort við gætum tekið ein- hvern þar en við mátum stöðuna að svo væri ekki og þegar forföllin í hópnum voru orðin þetta mikil var ákveðið að velja Jóhannes. Hann til- kynnti okkur hins vegar í morgun að hann fengi ekki leyfi en þjálf- arinn hefur gefið honum til kynna að hann verði að öllum líkindum í liðinu um næstu helgi,“ sagði Logi. Spurður hvort ekki hefði mátt velja einhvern leikmann hér heima frekar en að velja mann sem lítið hefur spilað með sínu liði sagði Logi; „Leikmennirnir í íslensku lið- unum eru ekki komnir á skrið enda einn og hálfur mánuður liðinn síðan tímabilinu lauk. Veigar Páll og Kristján Örn hafa hins vegar verið við æfingar hjá erlendum liðum og Ólafur Örn hefur haldið sér í formi. Ég hef fylgst vel með málum Jó- hannesar. Hann var á dögunum til reynslu hjá IFK Gautaborg og ég veit að liðið er spennt fyrir því að fá hann svo eitthvað hefur drengurinn til brunns að bera.“ Helgi Kolviðsson tók sæti Jóhannesar í Bandaríkjaferðinni HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: Evrópukeppni bikarhafa: Digranes: HK - Drott.................................16 1. deild karla, RE/MAX-deildin, norður- riðill: Höllin Akureyri: Þór - Víkingur................16 Sunnudagur: Meistaradeild Evrópu: Ásvellir: Haukar - Magdeburg..................20 1. deild kvenna, RE/MAX-deildin: Kaplakriki: FH - ÍBV.................................14 1. deild karla, RE/MAX-deildin, norður- riðill: Framhús: Fram - Grótta/KR ....................17 Suðurriðill: Ásgarður: Stjarnan - ÍBV..........................16 KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur - ÍS .............................14 Grafarvogur: Fjölnir - Valur .....................17 Grindavík: ÍG - Selfoss...............................18 1. deild kvenna: Seljaskóli: ÍR - Keflavík ............................16 Sunnudagur: Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin: Ísafjörður: KFÍ - Keflavík....................19.15 Mánudagur: Kennaraháskóli: ÍS - KR ......................19.30 BLAK Laugardagur: 1. deild kvenna: Digranes: HK - KA ....................................14 1. deild karla: Hagaskíli: ÍS - Stjarnan........................15.30 Sunnudagur: 1. deild karla: Digranes: HK - Þróttur R. ........................17 SUND Bikarkeppni Sundsambands Íslands, 1. og 2. deild, fer fram í Sundhöll Reykjavíkur í dag og á morgun – kl. 15 til 16.55. KARATE Íslandsmót í Kumite verður haldið í dag í Íþróttahúsinu Austurbergi kl. 10.35 kepp- endur keppa í ellefu flokkum karla og kvenna. Úrslit hefjast um kl. 13.30. SKYLMINGAR Íslandsmótið í skylmingum með högg- sverði verður haldið í Íþróttahúsi Haga- skólans á morgun, sunnudag. Keppni hefst kl. 9. Úrslit í kvennaflokki verða kl. 16.40 og opnum flokki karla kl. 16.50. BADMINTON Iceland Express International fer fram í TBR-húsinu. Undanúrslit fara fram kl.16.30-20.30 í dag laugardag. Úrslit ráð- ast á morgun sunnudag og hefjast úrslita- leikirnir kl. 11 en mótinu lýkur kl. 15. UM HELGINA HANDKNATTLEIKUR Valur – KA 30:30 Hlíðarendi, 1. deild karla, RE/MAX-deild- in, suðurriðill, föstudagur 14. nóvember 2003. Gangur leiksins: 0:2, 1:3, 3:3, 5:4, 6:7, 9:8, 11:9, 11:12, 12:14, 13:15, 15:15, 15:16, 17:16, 18:18, 19:19, 21:19, 22:20, 22:25, 23:26, 26:26, 27:28, 29:29, 29:30, 30:30. Mörk Vals: Markús Máni Mikaelsson 7/1, Heimir Árnason 6, Baldvin Þorsteinsson 6/4, Hjalti Pálmason 4, Hjalti Gylfason 3, Sigurður Eggertsson 2, Freyr Brynjarsson 1, Ragnar Ægisson 1. Varin skot: Örvar Rúdólfsson 9 (þar af fór 1 aftur til mótherja), Pálmar Pétursson 2. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk KA: Arnór Atlason 14/3, Jónatan Magnússon 4, Árni Björn Þórarinsson 4, Einar Logi Friðjónsson 4, Andreus Stelmokas 2, Andri Snær Stefánsson 2. Varin skot: Hafþór Einarsson 15 (þar af fóru 7 aftur til mótherja), Stefán Guðnason 1/1. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Valgeir Ómarsson og Bjarni Viggósson. Áhorfendur: Um 320. Staðan: Valur 8 5 2 1 221:188 12 KA 9 5 2 2 263:240 12 Grótta/KR 7 4 2 1 182:166 10 Fram 8 4 2 2 212:207 10 Víkingur 8 2 2 4 198:212 6 Afturelding 8 2 1 5 195:219 5 Þór 8 0 1 7 199:238 1 ÍR – Breiðablik 37:21 Austurberg, suðurriðill: Mörk ÍR: Hannes Jón Jónsson 8, Bjarni Fritzson 7, Einar Hólmgeirsson 6, Tryggvi Haraldsson 6, Sturla Ásgeirsson 4, Fannar Þorbjörnsson 2, Daði Rafn Skúlason 2, Ingimundur Ingimundarson 1, Júlíus Jón- asson 1. Varin skot: Ólafur Hauksson 16, Stefán Petersen 4. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Breiðabliks: Björn Hólmþórsson 7, Orri Hilmarsson 4, Davíð Ketilsson 3, Björn Guðmundsson 3, Kristinn Hallgríms- son 2, Ólafur Snæbjörnsson 1, Ágúst Guð- mundsson 1. Utan vallar: 10 mínútur. Gunnar Björnsson rautt spjald fyrir 3 brottvísanir. Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur Sverrisson. Áhorfendur: 120 Selfoss – FH 27:32 Selfoss: Gangur leiksins: 1:1, 3:1, 3:3, 3:6, 7:8, 8:10, 10:13, 11:13, 11:17, 12:18, 12:20, 13:20, 14:21, 14:24, 16:25, 20:25, 21:26, 23:28, 24:29, 25:30, 26:31, 27:31, 27:32. Mörk Selfoss: Ramunas Kalendauskas 8, Haraldur Þorvarðarson 6, Ramunas Mika- lonis 5, Arnar Gunnarsson 4, Guðmundur I. Guðmundsson 2, Andri Már Kristjánsson 1, Sebastian Alexandersson 1. Varin skot: Sebastian Alexandersson varði 18 skot (þar af 3 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Mörk FH: Logi Geirsson 9/2, Guðmundur Pedersen 9, Valgarð Thoroddsen 4, Magn- ús Sigurðsson 3, Arnar Pétursson 2, Brynj- ar Geirsson 2, Jón Helgi Jónsson 1, Sigmar Magnússon 1, Svavar Vignisson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson varði 10 skot (þar af 2 aftur til mótherja), Elvar Guðmundsson varði 11 skot og 1 víti (þar af 2 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Áhorfendur: Um 150. Dómarar: Hörður V. Sigmarsson og Þórir Gíslason. Staðan: ÍR 9 8 0 1 288:230 16 Haukar 10 7 0 3 304:265 14 FH 10 6 0 4 291:262 12 HK 9 6 0 3 257:236 12 Stjarnan 9 5 1 3 239:239 11 ÍBV 9 2 1 6 263:278 5 Breiðablik 10 2 0 8 252:330 4 Selfoss 10 1 0 9 264:318 2 Fylkir/ÍR – ÍBV 26:34 Remaxdeild kvenna, föstudaginn 14. nóv- ember, Fylkishöll: Mörk Fylkis/ÍR: Hekla Daðadóttir 9, Andrea Olsen 6, Valgerður Árnadóttir 4, Hrönn Kristinsdóttir 2, Soffía Rut Gísla- dóttir 2, Helga Björk Pálsdóttir 2, Klara Stefánsdóttir 1, Hildur Sólveig Sigurðar- dóttir 1, Íris Ásta Pétursdóttir 1. Mörk ÍBV: Anna Yakova 9, Nína K. Björns- dóttir 7, Alla Gokorian 4, Birgit Engl 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Sylvia Strass 3, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1, Elísa Sig- urðardóttir 1, Sæunn Magnúsdóttir 1. Staðan: ÍBV 11 10 0 1 330:246 20 Valur 11 9 1 1 290:234 19 Haukar 11 8 1 2 293:283 17 FH 11 6 0 5 281:268 12 Stjarnan 10 6 0 4 213:208 12 Grótta/KR 10 3 2 5 233:243 8 KA/Þór 11 3 1 7 276:307 7 Víkingur 10 2 1 7 218:233 5 Fylkir/ÍR 10 1 0 9 240:287 2 Fram 9 1 0 8 191:256 2 KÖRFUKNATTLEIKUR UMFG – KR 88:83 Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport- deildin, föstudagur 14. nóvember 2003. Gangur leiksins: 8:6, 12:6, 18:11, 25:13, 31:26, 44:30, 52:43, 57:50, 60:60, 66:60, 79:76, 88:83. Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 27, Dan Trammel 21, Darrel Lewis 20, Guð- mundur Bragason 9, Helgi Jónas Guðfinns- son 6, Pétur Guðmundsson 5. Fráköst: 29 í vörn – 15 í sókn. Stig KR: Chris Woods 31, Ingvaldur M. Hafsteinsson 15, Baldur Ólafsson 14, Ólaf- ur Ægisson 13, Steinar Kaldal 8, Skarphéð- inn Ingason 2. Fráköst: 25 í vörn – 20 í sókn. Villur: Grindavík 22, KR 15. Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og Aðalsteinn Hjartarson. Áhorfendur: Um 150. Staðan: Grindavík 6 6 0 528:490 12 Snæfell 6 4 2 505:464 8 Njarðvík 6 4 2 550:510 8 Haukar 6 4 2 492:494 8 Keflavík 5 3 2 478:431 6 KR 6 3 3 560:541 6 Tindastóll 6 3 3 593:553 6 Hamar 6 3 3 467:509 6 Þór Þorl. 6 2 4 565:609 4 Breiðablik 6 1 5 496:544 2 KFÍ 5 1 4 484:505 2 ÍR 6 1 5 510:578 2 1. deild kvenna: UMFN – UMFG.....................................61:58 Stig UMFN: Andrea Gaines 22, Guðrún Karlsdóttir 13, Gréta Jósepsdóttir 9, Sæ- unn Sæmundsdóttir 6, Sigurlaug Guð- mundsdóttir 5, Ásta Óskarsdóttir 3, Dianna Jónsdóttir 2, Ingibjörg Guðmundsdóttir 1. Stig UMFG: Sólveig Gunnlaugsdóttir 23, Jovana Stefánsdóttir 8, Sandra Guðlaugs- dóttir 10, Guðrún Guðmundsdóttir 6, Pet- rúnella Skúladóttir 5, Ólöf Pálsdóttir 4, María Guðmundsdóttir 2. Staðan: ÍS 6 5 1 387:337 10 Keflavík 6 4 2 528:414 8 Njarðvík 7 4 3 431:439 8 KR 6 3 3 373:384 6 ÍR 6 2 4 374:420 4 Grindavík 7 1 6 398:497 2 BLAK 1. deild kvenna: Digranes: HK – KA...................................0:0 (12:25, 12:25, 19:25). Heimamenn byrjuðu leikinn velog KR-liðið virtist ekki rata í átt að körfu hvað þá meira í fyrsta leikhluta. Ellefu stig er ekki vænlegt í ein- um leikhluta. Gestirnir voru litlu skárri í öðrum leikhluta og því útlit fyrir auðveldan sigur heimamanna sem voru yfir í hálfleik, 44:30. Eitthvað hefur þjálfari KR-liðsins, Ingi Þór Steinþórsson, sagt við sína menn í hálfleik því allt annað var að sjá til liðsins í þriðja leikhluta. Að honum loknum var forskot heima- manna búið og spenna að myndast. Gestirnir búnir að jafna með síðustu körfu þriðja leikhluta og staðan 60:60. Því miður fyrir áhorfendur náði síðasti leikhluti aldrei að vera spenn- andi því Grindvíkingar settu niður fyrstu sex stigin og héldu áfram til loka leiks. Áhorfendur gátu þó glaðst yfir glæsilegum troðslum undir lokin frá Dan Trammel en hann ásamt Páli Axel Vilbergssyni voru bestir í liði heimamanna. Hjá gestunum var Chris Woods yfirburðamaður. „Vantaði hugarfarið“ „Þetta var dauft og leiðinlegt í fyrri hálfleik. Sorglegt að byrja ekki fyrr en það vantaði hugarfarið og grimmdina í fyrri hálfleik. Við töp- uðum reyndar hér fyrir mjög góðu liði,“ sagði þjálfari KR, Ingi Þór Steinþórsson. „Þegar á þurfti að halda gátum við stjórnað leiknum. Við vorum að missa niður þægilegt forskot allt of oft í leiknum en náðum að rífa okkur aftur upp. Nú er það næsti leikur því þetta er sama baráttan. Við förum í Þorlákshöfn og það er áskorun að mæta þeim þar,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga. Grindavík óstöðvandi GRINDVÍKINGAR sigruðu KR í gærkvöld í Röstinni eftir töluverðan barning í leik sem lofaði litlu til að byrja með en varð ágæt skemmt- un. Grindavík skoraði 88 stig gegn 83 gestaliðsins og hafa læri- sveinar Friðriks Inga Rúnarssonar unnið alla sex leiki sína til þessa í Intersportdeildinni og eru að sjálfsögðu á toppnum með 12 stig. Gengi KR-ingar hefur verið misjafnt, þrír sigrar og þrjú töp. Garðar Vignisson skrifar Þetta þýðir að hver þjóð leikurfleiri leiki í riðlakeppninni en áður. Að sama skapi fjölgar þeim leikjum sem skipta máli og vináttu- landsleikjum fækkar, en mjög hefur dregið úr áhuga á þeim jafnt hjá knattspyrnumönnum sem áhorfend- um og því eru þeir ekki lengur tekjulind fyrir knattspyrnusam- bönd. „Það að við verðum í fjórða styrk- leikaflokki hefur ekki verið staðfest ennþá, en það bendir margt til þess að svo verði. Samkvæmt útreikning- um okkar hjá KSÍ erum við í 27. sæti á styrkleikalista Evrópuþjóða, það er í sama sæti og þegar dregið var fyrir EM,“ sagði Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnu- sambands Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Átta efstu þjóðir Evrópulistans sem Geir talar um verða í fyrsta styrkleikaflokki í stað tíu áður. Þar af leiðir að þjóðirnar í sætum níu til sextán verða í öðrum styrkleika- flokki og þær sem verða í sautjánda til tuttugasta og fjórða sæti hafna í þriðja styrkleikaflokki. Verði Ísland áfram í 27. sæti hafnar það í fjórða flokki ásamt þeim þjóðum sem eru í 25. til 32. sæti. Alls tóku 50 landslið þátt í undankeppni EM og er reikn- að með að sami fjöldi verði með í undankeppni HM í Evrópu. „Endanlegur Evrópulisti liggur fyrir um næstu mánaðamót og þá verður staðan ljós en við hjá KSÍ höfum stundað útreikninga af þessu tagi um nokkurt skeið og yfirleitt verið nokkuð nærri lagi, enda notað sömu reiknireglur og Knattspyrnu- samband Evrópu,“ sagði Geir. Verði íslenska liðið í fjórða styrk- leikaflokki þýðir það að liðið dregst gegn þremur sterkari þjóðum og þar af leiðandi verður erfiðara en ella að komast upp úr riðlinum. Um leið verða færri veikari lið en það ís- lenska í riðlinum. Taki 50 þjóðir þátt í undankeppni HM í Evrópu er sennilegt að dregið verði í sex riðla með sex liðum og að í tveimur riðl- um verði sjö lið í hvorum. „Það er keppikefli okkar að vera í þriðja styrkleikflokki, en ég held að við getum í sjálfu sér verið ánægðir með að halda okkar stöðu á Evrópu- listanum ef svo fer, en það er lítið við því að gera þegar riðlakeppninni er breytt á þennan hátt og riðlunum fjölgað. Fjölgun liða í hverjum riðli þýðir að við fáum fleiri alvöruleiki og væntanlega meiri tekjur, en á móti koma fleiri útileikir og aukinn kostn- aður vegna ferðalaga. Þannig að þetta hefur sína kosti og sína galla. En ef staðan er þessi þá þarf tals- vert átak til að komast upp í þriðja styrkleikalista á nýjan leik, komast inn í hóp tuttugu og fjögurra bestu knattspyrnuþjóða Evrópu,“ sagði Geir Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri KSÍ. Dregið verður í riðla undankeppni HM í knattspyrnu í næsta mánuði samkvæmt breyttum reglum Verður Ísland í fjórða styrkleika- flokki í Evrópu? FLEST bendir til þess að íslenska landsliðið í knattspyrnu verði í fjórða styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni heims- meistaramótsins í knattspyrnu í byrjun næsta mánaðar. Íslenska landsliðið var í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið var í undan- keppni Evrópumótsins fyrir tveimur árum. Ástæðan fyrir þessu lík- lega falli íslenska landsliðsins um einn flokk er sú að fyrirkomulagi riðlakeppninnar í Evrópu verður breytt þannig að riðlum verður fækkað en í stað fjölgað í hverjum þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.