Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKIR hermenn úr verkfræðingasveit fót- gönguliðsins kanna vettvang í gær í byggingu sem áð- ur var bækistöð Lýðveldisvarðar Íraks, sérsveita íraska hersins, í Bagdad. Bandarísk herflugvél varp- aði sprengjum á bygginguna sem skæruliðar notuðu sem bækistöð til að gera sprengjuárásir á setuliðið, að sögn talsmanna þess. Í aðgerð kallaðri „Járnham- ar“ gerðu Bandaríkjamenn hliðstæðar árásir á fleiri staði sem þeir gruna skæruliða um að hafa notað sem fylgsni. Reuters Kanna vettvang í Bagdad FÉLAG í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Pharmaco, hefur keypt 5,4% í Pharmaco af félögum tengdum Magnúsi Þorsteinssyni, stjórn- armanni í Pharmaco og stærsta hluthafa í Air Atlanta og Íslands- flugi. Félög í eigu Magnúsar eiga ekki hlut í Pharmaco eftir þessa sölu, en félög í eigu Björgólfs Thors eiga samanlagt 36,2%. Gengið í viðskiptunum var 35 og verðmæti viðskiptanna 5.662 milljónir króna. Í fréttatilkynningu seg- ir að ástæða sölunnar sé að Magnús hyggist beina kröftum sínum meira að fjár- festingum sínum í alþjóðlegri flug- starfsemi, en starfsemi Air Atlanta og Íslandsflugs hafi aukist mikið síðustu mánuði. Markaðsverð 30% yfir verðmati Greiningardeildir viðskiptabank- anna þriggja, Íslandsbanka, Kaup- þings Búnaðarbanka og Lands- banka, meta verðmæti hlutabréfa Pharmaco mun lægra en gengi fé- lagsins er á markaði nú. Lokaverð hlutabréfanna í gær var 35,4 og lækkaði um 0,8% yfir daginn eftir töluverða hækkun síðustu daga. Mat greiningardeildanna liggur á bilinu 26,9 til 27,6, og er verðið á markaðnum því tæpum 30% yfir meðaltali verðmatsins. Í Hálffimm fréttum greining- ardeildar Kaupþings Bún- aðarbanka segir að núverandi verð á markaði sé að mati deildarinnar hærra en réttlæta megi með hefð- bundnum verðmatsaðferðum út frá fyrirliggjandi upplýs- ingum. Verðmat grein- ingardeilda Lands- banka og Kaupþings Búnaðarbanka stendur óbreytt eftir birtingu níu mánaða uppgjörs Pharmaco á þriðjudag, en í Morgunkorni Íslandsbanka segir að verðmatið hafi verið hækkað um 4,6% í kjölfar uppgjörsins. Engu að síður sé verðmatið undir markaðs- verðinu og fjárfestum sé ráðlagt að selja hlutabréf í Pharmaco. 139% hækkun frá áramótum Hlutabréf í Pharmaco hafa hækkað um 139% frá áramótum og markaðsverð félagsins er nú um 106 milljarðar króna. Björgólfur Thor eykur hlut sinn í Pharmaco Bankarnir telja hlutabréf félagsins ofmetin. Ráðleggja fólki að selja. VIÐSKIPTI HAGNAÐUR samstæðu Sjóvár-Almennra trygg- inga hf. á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam 1.948 milljónum króna eftir skatta. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaðurinn 320 milljón- ir. Munar mest um auk- inn hagnað samstæðunn- ar af fjármálarekstri, en hann nam 2.082 milljón- um á þessu ári en 30 milljónum í fyrra. Þar af var hagnaður af sölu fjárfestinga 2.426 millj- ónir á þessu ári en 202 milljónir í fyrra. Hagnaður af vá- tryggingarekstri nam 292 milljónum á fyrstu níu mánuðum þessa árs en 239 milljónum á sama tímabili á síð- asta ári. Bókfærð iðgjöld í skaðatrygging- um voru 7.090 milljónir króna en bókfærð tjón 3.892 milljónir. Bók- færð iðgjöld líftrygginga voru 824 milljónir en bókfærð tjón 184 millj- ónir. Hreinn rekstrarkostnaður vegna skaðatryggingarekstrar var 1.285 milljónir og vegna líftrygg- ingarekstrar 214 milljónir. Fjárfest- ingartekjur samstæðunnar voru 3.688 milljónir króna á tímabilinu og fjárfestingargjöld voru 708 milljónir króna. Heildareignir Sjóvár-Almennra trygginga í lok september síðastlið- inn voru 29,5 milljarðar króna og höfðu hækkað um rúma tvo millj- araða frá sama tíma á síðasta ári. Eigið fé var 6,4 milljarðar saman- borið við 5,9 milljarða í fyrra. Hand- bært fé samstæðunnar í lok tíma- bilsins var 3,6 milljarðar á þessu ári en 1,1 milljarður í fyrra Í tilkynningu frá Sjóvá-Almenn- um tryggingum segir að vátrygg- ingarekstur samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins sé í samræmi við áætlanir stjórnenda. Vátrygg- ingareksturinn hafi verið í betra jafnvægi en mörg undanfarin ár. Tjónum hafi fækkað á tímabilinu í öllum tryggingagreinum frá því sem var á sama tímabili árið áður. „Tekjur af fjármálastarfsemi hafa aukist verulega hjá félaginu umfram það sem áætlað var í lok fyrra árs- helmings og er einkum um að ræða hagnað af sölu fjárfestinga,“ segir í tilkynningunni. „Hagnaður af sölu fjárfestinga hefur enn aukist frá lok- um tímabilsins og fyrirsjáanleg er frekari sala fjárfestinga á árinu.“ Fram kemur í tilkynningunni að það sé álit Einars Sveinssonar, for- stjóra Sjóvár-Almennra trygginga, að reksturinn hafi gengið vel á fyrstu níu mánuðum ársins. Vá- tryggingareksturinn sé í jafnvægi og hagnaður af sölu fjárfestinga hafi orðið verulega umfram það sem áætlanir í ársbyrjun gerðu ráð fyrir. Áætluð afkoma félagsins á árinu hafi því verið endurmetin og verði tjóna- þungi svipaður og verið hefur fram að þessu sé áætlað að afkoma félags- ins á árinu 2003 verði jákvæð um a.m.k. 3 milljarða króna. Sjóvá-Almennar hagnast um tæpa 2 milljarða Fjármálarekstur skilaði 2.082 m.kr. Morgunblaðið/Kristinn JOHN Balash fékk 45 mínútur til að tryggja sér draumastarfið. Hann fór í nýja hvíta skyrtu og röndótta peysu og greiddi sér. Hann bað systur sínar að biðja fyrir sér. Hann vildi ekki klúðra þessu. Hann leit á þetta sem mikilvæg- asta starfsviðtal ævi sinnar og lík- lega eina tækifærið sem hann fengi til að þiggja laun fyrir að leika sér að Lego-kubbum. Balash var einn af um það bil sex- tíu listnemum sem fóru á dögunum í Listastofnunina í Arlington-sýslu, nálægt Washingtonborg, til að taka þátt í fyrstu Leitinni að meist- aranum í líkanasmíði á vegum Lego. Keppnin fer fram í níu bandarískum borgum og þeir sem standa sig best komast í úr- slitakeppni í Kaliforníu í janúar. Sigurvegarinn í keppninni verður áttundi maðurinn í hópi sem starfar við að búa til líkön úr kubbum í Legolandi í Kaliforníu. „Draumur allra barna“ „Það er auðvitað draumur allra barna að vinna hjá Lego,“ sagði Balash, tvítugur listnemi frá Cleve- land. Lego var eina leikfangið sem foreldrar Balash keyptu – og eina leikfangið sem hann vildi. Nú þegar hann hefur hleypt heimdraganum kaupir hann Lego sjálfur í miklum mæli og hann áætlar að hann eigi alls 1,5 milljónir kubba. Hann setur þá í poka sem hann ber á bakinu, eins og jólasveinninn. Balash hefur meðal annars búið til þríþekjuflugvél í stíl Rauða bar- ónsins með blökum og hliðarstýri sem hægt er stjórna úr flugmann- sklefanum, knattspyrnuleikvang með rafeindastigatöflu og svip- mynd af Waterloo-orrustunni. Í keppninni fékk Balash 2.000 kubba og hann ákvað að búa til mörgæs. Það tókst ekki alveg þar sem hvítu og svörtu kubbarnir voru ekki nógu margir. Hann bjó þó til einhvers konar fugl og það nægði til að hann kæmist í úrslitakeppnina í Kaliforníu ásamt tveimur öðrum keppendum í Listastofnuninni. „Ég er á leiðinni til Legolands!“ hrópaði Balash þegar hann heyrði fréttirnar. Keppt um draumastarfið The Washington Post. Dayna Smith/Washington Post Tveir af um 60 þátttakendum í keppni á vegum Lego í Virginíuríki. DRAGOLJUB Micunovic, frambjóð- andi ríkisstjórnarflokkanna í Serbíu, er talinn líklegastur til að bera sigur úr býtum í for- setakosningum sem fara fram í landinu á morg- un. Þetta er í þriðja skipti á tæpu ári sem Serbar gera til- raun til að kjósa sér nýjan forseta en fyrri tilraunir hafa báðar verið ógildar vegna þess að kjörsókn var minni en 50%. Skoðanakönnun Félagsvísinda- stofnunar Belgrað-borgar bendir til að Micunovic fái 27% greiddra at- kvæða en að öfgaþjóðernissinninn Tomislav Nikolic veiti honum harð- asta keppni, fái 11,5% atkvæða. Könnunin bendir jafnframt til að í þetta sinn muni það markmið nást að velja nýjan, réttkjörinn forseta. Sögðust 50,2% örugglega ætla að greiða atkvæði í kosningunum á meðan 20,7% til viðbótar ætluðu „lík- lega“ að mæta á kjörstað. Forseti serbneska þingsins, Nat- asa Micic, hefur sinnt embætti for- seta Serbíu lengst af þessu ári eftir að í tvígang hafði mistekist að kjósa nýjan forseta en sem fyrr segir kveða lög í Serbíu á um að forseti teljist ekki réttkjörinn nema kjör- sókn hafi verið meira en 50%. Rétt er að taka fram að aðeins er verið að kjósa um forseta í Serbíu. Svartfjallaland hefur sinn eigin forseta og síðan er Svetozar Marovic forseti í ríkjasambandi landanna tveggja sem áður hét Júgóslavía. Þingkosningar einnig boðaðar Á fimmtudag var einnig boðað til þingkosninga í Serbíu en þá var orð- ið ljóst að ekki var lengur sátt um áframhaldandi stjórnarsamstarf inn- an kosningabandalagsins sem vann sigur á flokki Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, í kosningum árið 2000. Viðurkenndi Zoran Zivkovic forsætisráðherra – sem tók við embættinu þegar Zoran Djindjic var myrtur í mars – að stjórn hans væri nú óstarfhæf vegna innbyrðis átaka. Boðaðar kosningar eiga að fara fram 28. desember nk. Serbar gera nýja til- raun til forsetakjörs Belgrað. AP, AFP. Dragoljub Micunovic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.