Morgunblaðið - 15.11.2003, Page 48

Morgunblaðið - 15.11.2003, Page 48
UMRÆÐAN 48 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á forsíðu Morgun- blaðsins fyrir skömmu var sagt frá könnun sem leiddi í ljós að laun stjórn- enda norskra stórfyrirtækja eru 70% hærri ef karlmaður er stjórnarformaður heldur en ef kona stendur í brúnni. Ástæða er til að líta á þessa frétt sem fagn- aðarefni fyrir hluthafa í íslensk- um fyrirtækjum. Reyndar er erfitt að láta á það reyna hvort niðurstöður úr sams- konar könnum hérlendis yrðu þær sömu. Ástæðan er sú að það er aðeins ein kona sem er stjórn- arformaður hjá íslensku fyrir- tæki, svo ég viti til. Það gæfi lík- lega töluvert skakka mynd að bera laun yfirmanna hjá þessu eina fyrirtæki saman við laun yfir- manna í öllum hinum karlstýrðu fyrirtækjunum. Þótt við stærum okkur kannski ekki af því dags daglega þá eru Norðmenn sú þjóð sem við Ís- lendingar erum hvað skyldastir. Ef við viljum á annað borð bera okkur saman við einhverja þjóð, á hvaða sviði sem það er, þá ætti það að vera frændþjóðin Norð- menn. Hvort sem er í íslensku við- skiptalífi, norsku, bandarísku eða hvar það nú er, þá er alltaf verið að tala um hagræðingu. Fáir efast um að það er vandi að reka fyrirtæki, sérstaklega stór fyr- irtæki, á hagkvæman hátt. Hag- kvæmur rekstur er jafnan talinn sómi hvers fyrirtækis. Þegar illa árar hjá fyrirtækjum er klassískt að kenna auknum kostnaði um ófarirnar. Lækkun kostnaðar er því eilífðarmarkmið hvers fyrirtækis. Nær undan- tekningarlaust er launakostnaður stærstur hluti kostnaðar, í það minnsta mjög stór hluti þess kostnaðar sem er fastur hjá hverju fyrirtæki. Laun og aðrar greiðslur til yfirmanna geta vegið þungt. Kostnaðurinn við eitt stykki yfirmann getur numið margfaldri þeirri upphæð sem það kostar að halda úti einum óbreyttum starfsmanni. Auðvitað er það eðlilegt að yfirmaður sé á hærra kaupi en undirmaður þar sem sá fyrrnefndi ber meiri ábyrgð. Launamunur milli yf- irmanna og starfsmanna getur þó farið út fyrir öll eðlileg mörk. Laun forstjóra í Bandaríkj- unum árið 1980 voru að jafnaði 42 sinnum hærri en meðallaun starfsmanna fyrirtækisins. Árið 2000 hafði þessi munur aukist svo mikið að laun forstjóra jafngiltu meðllaunum 531 starfsmanns. Bandarískir hluthafar hafa áhyggjur af þessu og eru sam- mála um að launagreiðslur til yfirmanna fyrirtækja séu komn- ar úr böndunum. Skemmst er að minnast afsagnar yfirmanns kauphallarinnar í New York, Richards Grasso. Sá þáði óhóf- legar launagreiðslur svo ekki sé meira sagt og var látinn sigla sinn sjó. Reglur hafa verið hertar um það hvernig laun forstjóra og annarra stjórnenda fyrirtækja skráðra vestra eru ákvörðuð. Bandaríska leiðin er að setja fleiri reglur, herða eftirlit og knýja þannig fyrirtæki til að halda aftur af þessari oflauna- stefnu. Norðmenn virðast hafa fundið miklu betri lausn, ef marka má könnunina sem minnst var á í upphafi. Þeir þurfa enga skrif- finnsku, reglugerðir, eftirlit eða önnur leiðindi. Norska leiðin er auðveld, þar stjórna konur. Oflaunastefna fyrir yfirmenn eins og sú sem tíðkast í Banda- ríkjunum fer ekki saman við þá kröfu hluthafa að vel sé farið með það fé sem þeir hafa lagt í fyr- irtækið. Ekki ætla ég að draga ályktanir um launagreiðslur til yfirmanna íslenskra fyrirtækja út frá gögnum frá Bandaríkj- unum og Noregi. En það er nokk- uð ljóst að þetta er eitthvað sem hluthafar, í hvaða landi sem er, þurfa að gefa gaum. Rétt eins og skattgreiðendur þurfa að fylgjast með því hvernig ríkisvaldið ver þeirra fé. Það þarf ekki að vera að ís- lenskir kvenkyns stjórnarfor- menn séu betri en þeir af hinu kyninu. En hvernig getum við svo sem vitað það? Við höfum sama og enga reynslu af því að hafa konur í forsvari fyrir stjórn- ir fyrirtækja. Eftir því sem ég best veit eru fyrirtæki sífellt að leita nýrra leiða til hinnar títt- nefndu hagræðingar í rekstri. Gæðastjórnun, niðurskurður, sameining deilda, yfirvinnubann og fleira og fleira. Allt er gert til að spara, til að hagræða svo reksturinn skili þeim sem lagt hafa fé inn í fyrirtækið sem mest- um arði. Ef íslenskar konur eru eitthvað líkar þeim norsku er lík- legt að kvenstýrt fyrirtæki búi við lægri kostnað en þau sem hafa karl við borðsendann á stjórnarfundum. Hver veit nema þarna liggi ein- mitt hlutfallslegir yfirburðir kvenna? Konur hafa jú stýrt heimilum um aldir og fyrirtækja- rekstur er ekkert annað en stækkuð mynd af heimilishaldi. Þótt í huga langflestra sé (því miður) mynd af miðaldra karl- manni við borðsenda á stjórn- arfundi þá er ekki þar með sagt að sú mynd sé rétt. Það er ekkert sem segir að íslenskar konur geti síður gegnt embætti stjórnarfor- manns. Niðurstöður norsku rannsóknarinnar benda einmitt til þess að hluthafar þeirra fyr- irtækja sem hafa konu í forsvari fyrir stjórnina fái meira fyrir sitt pund en hluthafar karlstýrðu fyrirtækjanna. Þetta eru góðar fréttir fyrir hluthafa í íslenskum fyrirtækjum. Einhverjir hafa sjálfsagt gefið upp alla von um að hægt sé að hagræða meira, treysta bara stjórninni fyrir því að skapa sem mest verðmæti úr hlutafénu. Slíkur hugsanaháttur er úrelt- ur og engin ástæða fyrir hluthafa að nýta ekki tækifærið. Nú er komin fram ný leið til að reka fyrirtækin betur. Einfalt og gott sparnaðarráð frá frændum okkar og frænkum í Noregi. Látum konur um að sitja við borðsend- ann á stjórnarfundum. Norðmenn leysa málið Þótt í huga langflestra sé mynd af mið- aldra karlmanni við borðsenda á stjórn- arfundi þá er ekki þar með sagt að sú mynd sé rétt. Það er ekkert sem segir að konur séu síðri stjórnarformenn. VIÐHORF Eftir Eyrúnu Magnúsdóttur eyrun@mbl.is Á GEÐHEILBRIGÐISDAGINN 10. október sl. sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra m.a. að skoða þyrfti hvort jafnræðis gætti í þjónustu við líkamlega veika annars vegar og geðveika hins vegar. Að því tilefni leyfi ég mér að benda á þætti sem hafa þarf í huga þeg- ar geðheilbrigðskerfi okkar Íslendinga verður endurskoðað. Skipulag er ekki með sama móti á geðræna sviðinu og því vefræna. Meðhöndlun líkamlegra veikra fer fram innan sérsviða, s.s. barna-, öldrunar- og endurhæfingarsviðs sem hvert og eitt er undir sérstakri stjórn. Geðrænum sjúk- dómum virðist ekki gert eins hátt undir höfði að því leyti að öll sviðin lúta einni yfirstjórn. Sérþekking innan geðsviðs er þó ekki síður mikilvæg en þess vefræna. Svo má líka velta fyrir sér ástæðu sundurgreiningar geð- sjúkdóma og vefrænna sjúkdóma. Kannski erum við að viðhalda fordómum með því að einangra geðsjúka frá öðrum sjúklingahópum. Ekki virðist heldur gæta jafn- ræðis varðandi endurhæfingarúrræði eftir stofnanavist því geðsjúkir eiga t.d. ekki kost á iðjuþjálfun sem eflir þá og styrkir til að takast á við verkefni sem þeirra bíða, á sama hátt og líkamlega sjúkir eiga kost á sjúkra- þjálfun til að efla sína færni. Mér virðist sem skipulag heilbrigðiskerfisins hafi ekki náð að þróast í takt við aukna þekkingu. Ef marka má einn af landlæknum Bandaríkjanna sem á áttunda áratugnum kom fram með að aðeins væri hægt að lækna um 10% af því sem við erum að fást við í heil- brigðiskerfinu, að 20% orsakanna væri að leita innan erfðafræðinnar, að um 20% tilvika krefðist vinnu með umhverfisþætti og að þau 50% sem eftir stæðu væru sökum hegðunar/lífsstíls. Ef við gefum okkur að þetta sé nokkurn veginn rétt og að hið sama eigi við um geð- sjúkdóma, þá er nú einhvers staðar vitlaust gefið, því mannafli og stýring fjármagns speglar ekki þessa sýn. Þverfagleg nálgun á geðsviði skilar bestum árangri og í endurhæfingu er sérfræðiþekking sjúklingsins og að- standenda undirstaða varanlegs árangurs. Eigi hug- myndafræði þessi að skila sér þarf hún að kristallast í allri ákvarðanatöku en miðað við skipulag geðheil- brigðisþjónustunnar nú, þar sem hugmyndafræði læknavísindanna er í fararbroddi, er það ógerningur. Hjúkrunarfræðingar hafa verið að sækja á hvað varðar völd, en hugmyndafræði þeirra virðist ekki njóta sín að sama skapi. Pólítík í dag snýst því miður að mestu um krónur og aura en ekki hugmyndafræði. Það þarf að taka afstöðu til alls sem við vitum að hefur áhrif á bata og heilbrigði. Læknisfræðin hamrar á vísindunum; að ekkert skuli gert nema að það sé vísindalega sannað og þess vegna eigi að velja þá til forystu sem einungis fylgi læknavísindum og sönnunum. Samt uppgötva sjúkling- ar oft og iðulega að innan læknisfræðinnar, eins og ann- arra fræðigreina, er þekking takmörkuð og ekki alltaf vitað hverjar afleiðingar kunna að verða. Notendarannsóknir hafa verið að sækja í sig veðrið á síðusta áratug og hefur t.d. breytt sýn manna á áhrifa- valda á bata geðsjúkra. Í notendarannsóknum er unnið út frá reynslu sjúklinganna. Slíkar rannsóknir hafa einnig reynst vel til að meta gæði þjónustunnar. Ástæða þess að slíkar rannsóknir voru ekki gerðar áður var ein- faldlega sú að geðsjúkum var ekki treyst, þeir voru ekki taldir marktækir. Niðurstöður notendarannsókna hafa orðið til þess að þróaðar hafa verið nýjar leiðir og að- ferðir sem ýta undir og viðhalda bata geðsjúkra. Víða erlendis eru notendarannsóknir nú lagðar til jafns við hefðbundnar rannsóknir varðandi nýsköpun í þjónustu. Það má velta því fyrir sér af hverju við erum svo fljót að samþykkja notkun nýrra geðlyfja, en svifasein t.d. að nýta okkur niðurstöður notendarannsókna. Ég tel að ólíkir hagsmunir eigi þar hlut að máli. Ef sömu menn með sömu hugmyndafræði sitja of lengi bitnar það á nýsköpun og getur leitt til stöðnunar. Yfirstjórnendur sérgreina á heilbrigðissviði eru oftast valdir úr hópi lækna. Góður yfirstjórnandi þarf fyrst og fremst að hafa stjórnunarhæfileika. Ekki er t.d. nauð- synlegt að hafa læknisfræðilegan bakgrunn til að sjá til þess að verkefnum sé sinnt, að rétt fólk sé á réttum stað eða til að hvetja til rannsókna og sinna gæðaeftirliti og að nýta og halda utan um fjármagn eða styðja og hvetja undirmenn sína til dáða. Úreltar reglur gilda um val manna í áhrifamestu embætti heilbrigðiskerfisins og þurfa þær reglur endurskoðunar við ef nýjar hug- myndir eiga að hljóta brautargengi. Á undanförnum ár- um hefur valdatíð fylgt lýðræðisreglunni – 4 ár í senn – en óljóst er hvernig menn þurfa að standa sig til halda velli. Til þess að það verði yfirvöldum, almenningi, sjúk- lingum og undirmönnum ljóst þarf að marka skýrar for- sendur fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til áframhald- andi setu. Það gæti e.t.v. leitt til nýsköpunar á heil- brigðissviði ef menn þyrftu að sanna sig og keppa við annað hæfileikaríkt fólk um völd og áhrif. Pólítíkusar sem sannarlega vilja jafnræði í heilbrigðismálum þyrftu þá ekki að grípa til einkavæðingar til að bjarga mál- unum. Einkavæðing og/eða þjónustusamningar munu ekki breyta miklu í þjónustunni ef hugmyndafræði kerf- isins breytist ekki. Elsku Jón, ég er sammála þér um þörfina fyrir tiltekt og endurskoðun í geðheilbrigðismálum og víðar í heil- brigðismálum. Þú ert kosinn af lýðnum og hefur vald til tiltektar. En það er ekki nóg að hafa vald, það þarf líka gífurlegan kjark til að breyta valdahlutföllum þar sem miklir hagsmunir eru í húfi. Tiltekt í geðheilbrigðismálum Eftir Elínu Ebbu Ásmundsdóttur Höfundur er forstöðuiðjuþjálfi geðsviðs LSH og lektor við HA. ÓTRÚLEGUR fjöldi landsmanna hefur komið að íþróttum með einum eða öðrum hætti; sem þátttakandi, áhorfandi, stuðnings- aðili eða á annan hátt. Skipulagt íþróttastarf hefur ekki síst verið blómlegt í Reykjavík, þar sem ótrúlegur fjöldi íþróttafélaga hefur starfað um lengri eða skemmri tíma. Fæst þessara félaga eiga sér skráða sögu og hún lifir mest í skjöl- um þeirra og í minni sem tóku þátt í störfum þeirra. Því miður er það að gerast að saga fleiri og fleiri félaga er að tapast og þar með vitneskja um hugsjónir þeirra og starf. Skjalasöfn íþróttafélaganna eru frumheimildir og vitnisburður um starfsemi þeirra; hvaða hugsjónir voru að baki, um baráttuna, þrotlaus- ar æfingar til að ná árangri, töp og glæsta sigra, dugnað og elju einstakra manna við uppbyggingu félaganna, oft í ólaunuðu sjálfboðastarfi. Mikilvægt er að skjalasöfn íþróttafélaganna glat- ist ekki, heldur séu varðveitt tryggi- lega á einum stað, þar sem fleiri geta fræðst um hana og rannsakað. Borgarskjalasafn Reykjavíkur hef- ur á undanförnum árum staðið að skipulagðri söfnun skjalasafna íþróttafélaga í samvinnu við Íþrótta- bandalag Reykjavíkur. Öllum starf- andi íþróttafélögum hefur verið ritað bréf og þau hvött til að afhenda Borg- arskjalasafni skjöl sín til varðveislu. Sömuleiðis hefur verið reynt að hafa upp á skjölum eldri íþróttafélaga. Nokkur mjög heillega skjalasöfn hafa borist og hafa þau verið skráð og gengið frá þeim í öskjur til tryggilegr- ar geymslu til framtíðar og þannig að þau séu aðgengileg til rannsókna á lesstofu safnsins. Borgarskjalasafn Reykjavíkur varðveitir heilleg skjala- söfn eftirfarandi félaga: Íþrótta- bandalags Reykjavíkur, Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Skíða- félags Reykjavíkur, Íþróttafélagsins Aspar, Íþróttafélags kvenna, Íþrótta- félags heyrnarlausra, Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, Golfklúbbs Reykjavíkur, Knattspyrnufélagsins Víkings og Íþróttafélagsins Fylkis. Þrátt fyrir að frábært sé að slík heilleg skjalasöfn séu komin á skjala- safn eru það okkur á Borgarskjala- safni vonbrigði hversu mörg félög hafa ekki afhent skjöl sín, í mörgum tilfellum vegna þess að skjölin eru ein- faldlega töpuð. Við höfum talað við fornfræg íþróttafélög, þar sem for- svarsmenn félaganna hafa verið allir af vilja gerðir af afhenda okkur skjöl, en þau hafa einfaldlega ekki fundist og ekki verið vitað um örlög þeirra. Í sumum tilfellum er hægt að kenna um bágri aðstöðu félaganna á árum áður. Oft þurftu stjórnarmenn að varðveita fundargerðarbækur og önnur skjöl heima hjá þér. Við höfum heyrt dæmi þess að skjöl hafi fundist á háaloftum og í skápum. Í einu tilfelli varðveitti til dæmis Ellen Sighvatsson heillegt skjalasafn Skíðafélags Reykjavíkur á heimili sínu, frá því hún hóf að starfa með því um 1928 og fram á síðasta hluta 20. aldar. Samtals voru það 35 öskjur af skjölum skíðafélagsins sem hún afhenti okkur til varðveislu og eru þetta ómetanlegar heimildir um skíða- íþróttina í og við Reykjavík. Ekki er alltaf tryggt að geyma skjöl á heimilum stjórnarmanna, því þess eru dæmi að skjölunum hafi einfald- lega verið hent, í vorhreingerningum eða eftir þeirra dag. Það gerir líka söguriturum erfiðara um vik að skjöl- in sé að finna „hist og her“. Sömuleiðis má benda á að skjalasöfn eru með tryggar geymslur og aðstöðu til að veita aðgang að skjölunum undir eft- irliti, þannig að þau varðveitast þar betur en í misjöfnum geymslum félag- anna. Það sem Borgarskjalasafn Reykja- víkur hefur áhuga á að fá til varðveislu eru til dæmis fundagerðarbækur fé- laganna, bréfasöfn, málasöfn, ljós- myndir, fréttabréf, plaköt og annað útgefið efni, ársreikningar, fé- lagaskrár og mótaskrár. Starfsmenn safnsins geta komið og metið skjöl fé- laganna. Ekki er tekið gjald fyrir skráningu og varðveislu skjalanna. Við viljum hvetja alla sem hafa skjöl í fórum sínum að hafa samband við Borgarskjalasafn. Að lokum er hér dæmi um hvað eitt lítið skjal getur sagt okkur hinum. Um er að ræða æfingartöflu þekkts sund- kappa frá því um 1939. Í byrjun skjalsins er æfingardagskrá og mál- tíðir hans tíundaðar alveg frá því hann fer á fætur kl. 7 á morgnana og þar til hann á að vera sofnaður kl. 22. Dæmi um æfingar hans er eftirfarandi: „150- 200 metrar liðkunarsund. Þá 1000 metra með höndum og fótum saman (synda greitt), síðan 400 metra handa- tök og 400 metra fótatök (sér), að end- ingu 200 metra hægt með höndum og fótum saman.“ Laugardaginn 8. nóvember . tóku opinber skjalasöfn um land allt þátt í norrænum skjaladegi og er dagurinn tileinkaður þemanu: Íþróttir, heilsa og líkami. Hægt er að fræðast um dag- skrá dagsins á www.skjaladagur.is. Borgarskjalasafn Reykjavíkur verður með sýningu á frumskjölum í verslunarmiðstöðinni Kringlunni, þar sem sýnd verða fjölmörg skjöl og ljós- myndir tengdum íþróttum í Reykja- vík og aðgerðum bæjarstjórnar til að bæta heilsu borgarbúa. Er íþróttasaga Reykjavíkur varðveitt á heimili þínu? Eftir Svanhildi Bogadóttur Höfundur er borgarskjalavörður í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.