Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 20
Andaðu léttar og sýndu vistvernd í verki Enginn getur gert allt en allir geta gert eitthvað Landvernd hefur umsjón með mörgum verkefnum sem öll miða að því að bæta umhverfið og vekja fólk til umhugsunar um það. Þú getur lagt Landvernd lið og gerst félagi á www.landvernd.is Sjá bækling sem fylgir blaðinu í dag Vistakturskeppni Landverndar Í dag kl. 11.00 í Nauthólsvík! Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið | Árborg Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund skapti@mbl.is Harma aðför | Stjórn Samtaka fá- mennra skóla harmar þá „aðför sem gerð er að fámennum sveitarfélögum í landinu með nýjum starfsreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga“ segir í ályktun sem sam- tökin hafa sent frá sér. Sveitarfélög í dreif- býli koma illa út Í ályktuninni segir einnig: „Ljóst er, að þau sveitarfélög sem í dreifbýlinu eru, koma illa út og er mennt- un grunnskólanema í þeim stefnt í mikla hættu. Aukinn kostnaður hefur m.a. orðið vegna:  valgreina í eldri bekkjum grunnskóla  endurmenntunar starfsfólks  mats á skólastarfi  breyttra kennsluhátta  stóraukins vægis upplýsinga- og tækni- menntar sem kallar á dýra aðstöðu  lengingu skólaárs  fjölgun kennslustunda. Öllum er ljós sú staða, að sveitarfélögin sem minnsta hafa tekjustofnana, hafa treyst á framlag Jöfnunarsjóðsins til að tryggja íbúum sínum lögboðna þjónustu s.s. leik- og grunnskóla. Fámennir skólar gullmolar Stjórn samtaka fámennra skóla skorar á ríkisvaldið að taka sérstakt tillit til fá- mennari og dreifðari byggða, þar sem sameining sveitarfélaga hefur ekki enn farið fram. Stjórn samtakanna bendir einnig á að ekki verður alltaf hagræðing af því að sameina sveitarfélög þar sem vegalengdir verða í sumum tilfellum lengri og því aukinn kostnaður við skóla- akstur, sem ekki verður hjá komist. Þá má benda á að til eru þau byggðarlög þar sem sameining hefur farið fram og verð- ur hagræðingu ekki náð með frekari sam- einingu þrátt fyrir að byggðarlagið sé fremur fámennt (u.þ.b. 500 íbúar). Fá- mennu skólarnir eru gullmolar í byggð- arlögum landsins sem eru of dýrmætir til að láta fjúka eða skolast burt í veðurofsa sameiningarlægðarinnar.“ HÉÐAN OG ÞAÐAN Óbreytt útsvar | Lagt er til að útsvars- prósenta í staðgreiðslu opinberra gjalda á Akureyri á næsta ári verði óbreytt frá fyrra ári, eða 13,03% af álagningarstofni. Þá er lagt til að sorphirðugjald af íbúðar- húsnæði verði 6.500 krónur á hverja íbúð. Maður var hand-tekinn áfimmtudag í tengslum við rannsókn á nokkrum innbrotum á Akureyri undanfarið, en þýfi fannst heima hjá honum. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir hon- um í þágu rannsókn- arinnar. Sjónvarpstæki var stolið úr bílskúr á Brekkunni í síðustu viku og á þriðjudag var til- kynnt um innbrot í Dekkjahöllina þar sem farið hafði verið inn um glugga og brotin upp sjóðsvél og skiptimynt stolið. Þá var tilkynnt um að brotist hefði verið inn í Bónusvídeó, rúða hafði verið tekin úr bakdyrum og stolið töluverðu af tób- aki og peningum ásamt símakortum fyrir um 100 þúsund krónur. Skemmd- ir voru unnar á pen- ingakassa og spilaköss- um. Í gæsluvarðhald Nemendur og starfsfólk Glerárskóla á Akureyritóku í vikunni þátt í Norrænni bókasafnsviku,en þema hennar er hafið. Fjallað hefur verið um hafið á ýmsan hátt í vikunni og einn daginn tóku allir sig til og mættu í sjóræningjabúningum í skólann enda var dagurinn kenndur við þennan miður þokkaða þjóðflokk sem sjóræningjar eru. Eftir að hafa spókað sig í búning- unum um morguninn söfnuðust allir saman í íþróttasaln- um þar sem stigið var á svið og sungin sjóaralög af ýmsu tagi og virtust allir skemmta sér hið besta. Hafið var svo enn og aftur í öndvegi þegar haldið var upp á Dag íslenskrar tungu í skólanum, en þá voru lesin ljóð um hafið og sögur sem tengjast því. Morgunblaðið/Kristján Sjóræningjadagur í Glerárskóla Ólína Þorvarð-ardóttir rifjaðiupp limru eftir Friðrik Steingrímsson, sem Friðrik orti þegar hann var spurður hvort hann væri lengur að búa til ferskeytlu eða limru: Ég limru er lengi að semja það listform er erfitt að hemja; það líkist því mest að leggja við hest sem láðst hefur alveg að temja. „Æ, þetta bara datt...“ hváði séra Hjálmar Jónsson og orti: Ólína með orðasveim andann þarf að hemja. Hún er eflaust ein af þeim sem ekki er hægt að temja. Friðrik frétti af þessu norður í Mývatnssveit og fannst Ólína verða að svara þessu sjálf: Um það get ég ekkert sagt sem á er minnst að framan. Við Ólínu hef aldrei lagt þó eflaust sé það gaman. Ólína með orðasveim pebl@mbl.is Reykjavík | Blíða og hægviðri hafa ríkt víða um land síðustu daga og margir nýtt sér góða veðrið til heilsubótar. Þessar ungu konur notuðu veð- urblíðuna til gönguferðar í Vesturbænum í höf- uðborginni. Spáð er hlýnandi veðri en smáskúrum sunnan- og suðvestanlands fram eftir degi í dag. Morgunblaðið/Sverrir Með barnavagna í blíðviðrinu Veðrið ALMENN óánægja heimamanna í Keldu- hverfi kom fram á kynningarfundi fyrir skemmstu um friðlýsingu Öxarfjarðar, sem Náttúruverndaráætlun 2004 til 2008 gerir ráð fyrir. Fundurinn var haldinn í Skúlagarði í Kelduhverfi og mættu um 80 manns. Að sögn Einar Ófeigs Björnssonar voru heimamenn ekki hrifnir af friðlýsing- aráformum Umhverfisstofnunar, þar sem umrætt land er nánast allt í umsjá Land- græðslu ríkisins. Telja heimamenn ástand svæðisins mjög gott og þurfi engrar frið- lýsingar við. Telja þeir að frekar ætti að hugsa betur um Þjóðgarðinn í Jökulsár- gljúfri. Í tillögu Umhverfisstofnunar að nátt- úruverndaráætlun kemur fram að influttar og framandi tegundir, t.d. minkur og alska- lúpína, hafi raskað og ógnað lífríki svæð- isins. Einnig sé sandfokshætta á svæðinu og vaxandi ásókn í fuglaveiði. Þá sé sums staðar mikil eggjataka og skógrækt norð- an Ásbyrgis. Þá sé talin hætta af virkjun jarðhita og rask samfara því auk utanvegar aksturs. Óánægðir með friðlýsingu Öxarfjarðar ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hefur tekið í notkun nýjar skurðarvélar frá Mar- el hf. þar sem enn lengra er stigið í tækniþróuninni en áður, eins og haft er eft- ir Gunnari Larsen, framkvæmdastjóra ÚA, á heimasíðu félagsins. Nýju vélarnar koma í stað eldri skurð- arvéla frá sama fyrirtæki, sem hafa dugað vel undanfarin ár, segir á heimasíðunni. „Þetta er þriðja kynslóð af skurðarvél- um frá Marel, sem við tökum hingað inn. Nýjungin í þessari vél er fyrst og fremst mun nákvæmari tölvusjón en í eldri vélum, en tölvusjónin metur þyngdina á flakinu og ákvarðar út frá gefnum forsendum hvernig það skuli skorið.“ Gunnar segir nýju vélarnar mæla rúm- mál bitans mjög nákvæmlega, „og að sama skapi er unnt að mæla þyngd hvers bita mjög nákvæmlega. Með aukinni nákvæmni minnkar afskurðurinn og nýtingin úr hverju flaki verður meiri en áður. Jafn- framt eykst öryggið í framleiðslustýring- unni,“ segir Gunnar Larsen. ÚA fær þriðju kynslóð skurð- arvéla frá Marel ♦ ♦ ♦    Úr bæjarlífinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.