Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 28
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Sigurvegari: Jón Steinar Jónsson sigraði í stuttmyndakeppninni. Hveragerði | Árleg hæfileikakeppni unglinga, sem nefnist í daglegu tali MEGA-MIX var haldin í vikunni sem leið. Það eru félagsmiðstöðin Skjálfta- skjól og Grunnskólinn sem standa að þessari skemmtun. Í ár var keppt í hárgreiðslu, förðun, módel, stutt- myndum og kökuskreytingum. Í hléinu var gestum boðið að kaupa sér kaffi og meðlæti. Úrslitin urðu þau að nöfnurnar Katrín Ottesen og hennar módel Katrín Þóra Eyvindardóttir unnu fyrsta sæti í förðun og einnig í hár- greiðslunni. Besta stúlknamódelið var Kamilla Gylfadóttir, besta stráka- módelið var Haukur Sigurjón Krist- insson. Flottasta kakan var kaka sem nefndist „Trillurnar þrjár“ og var bökuð og skreytt af Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur og Jönu Maren Ósk- arsdóttur. Sigurvegari í stuttmyndakeppninni var Jón Steinar Jónsson. Myndin hans var eftirherma af kong fú-mynd- um og fjallar hún um mann sem er að hefna meistara síns, sem er gamall kong fú-meistari. Verðlaunin voru glæsileg og voru sigurvegararnir einnig leystir út með rós. Glæsilegt kvöld og krökkunum til sóma. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir „Trillurnar þrjár“: Kakan sem þótti flottust að mati unglinganna. Fjölbreytt keppni unglinga ÁRBORGARSVÆÐIÐ 28 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hveragerði | Á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði, er rekin handavinnu og föndurstofa. Þar ráða ríkjum þær Elísabet Kristinsdóttir og Þórdís Öfjörð. Þær stöllur taka á móti gest- um af alúð og þar ríkir kyrrð og friður. Það er eins og að koma inn í annan heim þegar maður kemur inn til þeirra úr skarkala daglega lífs- ins. Föndurstofan er opin fyrir heim- ilisfólkið á Ási alla virka daga eftir hádegi og einn morgun, en þá er unnið með leir. Munirnir sem unnir eru þarna eru æði fjölbreyttir. Það er m.a. prjónað, saumað út, málverk eru máluð, blóm eru hekluð og einn- ig föt. Þá eru unnar þrívídd- armyndir, skornar út klukkur sér- staklega fallegar. Núna eru jólin að nálgast og þá er byrjað að búa til jólakort, jóladúka, jólakúlur og fleira. Einn handverksmaðurinn hefur smíðað fjárhúsið, þar sem Jes- ús fæddist forðum, og inni í því eru þeir sem sögunni tengjast. Að meðaltali eru það þrjátíu manns sem koma daglega í föndrið og er boðið upp á kaffi og „meððí“. Næsta sunnudag verður árlegur haustbasar og verða þá flestir mun- irnir til sölu. Einnig á að hafa lifandi kaffihús, þar sem fólk getur keypt sér kaffi og nýbakaðar vöfflur. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Dægrastytting: Nokkrar af handverkskonunum sem mæta í föndrið á Ási. Listafólk á besta aldri Handverksfólk á föndurstofunni Selfoss | Handboltadeild Selfoss skrifaði nýlega undir samning við skyndibitastaðinn KFC á Selfossi um að KFC verði helsti styrktaraðili deildarinnar til tveggja ára. KFC hefur áður komið að stuðningi við deildina og Bergur Guðmundsson formaður deildarinnar sagði þennan stuðning frá KFC afar þýðingarmik- inn fyrir handboltann á Selfossi. Deildin vinnur að því að byggja upp sitt starf til framtíðar. Á myndinni eru Bergur Guð- mundsson formaður handknattleiks- deildar Selfoss og Kristján Stef- ánsson, yfirmaður KFC á Selfossi. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson KFC styður hand- boltann á Selfossi Selfoss | „Hlaupin gefa manni aukið þrek við hvað sem er, byggja mann upp andlega og líkamlega og eru við- bót við aðra orku sem maður hefur. Maður þarf úthald og kraft í svo mörgu sem maður er að fást við dags daglega. Við látum veðrið aldrei hamla okkar för og nennum alveg að fara hvenær sem er,“ segir Ingileif Auðunsdóttir en hún og maður hennar Sigmundur Stefánsson hafa tamið sér heilbrigðan lífsstíl með mikilli útiveru við göngur, kaj- aksiglingar, skíðaiðkun og hlaup. „Við höfum á hverju sumri síðast- liðin 15 ár farið í skipulagðar göngu- ferðir um hálendið ásamt því að stunda hlaupin,“ segir Sigmundur sem hét sjálfum sér því árið 1999 að hlaupa maraþonhlaup árið sem hann yrði fimmtugur. Hann lét það ekki á sig fá þó hann fengi hjartaáfall á hlaupaæfingu í maí það ár. Hann kláraði 8 kílómetra hlaupaæfingu þennan dag og fór á spítalann í hjartaþræðingu og blástur. Hann gerði stutt hlé á hlaupunum en hljóp 10 km í Brúarhlaupi Selfoss um haustið það ár. Um Jónsmessuna í vor hljóp hann fyrsta maraþonhlaupið og síðan aft- ur nú í haust þegar hann hljóp í Búdapest ásamt nokkrum hlaupa- félögum. Í fyrra hljóp hann Lauga- veginn á hálendinu, 55 kílómetra víðavangshlaup, til að undirbúa sig fyrir árið í ár. Bakpoki, tjald og kajak „Hlaupin og gönguferðirnar eru einfaldlega hluti af þeim lífsstíl sem við hjónin höfum tamið okkur. Þetta er orðin föst regla hjá okkur og við erum að hugsa um sjálf okkur og heilsuna. Á sumrin eru þetta skipu- lagðar ferðir annaðhvort á eigin veg- um eða með hópum. Á síðastliðnum þremur árum höfum við svo bætt við kajaksiglingum þar sem við tengjum saman gönguferð á hálendinu eða við ströndina og kajaksiglingar. Þá erum við með ferðabáta þar sem maður getur verið með tjald og bún- að með í bátnum. Hlaupin eru eiginlega vetr- arsportið hjá okkur þó sjálfur hlaupi ég mikið á vorin en á sumrin hafa gönguferðirnar forgang. Svo erum við líka á skíðum og förum í ferðalög á gönguskíðum með tjald og gistum í tjaldi. Fórum til dæmis árið 2001 í skipulagða vikuferð til Grænlands sem var stórkostleg ferð,“ segir Sig- mundur. Höfum yndi af hreyfingunni „Það sem ég legg áherslu á er að þegar barnauppeldi lýkur og öllu lífsins brasi sem því fylgir er mik- ilvægt að hjónum takist að vera sam- stiga í áhugamálum sínum. Hjá okk- ur eru það ferðalög, hlaup og göngur. Við tökum þátt í þessu sam- an og höfum mikið yndi af. Þetta gefur okkur betra form og maður fær lífsfyllingu sem aftur gerir manni betur kleift að takast á við daglegt líf. Ég er með þessu að vinna gegn B-tegund sykursýkinnar sem ég er með, vinn á sykrinum með því að reyna á mig. Ég lét hjartaáfallið ekki stoppa mig og komst áfram eft- ir það, þakka það reyndar því að hafa tamið mér þennan lífsstíl og því góða formi sem ég er í.“ Hlaupið undan vindi „Félagsskapurinn í kringum hlaupin er afskaplega mikilvægur. Við erum í hlaupahópnum Frískir Flóamenn þar sem eru 30 – 35 hlauparar. Þessi hópur hittist og hleypur saman og þarna er á ferð- inni mikil samheldni. Við ákváðum að koma á nýju hlaupi í Flóanum en það heitir Hlaupið undan vindi. Eins og nafnið bendir til þá verður hlaup- ið undan vindi en hlaupaleiðin er eft- ir Gaulverjabæjarvegi og fer rás- markið eftir því hvernig vindar blása. Þetta verður miðdegishlaup þann 22. nóvember. Ástæðan fyrir þessu er sú að hlaupaleiðir hér hjá okkur eru hraðar en níu af tíu bestu tímum í hálfmaraþoni á síðastliðnu ári eru á Selfossi í Brúarhlaupinu,“ segir Sigmundur. Ingileif tekur undir með manni sínum og leggur áherslu á orðin þeg- ar hún segir: „Þetta gefur manni lífsánægju, þessi lífsstíll verður hreinlega vani og manni líður mjög vel.“ Sigmundur og Ingileif á Selfossi eiga sinn heilbrigða lífsstíl Látum veðrið aldrei hamla för Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Útivistin verður lífsstíll: Ingileif og Sigmundur fyrir utan íbúðarhús sitt á Selfossi. Hveragerði | Það hefur haustað rólega og stillur hafa gert það að verkum að laufið hefur fallið hægar en oft áður. Á dögunum var kyrrt og kalt við Sogið í landi Öndverðarness, þar sem fréttarit- ara tókst að fanga þessar fallegu haustmyndir. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Stemmning við Sogið   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.