Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 11
TIL SÖLU
„Old Charm“ borðstofusett og átta
stólar (tveir m. örmum).
Staðgreiðsluverð kr. 230.000.
Útskorið sófaborð með glerplötu
kr. 30.000.
Sími 553 1762 og 864 7350.
Jólasveinaskeiðin
er komin
Gull- og Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • Verkstæði Guðlaugs A. Magnússonar.
s. 552 0775 • Síðan 1924 • www.erna.is
KETKRÓKUR
kr. 5.900 stgr.
Fallega íslenska silfrið
Landsins mesta úrval
Auðbrekku 14,
Kópavogi.
Hefst þriðjudaginn 25. nóvember - þri. og fim. kl. 20.00
Ásmundur býður einnig upp á einkatíma og ráðgjöf.
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá, sem eiga við
streitu, kvíða eða fælni að stríða og/eða eru að
ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar
verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi
og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið
á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og
jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál, sem stuðla
að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga.
Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994.
JÓGA GEGN KVÍÐA
Skráning í síma 544 5560
og á www.yogastudio.is
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
25%
afsláttur
af öllum vörum
frá
Mikið úrval af
náttfatnaði
Opið til kl. 16 í dag.
Póstsendum
á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Póstsendum
Gerðu vel við þig og þína
Úrval af nýjum munstrum
Silkidamask og bómullarsatín
sængurverasett
JÓN Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður segir að niðurstaða
Hæstaréttar í máli félagsins Hafs
gegn félaginu Hilmi varðandi kaup á
hlutabréfum veki mikla undrun, en
hann var lögmaður Hilmis í málinu.
Niðurstaða Hæstaréttar var sú að
Haf ehf., sem er í eigu Ágústs Ein-
arssonar, prófessors og fyrrverandi
alþingismanns, þyrfti ekki að greiða
rúmlega 40 milljóna króna eftir-
stöðvar vegna kaupa árið 2001 á 5%
hlut í Frjálsri fjölmiðlun sem þá gaf
út DV. Hæstiréttur taldi ekki efni til
að rifta kaupsamningnum en dæmdi
að Hafi bæri afsláttur af kaupverð-
inu þar sem verðmæti Frjálsrar fjöl-
miðlunar hefði verið mun minna en
forráðamenn fyrirtækisins lýstu yfir
þegar kaupin voru gerð.
„Niðurstaða réttarins vekur mikla
undrun vegna þess að kaupanda
hlutabréfanna var ekki talið skylt að
efna samninginn, þó að fyrir hafi leg-
ið í málinu að kaupin voru gerð til að
greiða fyrir öðrum viðskiptum sem
áttu sér stað sama dag og þó að fyrir
hafi legið í málinu einnig að kaup-
andinn var sérstakur sérfræðingur
um allt sem þarf að gæta að í við-
skiptum með hlutabréf, en gerði
enga fyrirvara um kaup sín,“ sagði
Jón Steinar.
Hann sagði að það væri ástæða til
að vekja athygli allra þeirra, sem
gerðu bindandi samninga sem þeir
sæju eftir síðar, á að það virtist vera
hægt að fara fyrir dómstólana í því
skyni að sleppa við að efna skuld-
bindingar sínar.
Jaðrar við hreina misbeitingu
„Það er mjög alvarlegt mál að
meirihluti Hæstaréttar Íslands skuli
gefa kost á slíku og jaðrar við hreina
misbeitingu á dómaravaldi,“ sagði
Jón Steinar ennfremur.
Aðspurður hvort hann teldi að
þessi dómur gæti boðað breytingar á
túlkun kaupalaganna sagði Jón:
„Það dregur kannski úr fordæmis-
gildi dómsins að einn dómendanna
hefur sagt í annarra áheyrn að dóm-
ar hans hafi yfirleitt ekki slíkt gildi,
hann dæmi bara hvert mál fyrir sig,“
sagði Jón Steinar að lokum.
Niðurstaða réttar-
ins vekur undrun
Jón Steinar Gunnlaugsson um dóm
Hæstaréttar í máli Hafs gegn Hilmi
UPPLAGSEFTIRLIT Verslunar-
ráðs Íslands hefur kannað upplag
nokkurra tímarita og kynningarrita
frá maí til ágúst á þessu ári og til
samanburðar tímabilið janúar til
ágúst. Samningar eru í gildi um eft-
irlit með um 20 titlum en útgáfutími
þeirra er misjafn.
Prentað upplag FÍB-blaðsins
Ökuþórs var 19.000 og var 15.990
dreift til áskrifenda en 2.200 eintök
lögð fram til dreifingar. Sumar á
Suðurlandi var prentað í 15.000 ein-
tökum og þau öll lögð fram til dreif-
ingar.
VR-blaðið var prentað í 22.400 ein-
tökum og 21.750 dreift til áskrifenda.
Dreift var 40 þúsund eintökum af
Reykjavik this month á tímabilinu
maí til ágúst og Birta kom út 18 sinn-
um á þeim tíma og var dreift að með-
altali í 94.800 eintökum.
20 rit í upplagseftirliti