Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 77
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 77 EVRÓPUÞJÓÐIR verða með þrett- án sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik, sem fer fram í Túnis 24. janúar til 6. febrúar 2005. Nú þegar hefur einu sæti verið út- hlutað – það eru heimsmeistarar Króatíu, sem komast beint á HM. Þrjár þjóðir tryggja sér sæti á Evr- ópumótinu í Slóveníu, sem stendur yfir 22. janúar til 1. febrúar 2004. Fimmtán þjóðir á EM berjast um þrjú sæti – Svíþjóð, Þýskaland, Danmörk, Ísland, Serbía-Svart- fjallaland, Rússland, Úkraína, Pól- land, Spánn, Ungverjaland, Frakk- land, Sviss, Portúgal, Slóvenía og Tékkland. Tólf af þessum þjóðum þurfa síð- an að leika um rétt til að leika á HM í Túnis ásamt sex þjóðum, sem verða sigurvegarar í riðlum sínum í forkeppni, en riðlarnir eru þannig skipaðir: 1. RIÐILL: Grikkland, Litháen, Búlgaría og Eistland. 2. RIÐILL: Lettland, Tyrkland og Kýpur. 3. RIÐILL: Slóvakía, Holland og Bosnía-Herzegovía. 4. RIÐILL: Rúmenía, Noregur og Færeyjar. 5. RIÐILL: Hvíta-Rússland, Austur- ríki og Ítalía. 6. RIÐILL: Makedónía, Belgía og Finnland. Forkeppnin fer fram á tímabilinu 7. til 25. janúar. Dregið verður um það hvaða þjóðir mætast – á lokadegi EM í Ljubljana í Slóveníu 1. febrúar. Barátta Evrópuþjóða um sæti á HM í Túnis LOGI Gunnarsson, sem leikur með þýska úrvalsdeildarliðinu Giessen 46’ers, þarf ekki að fara í aðgerð vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu liðs- ins í sl. viku. Þar lenti íslenski körfuknattleiksmaðurinn í samstuði við félaga sinn með þeim afleiðingum að hann hrökk úr axlarlið. Logi fór til sérfræðings í München og þar kom í ljós að hann getur farið að æfa á ný en missir líklega af næstu tveimur leikjum liðsins. Logi þarf ekki í aðgerð  GUÐMUNDUR E. Stephensen, Ís- landsmeistari í borðtennis tapaði fyrir Martin Monrad frá Danmörku, 4-0, í forkeppni á Opna danska meistaramótinu í borðtennis í Árós- um. Guðmundur er þar með úr leik. Monrad er í 97. sæti heimslistans en Guðmundur er tæplega eitt hundrað sætum neðar. Áður hafði Guðmund- ur unnið ástralskan borðtennismann í fjórum lotum.  MAGDEBURG verður án tveggja landsliðsmanna sinna í leiknum við Hauka í Meistaradeild Evrópu í handknattleik annað kvöld. Júgó- slavneski risinn Nenand Perunicic, sem hefur spilað 141 landsleik fyrir Júgóslavíu var nýlega skorinn upp í öxl og leikur ekki meira með á tíma- bilinu. Þá getur Steffen Stiebler, fyrirliði, ekki spilað en hann fékk sýkingu í hálsinn og verður að hvíla sig næstu vikuna. Stiebler hefur 18 landsleiki fyrir Þjóðverja.  HAUKAR ætla að bjóða upp á andlitsmálun fyrir leikinn á móti Magdeburg. Stúlkurnar í meistara- flokki sjá um málunina sem verður í forsal veislusalarins og hefst klukk- an 18. Þá verður forsala á leikinn í verslunarmiðstöðinni Firði í dag frá klukkan 11-16 og verða leikmenn Hauka við miðasöluna. Á morgun hefst miðasala á Ásvöllum klukkan 17. Miðaverð er kr. 1000 fyrir full- orðna og 300 fyrir börn 6-14 ára.  BRASILÍSKI knattspyrnumaður- inn Rivaldo er kominn í viðræður við Liverpool um að ganga í raðir fé- lagsins þegar opnað verður fyrir fé- lagaskipti í janúar.  RIVALDO, sem er 31 árs gamall, er á mála hjá Evrópumeisturum AC Milan en þar hefur hann verið í frosti og hefur lítið fengið að spreyta sig. Hann segist gjarnan vilja spila áfram í Evrópu og enska úrvals- deildin er deild sem hann segist gjarnan vilja spila í.  JAMES Beattie framherji South- ampton var í gær kallaður inn í enska landsliðshópinn í knattspyrnu í fyrir leikinn á móti Dönum á Old Trafford á morgun stað Alan Smiths hjá Leeds United. Smith, sem valinn var í stað Dariusar Vassell sem er meiddur, var hent út úr hópnum í gær eftir að hann var handtekinn af lögreglu vegna rannsóknar á atviki sem átti sér stað undir lok leiks Leeds og Man. Utd. á dögunum. Þar kastaði Smith flösku í reiði sinni, en flaskan hafnaði á áhorfanda.  MOHAMED Kallon framherji Int- er Milan á yfir höfði sér keppnisbann vegna lyfjanotkunar en lyfjanefnd ítalska íþróttasambandsins staðfesti í gær að B-sýni sem tekið var af hon- um hefði reynst jákvætt eins og A- sýnið. Leyfar af nandralóni fundust í þvagsýni leikmannsins. FÓLK Árni sagði að Drott væri sterkt liðen svo virtist sem það gæfi allt- af eftir á lokakafla leikja, líkt og á móti HK á dögunum. Þá eru tveir nýir leikmenn með félaginu sem leika fyrir utan og eiga þeir eftir að aðlagast leik liðsins. „Drott leikur hraðan handbolta og keyrir mikið á hraðupphlaupin. Við lékum ágæta vörn úti, þegar við náðum að stilla upp á móti þeim, en það sem varð okkur helst að falli úti var að við töp- uðum boltanum 14 sinnum án þess að ná að skjóta að marki og þeir refs- uðu okkur grimmilega fyrir það, gerðu ein níu mörk úr hraðaupp- hlaupum og fengu síðan fjölmörg vítaköst. Þeir nýttu sér líka mjög vel þegar þeir voru einum fleiri. Ég hef reynt að telja stákunum trú um að við getum þetta alveg, við þurfum að vinna upp eitt mark á hverjum tíu mínútum – þá er þetta komið. Ég veit hins vegar að ætlum við okkur áfram verðum við að eiga toppleik og til þess að það megi verða þurfum við góðan stuðning áhorfenda. Það var virkilega gaman að fá áhorfendur með sér til Svíþjóð- ar og vonandi styðja þeir eins vel við bakið á okkur í þessum leik,“ sagði Árni. Gefumst ekki upp Árni sagðist vonast til að liðið kæmist áfram. „Við gefumst ekki upp og ekki heldur þótt þeir verði með vænlega stöðu þegar lítið er eft- ir af leiknum. Úti hættu þeir að taka hraða miðju í síðari hálfleik og mér finnst það benda til þess að liðið sé ekki í mjög góðri æfingu. Við munum því berjast alveg fram á síðustu sek- úndur,“ sagði Árni. Spurður um dóma sem lið HK fékk í Svíþjóð eftir fyrri leikinn, en þar var talað um að HK-menn hefðu verið mjög grófir, sagði Árni: „Þetta er bara dæmigert sænkst væl. Lyk- illinn að því að vinna er að leika góða vörn og við vorum fastir fyrir í vörn- inni, en ég neita því að við höfum leikið gróft. Svíarnir voru með mik- inn leikaraskap, létu sig detta í tíma og ótíma en dómararnir, sem voru frá Færeyjum og Danmörku, sáu við þeim. Annars voru dómararnir nokkuð mistækir og sá færeyski óör- uggur. Lið leikum venjulega vörnina eins fast og dómararnir leyfa.“ Hilmar Sigurgíslason, formaður handknattleiksdeildar HK, segir að það hafi gengið ágætlega að fjár- magna þátttöku liðins í keppninni. „Hver umferð kostar um tvær millj- ónir og með stuðningi fyrirtækja og bæjarins hefur þetta gengið upp hjá okkur þannig að við erum óhræddir við að komast áfram í keppninni,“ sagði Hilmar. Árni Stefánsson, þjálfari HK, ætlar að leggja Svíana Vinna upp eitt mark á hverjum tíu mínútum „ÞETTA er alveg hægt,“ segir Árni Stefánsson, þjálfari hand- knattleiksliðs HK, en Kópavogs- liðið mætir sænska liðinu Drott í síðari leik liðanna í Evrópu- keppni bikarhafa í Digranesi í dag kl. 16. Svíarnir fögnuðu sigri í fyrri leiknum, sem fór fram í Halmstadt, 31:25. HVORKI fleiri né færri en 13 lands- liðsmenn eru í liði Magdeburg. Í lið- inu eru átta þýskir landsliðsmenn, einn franskur, einn pólskur, einn ís- lenskur, einn rúmenskur og einn rússneksur. Skrautfuglinn Stefan Kretzschmar er líklega þekktastur leikmanna Magdeburg en þessi snjalli hornamaður hefur leikið 200 landsleiki fyrir Þýskaland og er lykilmaður liðsins en hann skorar að jafnaði mörg mörk í öllum regn- bogans litum. Aðrir lykilmenn Magdeburg eru:  Oleg Kuleschow leikstjórnandi sem hefur spilað 106 leiki fyrir Rússa.  Grzgorz Tkaczyk, pólsk stór- skytta sem hefur spilað 48 lands- leiki og er talinn bjartasta von Pól- verja.  Johannes Bitter, rúmlega 2 metra hár markvörður, sem hefur leikið 4 landsleiki fyrir Þjóðverja, en hann hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum í haust og skemmst er að minnast frammistöðu hans í fyrri leiknum gegn Haukum.  Sigfús Sigurðsson línumaðurinn snjalli sem hefur 73 landsleiki að baki en Sigfús leikur stórt hlutverk í leik liðsins jafnt í vörn sem sókn en honum var hrósað í hástert fyrir frammistöðuna í sigri Magdeburg á Barcelona um síðustu helgi.  Joel Abati, franska vinstri- handar skyttan sem leyst hefur hlutverk Ólafs Stefánssonar með mikilli prýði. Abati er fastamaður í franska landsliðinu og hefur leikið 88 leiki fyrir Frakka. Bennet Wiegert, Christian Schöne og Stephan Just, leikmenn sem rétt eru skriðnir yfir tvítugt, hafa látið mikið að sér kveða en all- ir hafa þeir nýlega fengið að spreyta sig með þýska landsliðinu og eru framtíðarmenn þess. Þrettán landsliðs- menn Morgunblaðið/Kristinn Árni Stefánsson, þjálfari HK, hefur trú á sínum mönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.