Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 45 V elferðarmál og hug- myndafræði blandin samfélagslegri vitund í heilbrigðismálum voru áberandi meg- instef í stefnuræðu Halldórs Ás- grímssonar, formanns Framsókn- arflokksins, á haustfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins sem hófst í Reykjavík í gær og er framhaldið í dag. Var því lýst yfir eindregið á fundinum að Fram- sóknarflokkurinn sé velferð- arflokkur og menn væru ákveðnir í að halda áfram á velferðarbraut í þeirri ríkisstjórn sem nú situr. Þegar heilbrigðismál eru rædd í fjölmiðlum vill oft bera við að misskilnings gæti varðandi fram- lög af fjárlögum og úr ríkissjóði. Þannig mætti stundum halda af umræðunni að heilbrigð- isráðherra og fjármálaráðherra standi fyrir umfangsmiklum nið- urskurði í framlögum til mála- flokksins þegar raunin er allt önnur. Þannig eru framlög í heil- brigðismálum aukin um alls níu milljarða króna í því fjárlaga- frumvarpi sem nú er til með- ferðar á löggjafarsamkundu Ís- lendinga. Um níu milljarða! Þetta er t.d. vegna mikilvægra úrbóta í málefnum fatlaðra, til þess að bæta úr þörf fyrir úrræði í öldr- unarþjónustu og vinna frekar að uppbyggingu heilsugæslu á höf- uðborgarsvæðinu. Verkefnum sem full samstaða hefur verið um í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, sem margoft hafa sýnt í verki hversu mjög þeir meta öflugt og traust vel- ferðarkerfi. Heilbrigðismál hafa verið áber- andi í umræðunni að undanförnu, ekki síst í kjölfar landsfunda Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Var þar sleginn ólíkur tónn, enda þótt báðir fundir hafi átt það sameiginlegt að að hafa gert velferðarmálin að umtalsefni. Vinstri grænir ræddu á ábyrgan og málefnalegan hátt um íslenskt velferðarkerfi á meðan formaður Samfylkingarinnar vék stefnu síns stjórnmálaflokks frá því fyrir kosningar af borðinu í einu vet- fangi og tók þess í stað upp hug- myndafræði nýfrjálshyggjunnar. Er langt síðan formaður stjórn- málaflokks, sem kennir sig við jöfnuð og félagshyggju, hefur gert jafnrækilega atlögu að ís- lensku velferðarkerfi og þeim grundvallarréttindum okkar sam- félags að allir eigi rétt á fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag. Er ekki að undra, að æ síðan hafi félagar umrædds for- manns keppst við að bera af sér stuðning við slíka stefnubreyt- ingu og er öll sú umræða mjög í takt við þann mikla samhug og þá ríku einingu, sem Össur Skarpéð- insson sagði að hefði ríkt á um- ræddum landsfundi en fór hins vegar framhjá flestum öðrum. Framsóknarflokkurinn hefur farið með stjórn heilbrigðismála í landinu undanfarin átta ár og þeir sem halda því fram að á um- ræddu tímabili hafi ekkert gerst, byggja málflutning sinn ann- aðhvort á misskilningi eða vísvit- andi rangfærslum, nema hvort tveggja sé. Á þessu tímabili hefur í fyrsta sinn verið bryddað upp á öðrum rekstrarformum til að auka skilvirkni og bæta þjón- ustuna. Á síðustu árum hafa verið gerðir fleiri þjónustusamningar á þessu sviði en nokkru sinni áður. Staðið hefur verið fyrir fjölmörg- um útboðum, t.d. vegna reksturs og byggingar heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu, og allt ber þetta að sama brunni; nefnilega því að vera opinn fyrir nýjum lausn- um og góðum hug- myndum sem eru til þess fallnar að bæta þjónustuna og nýta fjár- munina betur. Við erum ekki hræddir við einka- rekstur; við tókum hann sjálfir upp og nýtum það besta sem einka- framtakið hefur upp á að bjóða með skil- greindum þjónustu- samningum um tiltekna þjónustu og gæði henn- ar. En við höfnum einkavæðingu heilbrigðiskerfisins mjög afdrátt- arlaust og erum þeirrar skoðunar að þar í veröldinni sem slíkar leiðir hafa verið farnar, sé reynsl- an slæm og öðrum þjóðum lítil fyrirmynd. Við framsóknarmenn erum þeirrar skoðunar að samfélagsleg vitund og samkennd með þeim sem minna hafa sé mikilvæg sem aldrei fyrr í því markaðskerfi sem almennt er viðurkennt að sé drifkraftur efnahagskerfa á Vest- urlöndum. Málið snýst um rétt- læti, að aðgangur að heilbrigð- isstarfsfólki sé greiður og samfélagið taki sameiginlega ábyrgð á því að reka öryggisnet fyrir alla landsmenn, jafnt unga sem aldna, og hinir veikustu hafi þar forgang. Það er þetta sem skiptir mestu máli. Og raunar er það svo, að séu þessi markmið öll uppfyllt, þá skipta rekstrarform heilbrigð- isþjónustunnar sem slík, ekki meginmáli. Aðalatriðið er að bjóða upp á fyrsta flokks þjón- ustu og að samfélagsleg vitund láti ekki undan í samkeppninni við peningahyggjuna. Og sé stað- an orðin sú að það verði hlut- skipti Framsóknarflokksins að verja íslenska heilbrigðis- og vel- ferðarkerfið fyrir árásum frá hægri úr nýfrjálshyggjuarmi Samfylkingarinnar, þá verður svo að vera. Sannfæring og kraftur munu fylgja slíkri varðstöðu. Og full- vissan fyrir því að jöfnuður og samkennd eigi og verði að vera ríkjandi í íslensku samfélagi hér eftir sem hingað til. Kröftug varðstaða um vel- ferðina Eftir Björn Inga Hrafnsson ’ Sé staðan orðin sú aðþað verði hlutskipti Fram- sóknarflokksins að verja ís- lenska heilbrigðis- og vel- ferðarkerfið fyrir árásum frá hægri úr nýfrjálshyggju- armi Samfylkingarinnar, þá verður svo að vera. Sann- færing og kraftur munu fylgja slíkri varðstöðu. ‘ Höfundur er varaþingmaður í Reykjavík og aðstoðarmaður utanríkisráðherra. gmynd – og er útgangspunktur í un þeirra – að valdið eigi upp- hjá fólkinu. Opinbert vald sé að- gna þess að fólkið hefur veitt ð umboð sitt til sameiginlegra Opinberar stofnanir hafi ekki tilveru heldur starfi í umboði tjórnarskrá ríkis sé æðsta heim- mboðið og takmörk þess. Þeir ast þjóðaratkvæðagreiðslunnar í segja að Tony Blair og félagar ært æðstu stjórn ríkisins í veiga- riðum til yfirþjóðlegra stofnana mbandsins, án samþykkis bresku ar. „Breska stjórnarskráin er Tony Blair,“ sagði Ian Duncan vid Heathcoat-Amory, þingmað- lokksins, bætti svo við: „Þetta gildir sjálfsmorði fyrir Bret- Stormur í vatnsglasi? m harðast berjast fyrir því að mbandið verði sjálfstætt ríki í að vera bandalag sjálfstæðra rða að stjórnarskráin sé bara til- fborði Evrópusambandsins. rið að gera neinar grundvall- gar, aðeins að taka saman hina sáttmála sambandsins og steypa þess að gera Evrópusambandið a eftir stækkun. Ian Duncan Smith og félagar fullyrða að hér sé um að ræða hreinar blekkingar af hálfu þeirra sem vilja að Evrópusambandið breytist í sambandsríki. Þeir benda á sífellt meira vægi ákvarðana sem teknar eru með meirihluta og að minni kröfur séu gerðar til styrks meirihlutans en áður. Ennfremur á nýjar valdheimildir til að samhæfa stefnu í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum og á ýmsum öðrum sviðum. Á afnám þriggja stoða kerfisins sem leiðir m.a. til þess að utanríkis-, refsi- og réttarfarsmálefni verða viðfangsefni stofnana sambandsins og að Evrópusambandið verður nú sjálf- stæður lögaðili. Þeir benda á innleiðingu mjög víðtæks mannréttindakafla sem geti leitt til þess að dómstóll Evrópusambands- ins muni hafa lokaorðið um túlkun hinna afar matskenndu ákvæða kaflans. Það má nefna fjölmörg dæmi til viðbótar sem gagnrýnendur stjórnarskrárinnar og bar- áttumenn fyrir þjóðaratkvæði nota máli sínu til stuðnings og er málstaður þeirra afar sterkur. Einkenni ríkis? Það er alveg ljóst að tilburðir Evrópu- sambandsins í þessum stjórnarskrár- málum eru ekki lóð á vogarskálar aðild- arsinna á Íslandi. Ég efast um að margir Íslendingar vilji renna inn í Evrópusam- bandsríkið. Ef enginn finnur lyktina af stofnun þess má benda á nokkur athygl- isverð atriði sem sérstaklega eru fest í stjórnarskrána. Mælt er fyrir um Evrópu- sambands-ríkisborgararétt. Fáni sam- bandsins skal vera hringur tólf gullinna stjarna á bláum bakgrunni. Þjóðsöngur sambandsins skal vera Óður til gleðinnar úr 9. sinfóníu Beethovens. Einkunnarorð þess skulu vera Sameinuð í fjölbreytileik- anum. Mynt þess skal vera evran. 9. maí skal vera þjóðhátíðardagur sambandsins. Getið þið bent á eitthvert fyrirbæri í ver- öldinni annað en sem veitir ríkisborg- ararétt, hefur fána, þjóðsöng, þjóðhátíð- ardag og gjaldmiðil, en telst ekki þjóðríki? Svo eru einhverjir hissa á að Bretar hafi efasemdir. ir aðildarríkin ’ Þeir sem harðast berj-ast fyrir því að ESB verði sjálfstætt ríki fullyrða að stjórnarskráin sé bara til- tekt á skrifborði Evrópu- sambandsins. ‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum. ftir að hafa tekið sögulega ákvörðun um að fjölga aðild- arríkjum stendur Evrópusam- bandið nú frammi fyrir því verkefni að láta 25 ríkja sam- upp. Það er verkefni ríkjaráð- er hóf störf fjórða október. Rík- ildarríkjanna 15 jafnt sem tíu ldarríkja munu þar semja um ársáttmála er verður rammi evr- mvinnu í framtíðinni. um að því að sáttmálinn geti stað- um margra ára skeið. Markmið um viðræðum eru skýr, að ambandið verði sterkt, lýðræð- gnsætt. tefnan byggir starf sitt á drögum fram af stjórnarskrárráðstefn- efnan starfaði í rúmt ár fyrir opn- og lagði fram drög að sáttmála mþykkt með breiðri samstöðu ðu að starfinu. sáttmála gera ráð fyrir að skipu- ði einfaldara og skiljanlegra á ýðræðislegrar og gegnsærrar ðildarríkjanna. Það leggur raun- að aðildarríkin séu hornsteinar greinir valdsvið sambandsins m hætti. tefnan ætti því ekki að taka upp stu pólitísku málamiðlanir er á ráðstefnunni. Það eru hins ur mál sem þarf að staldra frekar ð um tæknilega útfærslu mála í laflokkum. Og þá á ekki síst við fnanamál. ðja því af fullum hug Ítali, sem nú ystu í ráðherraráðinu, í því að að ljúka ríkjaráðstefnunni fyrir t eins og ítalski forsetinn teljum ngaviðræður eigi að snúast fyrst m mikilvægustu stofnanamál. röð Dana er skýr. Nýi sáttmál- ð uppfylla tvö skilyrði: ður að virða stöðu aðildarríkj- halda jafnvægi milli stærri og darríkja. stofnana verður að vera skilvirkt, t og gegnsætt. meginmál varðandi stofnanaþátt- verður á um á ríkjaráðstefnunni arskipulag framkvæmdastjórn- áðherraráðsins sem og að ákveða seta leiðtogaráðsins í framtíð- a lagt fram tillögu um það hvern- egi skipulag framkvæmdastjórn- tvennt að viðmiði. Í fyrsta lagi að hvert ríki eigi einn fulltrúa í astjórninni með fullan atkvæða- rétt, skiptir gífurlegu máli fyrir mörg aðild- arríki jafnt sem marga íbúa sambandsins. Á sama tíma verður að tryggja að fram- kvæmdastjórnin geti starfað á skilvirkan hátt þegar aðildarríkin eru orðin 25 eða fleiri. Tillaga okkar gengur út á að viðhalda þeirri hugsun ráðstefnunnar að takmarka málaflokka í framkvæmdastjórninni en veita samt öllum fulltrúum hennar atkvæðarétt. Við leggjum til að starfi framkvæmdastjórn- arinnar verði skipt upp í 15–19 málaflokka. Mikilvægustu málaflokkunum ber að skipta á milli nokkurra fulltrúa í framkvæmda- stjórninni og mun einn þeirra bera ábyrgð á samræmingu. Slíkt kerfi mun tryggja skil- virka framkvæmdastjórn er hefur öflugt um- boð. Samhliða því sem framkvæmdastjórnin verður styrkt verður að styrkja ráðherraráð- ið. Þetta er ekki dæmi um að ef ég fæ meira færð þú minna (zero-sum game). Forsæti í ráðherraráðinu á, að mínu mati, áfram að vera á hendi aðildarríkjanna. Þegar aðild- arríkin verða orðin 25 eða fleiri verður hins vegar nauðsynlegt að bæta núverandi kerfi þar sem formennskan gengur á milli ríkja (ekki síst til að tryggja samfellu). Þó að ég sé opinn gagnvart hugmyndum um „sameiginlega formennsku“ þar sem, til dæmis, þrjú ríki kæmu við sögu í eitt ár eða átján mánuði, hefur ég áhyggjur af því að það myndi torvelda lárétta samræmingu og dag- lega starfsemi. Þess vegna tel ég að við eig- um að nútímavæða núverandi fyrirkomulag varðandi formennskuna. Hvort sem við viðhöldum núverandi formi varðandi formennsku eða komum á sameig- inlegri formennsku verðum við að velta því fyrir okkur hvernig forseti leiðtogaráðsins geti gegnt hlutverki við að samræma störf innan ráðsins. Markmið formennskunnar í leiðtogaráðinu er að tryggja samræmi og ákvarðanatöku- getu leiðtogaráðsins. Hann eða hún verður auðvitað að fá nauðsynleg tæki til að sinna því verkefni. Á sama tíma verðum við að koma í veg fyrir að byggt verði upp forsæt- iskerfi sem starfar óháð ráðinu, fram- kvæmdastjórninni og aðildarríkjunum. Ef við innlimum ekki forseta leiðtogaráðsins í núverandi stofnanakerfi og látum forsetann stjórna fundum leiðtogaráðsins missum við af mikilvægu tækifæri til að styrkja heild- argetu sambandsins til ákvarðanatöku. Við eigum einnig á hættu að skapa stofnanir í samkeppni er munu veikja stofnanakerfið í heild. Danir setja markið hátt í stofnanaviðræð- unum. Við viljum styrkja getu ESB til að leysa vandamál aðildarríkja. Til að ná því markmiði verðum við að móta öflugt, lýðræð- islegt og gegnsætt kerfi fyrir samvinnuna í stækkuðu sambandi. tjórnarskrá ESB etur gengið upp ers Fogh Rasmussen Höfundur er forsætisráðherra Danmerkur. ’ Að ríki eigi fulltrúa íframkvæmdastjórninni með fullan atkvæðarétt skiptir gífurlegu máli. ‘ Reuters Valery Giscard d’Estaing, fyrrverandi forseti Frakklands, stýrði gerð draga að nýjum stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins sem lögð voru fram í sumar eftir 16 mánaða vinnu undirbúningsþingsins, Framtíðarráðstefnunnar svokölluðu. ndicate.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.