Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 76
ÍÞRÓTTIR 76 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÓLAFUR Oddur Sigurðs- son úr HSK og Inga Gerða Pétursdóttir, HSÞ, sigruðu í opnu flokkunum í 1. umferð Íslandsmóts- ins í glímu sem fram fór í íþróttahúsinu á Laugar- vatni í fyrrakvöld. Báru þau höfuð og herðar yfir aðra keppendur í sínum flokkum. Ólafur hlaut fjóra og hálfan vinning af fimm mögulegum. Inga Gerða vann einnig í +65 kg flokki kvenna hvar hún hlaut fullt hús vinn- inga, þ.e. þrjá. Hún fékk tvo og hálfan vinning af fjórum mögulegum í opna flokknum. Íslandsmótið saman- stendur af þrem mótum, önn- ur umferðin fer svo fram í janúar og þriðja og síðasta umferðin verður háð í febr- úar. Þátttakan í mótinu var mjög góð en 22 glímumenn frá 6 félögum mættu til leiks. Mjög góð aðsókn var að mótinu og mikil stemning í íþróttahúsinu að sögn Helga Kjartanssonar, framkvæmda- stjóra Glímusambands Ís- lands enda lögðu margir nemendur á Laugarvatni leið sína á það. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn í langan tíma sem glímumót er haldið á virkum degi. Ólafur Oddur og Inga Gerða stóðu upp úr á Íslandsmótinu á Laugarvatni Inga Gerða og Ólafur Oddur LANDSLIÐSMAÐURINN Sigfús Sigurðsson hjá Magdeburg segist hlakka mikið til og iða hreinlega í skinninu eftir því að mæta Haukun- um á Ásvöllum. „Ef við leikum af eðlilegri getu þá förum með sigur af hólmi en ég geri fastlega ráð fyrir því að leikurinn verði jafnari en sá fyrri. Haukarnir eru með gott lið og tvo sterka leikmenn í öllum stöðum en það sem mér hefur sýnst vera að- alvandamálið hjá þeim er að vörn þeirra hefur verið hörmuleg og það er eitthvað sem við getum örugglega fært okkur í nyt. Það eru fá lið sem standast okkur snúninginn ef við spilum á fullu gasi,“ sagði Sigfús í samtali við Morgunblaðið í gær. Sig- fús segir að ekkert vanmat sé ríkjandi hjá leikmönnum Magde- burg þrátt fyrir styrkleikamun lið- anna. „Ég hugsa nú að Haukarnir bíti betur frá sér á heimavelli og ég þekki það í gegnum tíðina þegar ég spilaði með Val að það getur verið erfitt að spila gegn þeim á Ásvöllum. Við sáum það þegar við lékum heima á Reykjavíkurmótinu í haust að það er ekki alltaf tekið út með sældinni að spila á móti íslenskum liðum. Það verður ekkert vanmat hjá okkur en við förum heim til Íslands til að sækja tvö stig.“ Sigfús segist hægt og bítandi vera að ná sér af meiðslunum sem hann hlaut á auga fyrir skömmu en þó sé sjónin ekki komin alveg í lag. „Ég sé hálf furðulega með öðru auganu og mér gengur illa að ná fók- usi á það. Þetta háir mér stundum og þá aðallega þegar ég hleyp mikið því þá myndast þrýstingur og sjónin á auganu á þá til að detta út í hálfa til eina mínútu. Ég kem til með að leggja mig hundrað prósent fram í leiknum og kannski meira en það. Ég veit að ég verð örugglega laminn og barinn eins og venjulega og ætli ég svari ekki bara í sömu mynt,“ sagði Sigfús Sigurðsson. Sigfús Sigurðsson hlakkar mikið til að taka á Haukunum „Verð örugglega laminn og barinn“ Haukar unnu sinn fyrsta sigur íkeppninni um síðustu helgi þegar þeir lögðu Vardar Skopje en á sama tíma lagði Magdeburg lið Barcelona í hörku- leik og tróna læri- sveinar Alfreðs Gíslasonar á toppi riðilsins. „Það er engum blöðum um að fletta að lið Magdeburg er eitt af betri liðum í heiminum í dag,“ segir Viggó en Haukar töpuðu fyrri leiknum í Magdeburg með átta marka mun, 34:26. Viggó segir að aðalsmerki þýska liðsins sé gríðarlega öflugur varn- arleikur og markvarsla. „Mark- vörðurinn Johannes Bitter sem þeir fengu fyrir tímabilið er verðandi stórstjarna og það má segja að hann hafi tekið Börsungana í nefið. Við verðum að reyna að finna ein- hverja leið framhjá honum og ekki síður vörn Magdeburg sem er hrikalega öflug og mjög gróf en lið- ið hefur komist upp með það hjá dómurunum að hrinda mönnum til og frá eins og við fengum að kenna á í fyrri leiknum,“ segir Viggó. „Ef hægt er að tala um einhvern veikleika hjá Magdeburg þá er það kannski sóknarleikurinn en þar hef- ur liðið helst verið að hiksta. Vörnin hjá þeim hefur hins vegar bjargað mörgum leikjum og það hefur gert út um marga leiki í vetur á vörn og markvörslu. Obbinn af mörkunum sem Magdeburg skorar kemur úr hraðaupphlaupum og því verður mikilvægt hjá okkur að spila ag- aðan sóknarleik og komast hjá því eftir fremsta megni að gefa þeim færi á ódýrum mörkum.“ Sigfús eins og steypubíll „Það er margt sem við þurfum að varast. Það vita allir hvað Stefan Kretzschmar getur gert, Pólverjinn Tkaczyk er öflug skytta og Frakk- inn Abati er ákaflega lunkinn leik- maður. Þá má ekki gleyma Sigfúsi en hann spilar stóra rullu með lið- inu. Hann er eins og steypubíll á miðri línunni og er gríðarlega sterkur í vörninni. Varnarleikur ykkar hefur verið höfuðverkur í síðustu leikjum. Er ekki lífsnauðsynlegt að gera brag- arbót á honum til að eiga einhverja möguleika? „Það er ekki spurning. Vörn okk- ar hefur verið afspyrnuslök og við getum gleymt því að ætlast til að standa uppi í hárinu á svona liði ef varnarleikurinn verður jafn lélegur og hann hefur verið í síðustu leikj- um. Við verðum að vona að Magde- burg hitti á lélegan leik. Liðið tap- aði til að mynda á dögunum fyrir einu af botnliðunum í Þýskalandi og það segir manni að það spilar ekki alltaf 100% leik.“ Viggó segir að það mesta sem hans menn hafi lært af þátttöku sinni í Meistaradeildinni sé sá mikli hraði sem einkenni liðin. „Við höf- um ekki yfir þessum mikla hraða að ráða en það er hreint með ólíkind- um að sjá hversu mikil keyrsla er hjá liðum eins og Magdeburg og Barcelona út allan leikinn. “ Allir liðsmenn Hauka eru heilir heilsu að sögn Viggós og eru til- búnir í afar erfitt en skemmtilegt verkefni. „Það er kannski svolítil þreyta í mönnum en ég vona að menn nái að gíra sig vel upp. Það hefur örlað á því að þá hafi skort sjálfstraust og að þeir hafi verið fljótir að gefa eftir um leið og and- stæðingarnir hafi skorað tvö til þrjú mörk í röð en vonandi hitta allir strákarnir á toppleik og þá er aldrei að vita nema við getum strítt Magdeburg.“ Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, sem mæta Magdeburg í Meistaradeildinni „VIÐ erum ekkert bangnir. Við förum í þennan leik til að vinna og þó svo möguleikar okkar eigi ekki að vera miklir á sigri þá er alltaf von,“ sagði Viggó Sigurðs- son, þjálfari Íslandsmeistara Hauka, við Morgunblaðið en annað kvöld taka Haukarnir á móti stórliði Magdeburg frá Þýskalandi í Meistaradeild Evr- ópu í handknattleik. Morgunblaðið/Kristinn Sigfús Sigurðsson, leikmaður Magde- burgarliðsins, stendur hér fyrir fram- an varnarvegg HK á opna Reykjavík- urmótinu sl. sumar – tilbúinn að taka aukakast. Sigfús og leikmenn HK verða í sviðsljósinu hér á landi í Evrópukeppni um helgina í Kópavogi og Hafnarfirði. Guðmundur Hilmarsson skrifar „Hittum vonandi á toppleik“ STEFÁN Arnarson, þjálfari A- landsliðs kvenna, hefur valið 16 leik- menn sem fara til Ítalíu á næsta mið- vikudag til að taka þátt í forkeppni að undankeppni EM sem fram fer í Ungverja- landi í desember á næsta ári. Ís- lenska liðið leik- ur gegn Make- dóníu, Portúgal og Ítalíu, þrjú lið fara áfram úr riðlinum í und- ankeppnina sem háð verður í vor. Leikið verður ytra á föstudag, laugardag og sunnu- dag. Fyrsti leikurinn er við Portúgal, þá mætir íslenska liði Makedóníu og loks liði heimamanna. Tvær breytingar hafa orðið á landsliðshópnum frá því að hann tók þátt í alþjóðlegum mót í Póllandi á dögunum, Kristín Guðmundsdóttir og Dröfn Sæmundsdóttir eru meidd- ar og í þeirra stað koma Þórdís Brynjólfsdóttir og nýliðinn, Rakel Dögg Bragadóttir. Íslenska landsliðið er skipað eft- irtöldum leikmönnum: Markmenn eru Berglind Íris Hansdóttir, Val, og Helga Torfadótt- ir, Team Tvis Holstebro. Aðrir leik- menn eru, Dagný Skúladóttir, Lut- zellinde, Guðbjörg Guðmannsdóttir, ÍBV, Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Team Tvis Holstebro, Harpa Vífils- dóttir, Ydun, Inga Fríða Tryggva- dóttir, Team Tvis Holstebro, Hafrún Kristjánsdóttir, Val, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Team Tvis Hol- stebro, Rakel Dögg Bragadóttir, Stjörnunni, Brynja Steinsen, Val, Drífa Skúladóttir, Val, Þórdís Brynj- ólfsdóttir, FH, Jóna Margrét Ragn- arsdóttir, Stjörnunni, Harpa Mel- sted, Haukum, Hafdís Hinriksdóttir, Val. „Ég tel möguleika okkar á að kom- ast áfram í undankeppnina vera all- góða,“ sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið í gær. „En það er jafn- framt ljóst að þetta verður erfitt, þrír leikir á þremur dögum og því má ekkert bera út af.“ Landsliðið kemur saman til fyrstu æfingar á mánudaginn þar sem leik- menn frá Þýskalandi og Danmörku komast ekki til landsins fyrr en á sunnudag vegna kappleikja með fé- lagsliðum sínum í dag. Takist íslenska landsliðinu að komast í undankeppnina leikur það tvo leiki, heima og að heima í vor um sæti á Evrópumótinu í Ungverja- landi. Inga Fríða Tryggvadóttir Stefán velur sextán Ítalíufara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.