Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 18

Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ „Þau sögðu að sonur minn ætti að fara til Bandaríkjanna og vera hjá hjónum sem gætu tryggt honum betra líf,“ sagði Mendoza. „Þegar ég sagði þeim að ég vildi halda honum sögðust þau ætla að drepa mig ef ég skrifaði ekki undir.“ Slíkar frásagnir eru algengar í Gvatemala. Að minnsta kosti þriðj- ungur og allt að helmingur barnanna í Gvatemala, sem hafa verið ættleidd í öðrum löndum, var tekinn frá foreldr- unum með ólöglegum hætti, að sögn saksóknara og alþjóðlegra barna- verndarhreyfinga. Í sumum tilvik- anna var börnunum stolið, í öðrum voru þau numin á brott með þving- unum eða mútum. „Gvatemala er að verða barnaverk- smiðja fyrir ríku löndin,“ sagði Sandra Zayas, sem var skipuð sak- sóknari til að rannsaka glæpi gegn konum og börnum. Hún segir að 95 ættleiðingar, sem grunur leikur á að hafi verið ólöglegar, séu nú til rann- sóknar. Flest barnanna voru ættleidd í Bandaríkjunum en ættleiðingarfyr- irtæki þar og milligöngumenn þeirra í Gvatemala neita því að rammt kveði að því að börn séu ættleidd með ólög- legum hætti. Kanada, Spánn, Írland og Holland hafa bannað ættleiðingar barna frá Gvatemala þar til ráðin verður bót á þessu vandamáli. Yfirvöld í Banda- ríkjunum hafa neitað að fara að dæmi þessara landa. „Við höfum áhyggjur af þessu,“ sagði Stuart Patt, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, um ætt- leiddu börnin frá Gvatemala. „Þegar þetta gerist er það mikil skömm. En við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir þetta.“ Bandarísk yfirvöld beita ýmsum aðferðum, meðal annars DNA- rannsóknum, til að kanna hvort börn- um frá Gvatemala, sem ráðgert er að senda til Bandaríkjanna, hafi verið stolið. Barnaverndarhreyfingar og saksóknarar segja að þessar aðferðir dugi ekki. Stór atvinnuvegur Mikil fátækt er í Gvatemala og flestar fóstureyðingarnar þar eru ólöglegar, auk þess sem getnaðar- varnir eru mjög sjaldgæfar. Í fyrstu var litið á starfsemi ættleiðingarfyr- irtækjanna sem mannúðarstarf til að hjálpa börnum sem misstu foreldra sína í borgarastyrjöldinni í Gvate- mala á árunum 1960–96. Starfsemin stórjókst hins vegar eftir að stríðinu lauk og er nú stór atvinnuvegur, velt- ir sem svarar 3,8 milljörðum króna á ári. Bandaríkjamenn, sem ættleiða börnin, greiða yfirleitt andvirði 1,5 milljóna króna fyrir hvert þeirra og megnið af fénu rennur til milligöngu- manna í Gvatemala, s.s. lögfræðinga. Nær 3.000 börn frá Gvatemala voru ættleidd í fyrra en fyrir áratug voru ættleiðingarnar aðeins um 500 á ári. Um 85% barnanna eru send til Bandaríkjanna og miðað við mann- fjölda er Gvatemala það land sem sér Bandaríkjunum fyrir flestum börnum til ættleiðingar. Aðeins í Kína og Rússlandi eru fleiri börn flutt til ann- arra ríkja, en þessi tvö lönd eru miklu fjölmennari en Gvatemala sem er með 13 milljónir íbúa. Að sögn saksóknara eru fjölmargir Gvatemalabúar viðriðnir þessa starf- semi, þeirra á meðal læknar, ljós- mæður, hjúkrunarfræðingar, lög- fræðingar, dómarar og starfsmenn félagsmálastofnana og munaðarleys- ingjahæla. „Þeir segja oft við kon- urnar að þeir vilji hjálpa þeim,“ sagði Hector Dionisio, lögfræðingur Casa Alianza, samtaka sem reka m.a. at- hvörf fyrir götubörn í borgum Róm- önsku Ameríku. „Börnunum er þó oft stolið eða mæðurnar þvingaðar til að láta þau af hendi.“ Börnum stolið á sjúkrahúsum Fjölmiðlar beindu athyglinni að þessu vandamáli nýlega þegar níu ungbörn frá Gvatemala fundust í San Jose, höfuðborg Kosta Ríka, og talið var að flytja ætti þau til Bandaríkj- anna. Hermt er að útsendarar ætt- leiðingarfyrirtækja fari reglulega í vændishús og fátækrahverfi til að bjóða barnshafandi konum andvirði 50.000–200.000 króna fyrir börnin um leið og þau fæðast. Aðrir hrifsa ung- börn af mæðrum þeirra á útimörk- uðum eða sjúkrahúsum. Þing Gvatemala fullgilti í mars ákvæði alþjóðlegs sáttmála sem kenndur er við Haag og kveður m.a. á um að opinber stofnun þurfi að leggja blessun sína yfir allar ættleiðingar. Æðsti dómstóll landsins ógilti hins vegar samþykkt þingsins í september eftir að bandarísk ættleiðingarfyr- irtæki og milligöngumenn þeirra úr röðum lögfræðinga beittu sér ákaft gegn henni á þeim forsendum að sátt- málinn gerði ættleiðingar of flóknar. Börnum stolið eða mæður neyddar til að selja þau TPN Carolina Mendoza Velasquez (t.h.) með móður sinni og 17 mánaða systur á skrifstofu saksóknara sem rannsakar glæpi gegn konum og börnum í Gvatemala. Mendoza var neydd til að láta barn af hendi til ættleiðingar. Gvatemalaborg. Newsday. UNGLINGSSTÚLKAN Carolina Mendoza Velasquez var ein og yfirgefin, komin sjö mánuði á leið og hélt að hún hefði fundið verndarengla þegar hún réð sig til vistar hjá hjónum í Gvatemalaborg sem sögðu að hún fengi áfram að vera vinnustúlka þeirra eftir að barnið fæddist. Stúlkan, sem er sautján ára, segir að daginn eftir að hún ól Luis Enrique í maí hafi hjónin læst hana inni í lækningastofu í Gvatemalaborg, hrifsað barn- ið af henni og neytt hana til að skrifa undir ættleiðingarskjöl. ’ Gvatemala er aðverða barnaverk- smiðja fyrir ríku löndin. ‘ PAKISTANAR neituðu í gær ítrek- uðum ásökunum afganskra stjórn- valda um að vopnaðir talíbanar geri árásir í Afganistan frá pakistönsku landsvæði. Abdullah Abdullah, utan- ríkisráðherra Afganistans, lét þau orð falla í ræðu í Bandaríkjunum að „flestir“ vopnuðu talíbanarnir væru í Pakistan, sem studdi stjórn talíbana í Afganistan 1996–2001. Talíbanarnir hafa ráðist á hjálp- arstarfsmenn, bandaríska hermenn og afgönsk stjórnarmannvirki í Afg- anistan undanfarna mánuði. Sex hjálparstarfsmenn hafa verið drepn- ir síðan í september og talíbanar grunaðir um ódæðin. Í byrjun októ- ber börðust pakistanskir hermenn daglangt við skæruliða talíbana og al-Qaeda skammt frá landamæra- bænum Angoor Ada. Felldu Pakist- anarnir átta og tóku 18 höndum.       !  "  #  $  $ % " $ &$ $ "  #   $ "' $ (   $ "     !    !!   !  ( " # $    -.( +#  !  /// 00 1 2 3 - 4              ')*'+,- '+    2 ( -& %.  (       '  )          !  "   Pakistanar neita aðild Íslamabad. AFP. ENN einn liðsmaður úr nánasta samstarfs- mannaliði Rolandas Paksas, for- seta Lith- áens, sagði af sér í gær. Þar með hafa alls fimm manns af skrif- stofu forsetans sagt af sér vegna ásakana um spillingu og tengsl við rússnesku mafíuna. Sérskipuð rannsóknarnefnd þingsins vill yfirheyra Paksas sjálfan, sem tók við forseta- embættinu fyrir níu mánuðum. Hann hefur þó enn ekki viljað taka í mál að segja af sér. Kasparov tapar GARRÍ Kasparov tapaði ann- arri skákinni í viðureign sinni við nýja skákforritið X3D Fritz. Tók það tölvuna þrjá tíma og 39 leiki að leggja Kasparov. Fyrstu skákinni lyktaði með jafntefli. Alls verða fjórar skák- ir tefldar, en viðureignin fer fram í New York. Það ný- stárlegasta við forritið er að með þrívíddargleraugum sér sá sem teflir við tölvuna taflborðið í þrívídd, eins og það svífi fyrir framan hann. Námuslys í Kína GASSPRENGING í kolanámu í Suður-Kína banaði 48 verka- mönnum og slasaði tvo aðra, eftir því sem Xinhua-fréttastof- an greindi frá í gær. Rannsókn á orsökum slyssins stóð yfir. Námunni, sem afkastar að jafn- aði um 600.000 tonnum af kol- um á ári, var lokað, að sögn Xinhua. Slys eru tíð í kínversk- um námum. Alls er vitað til að um 4.100 manns hafi látið lífið í námaslysum í landinu það sem af er þessu ári. STUTT Þrengist að Paksas Garrí Kasparov með þrívíddar- gleraugun. Rolandas Paksas BANDARÍKIN munu ekki fara frá Írak og Afganistan fyrr en búið er að hafa hendur í hári Saddams Huss- eins og Osama bin Laden, og ljúka þeim verkum sem þarf að vinna í þessum löndum. Þetta sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti í samtali við bresku blöðin Financial Times og Daily Telegraph í gær. „Við munum ekki kalla heri okkar heim fyrr en verkinu er lokið. Punkt- ur basta,“ sagði Bush en hann fer í opinbera heimsókn til Bretlands eft- ir helgi. Var forsetinn spurður að því hvort þetta fæli í sér að finna þyrfti Saddam og bin Laden og svaraði Bush því svona: „Já, það er einn þáttur. Enn mikilvægara er þó að byggja upp frjáls og lýðræðisleg samfélög. Það er verkefnið.“ Ummæli Bush vekja eftirtekt enda hafa fréttir undanfarna daga bent til að Bandaríkjamenn leituðu nú „útgönguleiðar“ í Írak. Rumsfeld tekur í sama streng Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, tók í sama streng og Bush í gær en hann er nú staddur í Japan. Lagði Rumsfeld áherslu á að hersveitir Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra myndu ekki yfirgefa Írak neitt fyrr en áætlað hefur verið, jafnvel þó að nú sé stefnt að því að afhenda Írök- um völdin í eigin málum fyrr en stefnt var að. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að fara fyrr frá Írak en áætlað var, þvert á móti. Forsetinn hefur lýst því yfir að við munum verða þar eins og lengi og nauðsyn krefur,“ sagði Rumsfeld. Ætla að ná Sadd- am og bin Laden George W. Bush Bandaríkjaforseti. London, Andersen-flugherstöðinni á Guam. AFP. AP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.