Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 30

Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 30
LISTIR 30 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ LEIKHÓPURINN Perlan frum- sýnir svokallaða Perlu-tvennu á litla sviði Borgarleikhússins kl. 15 á morgun. Perlu-tvenna sam- anstendur af tveimur verkum, ann- ars vegar ævintýraleiknum Hring- ilhyrningi eftir Regine Normann í þýðingu Matthíasar Kristiansen og hins vegar nútímadansverkinu Kroppa-gríni eftir Láru Stef- ánsdóttur sem jafnframt annaðist dansstjórn við tónlist eftir Taraf de Haïdouks. Að auki verður flutt dansverkið Handaspil eftir Láru Stefánsdóttur. Að sögn Sigríðar Eyþórsdóttur, umsjónarmanns og leikstjóra Perl- unnar, er þetta fyrsta opna frum- sýning Perlunnar í Borgarleikhús- inu, en í október sl. var undirritaður samstarfssamningur milli Perlunnar og Leikfélags Reykjavíkur um afnot Perlunnar af húsnæði í Borgarleikhúsinu. „Með samningnum fengum við æfinga- og sýningaraðstöðu hér í Borg- arleikhúsinu, þannig að þessi frum- sýning er stór viðburður. Samning- urinn er gríðarleg viðurkenning á leiklistarstarfi Perlunnar og við metum það mjög mikils að vera komin í alvöru leikhús. En þetta er líka mjög stórt skref í átt til raun- verulegs jafnréttis fyrir fatlaða listamenn.“ Hringilhyrningur var að sögn Sigríðar frumsýnt á menning- ardögum sem nefnast Regine- dagar og haldnir voru í Norður- Noregi í júlí sl. „Ég var beðin að búa til leikgerð upp úr þessu æv- intýri og setja upp í Norður-Noregi. Í ævintýrinu segir m.a. af prinsi sem þarf að leysa ýmsar þrautir til að lækna veikan föður sinn, en með- al þess sem hann þarf að gera er að ráða niðurlögum risa nokkurs. Í sögunni gengur á ýmsu og þannig gleymir prinsinn öllu, þar á meðal veikindum föður síns, þegar hann verður ástfanginn af prinsessunni sem býr í Hillingarlandi. En eins og í öllum ævintýrum fer allt vel að lokum.“ Aðspurð segir Sigríður að hóp- urinn hafi fengið frábærar mót- tökur í Noregi. „Fyrirfram var ég nú pínu kvíðin af því að Regine er í svo miklum metum þarna úti og all- ir kunna þetta ævintýri utanbókar. Ég var hrædd um að Norðmenn tækju túlkun okkar með ein- hverjum fyrirvara, en henni var tekið alveg sérstaklega vel og meira en það. Því í kjölfarið vorum við nefnilega beðin að taka verkið upp á myndband og er það nú notað í kennslu í grunnskólanum í Ves- terålen, bæði í 4. og 10. bekk, sem okkur þykir mikill heiður.“ Lestur og leikstjórn Hringilhyrn- ings er í höndum Sigríðar Eyþórs- dóttur, tónlistin og áhrifshljóð samdi Máni Svavarsson en leik- myndin er eftir Þorgeir Frímann Óðinsson. Búningar í öllum þremur verkum eru eftir Bryndísi Hilm- arsdóttur. Leikararnir Anna Krist- ín Arngrímsdóttir, Felix Bergsson, Helga Þ. Stephensen og Örn Árna- son léðu raddir sínar sínar í Hring- ilhyrningi, en perluleikararnir sem taka þátt í verkunum þremur eru Bryndís Hilmarsdóttir, Garðar Hreinsson, Gerður Jónsdóttir, Guð- rún Ósk Ingvarsdóttir, Hildur Dav- íðsdóttir, Hreinn Hafliðason, Ragn- ar Ragnarsson, Sigfús S. Svanbergsson, Sigrún Árnadóttir og Tore Skjenstad. Leikhópurinn Perlan í Noregi þar sem hann frumsýndi Hringilhyrning. Perlan frumsýnir Perlu- tvennu í Borgarleikhúsinu DAGUR íslenskrar tungu er á morg- un, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, en dagur- inn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996. Fjölmargir aðilar efna til við- burða í tilefni dagsins. Stóra upp- lestrarkeppni 7. bekkinga grunnskól- anna verður sett og fara fram tvær for- keppnir í skólunum, bekkjar- og skóla- keppni, en síðan verð- ur keppt til úrslita í hverju byggðarlagi á lokahátíðum í mars- mánuði. Hátíðasalur Há- skóli Íslands kl. 13 Hátíðadagskrá er að þessu sinni felld að málræktarþingi Ís- lenskrar málnefndar og Mjólkur- samsölunnar. Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, afhendir verð- laun Jónasar Hallgrímssonar kl. 15 auk tveggja sérstakra viðurkenn- inga fyrir störf í þágu íslensks máls. Leik- og grunnskólar: Í leikskól- unum hefur sérstaklega verið unnið með íslenskt mál alla vikuna og rætt um skáldið Jónas Hallgrímsson. Í grunnskólum hafa leikararnir Felix Bergsson og Þórdís Arnljótsdóttir, ásamt píanóleikara, sýnt frumsamda leikdagskrá um Jónas Hallgrímsson í fjölmörgum grunnskólum þess vik- una. Nemendur úr 7. bekk hafa heimsótt börn úr yngri bekkjum og lesið fyrir þau sögur og ljóð. Leik- arar úr Þjóðleikhúsinu heimsækja grunnskóla í Reykjavík á mánudag, líta inn í kennslustundir og lesa fyrir nemendur ljóð íslenskra höfunda. Í framhaldsskólum koma rithöf- undar í heimsókn og lesa upp. Ljóða- upplestur undir handleiðslu íslenskukennara. Sérstök verkefni í vissum áföngum í íslensku. Skóla- kórar verða með sérstaka dagskrá. Menntaskólinn að Laugarvatni: Nemendur efna til maraþonáhorfs á íslenskar kvikmyndir í einn sólar- hring í tilefni dagsins. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Samskiptamið- stöð gefur út tíu íslenskar þjóðsögur á táknmáli í tilefni dagsins. Íslenska óperan: Í dag kl. 16 verð- ur eina almenna sýningin á nýju ís- lensku unglingaóperunni Dokaðu við. Skólasýningar hefj- ast 12. nóvember og standa til 20. nóvem- ber. Bókasöfn Í bókasöfnum lands- ins verður m.a. upplest- ur úr bókum, handrita- sýningar og bókakynningar. Bókasafn Kópavogs: Opið í dag kl. 13-17. Stillt verður fram bók- um eftir skáld og rithöf- unda sem hafa fengið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Gjábakkaskáldin lesa úr nýútkom- inni bók sinni, Gjábakkaþulum 4. Borgarbókasafn: Sérstakt bóka- merki með fyrsta erindi úr ljóðinu Ástu eftir Jónas Hallgrímsson. Skiladagur er stimplaður á bóka- merkið þennan dag til að minna á daginn. Landsbókasafn Íslands Háskóla- bókasafn: Þrjár sýningar, sem fjalla um tungumálið á einn eða annan hátt: Sýnishornum af ævistarfi Ósk- ars Ingimarssonar þýðanda og þul- ar. Landneminn mikli Stephan G. Stephansson (1853-1927). Sýning á handritum og prentuðu efni. Humar eða frægð Smekkleysa í 16 ár. Gesta- sýning. Frumgreinadeild Tækniháskóla Íslands kl. 11.45-12.30 Sigurþór Al- bert Heimisson leikari setur dag- skrána og les ljóð. Viktor Arnar Ing- ólfsson greinir frá vinnu sinni við gerð sakamálasögunnar Flateyjar- gátan. Hallgrímur Helgason rithöf- undur les úr gamansögu sinni um Guð. Umræður og fyrirspurnir. Tónlistarskóli Garðabæjar kl. 20 Nemendur Snæbjargar Snæbjarn- ardóttur heiðra minningu Eyþórs Stefánssonar, með dagskrá í tali og tónum. Flutt veðra sönglögum Ey- þórs við ljóð eftir ýmis skáld. Sölvi Sveinsson skólameistari flytur erindi um tónskáldið. Píanóleikarar eru þær Katalín Lörincz, Kolbrún Ósk Óskarsdóttir og Agnes Löve. Edinborgarhúsið, Ísafirði kl. 20.30 „Vísa var það heillin“ er yf- irskrift Hagyrðingakvölds. Fram koma vestfirsku hagyrðingarnir Er- lingur Sigtryggsson, Jón Jens Krist- jánsson, Ólína Þorvarðardóttir, Kristjana Vagnsdóttir og Snorri Sturluson. Stjórnandi er séra Hjálm- ar Jónsson. Heimasíða dags íslenskrar tungu er: http://www.stjr.is/mrn/mrn.nsf/ pages/malaflokkar-dit. Fjölbreytt dag- skrá á Degi íslenskrar tungu Jónas Hallgrímsson Bónusljóð-33% meira kemur út á ný, endurbætt, endurunnin og lengd um 33%. Ljóðin í bókinni eru eftir Andra Snæ Magnason. Bókin er sem fyrr gefin út í sömu vörulínu og Bónusdjús, Bónuscola og Bónusbrauð. „Bónusljóð fylgja lesanda í dul- úðlegt ferðalag gegnum undraveröld stórverslunar þar sem ýmislegt kyn- legt ber fyrir sjónir; lambalæri sam- einast hrygg og sviðum og hlaupa jarmandi um búðina á meðan Eva í aldindeildinni freistast af safaríkum eplum en Rauðhetta ráfar um í leit að brauði og víni handa ömmu sem ligg- ur í því heima,“ segir í frétt frá útgef- anda. Útgefandi er Bónus. Bókin er 56 bls., prentuð hjá Guðjóni Ó.7 Ljóð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.