Morgunblaðið - 15.11.2003, Side 52
UMRÆÐAN
52 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKSKÓLAR Reykjavíkur
sendu nýlega frá sér fréttatilkynn-
ingu þar sem því er haldið fram
með reiknikúnstum
að gjaldskrá Leik-
skóla Reykjavíkur
sé lægri en ná-
grannasveitarfélag-
anna. Þetta er ein-
faldlega rangt.
Staðreyndin er að
hjá sveitar-
félögunum eru mismunandi gjald-
flokkar eftir stöðu foreldra og ef
skoðaður er sá gjaldflokkur er
flestir foreldrar greiða eftir er
niðurstaðan eftirfarandi:
Verð
Hlutfall
foreldra
Reykjavík 27.000 53%
Kópavogur 26.400 57%
Seltjarnarnes 25.550 90%
Garðabær 25.400 87%
Reykjanesbær 22.780 83%
Heimild Leikskólar Reykjavíkur.
Hafa skal það sem
sannara reynist!
Eftir Guðlaug Þór Þórðarson
Höfundur er borgarfulltrúi
og alþingismaður.
ÆTLA má að á næstunni muni
flutningskostnaður hækka umtalsvert
bæði innanlands og milli landa. Ef
fram fer sem horfir
verða afleiðingarnar
þær að vöruverð
hækkar án þess að
flutningsaðilar fái
neitt að gert. Ástæða
hækkunar í sjóflutn-
ingum eru hertar
öryggiskröfur í útflutningshöfnum og
landflutningar hækka vegna breytinga
á olíugjaldi. Gera má ráð fyrir að áhrif
þessara hækkana valdi hækkun á
vöruverði allt að 10%.
Hryðjuverkaárásir á Bandaríkin ár-
ið 2001 og aukin hræðsla við hryðju-
verk hefur hert öryggiskröfur alls
staðar þar sem áhætta er talin vera til
staðar. Þetta á ekki síst við varðandi
vöruflutninga á milli landa, hvort held-
ur með flugi, land- eða sjóflutningum.
Bandaríkin hafa þegar sett reglur sem
fela í sér kröfu um innihaldslýsingar
vörugáma a.m.k. sólarhring áður en
þeir eru teknir um borð í flutningsfar.
Aukin skimun gáma og allt eftirlit hef-
ur ekki einungis leitt til kostnaðar, sem
hlýtur fyrr en síðar að koma fram í
reikningum til farmeigenda, heldur
stuðlar þetta jafnframt að aukinni fjár-
bindingu í vöruflæðinu þar sem flutn-
ingaferlið tekur allt meiri tíma en áður.
Ekki eru mörg ár síðan útflytjendur
gátu afhent gáma til vöruflytjenda rétt
áður en þeim var skipað um borð í
flutningsfar. Þetta er liðin tíð þegar
um vörur til Bandaríkjanna er að
ræða. Þetta eykur að sjálfsögðu kostn-
að og krefst jafnframt betri vöru-
stjórnunar.
Nýjar öryggisreglur
Hinn 1. júlí nk. taka gildi um allan
heim reglur um aukið öryggi hafna og
flutningaskipa, sk. ISPS reglur, sem
eru hluti af þeim alþjóðlegu SOLAS
reglum, sem settar eru af Alþjóðlegu
siglingastofnunni IMO og hafa í ára-
tugi stuðlað að öryggi farmanna og
farþega á höfunum. Þessar nýju reglur
voru samþykktar í fyrra og ákveðið að
gildistími þeirra yrði jafn snemma og
raun ber vitni. Enginn frestur á gild-
istöku er mögulegur. Reglurnar setja
ákveðin staðal fyrir alþjóðlegar hafnir
(þar sem skip koma og fara til út-
landa). Þessar hafnir verða vottaðar og
sömuleiðis skipin. Komi óvottuð skip
eða skip frá óvottuðum höfnum í er-
lendar hafnir héðan, þá komast þau
ekki í höfn eða lenda í viðamikilli skoð-
un á áfangastað. Sömuleiðis verða þau
ekki affermd hér í höfnum ef þau koma
frá „óhreinum“ höfnum eða eru óvott-
uð.
Það er mikilvægt að undirstrika að
setning umræddra staðla er gerð af
hálfu IMO og mikill kostnaður sem
hlýst af þeim um borð í skipum, í höfn-
um og hjá farmeigendum er enn ekki
fyllilega ljós og enn síður hvar hann
lendir. Farmeigendur og flutnings-
aðilar telja að þetta sé a.m.k. að hluta
til liður í öryggismálum landsins og
eigi því að greiðast úr ríkissjóði.
Stjórnmálamenn telja sumir að þeir
sem nota skip og hafnir eigi að greiða
allan kostnað sem af því hlýst. Hvernig
sem þetta verður til lykta leitt má telja
líklegt að neytendur greiði að síðustu
þennan kostnað að einhverju marki í
formi hærra verðs vöru eða þjónustu.
Það er hins vegar afar brýnt með tilliti
til hins skamma tíma sem er til stefnu
til innleiðingar þessara staðla, að
stjórnvöld leggi áherslu á að skilgreina
sem fyrst hlutverk hinna ýmsu aðila og
kostnaðarskiptinguna.
Talið er að kostnaður í formi hærri
flutningsgjalda í sjóflutningum geti
numið allt að 4%.
Hærri þungaskattur
og nýtt olíugjald
Fjármálaráðherra hefur nú lagt til
8% hækkun á gildandi þungaskatts-
kerfi þó að dæmi séu um að það hafi
hækkað um 70% frá því í júlí 1999 til
febrúar 2001. Síðan er áformað af
hálfu ríkisvaldsins að breyta lögum um
olíugjald, kílómetragjald o.fl. á þann
veg að tæplega 40 kr. þungaskattur
leggist við söluverð hvers lítra af dísel-
olíu á bifreiðir. Þetta taki við af núver-
andi þungaskattskerfi á einkabíla.
Einkabílar sem ekið hafa á sk. fasta-
gjaldi munu greiða lægra gjald en áð-
ur. Bílar sem eru yfir 10 tonn að þyngd
munu hins vegar þurfa að greiða
áfram skv. núgildandi kerfi auk þess
að greiða umrætt gjald sem hluta af
verði olíunnar á bifreiðarnar. Þetta
þýðir allt að rúmlega 40% hækkun á
þungaskatti fyrir sumar vöruflutn-
ingabifreiðir og hlýtur að koma fram í
hækkuðum flutningatöxtum þeirra og
þar með hækka vöruverð. Þetta mun
að sjálfsögðu helst lenda á landsbyggð-
inni sem notar mest þjónustu þessara
bifreiða.
Þannig er útlit fyrir hækkun vöru-
verðs á næstu misserum ef málin fá
framgang á Alþingi. Kostnaður vegna
öryggisstaðalsins er óumflýjanlegur,
en hækkun vegna frumvarps um olíu-
gjald er háð afgreiðslu þingsins. Sam-
keppnishæfni fyrirtækja sem eru háð
flutningum mun minnka að sama
skapi.
SVÞ telja afar brýnt að olíu-
gjaldsfrumvarpið verði ekki að veru-
leika í óbreyttri mynd né heldur að
hækkun verði á núgildandi þunga-
skatti. Um leið og samtökin telja það
jákvætt að beina eldsneytisbrennslu
minni bifreiða í díselolíu í stað bensíns,
þar sem eldsneytisnotkun verður þá
minni og mengun jafnframt, eru sam-
tökin andsnúin hækkun gjalda á vöru-
flutninga sem leiða til hærra vöruverðs
í landinu. Því er mikilvægt að menn
sameinist um að gera á þessu frum-
vörpum þær breytingar sem ná fram
jákvæðu markmiðunum, en koma í veg
fyrir hin óhagstæðari.
Flutningsstyrkjakerfi
Ekki verður skilið við þetta mál án
þess að minnast á hugmyndir Byggða-
stofnunar í skýrslu til iðnaðar- og við-
skiptaráðherra um flutnings-
styrkjakerfi til að endurgreiða
framleiðsluiðnaði á landsbyggðinni
flutningskostnað í þeim tilgangi að
styrkja byggð. Þessar hugmyndir gera
ráð fyrir að atvinnugreinum á lands-
byggðinni verði mismunað án ásætt-
anlegra ástæðna og hlytu að kalla á
kærur til samkeppnisyfirvalda ef reynt
væri að framkvæma þær. Vissulega
skal viðurkennt að erfitt er að reka
ýmsa starfsemi úti á landsbyggðinni,
en það réttlætir að mati SVÞ ekki upp-
töku útjöfnunaraðferða sem fyrir
löngu hafa verið dæmdar ósann-
gjarnar og úreltar.
SVÞ, Samtök verslunar og þjón-
ustu, telja að verslun og þjónusta þríf-
ist best í frjálsu hagkerfi þar sem sam-
keppni fær notið sín og verð vöru og
þjónustu byggist á býsna gegnsæjum
kostnaði og arðsemiskröfum. Sam-
tökin hvetja stjórnvöld til að móta slíka
umgjörð fyrir vöruflutninga og beita
þeim við skattheimtu á þá starfsemi.
Ætla stjórnvöld að stórauka flutnings-
kostnað og hækka með því vöruverð?
Eftir Sigurð Jónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
SVÞ, Samtaka verslunar
og þjónustu.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
!