Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 62
MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF
62 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Karl V. Matth-
íasson annast guðsþjónusturnar. Kaffi eftir
messu. Orgeltónleikar kl. 17. Kári Þormar
leikur verk eftir Bach og Buxtehude o.fl.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ SKJÓL: Guðsþjón-
usta kl. 15:30. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11:00.
Fjölbreytt tónlist. Skemmtileg samvera fyrir
alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Organisti Guðmundur Sigurðsson. Glæðu-
kór Kvenfélagsins syngur. Stjórnandi Sig-
urbjörg Hólmgrímsdóttir. Heitt á könnunni
eftir messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Hjálmari Jónssyni. Kór
Menntaskólans í Reykjavík syngur undir
stjórn Marteins Friðrikssonar sem einnig
leikur á orgel. Æðruleysismessa kl. 20:00.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugleið-
ingu. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir sam-
komuna og sr. Karl Matthíasson leiðir fyrir-
bæn. Anna Sigríður Helgadóttir og Bræðra-
bandið sjá um tónlistina.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna o.fl.
Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir.
Kvöldmessa kl. 20. Einfalt form, kyrrlátt
andrúmsloft. Halldór Elías Guðmundsson
djákni og sr. Hreinn S. Hákonarson fanga-
prestur þjóna.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14:00. Einsöngur Jóhannes
Kristjánsson. Organisti Kjartan Ólafsson.
Sr. Halldór S. Gröndal prédikar. Sr. Lárus
Halldórsson þjónar fyrir altari. Félag fyrrver-
andi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf
kl. 11:00. Umsjón barnastarfs Magnea
Sverrisdóttir. Sr. Sigurður Árni Þórðarson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Mar-
íu Ágústsdóttur. Félagar úr Mótettukór
syngja. Organisti Hörður Áskelsson.
Sunnudagsfundur kl. 12:30. Kristni í ís-
lensku fjölmenningarsamfélagi: Björn
Bjarnason kirkjumálaráðherra.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13:00.
Sr. Tómas Sveinsson.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Prest-
ur sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholts-
kirkju leiða safnaðarsöng. Sr.
Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara
börnin í safnaðarheimilið ásamt Þóru og
Ágústu. Kaffisopi eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Bjarni Karlsson prestur þjónar
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara.
Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar. Fulltrúar les-
arahóps flytja texta og fermingarbörn að-
stoða. Að messu lokinni er kökubasar
kvenfélags Laugarneskirkju í safn-
aðarheimilinu, haldinn til styrktar lokafrá-
gangi nýja orgelsins. Guðsþjónusta kl.
13:00 í þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar í Há-
túni 12. Sr. Bjarni Karlsson þjónar, ásamt
Gunnari Gunnarssyni organista og hópi
sjálfboðaliða.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Börn úr tón-
listarskólanum Doremi koma í heimsókn.
Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur
Þórhallsson. Prestur sr. Frank M. Hall-
dórsson. Sunnudagaskólinn á sama tíma.
Sögur, brúður og söngur. Öll börn fá kirkju-
bókina og límmiða. Kaffi, djús og spjall í
safnaðarheimilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11:00. Kvartett syngur. Organisti Pavel
Manasek. Prestur sr. Sigurður Grétar
Helgason. Sunnudagaskólinn á sama
tíma. Hvetjum börnin til að koma til
skemmtilegrar samveru.
ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS:
STOKKHÓLMUR: Guðsþjónusta í Finnsku
kirkjunni sunnud. 16. nóv. kl. 14:00. Ís-
lenski sönghópurinn leiðir söng. Hljóðfæra-
leikur: Einar Sveinbjörnsson. Kirkjukaffi.
Sr. Ágúst Einarsson.
GAUTABORG: Kirkjuskóli í Dönsku kirkj-
unni sunnud. 16. nóv. kl. 14:00.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Kirkjudagur Frí-
kirkjunnar í Reykjavík. Hátíðarguðsþjón-
usta klukkan 11:00. Fermingarbörn að-
stoða. Allir velkomnir. Safnaðarstarf
Fríkirkjunnar í Reykjavík. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson, Hreiðar Örn Stefánsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11.00. Kirkjukórinn ásamt barnakór
kirkjunnar syngja. Organisti kirkjunnar Krizt-
ina Kallo Slenár spilar. Sunnudagaskólinn
á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar.
Kaffi, ávaxtasafi á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.00.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Heim-
sókn frá Gídeonfélaginu. Jögvan Purkhus
prédikar. Kór félagsstarfs aldraðra syngur
undir stjórn Sigurbjargar Hólmgrímsdóttur.
Organisti Sigrún M. Þórsteinsdóttir. Tekið
við gjöfum til styrktar starfi Gídeonfélags-
ins. Léttar veitingar í safnaðarheimilinu eft-
ir messu.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11:00. Prest-
ur sr. Magnús Björn Björnsson. Þorgils
Hlynur Þorbergsson guðfræðingur prédikar.
Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digra-
neskirkju B-hópur. Sunnudagaskóli á sama
tíma í kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Létt-
ur málsverður í safnaðarsal eftir messu (kr.
500). Kl. 20:00 Hjónaklúbbur. Efni kvölds-
ins: ,,Við erum á réttri leið – gerum enn bet-
ur.“ Flytjendur Anna Elísbet Ólafsdóttir for-
varnarfulltrúi Kópavogs í vímuvörnum og sr.
Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur. Fyr-
irlesturinn verður í kapellunni á neðri hæð
kirkjunnar. Kvennakirkjan, messa kl 20:30.
Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni.
(Sjá nánar:www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Prestur: Sr. Svavar Stefánsson.
Organisti: Lenka Mátéová. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn organista. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu á sama tíma undir
stjórn Elínar Elísabetar Jóhannsdóttur.
Rúta ekur um hverfið í lokin. Fjölmenning-
arkvöldvaka kl. 20:00. Fjallað um vinátt-
una. M.a. mun Páll Óskar Hjálmtýsson
syngja við undirleikMoniku Abendroth,
hörpuleikara. Gerður Gestsdóttir, verk-
efnastjóri Alþjóðahússins, flytur ávarp.
Kaffihús á eftir þar sem konur úr kvenfélag-
inu Fjallkonunum selja kaffi.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti: Hörður Bragason. Barna-
guðsþjónusta kl. 11:00 í Grafarvogskirkju.
Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón:
Bryndís og Laufey. Organisti: Gróa Hreins-
dóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 11:00 í Borg-
arholtsskóla. Prestur séra Anna Sigríður
Pálsdóttir. Umsjón: Signý og Kolla. Undir-
leikari: Guðlaugur Viktorsson. Skagfirð-
ingamessa kl. 14:00. Séra Bjarni Þór
Bjarnason þjónar fyrir altari ásamt séra
Maríu Ágústsdóttur og séra Vigfúsi Þór
Árnasyni. Séra Ágúst Sigurðsson, fyrrv.
sóknarprestur á Mælifelli í Skagafirði pré-
dikar. Söngsveitin Drangey syngur. Stjórn-
andi: Snæbjörg Snæbjarnardóttir. Óskar
Pétursson Álftagerðisbróðir syngur ein-
söng. Organisti: Hörður Bragason. Kaffi-
sala að lokinni guðsþjónustu.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Sigfús
Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11:00 í umsjón
Dóru Guðrúnar, Bóasar og Önnu Kristínar.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Gerðubergskórinn
kemur í heimsókn og syngur sérstaklega
undir stjórn Kára Friðrikssonar. Gestirnir frá
Gerðubergi lesa ritningarlestra og upphafs-
og lokabæn. Félagar úr kór Kópavogskirkju
syngja og leiða safnaðarsöng. Kaffi og
samvera í Borgum að lokinni guðsþjón-
ustu. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Sunnudagaskóli
í Lindaskóla kl. 11. Gospelstund kl. 20.00
í Glersalnum við Salaveg (í sama húsi og
Nettó, gengið inn bakatil og beint inn í
lyftu). Kór Lindakirkju syngur, söngstjóri
Hannes Baldursson, gestir kvöldsins eru
Helga Vilborg Sigurjónsdóttir söngkona og
sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson sem prédikar.
Allir velkomnir! Sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Hressandi söngur, lifandi samfélag! Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson pré-
dikar. Organisti Jón Bjarnason. Kór Selja-
kirkju leiðir söng.
KVENNAKIRKJAN: Sunnudagskvöldið 16.
nóvember verður messa í Digraneskirkju
kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er: Í erli
dagsins. Séra Auður Inga Einarsdóttir pré-
dikar og kór Kvennakirkjunnar leiðir söng
undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Messukaffi verður í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl.11.00. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Börnunum skipt í aldurshópa.
Friðrik Schram kennir. Samkoma kl. 20.00.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Guðlaugur
Gunnarsson kristniboði predikar. Þáttur
kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ verður
sýndur á sjónvarpsstöðinni Ómega
kl.13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11:00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Bibl-
íufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma á morgun kl. 16.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30 bæna-
stund. Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Um-
sjón majórarnir Anne Marie og Harold Rein-
holdtsen. Mánudagur: Kl. 15
heimilasamband. Áslaug Haugland talar.
Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir
talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna-
starf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á sam-
komutíma. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á:
www.kefas.is
og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl. 17.
Spegill, spegill, herm þú mér. Sr. Petrína
Mjöll Jóhannsdóttir talar. Vitnisburð flytur
Arna Ingólfsdóttir. Tekið er á móti gjöfum til
æskulýðsstarfs KFUM & KFUK. Eftir sam-
komuna verður matur á vægu verði.
Fræðsla fyrir börn 1–14 ára í aldurs-
skiptum hópum. Allir velkomnir.
VEGURINN: Fjölskyldusamkoma kl. 11:00,
Guðspjall dagsins:
Hve oft á að fyrirgefa?
(Matt. 18).
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þingvallakirkja
Kirkjudagur
Fríkirkjunnar í Reykjavík
NÆSTKOMANDI sunnudag 16. nóvember er
kirkjudagur Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hátíð-
arguðsþjónusta verður klukkan 11. Í guðs-
þjónustunni munu fermingarbörn taka þátt í
lestrum og bænagjörð. Carl Möller og Anna
Sigríður Helgadóttir munu annast tónlist-
arflutning ásamt Fríkirkjukórnum. Sungnir
verða hefðbundnir kirkjusálmar ásamt óhefð-
bundinni trúar- og lofgjörðartónlist. Kirkju-
dagur Fríkirkjunnar í Reykjavík er jafnan
þann sunnudag sem er næstur afmælisdegi
kirkjunnar sem er 19. nóvember.
Stofnun Fríkirkjunnar í Reykjavík fyrir 104
árum (1899) markaði djúp spor í kirkjusögu
Íslendinga á nýliðinni öld. Að stofnuninni
stóðu íslensk fjöldasamtök þar sem mest bar á
fjölskyldum verkamanna, iðnaðarmanna og
sjómanna. Fríkirkjan í Reykjavík byggist ná-
kvæmlega á sama trúargrunni og íslensk þjóð
hefur játað um aldir. Á sínum tíma var stofn-
unin andsvar við deyfð og doða ríkiskirkj-
unnar. Einnig var stofnun Fríkirkjunnar í
Reykjavík mikilvægur liður í íslenskri sjálf-
stæðisbaráttu.
Á þeim 104 árum sem liðin eru hefur margt
verið unnið innan Fríkirkjunnar sem fært hef-
ur íslenskt kirkjulíf í átt til lýðræðis og tengt
það enn frekar hversdagsveruleika lands-
manna.
Síðustu fjögur árin hefur mikill fjöldi fólks
aftur gengið til liðs við Fríkirkjuna. Það hefur
gerst þrátt fyrir að Fríkirkjan í Reykjavík
njóti alls ekki sama fjárhagsstuðnings né
þeirra forréttinda sem ríkiskirkjan gerir.
Við hvetjum safnaðarfólk til að mæta í
kirkjuna sína á þessum hátíðisdegi. Einnig
hvetjum við yngra fólk til að aðstoða aldraða
til að taka þátt í messunni. Það er góður siður
að yngri sem eldri komi saman til kirkju. Á
þessum degi hvetjum við til kirkjugöngu og
bjóðum alla velkoma í Fríkirkjuna í Reykja-
vík.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson,
Fríkirkjuprestur.
Kór Menntaskólans í
Reykjavík í Dómkirkjunni
Á TÓNLISTARDÖGUM Dómkirkjunnar hef-
ur undanfarin ár verið messa þar sem Kór
Menntaskólans í Reykjavík hefur sungið
messusöngin og sérstök tónverk í messunni.
Það verður nú sunnudaginn 16. nóvember kl.
11. Kór sá hefur undanfarin ár æft á Dóm-
kirkjuloftinu undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar, dómorganista. Hinar ungu raddir
hafa nú undir hans stjórn fengið góða þjálfun
og hljóma svo vel að unun er á að hlýða. Það er
því ástæða til að bjóða samnemendur þeirra
og fjölskyldur sérstaklega velkomin til kirkju
af þessu tilefni.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson mun prédika
og þjóna fyrir altari ásamt sr. Hjálmari Jóns-
syni.
Athygli er vakin á barnastarfi sem fram fer
á kirkjuloftinu á sama tíma undir stjórn Hans.
G. Alfreðssonar, æskulýðsfulltrúa.
Æðruleysismessa
í Dómkirkjunni
ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð fólki sem
leitar bata eftir tólf spora leiðinni, verður í
Dómkirkjunni sunnudaginn 16. nóvember kl.
20.
Einhver mun segja þar af reynslu sinni úr
baráttunni við áfengissýkina. Anna Sigríður
Helgadóttir, Hjörleifur Valsson, Birgir og
Hörður Bragasynir sjá um fjölbreytta tónlist.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hug-
leiðingu. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir
samkomuna og sr. Karl V. Matthíasson leiðir
fyrirbæn.
Sjá heimasíðu Dómkirkjunnar www.dom-
kirkjan.is
Skagfirðingamessa
í Grafarvogskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 16. nóvember kl.
14, verður Skagfirðingamessa í Grafarvogs-
kirkju. Söngsveitin Drangey syngur við mess-
una undir stjórn Snæbjargar Snæbjarn-
ardóttur. Einsöngvari verður Óskar
Pétursson, Álftagerðisbróðir. Sr. Ágúst Sig-
urðsson, fyrrverandi sóknarprestur á Mæli-
felli í Skagafirði, prédikar. Organisti er Hörð-
ur Bragason. Sr Vigfús Þór Árnason, sr.
Bjarni Þór Bjarnason og sr. María Ágústs-
dóttir, þjóna fyrir altari.
Kaffisala að messu lokinni.
Tónleikar í Víkurkirkju
ÞRIÐJUDAGINN 18. nóvember nk. halda
þverflautuleikararnir Guðrún Birgisdóttir og
Martial Nardau tónleika í Víkurkirkju í Mýr-
dal. Á efnisskránni verða m.a. verk eftir Moz-
art, Telemann og Händel.
Guðrún starfar sem flautuleikari hjá Ís-
lensku óperunni auk þess sem hún er yfirmað-
ur flautudeildar Tónlistarskóla Kópavogs.
Martial leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands
og hjá Íslensku óperunni og kennir við
Listaháskóla Íslands. Guðrún og Martial hafa
spilað saman á flautur frá árinu 1980 og hlotið
mikið lof fyrir.
Þau spila verk frá ýmsum tímabilum, jafnt
barokktónlist og nútímatónlist, en talsvert er
um að íslensk tónskáld hafi samið sérstaklega
fyrir þau.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Að-
gangur er ókeypis. Fjölmennum.
Sóknarnefndin.
Gestir frá Gerðubergi í
Kópavogskirkju
GUÐSÞJÓNUSTA verður sunnudaginn 16.
nóvember kl. 14. Þátttakendur úr fé-
lagsstarfinu í Gerðubergi koma í heimsókn og
taka virkan þátt í guðsþjónustunni. Ritning-
arlestra lesa Anna Magnea Eyjólfsdóttir og
lokabæn Valdimar Ólafsson. Gerðubergs-
kórinn syngur undir stjórn Kára Friðriks-
sonar. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng. Organisti Julian Hewlett.
Að lokinni guðsþjónustu verður kaffi og
samvera í safnaðarheimilinu Borgum.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Gospelstund í Glersalnum
Á MORGUN, sunnudaginn 16. nóvember kl.
20, heldur Lindakirkja Gospelstund í Gler-
salnum við Salaveg í Kópavogi (í sama húsi og
Nettó, gengið inn bakatil inn í lyftu og upp í
sal). Um tónlistarflutning sér Kór Lindakirkju
ásamt Hannesi Baldurssyni organista. Sungn-
ir verða gospelsöngvar frá ýmsum stöðum og
tímum. Gestir kvöldsins eru Helga Vilborg
Sigurjónsdóttir söngkona og sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson sem flytur hugleiðingu. Allir vel-
komnir.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson.
Basar Dómkirkjukvenna
KIRKJUNEFND kvenna í Dómkirkjunni held-
ur árlegan basar sinn í safnaðarheimilinu
laugardaginn 15. nóvember frá kl. 14. Á boð-
stólum eru handunnir munir og svokallaðir
lukkupakkar í álitlegu magni. Einnig verður á
boðstólum kaffi og vöfflur.
Vinir og velunnarar Dómkirkjunnar eru
hvattir til að koma og líta inn í safnaðarheim-
ilinu í Lækjargötu 14a og veita stuðning starfi
kirkjunefndarkvenna að líknarmálum og
prýði Dómkirkjunnar. Þær hafa veitt bág-
stöddum mikilsverða aðstoð á umliðnum árum
og gefið kirkju sinni góðar gjafir, einkum
kirkjuskrúða. Það er þakkað og mikils metið
og það sömuleiðis hvað félagsskapur þeirra
hefur verið hollt afl í safnaðarlífinu.
Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Sköpunarsaga Biblíunnar
og vísindin
Á FRÆÐSLUMORGNI Íslensku Kristskirkj-
unnar kl. 10 í dag, laugardag 15. nóvember,
mun Friðrik Schram fjalla um þetta efni sem
löngum hefur valdið fólki heilabrotum og jafn-
vel miklum efasemdum. Hvernig ber að skilja
sköpunarsögu 1. Mósebókar? Er hún nátt-
úrufræðilýsing eða trúarleg opinberun? Er
hún í andstöðu við vísindaþekkingu nútímans?
Leitast verður við að svara þessum spurn-
ingum og öðrum sem fram koma. Allir eru vel-
komnir.
Kristni og fjölmenningar-
samfélag til umræðu
í Hallgrímskirkju
Á NÆSTA sunnudagsfundi í Hallgrímskirkju
mun Björn Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra ræða um kristni í fjölmenning-
arsamfélagi á Íslandi. Æ fleiri, sem ekki að-
hyllast kristni, flytjast til Íslands og setjast hér
að. Þetta fólk hefur bæði lagalegan og sið-
ferðilegan rétt til að fá að iðka trú sína. Hvaða
afleiðingar hefur það fyrir Íslendinga almennt
og kristnina sérstaklega að trúarleg fjöl-
breytnin vex og fjölhyggjusamfélag er við
sjónarrönd? Einhæfni hins íslenska samfélags
er að baki og ekki-kristnir óska að Íslendingar
bregðist vel við fjölmenningu. Björn Bjarna-
son hefur fjallað um stöðu kristni og kirkju í
ýmsum ræðum frá því að hann tók við starfi
sem ráðherra kirkjumála. Á sunnudagsfundi í
Hallgrímskirkju mun hann hafa hafa fram-
sögu um kristni í íslensku fjölmenningarsam-
félagi og svara fyrirspurnum. Fundurinn
hefst kl. 12.30 og er öllum heimill aðgangur.
Barnastarf og messa hefst í Hallgrímskirkju
kl. 11. Eftir messu verður messukaffi og síðan
upplýsandi orðræða sunnudagsfundar.