Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 75
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sjálfstæð/ur og hefur
sterka sjálfsímynd. Á kom-
andi ári verða breytingar til
hins betra í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður tími til að
huga að leiðum til að auka
persónulegan þroska þinn og
hæfni í vinnunni. Þú hefur
þörf fyrir að bæta þig á ein-
hvern hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu opinn fyrir því sem þú
getur lært af öðrum. Sólin er
á móti merkinu þínu og því
ættirðu að geta lært eitthvað
nýtt um sjálfa/n þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að láta hendur
standa fram úr ermum í dag.
Reyndu að skipuleggja þig.
Þú getur byrjað á því að
henda tíu hlutum sem þú ert
hætt/ur að nota.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt ekki sjá eftir því ef
þú gefur þér tíma til að vera
með börnum og ungmennum
í dag. Við getum lært margt
af unga fólkinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að einbeita þér að
heimilinu og fjölskyldunni í
dag. Notaðu sköpunargáfu
þína til að fegra heimili þitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Aukin samskipti við systkini
þín og aðra ættingja geta
komið sér vel fyrir þig. Þetta
er góður tími til að styrkja
fjölskylduböndin og leysa
gömul deilumál.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að hugsa þig vel um
áður en þú ræðst í stór-
innkaup. Þú vilt kaupa hluti
sem auðvelda þér lífið og
hjálpa þér að ná stjórn á að-
stæðum þínum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hikaðu ekki við að setja þín-
ar eigin þarfir í forgang í dag.
Sólin er í merkinu þínu og þú
ert að hefja nýtt ár.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt þú hafir þörf fyrir að
hitta fólk þarftu líka á ein-
veru og hvíld að halda. Þú
þarft að ganga frá ákveðnum
hlutum í huga þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Aðrir leita til þín eftir aðstoð
og góðum ráðum. Þú getur
deilt hugsunum þínum með
öðrum án þess að taka af-
stöðu eða ábyrgð á þeim.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt auðvelt með að ná eyr-
um áhrifamikils fólks. Not-
aðu tækifærið til að koma
sjónarmiðum þínum á fram-
færi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ferðaáætlanir og áætlanir
um framhaldsmenntun líta
vel út. Þú ert staðráðin/n í að
víkka sjóndeildarhring þinn
og læra meira um heiminn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
EINBÚINN
Yfir dal, yfir sund,
yfir gil, yfir grund
hef ég gengið á vindléttum fótum.
Ég hef leitað mér að,
hvar ég ætti mér stað,
út um öldur og fjöll og í gjótum.
En ég fann ekki neinn,
ég er orðinn of seinn,
þar er alsett af lifandi og dauðum.
Ég er einbúi nú
og ég á mér nú bú
í eldinum logandi rauðum.
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 15. nóvember ersjötug Málfríður Þórðardóttir. Eiginmaður hennar
er Jósef Hilmar Gunnlaugsson, sem varð sjötugur 19. ágúst
sl. Þau eru að heiman á afmælisdaginn.
ÍTALIR unnu Norðmenn í
spennandi leik í undan-
úrslitum HM og keppa nú
við bandarísku A-sveitina um
Bermúdaskálina, en síðustu
umferðirnar verða spilaðar í
dag. Ítalinn Laurenzo
Lauria leikur við hvern sinn
fingur í Monte Carlo og virð-
ist varla taka ranga ákvörð-
un. Hér er eitt af mörgum
dæmum frá leiknum við
Norðmenn:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ ÁD105
♥ D4
♦ KD9
♣9652
Vestur Austur
♠ 9 ♠ 863
♥ K1082 ♥ ÁG63
♦ 1084 ♦ 62
♣ÁKD108 ♣G743
Suður
♠ KG742
♥ 975
♦ ÁG753
♣ –
Í opna salnum varð Dub-
oin í suður sagnhafi í fjórum
spöðum gegn Grötheim og
Aa:
Vestur Norður Austur Suður
Grötheim Bocchi Aa Duboin
– – – Pass
1 tígull * Pass 1 hjarta 1 spaði
2 hjörtu 2 grönd * Pass 3 tíglar
Pass 4 spaðar Allir pass
Ellefu slagir eru auðteknir
og Ítalir skráðu 650 í plús-
dálkinn. AV eiga góða fórn á
fimmta þrepi, en Grötheim
og Aa fundu ekki laufið og
voru aldrei nálægt því að
taka fórnina.
Hinum megin vakti
Helgemo á veikri tvílitasögn
í suður:
Vestur Norður Austur Suður
Versace Helness Lauria Helgemo
– – – 2 tíglar *
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Dobl 4 spaðar 4 grönd * Dobl
5 lauf Dobl Allir pass
Opnunin gat verið byggð á
ýmsum 5-5 höndum, en með
þremur tíglum lá fyrir að lit-
irnir væru spaði og tígull.
Versace notaði þá tækifærið
og doblaði til úttektar. Sem
varð til þess að Lauria ákvað
að fórna yfir fjórum spöðum
þrátt fyrir flata skiptingu.
Hann sagði fjögur grönd og
lét makker velja lengri litinn.
Versace fann hjartadrottn-
inguna og fór því aðeins einn
niður á fimm laufum: – 100
og 11 IMPar til Ítala.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6.
Bc4 Db6 7. Rdb5 a6 8. Be3
Da5 9. Rd4 e6 10. O-O Be7
11. Bb3 O-O 12. Kh1 Dc7 13.
f4 Ra5 14. f5 Rxb3 15. axb3
Bd7 16. g4 Bc6 17. Df3 Rd7
18. g5 Re5 19. Dg2 exf5 20.
Rxf5 Hfe8 21. Bd4 Bf8 22.
Re3 He6 23. Red5
Bxd5 24. Rxd5 Dc6
25. Bxe5 Hxe5 26.
Hf4 Hc8 27. c4 De8
28. Haf1 Hd8 29.
Hh4 b5
Staðan kom upp í
Meistaraflokki
Mjólkurskákmótsins
sem lauk fyrir
skömmu á Hótel Sel-
fossi. Bandaríski
stórmeistarinn, Nick
DeFirmian (2553),
hafði hvítt gegn
Þresti Þórhallssyni
(2444). 30. Rf6+!
gxf6 31. gxf6+ Kh8 32. Hg1
Bh6 33. Hxh6 Dg8 34. Dh3
og svartur gafst upp enda
fátt til varnar. Nick er ís-
lenskum skákáhugamönn-
um að góðu kunnur þar sem
á 20 ára tímabili hefur hann
hefur teflt tugum sinnum á
Íslandi. Skákstíll hans er
skarpur en það dugði hon-
um skammt gegn ofurstór-
meisturunum á Mjólk-
urskákmótinu.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Dragtir
stærðir 38-50
25%
afsláttur
Opið í dag frá kl. 10.00-16.00
Gestum og gangandi verður boðið upp á súkkulaði og rjómavöfflur
gegn vægu gjaldi. Fallegir munir sem unnir eru í dagvistinni verða
til sölu og m.a. hinir frábæru grjónapokar.
Einnig verða jólakort M.S. félagsins til sölu á basarnum.
Heimilismenn og starfsfólk d&e M.S. dagvistar
Opið hús
laugardaginn 15. nóvember • Kl. 13.00-16.00
Jólabasar d&e M.S. dagvistar • Sléttuvegi 5, 103 R.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer
úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í Morgunblaðinu
laugardaginn 15. nóvember. Upplýsingar um útdregin húsbréf má
finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
1. flokki 1991 – 48. útdráttur
3. flokki 1991 – 45. útdráttur
1. flokki 1992 – 44. útdráttur
2. flokki 1992 – 43. útdráttur
1. flokki 1993 – 39. útdráttur
3. flokki 1993 – 37. útdráttur
1. flokki 1994 – 36. útdráttur
1. flokki 1995 – 33. útdráttur
1. flokki 1996 – 30. útdráttur
3. flokki 1996 – 30. útdráttur
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. janúar 2004.
Árshátíð
Félags harmonikuunnenda í Reykjavík
og Þjóðdansafélags Reykjavíkur
verður haldin í kvöld í Glæsibæ. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00 en
dansleikur hefst kl. 22.30. Harmonikuhljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur
fyrir dansi til kl. 02.00. Miðaverð kr. 3.700. Miðaverð á dansleik kr. 1.200.
Borðapantanir í síma 568 6422 og 894 2322.
Allir velkomnir.
Ljósmynd/Bonni
BRÚÐKAUP. Þann 5.júí
voru gefin saman í hjóna-
band af séra Halldóru Þor-
varðardóttur í Háteigs-
kirkju þau Erla Rún
Sigurjónsdóttir og Þor-
varður Kjerúlf Benedikts-
son. Þau eru til heimilis að
Framnesvegi 31 í Reykja-
vík.
Ljósmynd/Dagsljós ehf.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 16. ágúst sl. í Möðru-
vallakirkju af sr. Solveigu
Láru Guðmundsdóttur þau
Rósa María Stefánsdóttir
og Hjalti Páll Þórarinsson.
Heimili þeirra er að Hesju-
völlum við Akureyri.
PENNAVINIR
GRETA Narten, sem er
16 ára, leitar að íslenskum
pennavinum. Hún skrifar á
ensku.
Greta Narten,
Lentheweg 4,
21077 Hamburg,
Germany.
ALISAN Hillman, sem er
25 ára, óskar eftir íslenskum
pennavinum.
Alisan Hillman,
5901 Wedgwood Dr.
Ft. Worth Tx 76133,
U.S.A.
DEBI Harper, sem er 46
ára af íslenskum ættum,
óskar eftir íslenskum
pennavinum.
Debi Harper,
Box 224 Elmo,
Utah 84521,
U.S.A.
AURÉLIO M. da Silva,
sem er 23 ára karlmaður frá
Brasilíu óskar eftir íslensk-
um pennavinum.
Aurélio M. da Silva,
Rua Padre Nórega, 50
16400-726 Lins -
Sao Paulo,
Brazil,
South America.