Morgunblaðið - 15.11.2003, Síða 85
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 85
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3, 5.30, 8 OG 10.30.
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
SG DV
„Ein besta
gamanmynd ársins-
fyrir fullorðna“
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 Ísl. tal.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2 og 4. í þrívídd
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
ATH!AUKASÝNINGKL. 6.30 og 9
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 5.45, 8 og 10.15.
Kvikmyndir.com Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
KEFLAVÍK
Kl. 5.30og 8.
ÁLFABAKKI
Kl. 6, 8 og 10.05
KRINGLAN
Kl. 8 og 10.05
KRINGLAN
Sýnd kl. 4 og 6.
ÁLFABAKKI
kl. 1.45 og 3.50.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Mögnuð og yfirnáttúrleg
spenna sem fær
hárin til að rísa.
Með hinum unga og efnilega
Jamie Bell úr „Billy Elliot.“
Lilli hélt alltaf að hann væri bara
venjulegur álfur, þangað til annað
kom í ljós. Nú er hann á leiðinni í
stórborgina að finna pabba sinn.
Stórkostleg grínmynd
fyrir alla fjölskylduna.
ÁLFABAKKI
Kl. 2. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 4. Ísl. tal.
KRINGLAN
kl. 2. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Kl. 3, 4, 5.30, 6.30, 8, 9, og 10.30. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.40. B.i.10.
ÁLFABAKKI
kl. 1.45. Ísl. tal.
Forsýning
sunnudag
JOE Jackson, faðir popptónlistar-
mannsins Michaels Jacksons, segist
aldrei hafa barið son sinn, en við-
urkennir í sjónvarpsviðtali, sem sýnt
verður í Bretlandi á morgun, að hann
hafi flengt Michael með svipu og
belti. „Maður ber einhvern með
priki,“ er haft eftir Joe Jackson á
fréttavef BBC í dag. Michael Jack-
son hefur oft haldið því fram að faðir
hans hafi barið sig sem barn.
Viðtalið var tekið á hótelherbergi í
Bandaríkjunum og viðstaddur var
maður sem nefndi sig Majestik
Magnificent og sagðist vera sérlegur
töframaður Michaels Jacksons.
Magnificent heyrist oft grípa fram í
og hótar á einum stað að slíta samtal-
inu þegar Joe er spurður um meintar
lýtaaðgerðir á andliti Michaels.
Joe segir að Michael geti gert það
sem hann vill við nefið á sér, en talið
er að margar aðgerðir hafi verið
gerðar á nefi hans þótt Michael hafi
ítrekað vísað því á bug.
Þegar Louis Theroux, sem tók
viðtalið, spyr hvort Michael eigi vin
eða vinstúlku heyrist Magnificent
segja: „Hvað ertu að gefa í skyn. Að
Michael sé samkynhneigður?“
Magnificent segir að spurningin sé
niðrandi fyrir Joe, sem heyrist síðar
segja: „Við trúum ekki á homma. Ég
þoli þá ekki.“ Síðan slítur hann við-
talinu.
Theroux er þekktur í Bretlandi
fyrir að taka glettnisleg viðtöl við
frægt fólk. Hann hefur án árangurs
reynt að fá viðtal við Michael Jack-
son sjálfan.
Faðir Michaels Jacksons í sjónvarpsviðtali
Barði ekki son
sinn heldur flengdi
BREIÐIN, Akranesi Árshátíð Ak-
urnesinga haldin með miklum látum.
Dagskrá hefst kl. 20 með borðhaldi.
Meðal skemmtiatriða má nefna Tríó
Andreu. Útvarpsmaðurinn Ólafur
Páll Gunnarsson tekur lagið. Sömu-
leiðis sérlegur gestasöngvari, Bjarni
Ármannsson bankamaður. Þá verð-
ur frumsýnd ný heimildamynd um
mannlíf, sálarlíf, dýralíf og annað líf
á Akranesi. Veislustjóri verður Gísli
Einarsson. Að dagskrá lokinni tekur
við dansleikur með hljómsveitinni
Herradeild PÓ sem skipuð er þeim
Einari Skúlasyni æskulýðsfrömuði,
kennurunum og (gömlu) poppstjörn-
unum Flosa Einarssyni og Eiríki
Guðmundssyni, Guðmundi Jóhanns-
syni söngstjóra og blikksmíðameist-
ara, Birgi Guðmundssyni sálkönnuði
og síðast en ekki síst Pétri Óðinssyni
þúsundþjalasmið. Miðaverð á allan
pakkann 4.500 krónur. Miðaverð á
dansleik (eftir kl. 23.00) er 1.800 ís-
lenskar krónur. Aðgöngumiðar seld-
ir í forsölu í Pennanum á Akranesi.
BÆJARBÍÓ, Hafnarfirði Kvik-
myndasafnið sýnir Fassbinder-
myndina Veronica Voss kl. 16.
FELIX Partí í tilefni af útgáfu nýrrar
plötu Kylie Minogue, Body Lang-
uage, verður á Felix í kvöld. Þar
kemur Ólafur Helgi Ólafsson,
dragdrottning Íslands, fram í gervi
söngkonunnar og flytur meðal ann-
ars nýjasta smáskífulag hennar,
„Slow“, eftir Emiliíönu Torrini.
Heppnir gestir geta unnið diskinn,
vínylplötu með „Slow“, Kylie-
veggspjöld og fleira.
METZ Opinn bar. Tónlist að hætti
hússins, sérstök blanda af mjúku
„house“.
NASA Bubbi Morthens heldur út-
gáfutónleika vegna útkomu plötu
sinnar 1000 kossa nótt. Hefjast kl.
21. Forsala í Nasa milli 14 og 17.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
UPPSELT er á tónleika Muse í Laugardalshöll þann 10.
desember næstkomandi. Sala hófst kl. 9 í gærmorgun
og var orðið uppselt á flestum útsölustöðum á innan við
klukkutíma. Það er því nokkuð ljóst að kapparnir falla
vel í kramið hjá landanum og er það því mikið tilhlökk-
unarefni að sjá móttökurnar sem þeir fá frá troðfullri
Laugardagshöllinni.
Að sögn Þorsteins Stephensen tónleikahaldara hjá
Hr. Örlygi er nær útilokað að sveitin komi fyrir öðrum
tónleikum á Íslandi í þetta sinnið því hún sé á stífri tón-
leikaferð um heiminn um þessar mundir.
Þorsteinn hafði ekki tilkynnt sveitarmönnum gleði-
tíðindin er blaðamaður ræddi við að en sagðist viss um
að þeir yrðu í skýjunum yfir viðtökunum. „Þetta verða
meðal stærstu tónleikum þeirra á ferðinni og það að
miðar skuli hafa selst upp svo fljótt eru skýr skilaboð til
þeirra hversu vinsæl Muse er á Íslandi. Þeir eiga því
örugglega eftir að fá gæsahúð þegar þeir stíga fram á
sviðið og horfa upp á allan þennan fjölda í troðfullri
Laugardalshöllinni.“
Enn hefur ekki verið ákveðið hverjir munu hita upp
fyrir Muse en Þorsteinn segist vona að það skýrist mjög
fljótlega.
Uppselt á Muse-tónleikana
Muse er á tónleikaferð um Evrópu um þessar mundir
og leikur m.a. á Spáni og í Frakklandi áður en hún sæk-
ir Ísland heim.
Yfir fimmþúsund
miðar fuku á
fjórum tímum