Morgunblaðið - 21.11.2003, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 49
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert nútímaleg/ur og býrð
yfir óvenjulegum glæsileika.
Einbeittu þér að þínum
nánustu samböndum á
komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Búðu þig undir það óvænta.
Þú gætir lent í leiðindum
vegna skuldar við einhvern
eða sambands við einhvern.
Reyndu að halda ró þinni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú vilt ekki láta segja þér
fyrir verkum í dag. Þú metur
sjálfstæði þitt mikils og vilt
taka þínar eigin ákvarðanir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gerðu ráð fyrir bilunum, töf-
um og óvæntum uppákomum
í vinnunni í dag. Þegar á
heildina er litið munu þessar
uppákomur leiða til góðs.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er hætt við að þú lendir
í deilum við ástvin þinn í
dag. Leið sannrar ástar er
oft þyrnum stráð. Vertu vak-
andi fyrir leyndum slysa-
gildrum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samskipti innan fjölskyld-
unnar gætu reynst þér erfið
í dag. Þér mislíkar að vera
settar skorður, þurfa allir að
leggjast á eitt við að halda
fjölskyldunni saman.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gefðu þér góðan tíma í dag
því það er næstum öruggt að
þú verður fyrir töfum. Það
er einnig mikil hætta á slys-
um þannig að þú ættir að
fara sérstaklega varlega.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Forðastu að kaupa eitthvað í
skyndi í dag. Þú hefur yndi
af því að fegra umhverfi þitt
en ættir að fara varlega í
innkaupum í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert óvenju sjálfstæð/ur og
ákveðin/n í dag og það gæti
skapað togstreitu í sam-
skiptum þínum við börn og
aðra fjölskyldumeðlimi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samskipti þín við yfirvöld
eða stórar stofnanir gætu
komið þér á óvart í dag. Þá
má búast við einhvers konar
töfum þessara aðila.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sýndu vinum þínum þol-
inmæði. Fólki hættir til
hugsunarleysis í dag og því
meinar það sennilega ekki
nema helminginn af því sem
það segir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Yfirmenn þínir eða foreldrar
gætu komið þér á óvart í
dag. Reyndu að fljóta með
straumnum og forðastu að
styggja nokkurn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ævintýraþrá þín er vakin.
Þú vilt brjóta af þér öll bönd
en verður að gæta þess að
missa ekki raunveruleika-
sambandið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KVÖLDHUGSUN
Nú skógar-beltin blána í aftanmóðu
og ber upp hátt sem langar raðir fjalla;
hvað vilja þau í hug mér endurkalla,
kvöldsólar geislum kysst í veðri góðu?
Ég horfi á velli, vötn og þorpin hljóðu,
en værð mig flýr, er hvíldin laðar alla,
og aftanklukkur angurblíðar gjalla
úr vesturgeim, þar glóa skýin rjóðu.
Nú skyggir fold, er röðull rann við skóga;
hve rökkurfuglinn blítt í lundi gelur!
hve tindrar Venus glatt með geislum munar!
Þeir yndistöfrar eigi samt mér fróa,
því andi minn á hnúkaláði dvelur,
þar þungur foss í þröngu gili dunar.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
75 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 21. nóv-
ember, er 75 ára Halla Mar-
grét Ottósdóttir. Hún
dvelst í Sunnuhlíð í Kópa-
vogi. Eiginmaður hennar er
Ragnar Sigurðsson. Þau
taka á móti vinum og vanda-
mönnum á morgun, laug-
ardaginn 22. nóvember, í
Félagsheimili Bústaða-
kirkju milli kl. 15-18.
ÞEGAR 6 spilum af 128 var
ólokið í úrslitaleik Banda-
ríkjamanna og Ítala um
Bermudaskálina var staðan
283-278 Ítölum í vil. Fimm
IMPa munur.
Spil 123. Suður gefur;
enginn á hættu.
Norður
♠ Á97
♥ 98
♦ K743
♣K1097
Vestur Austur
♠ 63 ♠ KDG842
♥ G1054 ♥ 76
♦ Á62 ♦ G8
♣DG86 ♣Á52
Suður
♠ 105
♥ ÁKD32
♦ D1095
♣43
Sagnir voru eins á báðum
borðum:
Vestur Norður Austur Suður
Hamman Lauria Soloway Versace
Duboin Rodwell Bocchi Meckstr-
oth
-- -- -- 1 hjarta
Pass 1 grand 2 spaðar Pass
Pass Dobl Pass 3 tíglar
Pass Pass Pass
Útspilið var spaði, sem
báðir sagnhafar dúkkuðu til
austurs. Aftur kom spaði,
drepinn með ás og tígli spil-
að úr borði.
Hér skildu leiðir.
Meckstroth svínaði tíunni
og tryggði sér þar með níu
slagi. Duboin dúkkaði, en
tók næsta tígul og spilaði
þeim þriðja. Meckstroth gat
nú fríspilað hjartað og gaf
aðeins tvo slagi á lauf í við-
bót: 110 í NS.
Versace ákvað að stinga
upp tíguldrottningu og
Hamman dúkkaði leiftur-
snöggt. Sem er góð vörn, því
nú er eðlilegt að staðsetja
tígulásinn í austur. Versace
lét nú trompið bíða í bili og
spilaði ÁKD í hjarta og
henti spaða úr borði. Solo-
way trompaði þriðja hjartað
með tígulgosa og átti út í
þessari stöðu:
Norður
♠ --
♥ --
♦ K74
♣K1097
Vestur Austur
♠ -- ♠ D842
♥ G ♥ --
♦ Á6 ♦ --
♣DG86 ♣Á52
Suður
♠ --
♥ 32
♦ 1095
♣43
Hann spilaði spaða í tvö-
falda eyðu, frekar en laufi
frá ásnum. Nú má vinna
spilið með því að henda laufi
heima og trompa í borði.
Spila svo laufkóng (!) úr og
opna samgang fyrir víxl-
trompun. En Versace sá
ekki þennan möguleika og
trompaði heima og hlaut þá
að gefa tvo slagi á lauf. Einn
niður, 50 í AV og 4 IMPar til
Bandaríkjamanna.
Munurinn 1 IMPi og 5
spil eftir.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 21. nóv-
ember, er sextugur Gunnar
Valur Jónsson, varðstjóri í
hegningarhúsinu Skóla-
vörðustíg 9. Hann og eig-
inkona hans, Steinunn Jak-
obína Guðmundsdóttir,
verða í París á afmælisdag-
inn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
Rc3 Bb7 5. a3 d5 6.
cxd5 Rxd5 7. Bd2
Rd7 8. Rxd5 Bxd5 9.
Dc2 Hc8 10. e4 Bb7
11. O-O-O Be7 12.
Kb1 O-O 13. Bc3 c5
14. d5 exd5 15. exd5
c4 16. h4 He8 17.
Be2 Hc5 18. Rg5
Rf8 19. Bf3 Bxg5 20.
hxg5 Dxg5 21. Bb4
Hxd5 22. Hxd5
Bxd5 23. Hh5
Staðan kom upp í
afar öflugu at-
skákmóti sem fram
fór í Bastia í Frakk-
landi fyrir skömmu.
Viswanathan Anand (2766)
hafði svart gegn Miso Ce-
balo (2486). 23... Dxh5! og
hvítur gafst upp enda verð-
ur hann skiptamun undir
eftir 24. Bxh5 Be4.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Húsbóndinn á heimilinu
vill fá matinn sinn og eng-
ar refjar!
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Baldur Geirsson, 9 ára strákur á Akureyri, hélt nýlega
hlutaveltu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust
4.400 krónur. Með Baldri á myndinni er Agnar, litli bróðir
hans.
HLUTAVELTA
HANN ER KOMINN
NÝI DÖMUILMURINN
FRÁ
HUGO BOSS
Grímsbæ,
sími 588 8488
við Bústaðaveg
Nýkomið
Bolir - gallabuxur - gallaskyrtur
Skór
Leðurhanskar í
jólapakkann
Góðar stærðir - gott verð
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Önnur lotan í A-Hansen tvímenn-
ingnum var spiluð mánudaginn 17.
nóvember.
Úrslit það kvöld urðu þannig:
N-S riðill:
Dröfn Guðmundsd. – Hrund Einarsd. 185
Páll Hjaltason – Sigurður Sigurjónss. 183
Hlöðver Tómass. – Sigurður Tómass. 182
A-V riðill:
Guðni S. Ingvarss. – Hafþór Kristjánss. 191
Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfsson 187
Einar Sigurðsson – Halldór Einarsson 186
Meðalskor var 168.
Heildarstaðan í keppninni er nú
þannig:
Einar Sigurðsson – Halldór Einarsson 436
Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 416
Gunnar Birgisson – Rúnar Einarsson 413
Páll Hjaltason – Sigurður Sigurjónss. 400
Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfss. 399
Dröfn Guðmundsd. – Hrund Einarsd. 397
Keppninni verður fram haldið
mánudaginn 24. nóvember, en þann
1. desember hefst aðalsveitakeppn-
in, þannig að nú er fyllilega tímabært
að huga að sveitarfélögum fyrir þá
keppni.
Stefán og Þórólfur sigruðu
í aðaltvímenningi BA
Aðaltvímenningi Bridgefélags Ak-
ureyrar er lokið. 16 tóku þátt og spil-
aðar voru fjórar umferðir. Úrslit í
fjórðu umferð er:
Pétur Örn Guðj. – Grettir Frímannss. 43
Reynir Helgason – Stefán Sveinbjörnss. 23
Árni Bjarnason – Ævar Ármannsson 21
Stefán Vilhj. – Haraldur Sveinbjörnss. 21
Jón Björnsson – Halldór Svanbergsson 20
Lokastaðan í mótinu er:
Stefán G. Stefánsson – Þórólfur Jónass. 90
Pétur Örn Guðj. – Grettir Frímannss. 80
Jón Björnsson – Halldór Svanbergsson 69
Björn Þorláksson – Frímann Stefánsson 57
Jón Sverrisson – Una Sveinsdóttir 38
Spilað er á þriðjudags- og sunnu-
dagskvöldum klukkan 19.30 í Fé-
lagsheimilinu Hamri. Á þriðjudags-
kvöldum eru forgefin spil og
keppnisstjóri er á staðnum. Næsta
þriðjudagskvöld hefst þriggja
kvölda hraðsveitakeppni. Allir vel-
komnir.
Bridsfélagið Muninn
Nýlega er lokið hausttvímenningi
hjá félaginu og sigruðu Grethe Íver-
sen og Svala Pálsdóttir með minnsta
mun en þær voru með 56,51% skor.
Karl Hermannsson og Jóhannes Sig-
urðsson voru með 56,48% og sömu
skor náðu einnig Sigurður Alberts-
son og Jóhann Benediktsson. Spilað
var í þrjú kvöld og giltu tvö stiga-
hæstu kvöldin til verðlauna.
Nú er hafin firmakeppni og er
spiluð sveitakeppni. Átta firmu
styrkja keppnina og þegar mótið er
tæplega hálfnað er sveit Heklu efst
með 60 stig, Pípulagnir Benna Jóns
er í öðru sæti með 52 og sveit Olís
þriðja með 50.
Spilarar í efstu sveitinni eru Svala
Pálsdóttir, Karl G. Karlsson, Grethe
Íversen og Randver Ragnarsson.
Spilað er á fimmtudagskvöldum í
félagsheimili bridsspilara á Suður-
nesjum sem stendur við gamla Sand-
gerðisveginn.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson