Morgunblaðið - 27.12.2003, Síða 1
Hörkuskalli
Hermanns
Íslenski jólamaturinn fór vel í Hermann
Hreiðarsson | Íþróttir
Lesbók og Börn í dag
Lesbók | Snillingar saman Hvað bar hæst á árinu?
Hinn fullkomnandi hlutur Börn | Gaman að gera gagn og
selja kerti Hvernig getum við hjálpað?
STRAX eftir jarðskjálftann í Íran í gær-
morgun hafði Slysavarnafélagið Lands-
björg í samvinnu við utanríkisráðuneytið
samband við tengiliði sína hjá stjórnstöð
SÞ í Genf til að kanna hvort þörf væri á
aðstoð Alþjóðasveitar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar.
Að höfðu samráði við SÞ í Genf var
ekki talin þörf á að setja sveitina í við-
bragðsstöðu þar sem ferðalag hennar til
Íran tæki það langan tíma að sveitin
kæmi að takmörkuðum notum með
tæknibúnað sinn til leitar að lifandi fólki.
Flestir þeir sem finnast á lífi í húsarúst-
um bjargast á fyrstu 24–36 klst. eftir að
jarðskjálfti gengur yfir en þar sem Al-
þjóðasveitin þarf að fara með áætl-
unarflugi tekur það talsverðan tíma að
koma henni til Írans.
Alþjóðasveitin er hinsvegar ávallt
tilbúin að bregðast við þegar eftir er leit-
að og verða stjórnendur hennar í sam-
bandi við SÞ í Genf til að fylgjast með
framgangi mála, segir í tilkynningu frá
Landsbjörg.
Íslendingar
verða ekki
sendir til
Íran
ÁRIÐ í ár virðist ætla að koma vel
út hjá fyrirtækjunum sem reka ál-
verin í Straumsvík og á Grundar-
tanga, Alcan á Íslandi og Norðuráli.
Framleiðsla ársins er í heild um 266
þúsund tonn, þar af nærri 176 þús-
und tonn hjá Alcan og liðlega 90
þúsund tonn hjá Norðuráli, sem eru
hámarksafköst í hvoru álveri fyrir
sig og framleiðslumet. Norðurál
bætti við sig fáeinum hundruðum
tonna og Alcan tæplega þremur
þúsundum tonna, þrátt fyrir tækni-
vandamál í upphafi ársins.
Útflutningstekjur Alcan verða
um 305 milljónir dollara og 137
milljónir dollara hjá Norðuráli, eða
alls 442 milljónir dollara. Það gerir
tæpa 34 milljarða króna, miðað við
meðalgengi dollars það sem af er
árinu, sem er svipað verðmæti í
krónum talið og á
síðasta ári.
Að sögn Hrann-
ars Péturssonar,
upplýsingafulltrúa
Alcan á Íslandi, eru
raunhæfir mögu-
leikar taldir á því
að geta framleitt
177 þúsund tonn á komandi ári.
Hrannar segir að þessu til viðbótar
hafi Alcan flutt inn rúm 14 þúsund
tonn af málmi sem hafi verið breytt
í verðmæta afurð og selt aftur. Er
það 40% meira en reiknað var með í
upphafi ársins.
Segir Hrannar útlitið vera gott á
næsta ári hvað pantanir á áli varðar,
eins langt og hægt sé að sjá fram í
tímann í áliðnaðinum.
Fram kemur í pistli Rannveigar
Rist, forstjóra
Alcan, í nýj-
asta tölublaði
Ísal-tíðinda,
að fram-
leiðslumetið
hafi verið
slegið þrátt
fyrir tæknileg
vandamál í kerskálum í upphafi árs-
ins, þar sem frumorsökin var gæða-
vandamál í skautum frá Aluchemie.
„Á örstuttum tíma myndaðist nán-
ast neyðarástand í kerskálum, en
með samstilltu átaki náðist stjórn á
vandanum á ótrúlega stuttum tíma.
Allir hlutaðeigandi eiga mikið hrós
skilið fyrir afrekið,“ segir Rannveig
í fréttabréfinu.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og stjórn-
unarsviðs Norðuráls, segir að þetta
verði að öllum líkindum besta
rekstrarár félagsins til þessa.
Framleiðslan sé heldur meiri en
ætlað var en útflutningstekjurnar
lægri. Eftir sem áður sé rekstrar-
niðurstaðan góð, sú besta í sögu
Norðuráls.
„Veiking dollarans hefur unnið
gegn okkur á árinu og þýtt hærra
innkaupsverð á rafskautum frá
Þýskalandi. Einnig er launakostn-
aður hærri en áætlanir gerðu ráð
fyrir en libor-vextir í dollurum hafa
hins vegar verið mjög lágir,“ segir
Ragnar og er bjartsýnn á gott ár
framundan á Grundartanga. Mikil-
vægt er að hans mati að vel takist í
samningagerð á vinnumarkaði
þannig að stöðugleiki í efnahagslíf-
inu haldi áfram.
Útflutningsverðmæti áls nærri 34 milljarðar króna á þessu ári
Framleiðslumet slegin
hjá Alcan og Norðuráli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞÚSUNDIR manna fórust er mjög
öflugur jarðskjálfti reið yfir borg-
ina Bam í Suðaustur-Íran í gær-
morgun og jafnaði hana að stórum
hluta við jörðu. Í gærkvöld var haft
eftir írönskum embættismönnum,
að meira en 20.000 manna hefðu
látið lífið en fullvíst var talið, að
margir, jafnvel þúsundir manna,
væru grafnir undir rústunum enda
fólk enn í fastasvefni er ósköpin
dundu yfir. Áætlað var, að um
50.000 manns hefðu slasast og
margir mjög alvarlega.
Haft var eftir írönskum embætt-
ismönnum í gær, að 20.000 manns
að minnsta kosti hefðu farist í
skjálftanum en í Bam bjuggu um
80.000 manns. Sýna myndir, sem
teknar voru úr lofti, að 60 til 70%
borgarinnar jöfnuðust við jörðu.
Að sögn Írana var styrkur
skjálftans 6,3 stig á Richter en
ýmsar jarðskjálftastöðvar erlendis
telja, að hann hafi verið öflugri.
Voru upptök hans skammt frá
borginni, sem er í um 1.000 km
fjarlægð frá höfuðborginni, Teher-
an. Reið skjálftinn yfir um klukkan
hálfsex að morgni þegar fólk var
enn inni í húsum og flestir sofandi
að því er fram kemur hjá erlendum
fréttastofum, AP og AFP.
Sigtryggur Ari Jóhannsson, sem
staddur er í Teheran og vinnur þar
að undirbúningi pílagrímaflugs á
vegum flugfélagsins Atlanta, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hörm-
ungarnar væru aðalefnið í öllum
fjölmiðlum, sem teldu, að nokkur
tími myndi líða áður en vitað væri
hve manntjónið er mikið. Í sjón-
varpi væru nefndar tölur allt upp í
20.000. Kvaðst Sigtryggur ekki
sjálfur hafa fundið fyrir skjálftan-
um, sem þó fannst í Teheran.
„Kannski sé ég
þig ekki aftur“
Þegar í gær var búið að taka um
2.000 manns eina stóra gröf í graf-
reit borgarinnar og þar voru
hundruð manna, sem grétu og
hörmuðu lát ástvina sinna. Meðal
þeirra var Mohammed Karimi,
maður á fertugsaldri, sem sat yfir
líki konu sinnar og fjögurra ára
gamallar dóttur.
„Í gærkvöldi, áður en við fórum
að hátta, teiknaði hún fyrir mig
mynd og kyssti mig fjórum koss-
um,“ sagði hann um dóttur sína.
„Þegar ég spurði hvers vegna hún
hefði kossana fjóra, sagði hún:
„Kannski sé ég þig ekki aftur,
pabbi,“ svaraði hún þá,“ sagði Kar-
imi og grét.
Í allan gærdag reyndi fólk í ör-
væntingu að leita sér hjálpar en
mikil ringulreið ríkti á hamfara-
svæðinu.
Þjóðarsorg
Mohammad Khatami, forseti Ír-
ans, lýsti í gær yfir þriggja daga
þjóðarsorg vegna hamfaranna og
íranska ríkisstjórnin skoraði á er-
lend ríki að koma til hjálpar.
Brugðust mörg ríki ásamt alþjóð-
legum hjálparstofnunum strax við
kallinu og hafa boðið fram aðstoð
sína.
Dauði og eyðilegging er íranska borgin Bam jafnaðist næstum við jörðu í hörðum jarðskjálfta
Óttast að meira en 20.000
hafi farist í hamförunum
Talið að þúsundir
manna séu grafnar
í rústunum
Fjöldi erlendra
ríkja hefur boðið
fram aðstoð
Reuters
Látið fólk borið burt úr rústunum. Flest hús í Bam eru úr leirsteini og ekki
undir það búin að standast jarðskjálfta þótt þeir séu tíðir á þessum slóðum.
Fornfræg borg/14
STOFNAÐ 1913 350. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is