Morgunblaðið - 27.12.2003, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DÚKKA sem ber andlit George W.
Bush Bandaríkjaforseta er komin á
markað í Bandaríkjunum. Það er
smáfyrirtækið Toypresidents í Tex-
as sem selur forsetadúkkurnar,
sem eru á stærð við Barbie dúkkur,
en hafa það þó fram yfir Barbie að
geta talað, að því er segir í frétt
AP.
Bush dúkkan er sú fyrsta af átta
sem til stendur að setja á markað í
Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur
látið gera dúkkur sem eiga að vera
eftirmyndir af sjö fyrrverandi for-
setum Bandaríkjanna; Bill Clinton,
Ronald Reagan, John F. Kennedy,
Abraham Lincoln, George Wash-
ington, Thomas Jefferson og Theo-
dore Roosevelt.
Hver dúkka er klædd í fatnað
sem talinn er lýsandi fyrir þann for-
seta sem hún er gerð eftir. Þannig
er Clinton dúkkan til dæmis íklædd
bláum jakkafötum, með rautt bindi
og í svörtum kúrekastígvélum, sem
Clinton mun hafa haldið mikið upp
á.
Engar gríndúkkur
Dúkkurnar eru ekki settar á
markað í því skyni að gera grín að
þjóðarleiðtogum Bandaríkjanna
fyrr eða nú, heldur segjast fram-
leiðendur vilja votta þeim virðingu
og vonast til að dúkkurnar nýtist til
stjórnmálafræðslu fyrir yngri kyn-
slóðina. Dúkkurnar eru þannig
gerðar að þær geta farið með 25
setningar hver. Setningarnir eru
fræg ummæli hvers forseta en
vandræðaleg ummæli eru þó ekki
höfð með.
Á heimasíðu fyrirtækisins segir
að með framleiðslunni leitist Toy-
presidents við að „ýta undir betri
skilning á lýðræðinu og þeim ein-
staklingum sem hafa helgað líf sitt
þjónustu við bandarísku þjóðina.“
Frá því dúkkan sem ber ásjónu
Bush kom á markað í ágúst hafa
8.000 eintök selst, en hver dúkka
kostar sem samsvarar 2.200 krón-
um. Forstjóri Toypresidents segir
að hugmyndin að baki dúkkunum
hafi kviknað eftir árásirnar
11.september, enda hafi þjóðern-
isvitund Bandaríkjamanna aukist
mjög í kjölfarið og fyrirtækið talið
að markaður væri fyrir vörur af
þessu tagi.
Bush skákar Barbie
Reuters
Hugsanlega verður Kennedy-
dúkka framleidd hjá Toypresidents
innan skamms, en viðskiptavinir
geta kosið á heimasíðu fyrirtæk-
isins hvaða forseta þeir vilja næstan
sjá í dúkkulíki.
NEFND á vegum breska fjármála-
ráðuneytisins hefur skipað
greiðslukortafyrirtækjum landsins
að hætta að okra á þjónustu sinni
og afvegaleiða viðskiptavini. Í
skýrslu sem nefndin lagði fram ný-
verið segir að fyrirtækin nýti sér
úreltan lagaramma til að forðast
það að bæta upplýsingar og þjón-
ustu við viðskiptavini. Nefndin
hvetur iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neyti að beita sér fyrir hertum
reglum á þessu sviði. Frá þessu
segir í frétt Reuters.
Notkun greiðslukorta í Bretlandi
hefur fjórfaldast á síðasta áratug,
nam 30 milljörðum punda, um
3.840 milljörðum króna, árið 1993.
Á síðasta ári voru kortin straujuð
fyrir sem nemur 120 milljörðum
punda, eða 15.360 milljarða ís-
lenskra króna, samkvæmt tölum
frá breska seðlabankanum.
Greiðslukortaskuldir hafa á sama
tímabili aukist um 420%, úr 10
milljörðum punda árið 1993 í 52
milljarða punda í fyrra.
Greiðslukortafyrirtækjum er
legið á hálsi fyrir að hvetja við-
skiptavini til að steypa sér í skuldir
með því að veita ekki nægilegar
upplýsingar um vaxtakjör og
hækka heimildir án þess að við-
skiptavinir biðji um það. Rannsókn
nefndarinnar hófst í júlí á þessu
ári. Í frétt Reuters er haft eftir
formanni nefndarinnar, John
McFall, að fari fyrirtækin ekki að
tilmælum nefndarinnar og bæti
upplýsingagjöf til viðskiptavina
verði gripið til aðgerða.
Fyrirtækin hafa nú þegar brugð-
ist við tilmælunum með því að sam-
þykkja að láta verð- og vaxtalista
fylgja öllu kynningarefni. Nefndin
gerir kröfu um að þetta sé gert
skilmerkilega og með stóru letri.
„Kósý samband“
við lánardrottna
Auglýsingar greiðslukortafyrir-
tækja eru sagðar hvetja viðskipta-
vini til að steypa sér í skuldir.
Barclay’s-bankinn er sérstaklega
gagnrýndur í skýrslunni fyrir aug-
lýsingar undir titilinum „0 prósent
að eilífu“ en nefndin segir að með
slíkum auglýsingum þurfi meiri
upplýsingar um skilyrði að fylgja,
enda feli tilboðið ekki í sér að við-
skiptavinur fái vaxtalaust lán í
gegnum greiðslukortið heldur fylgi
ákveðin skilyrði. Þá vill nefndin að
fyrirtæki sem gefa út greiðslukort
setji sér það markmið að hvetja
fólk ekki til skulda sem það hefur
ekki efni á.
Gagnrýni nefndarinnar er enn-
fremur beint að breskum smásöl-
um, en algengt er að verslanir gefi
út sérstök greiðslukort. Nefndin
telur þau of hátt verðlögð og segir
smásala oft eiga í „kósý sambandi“
við lánardrottna sem rukka sem
nemur allt að áttföldu vaxtastigi
Englandsbanka, sem er 3,75%.
Kortafyrirtækin hætti
að blekkja viðskiptavini
Bresk nefnd segir greiðslukortafyrirtæki hvetja til skuld-
setningar með því að veita ekki nægar upplýsingar.
Morgunblaðið/Kristinn
Vaxtar-
listinn lagð-
ur niður
UM áramót verður Vaxtarlisti
Kauphallar Íslands lagður nið-
ur. Ástæðan er sú að nýskrán-
ingar á listann hafa ekki verið í
þeim mæli sem áætlanir gerðu
ráð fyrir, samkvæmt upplýs-
ingum frá Kauphöll Íslands.
Félög á Vaxtarlistanum verða
færð upp á Aðallista og fá þrjú
ár til þess að uppfylla skrán-
ingarskilyrði um auknar kröf-
ur.
ÚR VERINU
SJÁVARÚTVEGINUM í Kanada vex stöðugt
fiskur um hrygg, þrátt fyrir að ekki hafi verið
leyft að veiða þorsk við Nýfundnaland í meira
en áratug. Verðmæti fiskaflans á síðasta ári
var 151 milljarður króna að meðtöldu fiskeldi
og hefur það aldrei verið
meira. Ráð er fyrir því gert að
útkoman verði svipuð á árinu,
sem er að líða. Þá hefur út-
flutningsverðmæti sjávaraf-
urða aukizt ár frá ári. Á síð-
asta ári nam verðmæti þeirra
254 milljörðum króna og jókst
um 14 milljarða frá árinu þar
áður.
Samdráttur í botnfiski
Eftir þorskveiðibannið sem
sett var á árið 1992 hafa Kan-
adamenn snúið sér í auknum
mæli að veiðum á rækju, krabba og öðrum
skelfiski og einnig hafa þeir flutt inn mikið af
fiski til vinnslu og endurútflutnings.
Fiskafli Kanadamanna á árinu 2002 varð alls
um 1,1 milljón tonna, sem er 19% minna en á
árinu 1992, en á þessu tíu ára tímabili hefur
verðmæti aflans aukizt um 52%. Miklu minni
veiði á botnfiski hefur sett mark sinn á sjávar-
útveginn. Þorskveiði hefur dregizt saman um
82%, ýsuveiði um 32% og veiði á karfa um 69%.
Aðeins hefur orðið um aukningu að ræða í
einni fisktegund frá árinu 1992, það er í lúðu.
Þar var aflinn í fyrra 8.100 tonn og hafði aukizt
um 32% frá árinu 1992. Verð-
mæti landaðs botnfisks var 15
milljarðar króna í fyrra, en 22,4
milljarðar fyrir 10 árum.
Veiðar á uppsjávarfiski og
öðrum fisktegundum hafa dre-
gizt saman um 19% á umræddu
tímabili, þrátt fyrir að veiðar á
makríl úr Atlantshafi hafi aukizt
um 32% og túnfiski úr Kyrra-
hafi um 583%. Veiðar á síld og
sverðfiski úr Atlantshafi hafa
dregizt saman um 12% og 38%
og laxi úr Kyrrahafi um 50%.
Hvað verðmæti varðar er mest-
ur samdrátturinn í laxinum, eða 73% og hefur
verðmætið fallið úr 10,4 milljörðum í 2,8 millj-
arða á þessum 10 árum. Á sama tíma hefur
verðmæti túnfiskaflans aukizt úr 75,6 millj-
ónum í 405 milljónir eða um 435%.
77% aukning í skelfiski
Veiðar á skelfiski hafa aukizt um 77% á síð-
ustu 10 árunum og námu þær 469.000 tonnum
á síðasta ári. Mest veiddist af rækju, ríflega
139.000 tonn, en snjókrabbi var í öðru sæti,
107.000 tonn. Humarinn skilaði hins vegar
mestum verðmætum eða 32 milljörðum króna.
Verðmæti krabbans var 25,2 milljarðar, rækju
15,9 milljarðar og hörpudisks 6,9 milljarðar
króna. Megnið af þessum skelfiski var veitt í
Atlantshafinu.
Humar og krabbi skila mestu
Í útflutningi sjávarafurða skiluðu humar og
krabbi mestum verðmætum, en eldislax og
rækja komu þar næst á eftir. Útflutningur á
botnfiski jókst um 11% á síðasta ári og nam
alls um 91.000 tonnum. Verðmætið jókst um
5% og var alls 28,4 milljarðar króna. Af botn-
fiskinum var mest af þorski, 21.000 tonn að
verðmæti 9,5 milljarðar króna. Þá jókst út-
flutningur af lúðu úr Kyrrahafi um 90% mælt í
magni.
Lítilsháttar aukning varð á útflutningi á
uppsjávarfiski og öðrum tegundum, eða um
8%, og nam hann 192.000 tonnum. Verðmætið
var svipað og árið áður eða 59,4 milljarðar. Í
þessum afurðaflokki munar mest um laxinn.
Verðmæti útfluttra skelfiskafurða jókst um
19% og nam 146 milljörðum króna, en 21%
aukning varð í magni. Mestu munaði um 68%
aukningu í rækju.
60.000 manns í vinnu
Ör vöxtur hefur verið í laxeldi í Kanada og
met slegið á hverju ári. Í fyrra var verðmætið
34,5 milljarðar króna og jókst um 7% frá árinu
áður. Laxinn er langmikilvægastur í eldinu og
skilaði 75% magnsins og 81% verðmætanna í
fyrra.
Gert er ráð fyrir að útkoman á þessu ári
verði svipuð og á því síðasta. Þó er búizt við því
að einhver samdráttur geti orðið í veiðum á
humri og krabba.
Sjávarútvegurin veitir um 60.000 manns at-
vinnu og tugir þúsunda eru í tengdum störfum.
Fiskeldið eitt veitir um 14.000 manns atvinnu.
Á síðasta áratug hefur skipum fækkað um
31%, en meðaltekjur hafa aukizt um 50% á
sama tíma.
Útvegurinn í Kanada skilar stöðugt meiru
Fiskur unninn í einni af vinnslustöðvum FPI á
Nýfundnalandi.
Afla- og útflutningsverðmæti mun
meiri en fyrir þorskveiðibannið
NASDAQ-hlutabréfamarkaðurinn í
Bandaríkjunum hefur lýst áhuga á að
ræða við Kauphöllina í New York,
NYSE, um möguleika á samruna þess-
ara tveggja kauphalla, að því er fram
kemur í The Wall Street Journal. Hug-
myndin mun þó vera á frumstigi og
formleg tilboð liggja ekki fyrir.
Nasdaq er 32 ára gömul kauphöll
sem byggist á rafrænum viðskiptum.
Kauphöllin hefur haft forystu í skrán-
ingu hátæknifyrirtækja, og þar er með-
al annars fyrirtækið deCODE skráð. Í
The Wall Street Journal segir að Nasd-
aq hafi farið illa út úr því þegar net-
bólan svokallaða á hlutabréfamark-
aðnum sprakk fyrir fáeinum árum, og
kauphöllin hafi ekki náð sér að fullu
eftir það.
Blaðið bendir einnig á að NYSE eigi
erfitt eftir að stjórnandi kauphall-
arinnar til margra ára neyddist til að
segja af sér vegna hneykslismáls sem
tengt var ríflegum launakjörum hans.
Ennfremur hafi vaknað efasemdir um
heiðarleika viðskiptanna hjá NYSE.
Viðskiptin þar fara fram í gegnum
miðlara sem hafa leyfi til að kaupa og
selja á gólfi kauphallarinnar, en nokkr-
ir þeirra eru til rannsóknar grunaðir
um að hafa svikið fé út úr viðskiptavin-
um sínum.
Nasdaq ræðir sameiningu við NYSE
Kauphöllin í New York, NYSE.