Morgunblaðið - 27.12.2003, Side 18
DAGLEGT LÍF
18 LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Munið að slökkva
á kertunum
Treystið því aldrei
að sjálfslökkvandi
kerti slökkvi
á sér sjálf
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Indónesíski veitingastaðurinn BALI á Kanarí
(Ensku ströndinni) sendir ykkur öllum
bestu jóla- og nýárskveðjur.
Verið ávallt velkomin að upplifa Kanarí á BALI
því það er engu líkt.
Þökkum viðskiptin á 25 ára afmælisárinu.
Eigendur og starfsfólk BALI.
(Geymið auglýsinguna og spyrjið fararstjórann ykkar til
vegar, ef þið hafið ekki heimsótt okkur áður).
KANARÍEYJAFARAR TAKIÐ EFTIR!
Fiskverkun Reykjanesbæ
Gott 710 fm hús mikið endurnýjað, m.a nýklætt
að utan, nýlegir gluggar og þak. Að innan er
húsnæðið nýlega endurnýjað skv. ströngustu
kröfum. Laust strax. Bæði leiga og sala kemur
til greina. Gott verð og greiðslukjör. Nánari
uppl. á skrifstofu.
Eignamiðlun Suðurnesja,
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbæ,
sími 421 1700 — sigurdur@es.is
Um hver áramót safnastsaman í Básum í Þórs-mörk hópur fólks sem á
það sameiginlegt að hafa áhuga á
útiveru og skemmtun í góðum fé-
lagsskap utan við ys og þys marg-
mennisins.
Núverandi sambýlingar, Guð-
rún Guðnadóttir, kennari í Rétt-
arholtsskóla, og Magn-
ús Bergsson, rafvirki,
ákváðu sitt í hvoru lagi
að gaman væri að eyða
áramótunum í Básum
um aldamótin 2000–
2001. Þau sjá svo sannarlega ekki
eftir þeirri ákvörðun sinni því í
ferðinni hittust þau fyrst og
kynntust, hófu sambúð og eiga nú
orðið „afleggjarann“ Völund Arn-
þór, þriggja mánaða mynd-
arstrák. Guðrún og Magnús hafa í
gegnum tíðina verið mikið útivist-
arfólk þar sem hún
hefur í frístundum frá
kennslunni verið far-
arstjóri á vegum Úti-
vistar og hann verið
forsprakki Fjallahjóla-
klúbbsins.
„Ætli við sleppum ekki ára-
mótaferðinni að þessu sinni og
jafnvel næstu árin enda eiga börn
ekkert erindi í svona ferð. Hins
vegar mæli ég fyllilega með Bás-
um fyrir fullorðna fólkið, sem
skemmtir sér konunglega saman
á hvaða aldri sem er, en ætli ald-
ursbilið sé ekki allt frá 25 ára upp
í sextugt og fjöldinn í kringum
50–60 manns,“ segir Guðrún.
„Þetta er mjög skemmtileg sam-
vera fólks, sem leggur upp með
það að vera saman og hafa það
voða gaman.
Sumir koma einir, aðrir taka
sig saman í hópum og svo hristast
allir saman í eina góða kös.“
Glens og göngutúrar
Eins og endranær gengst Úti-
vist fyrir áramótaferð að þessu
sinni frá 30. desember til 2. jan-
úar. Skálarnir verða upphitaðir,
skreyttir hátíðarbúningi og þegar
dimmir er umhverfið lýst upp
með kertaljósum. Á kvöldin verða
haldnar kvöldvökur þar sem fólk
safnast saman við söng, glens og
gaman. Sumir sjá um hljóðfæra-
leik, aðrir stjórna fjöldasöng og
allir leggjast á eitt um að gera
kvöldin sem eft-
irminnilegust. Á gaml-
árskvöld verður
kveikt í brennu og
flugeldum skotið upp
til að kveðja gamla ár-
ið og fagna því nýja.
Á nýárskvöld er geng-
ið með logandi kyndla
á dulmagnaðan stað
og nýárssöngvar
sungnir. Á daginn,
meðan birta leyfir, er
farið í mismunandi
langar og erfiðar
gönguferðir, sem fara
eftir aðstæðum hverju
sinni. Fararstjóri er
með í hverri göngu-
ferð. Ef snjóalög
leyfa, er upplagt að
nota tækifærið og
taka gönguskíðin
með. Fararstjórar í
áramótaferðinni verða
þau Bergþóra Bergs-
dóttir og Reynir Þór
Sigurðsson og hleypur
verðið á bilinu
12.600–14.100 kr. fyr-
ir manninn.
Hlý föt og nesti
Brottför er áætluð
frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 8.00 að morgni þriðju-
dagsins 30. desember og er heim-
koma áætluð seinnipart
föstudagsins 2. janúar.
Þátttakendur í áramótaferðinni
þurfa m.a. að gera ráð fyrir hlýj-
um fatnaði, svefnpoka og nesti, en
góð eldunaraðstaða er í Básum og
allur borðbúnaður til staðar. Við
skálana stendur stórt útigrill, sem
margir nýta sér, ekki síst á gaml-
árskvöldi eða nýárskvöldi þegar
menn vilja gera sér dagamun í
mat.
ÚTIVIST | Áramótaferð áformuð í Bása
Afraksturinn: Guðrún Guðnadóttir og Magnús
Bergsson kynntust í Básaferð fyrir þremur ár-
um og eiga nú soninn Völund Arnþór, 3 mánaða.
Glens, gaman og
göngutúrar
Þriggja mánaða snáði
í Reykjavík á nú til-
veru sína að þakka
áramótaferð Útivistar
í Bása fyrir þremur
árum því í þeirri ferð
kynntust foreldrarnir,
þau Guðrún Guðna-
dóttir og Magnús
Bergsson.
Áramótagleði: Líf og fjör er ávallt í Básum um áramót.
join@mbl.is
Fararstjóri er
með í hverri
gönguferð.
Morgunblaðið/Jim Smart