Morgunblaðið - 27.12.2003, Blaðsíða 37
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 37
ULLARHATTARNIR héldu á Þorláks-
messu tónleika á veitingastaðnum Fel-
ix. Hljómsveitina skipa Jón Ólafsson,
Stefán Hilmarsson, Eyjólfur Krist-
jánsson, Friðrik Sturluson og Jóhann
Óskar Hjörleifsson.
Hljómsveitin lék jólalög auk nokk-
urra Upplyftingarlaga við góðar und-
irtektir tónleikagesta. Ullarhöttunum
til halds og trausts var söngkonan
Ruth Reginalds.
Ullar-
hattarnir
á Felix
Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson
báru kúnstug höfuðföt, sem að öllum líkindum
eru úr íslenskri ull.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ruth Reginalds hafði ekkert höfuðfat en söng engu að síður
af miklum krafti.
BANDARÍSKI rokksöngvarinn
Elvis Presley er ókrýndur kon-
ungur breska smáskífulistans þótt
rúmur aldarfjórðungur sé frá láti
hans. Samkvæmt nýjum lista, sem
birtur var í vikunni, hefur Presley
átt lög á 1.193 vikulegum
smáskífulistum frá árinu 1952 þeg-
ar slíkur listi var fyrst tekinn sam-
an og birtur.
Breski söngvarinn Cliff Rich-
ards kemur næstur með lög á
1.152 listum og hljómsveitin Shad-
ows, sem Richards söng eitt sinn
með, er í 3. sæti með lög á 771
lista.
Listarnir hafa verið mislangir.
Þegar Presley kom fyrsta laginu á
listann árið 1956, „Heartbreak
Hotel“, voru birt 30 efstu lögin.
Árið 1978, ári eftir lát Presleys,
var farið að birta 75 efstu lögin og
hefur svo verið síðan.
Breski smáskífulistinn er einn af
fáum listum yfir vinsælustu lögin
sem eingöngu tekur mið af smá-
skífusölu en ekki útvarpsspilun
eins og t.d. bandaríski Billboard-
listinn gerir.
Á meðfylgjandi lista sjást þeir
listamenn sem oftast hafa átt lög á
breska smáskífulistanum. Innan
sviga er fjöldi þeirra vikulista sem
þeir hafa átt lög á:
Elvis Presley (1.193)
Cliff Richard (1.152)
The Shadows (771)
Elton John (623)
Madonna (606)
Diana Ross (560)
Michael Jackson (509)
Rod Stewart (477)
Bítlarnir (456)
David Bowie (452)
Frank Sinatra
Queen
Status Quo
Stevie Wonder
Paul McCartney
Tom Jones
Rolling Stones
Bee Gees
Oasis
Roy Orbison
Reuters
Elvis Presley
Elvis er
smáskífu-
kóngur í
Bretlandi
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.