Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 60
ÍÞRÓTTIR
60 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ISIAH Thomas sem nýverið tók
við sem forseti hins fornfræga at-
vinnumannaliðs í körfuknattleik,
New York Knicks, hefur látið hend-
ur standa fram úr ermum undan-
farna daga en í gær rak hann þjálf-
ara liðsins, Don Chaney, ásamt
tveimur aðstoðarmönnum hans.
Herb Williams stjórnaði liðinu í gær
er Knicks vann Orlando Magic en
Thomas hefur ráðið Lenny Wilkens
í þjálfarastarfið.
WILKENS er einn þekktasti
þjálfari NBA frá upphafi og enginn
hefur unnið eins marga leiki sem
þjálfari og Wilkens. Hann lék sjálf-
ur í 15 ár í NBA og þar af fjögur
tímabil sem leikmaður og þjálfari.
Undir hans stjórn varð Seattle
NBA-meistari árið 1979, hann var
þjálfari ársins 1994, þá sem þjálfari
Atlanta Hawks, en síðast þjálfaði
hann lið Toronto Raptors. Wilkens
hefur unnið 1268 leiki í NBA sem
þjálfari en tapað 1056 leikjum.
FRANSKA knattspyrnuliðið Mar-
seille hefur skipt um þjálfara en
Alain Perrin sagði af sér starfinu
eftir að hart hafði verið sótt að hon-
um í frönskum fjölmiðlum og af
stuðningsmönnum liðsins. Marseille
hefur tapað níu af síðustu fimmtán
leikjum sínum í deildinni. José
Anigo, sem þjálfað hefur unglinga-
lið félagsins, tekur við af Perrin sem
hafði starfað sem þjálfari Marseille
frá árinu 2002. Liðið er sem stendur
í 6. sæti deildarinnar en er 15 stig-
um á eftir Mónakó sem er í efsta
sæti.
FÓLK
Þetta er búið að taka á andlegaenda hef ég aldrei misst úr
leik vegna meiðsla frá því ég byrj-
aði að æfa körfubolta. Í fyrra skipt-
ið sem ég fór úr axlarlið lenti ég í
samstuði við leikmann og hann reif
mig úr lið satt best að segja þar
sem við festumst saman.
Ég taldi mig vera kláran í leik
sem fram fór í lok nóvember, það
var framlengt og ég hafði leikið í 42
mínútur þegar ég stökk upp til þess
að fara í frákast og öxlin hrökk úr
lið. Síðan þá hafa þjálfarar liðsins
ekki viljað að ég færi of snemma af
stað en ég hef æft einn í nokkrar
vikur.
Aldrei æft eins mikið
Í raun hef ég aldrei æft eins mik-
ið, fjóra tíma samfleytt fyrir hádegi
og í tvo tíma á kvöldin. Ég verð
hungraður í að leika þegar ég fæ
grænt ljós frá sjúkraþjálfara liðs-
ins, og hann telur að það verði í
byrjun febrúar,“ segir Logi en hann
kemur í stutta heimsókn til Íslands
hinn 25. janúar. „Ég næ að sjá
grannaslaginn á milli Keflavíkur og
Njarðvíkur, og það verður spenn-
andi.“
Allt önnur umgjörð
Logi er samningsbundinn Gies-
sen 46’ers til loka keppnistímabils-
ins 2005 og er hann mjög ánægður
með veru sína hjá liðinu. „Það er
allt önnur umgjörð í úrvalsdeildinni
miðað við það sem ég kynntist hjá
Ulm í 2. deildinni í fyrra. Hér er
fagmannlega staðið að verki en því
miður hafa margir leikmenn verið
meiddir hjá okkur í vetur, og um
tíma var allt byrjunarliðið frá, alls
fimm leikmenn. Við stefnum á að
komast í úrslitakeppnina en erum
sem stendur í næstneðsta sæti. Ég
hef trú á því að það breytist um leið
og allir leikmenn liðsins verða til
reiðu á ný,“ sagði Logi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Logi Gunnarsson sýnir tilþrif við körfuna.
Kemur í stutta heimsókn til Íslands
Logi að
braggast
LOGI Gunnarsson, körfuknattleiksmaður úr Njarðvík, sem er samn-
ingsbundinn þýska úrvalsdeildarliðinu Giessen 46’ers er vongóður
um að geta látið að sér kveða með liði sínu á ný í byrjun febrúar en
Logi hefur verið meiddur á öxl undanfarnar vikur. Logi fór úr axlarlið
í annað sinn á skömmum tíma í lok nóvember og hefur hann ekkert
leikið með liðinu síðan þá.
FRANSKA liðið Dijon, sem mætir
Keflavík í úrslitakeppni bikar-
keppni Evrópu í næstu viku, hefur
fengið til liðs við sig öflugan banda-
rískan leikmann sem meðal annars
hefur leikið með Philadelphia 76ers
í NBA-deildinni. Frá þessu er
greint á vef Körfuknattleiks-
sambands Íslands, www.kki.is.
Leikmaðurinn heitir Lamont
Barnes, er 26 ára og kemur frá
Temple háskólanum. Hann hefur
meðal annars leikið með Ragusa og
Safati á Ítalíu og 76’ers og Yakima
Sun Kings í Bandaríkjunum.
Barnes kemur í stað Derrick Da-
venport, sem er 2.08 metrar á hæð.
Davenport kom til liðsins í október,
en var látinn fara fyrr í þessari viku
þar sem frammistaða hans þótti
ekki nógu góð. Í Evrópukeppninni
var hann með 14,4 stig og 8,6 frá-
köst að meðaltali í leik.
Keflavík mætir Dijon í Frakk-
landi þriðjudaginn 20. janúar en
annar leikur liðanna fer fram í
Keflavík hinn 23. janúar sem er
föstudagur. Komi til oddaleiks fer
hann fram í Frakklandi miðviku-
daginn 28. janúar.
Mótherjar Keflvíkinga
fá NBA-miðherja
Allan Borgvardt leikurmeð úrvalsdeildarliði
FH í knattspyrnu í sumar
en FH-ingar skrifuðu á
fimmtudaginn undir eins
árs samning við Danann
knáa, sem svo sannarlega
setti mark sitt á knatt-
spyrnuna hér á landi síð-
astliðið sumar. Borgvardt
var kjörinn leikmaður árs-
ins á lokahófi KSÍ og átti
stærstan þátt í velgengni Hafnar-
fjarðarliðsins sem lenti í öðru sæti,
bæði í deild og bikar.
Þrír aðrir leikmenn skrifuðu und-
ir samning við FH-inga í gær, allir
til þriggja ára. Ármann Smári
Björnsson, sem lék með Val í fyrra,
og þeir Matthías Vilhjálmsson og
Birkir H. Sverrisson, sem báðir eru
16 ára og í 17 ára landsliðinu en þeir
koma frá BÍ á Ísafirði. Borgvardt og
landi hans, Tommy Nielsen, gengu
til liðs við FH fyrir síðustu leiktíð
frá AGF í Danmörku og reyndist
koma þeirra til FH mikill
hvalreki.
„Ég ætlaði að reyna að
komast að hjá liði erlend-
is en það gekk ekki og því
valdi ég að koma til FH
aftur. Tímabilið með FH
í fyrra var frábært. Liðið
átti góðu gengi að fagna
og ég fann mig afar vel
svo það kom ekkert ann-
að til greina en að koma
aftur til FH fyrst ég á annað borð
fékk ekki samning heima í Dan-
mörku eða á meginlandi Evrópu. Ég
sé fram á annað skemmtilegt tímabil
á Íslandi og ég hef fulla trú á að FH
geti verið með í baráttunni um titl-
ana svo framarlega sem við leggjum
hart að okkur. Hópurinn hefur
stækkað og yngri strákarnir hafa
öðlast meiri reynslu,“ sagði Borgv-
ardt við Morgunblaðið í gær.
Borgvardt heldur til Danmerkur í
dag en er væntanlegur aftur til Ís-
lands um miðjan næsta mánuð.
Borgvardt samdi
við FH-inga
Borgvardt