Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
AE. Dv
Skonrokk
FM909
Sýnd kl. 10.30.
Síðustu sýningarSýnd kl. 8. B.i. 16.
Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna
meðal annars besta
mynd ársins
Kvikmyndir.is
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
HJ. MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 5.45.The Rolling Stone
SV. Mbl
Sýnd kl. 6 og 9.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
ÓHT. Rás2
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
VG DV
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
Sýnd kl. 6 og 9.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra
dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna Hreyfir við áhorfandanum og skilur eitthvað eftir
sig. Samleikur systkinanna er með ólíkindum. Hér
leikur allt í höndunum á Hilmari,
börn, fullorðnir, tónlist og myndmál”
- ÞÞ Fréttablaðið
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan
heim.
Tom Cruise hefur
aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8.
TÖKUR á íslensku sakamálamynd-
inni Allir litir hafsins eru kaldir,
hafa staðið yfir síðan í nóvember og
ganga eftir áætlun að sögn Ólafs
Rögnvaldssonar framleiðanda og
tökumanns þáttanna, en Anna systir
hans skrifaði handritið og leik-
stýrir.
„Þetta hefur gengið mjög vel og
við erum algerlega á áætlun og er-
um komin með allt sem við ætluðum
okkur á þessum tímapunkti. Það er
gaman að sjá hugverkið verða til
eftir alla undirbúningsvinnuna sem
hefur staðið yfir í fimm ár og mynd-
in hefur verið í stöðugri þróun allan
þann tíma. Núna erum við hálfnuð
með tökur.“
Snjórinn
óboðinn gestur
Ólafur segir ekkert hafa komið
upp á sem hafi tafið þau að neinu
ráði við tökur en þó hafi veðurguð-
irnir ekki alltaf látið að stjórn.
„Snjórinn hefur stundum komið eins
og óboðinn gestur í tökurnar en við
viljum engan snjó hafa því myndin á
að vera mjög dökk þar sem hún ger-
ist í svartasta skammdeginu. En
þetta með veðrið er ósköp venjuleg-
ur óvissuþáttur sem alltaf þarf að
taka með í reikninginn þegar úti-
tökur eru annars vegar.“
Allt gengur því samkvæmt áætl-
un en stefnt er á að myndin verði
frumsýnd í Sjónvarpinu næsta vet-
ur.
Allir litir hafsins eru kaldir gerist
í Reykjavík samtímans og fjallar um
ungan lögmann sem er skipaður
verjandi í morðmáli. Málið virðist
einfalt í fyrstu en tekur óvænta
stefnu þegar systir hins grunaða,
sem búsett er erlendis, kemur til
skjalanna og fer að blanda sér í at-
burðarásina.
Ólafur segir valinn mann í hverju
rúmi í hlutverkum myndarinnar.
Hilmir Snær fer með hlutverk
lögmannsins en Þórunn Lárusdóttir
fer með hitt aðalhlutverkið. Annars
eru mörg veigamikil hlutverk í
myndinni en þau eru meðal annars í
höndum Magnúsar Ragnarssonar,
Baldurs Trausta Hreinssonar og
Mörtu Nordal. Önnur stór hlutverk
leika Pétur Einarsson, Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir, Helga E. Jóns-
dóttir, Jón Sæmundur Auðarson,
Eyvindur Örn Barðason, Ingibjörg
Reynisdóttir, Selma Björnsdóttir,
Friðrik Friðriksson, Benedikt Árna-
son, Rúnar Guðbrandsson og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir. Leikmyndahönn-
uður er Helga I. Stefánsdóttir, bún-
ingahönnuður Dýrleif Ýr Örlygs-
dóttir og um hár og förðun sér
Fríða María Harðardóttir. Stein-
grímur Guðmundsson er hljóð-
maður, Elísabet Rolandsdóttir
klippari og Þór Eldon tónlistar-
stjóri. Sakamálamyndin verður
sýnd í Sjónvarpinu næsta vetur í
þremur hlutum sem hver verður um
fimmtíu mínútna langur en auk þess
verður gerð níutíu mínútna löng
sjónvarpsmynd. Þar að auki hefur
þegar verið samið um að sýna þætt-
ina í sjónvarpi í Svíþjóð, á Írlandi og
víðar. Þáttaröðin er framleidd af Ax
ehf.
Tökur standa yfir á sjónvarpsmyndinni Allir litir hafsins eru kaldir
Hilmir Snær og Þórunn Lár-
usdóttir í aðalhlutverkum
Marta Nordal leikur eitt af stærri hlutverkum í Allir litir hafsins eru kaldir.
Hilmir Snær Guðnason í hlutverki
lögmannsins sem kemst í hann
krappan.
khk@mbl.is
Tökur hafa staðið yfir í vetur og gengið samkvæmt áætlun.
ALAN White, trommuleikari Oasis
undanfarin átta ár, hefur verið lát-
inn taka pokann sinn. Í stuttri til-
kynningu á vef sveitarinnar
(www.oasisinet.com) segir einfald-
lega að hann hafi verið beðinn um að
hætta. Þá séu engar áætlanir uppi
um að ráða annan trommuleikara í
staðinn. Einnig segir að upptöku-
áætlanir sveitarinnar breytist ekki
við þetta en næsta plata mun koma
út í september, að öllum líkindum.
Búist er við því að leiðtogi sveit-
arinnar, Noel Gallagher, muni
tromma á upptökunum og svo verði
leiguspilarar fengnir á tónleika. No-
el hefur trommað inn á nokkrar ný-
legar prufuupptökur.
Ástæðan fyrir brotthvarfi Whites,
sem þykir vera framúrskarandi
trymbill, er talin vera sú að hann
þjáist af sinabólgu. Frægt er í rokk-
sögunni er trommari Def Leppard,
Rick Allen, missti handlegginn í
slysi. Félagar hans í sveitinni stóðu
þá þétt við bakið á félaga sínum og
hann hélt ótrauður áfram að leika
með sveitinni, með aðstoð sérhann-
aðra trommutóla. Getur verið að
svipaðan drengskap skorti í röðum
Oasis?
Trommuleikari
Svona leit síðasta útgáfa Oasis út.
Alan White er annar frá vinstri.
Enginn
í staðinn
Oasis rekinn
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050