Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 41 Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi næsta vor. Allsstaðar nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar sem eru á heimavelli á söguslóðum, og bjóða spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Njóttu lífsins og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og einstöku andrúmslofti og upplifðu ævintýri næsta vor. Vorið í fegurstu borgum Evrópu frá kr. 25.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Kraká – Pólland 25. mars 4 nætur Ein fegursta perla Evrópu, stórkostlega falleg borg og fegursta borg Póllands. Hér er ótrúlega heillandi mannlíf innan um aldagamlar byggingar, kirkjur, kastala og söfn. Einstakt tækifæri í beinu flugi til Kraká. Verð kr. 36.950 Budapest Apríl - maí 22., 25., 29. apríl 3. maí Borg sem hefur heillað Íslendinga, sem nú flykkjast til Budapest, enda er hún fegurst á vorin og einstök upplifun að sjá hana í blóma þegar mannlífið er hvað fegurst á þessum tíma árs. Glæsileg hótel í hjarta Budapest. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest, 25. apríl. Gildir frá sunnudegi til fimmtudags. Prag Mars - apríl Fimmtud. og mánud. 3, 4 eða 7 nætur Vinsælasti áfangastaður Íslendinga sem hafa tekið ástfóstri við borgina. Hún á engan sinn líka og auðvelt að gleyma sér í þröngum götum sem geyma aldagamla sögu og fegursta bæjarstæði Evrópu. Verð kr. 25.550 Flugsæti til Prag. M.v. brottför 15. mars, með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Barcelona 3. apríl - 4 nætur 21. apríl - 4 nætur - aukaflug Töfrandi borg og vinsælasta borg Spánar. Barrio gotico, gamli hlutinn er einstakur og stórkostlegur tími til að kynnast fegurð þessarar tískuborgar Spánar. Úrvalshótel Heimsferða í hjarta borgarinnar ásamt spennandi kynnisferðum með fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 36.550 Flugsæti til Barcelona með sköttum. Flugsæti fyrir fullorðinn með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfallagjald, kr. 1.800, valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Sorrento - Ítalía 12. maí 6 nætur – beint flug Einn fegursti staður Ítalíu, sem sló í gegn síðasta haust með beinu flugi Heimsferða. Hér kynnist þú Napolí, Sorrento, Amalfi ströndinni og eyjunni Capri, ótrúlegri náttúrufegurð og menningu sem unun er að dvelja í. Kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða sem gjörþekkja þessar slóðir. Verð frá kr.39.950 Flugsæti til Napolí með sköttum. Beint flug HELGIN var annasöm hjá lögreglu en ástandið var þokkaleg þegar á heildina litið. Alls voru 10 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur og níu teknir fyrir of hraðan akstur. 48 umferðaróhöpp voru til- kynnt þar sem eignatjón átti sér stað og níu menn óku gegn rauðu ljósi. Tilkynnt voru 15 innbrot og 22 þjófnaðir um helgina. Rétt fyrir kl. 8 á föstudagsmorgni var tilkynnt um innbrot í bifreið í Stórholti, stolið var veski og gullhring. Grunur um amfetamín á manni Um kl. 18:40 varð árekstur á Hringbraut. Báðar bifreiðir voru fjarlægðar með kranabíl af vett- vangi. Klukkustund síðar varð um- ferðaróhapp á Miklubraut, fjarlægja þurfti bifreiðir með kranabíl af vett- vangi, ökumenn beggja bifreiðanna og farþegi annarrar bifreiðarinnar voru fluttir á slysadeild með sjúkra- bifreið. Um kl. 2:30 aðfaranótt laugardags veitti lögregla athygli manni sem virtist taka við einhverjum hlut eða afhenda. Framvísaði maðurinn ætl- uðu amfetamíni við leit lögreglu. Um kl. 4 stöðvaði lögregla bifreið þekktra brotamanna. Við leit fannst ætlað amfetamín á einum þeirra. Um kl. 8 á laugardagsmorgunvar bifreið stöðvuð og fundust ætluð fíkniefni við leit á ökumanni og far- þega. Þau voru handtekin og færð á lögreglustöð þar sem nánari leit fór fram. Skýrsla var tekin og af því loknu voru þau frjáls ferða sinna. Um kl. 14 lagði lögregla hald á þrjár kannabisplöntur. Við nánari leit fannst ætlað hass og amfetamín á karlmanni og einnig var lagt hald á tæki og tól til fíkniefnaneyslu. Um kvöldmatarleytið var tilkynnt um mann undir áhrifum lyfja sem var sestur undir stýri á bíl. Ökumaður reyndist sviptur ökuréttindum og einnig fundust ætluð fíkniefni í bif- reiðinni. Leitað var einnig með fíkni- efnahundi. Ökumaður var vistaður í fangageymslu. Um kl. 20:40 var tilkynnt um öku- mann á jeppabifreið að aka í brekk- unni þar sem krakkar eru að leika sér á sleðum í Grafarvogi. Jeppinn var farinn er lögreglu bar að. Um kl. 2:30 aðfaranótt mánudags var óskað aðstoðar lögreglu. Þarna hafði ókunnugur maður komið inn á heim- ili tilkynnanda. Húsráðendur urðu það hræddir að þeir flúðu út úr hús- inu en maðurinn var einn eftir inni. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn sem var nokkuð ölvaður hafði farið húsavillt og var honum vísað út. Úr dagbók lögreglu 16. til 19. janúar Fíkniefnamál og innbrot meðal verkefna Á VEGUM Dansskóla Heiðars Ást- valdssonar kemur salsapar til landsins 23. janúar og ætlar að sýna og kenna salsa. Dagana 23.–25. jan- úar munu þau sýna dansinn víða á skemmtistöðum og auk þess í Kringlunni laugardaginn 24. jan- úar. Þau mun síðan kenna salsa dagana 26.–29. janúar og mun þá Heiðar Ástvaldsson, Harpa Páls- dóttir og Erla Haraldsdóttir að- stoða við kennsluna, en þau þrjú fóru í vetur til Kúbu og lærðu þar salsa í Listaháskólanum í Havana. Hér gefst Íslendingum tækifæri á að kynnast salsa undir leiðsögn kennara sem hafa áratuga reynslu af danskennslu, segir í frétta- tilkynningu. Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðin þar sem meðal annars verður hafður sérhópur fyrir konur eingöngu, sértímar fyrir börn og unglinga. Innritun í þessi námskeið fer fram daglega hjá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar frá kl. 16–22 til sunnudagsins 25. janúar. Sýna og kenna salsadansa EFTIRFARANDI athugasemd hef- ur borist frá Jóni Eysteinssyni, sýslumanni í Keflavík: „Í Morgunblaðinu 18. janúar sl. birtist harðort bréf Hafsteins Odds- sonar þar sem hann segir frá því að í júlí árið 2000 hafi verið brotist inn á heimili dóttur hans í Keflavík og allt tekið er í íbúðinni var, þ.á m. munir í eigu Hafsteins og konu hans. Málið var kært til lögreglu 6. ágúst 2000, en lögreglan „stakk kærunum undir stól“. Hafsteinn heldur áfram og vandar ekki embættinu kveðjurnar. Málavextir eru þeir að dóttir Haf- steins var í sambúð með manni sem fórst af slysförum. Maðurinn var þinglýstur eigandi íbúðar í Keflavík, ásamt dóttur Hafsteins. Foreldrar mannsins voru einu erfingjar hans og lauk skiptum dánarbúsins í byrj- un júlí 2000. Þau losuðu þá íbúðina, en ágreiningur var á milli þeirra og foreldra mannsins um tilteknar eign- ir, sem dóttir Hafsteins eða Haf- steinn töldu sig eiga. Kærðu þá Haf- steinn og dóttir hans foreldra mannsins til lögreglu. Skýrslur voru teknar af aðilum málsins og málið sent að lokinni rannsókn til Ríkis- saksóknara til ákvörðunar. Ríkissak- sóknari komst að þeirri niðurstöðu „að ekki yrði um málshöfðun í op- inberu máli að ræða vegna máls þessa, en ófrágengin skipti kæranda við erfingja dánarbúsins verði leidd til lykta sem ágreiningur einkamála- legs eðlis“. Hafsteinn og eiginkona hans hafa áður kært embættisfærslu mína í þessu máli til dómsmálaráðu- neytisins og hefur þeim verið svarað af hálfu ráðuneytisins, en í bréfi ráðuneytisins til þeirra kemur fram „að eigi séu efni til frekari aðgerða og íhlutunar af þess hálfu vegna málsins“. Foreldrar mannsins sem lést hafa ekki tekið þátt í opinberri umfjöllun um þetta mál og mun sýslumaður ekki ræða það frekar opinberlega.“ Athugasemd frá sýslu- manninum í Keflavík Fyrirlestur hjá Sagnfræðinga- félagi Íslands í Norræna húsinu Í dag, þriðjudaginn 20. janúar kl. 12.05, heldur Kristín Ástgeirs- dóttir sagnfræðingur fyrirlestur í fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, Hvað er (um)heimur? Fyrirlesturinn nefnist: „Þar sem völdin eru, þar eru konurnar ekki.“ Áhrif kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Á tímabilinu 1975-1995 boðuðu Sameinuðu þjóðirnar til fjögurra heimsráðstefna um málefni kvenna. Jafnframt var ákveðið að árið 1975 yrði ár kvenna og ára- tugurinn þar á eftir helgaður bar- áttu fyrir bættum hag kvenna. Ís- lenskar konur nýttu sér kvennaárið til hins ýtrasta með ráðstefnum og fundum og komust í þrígang í heimsfréttirnar. Fyrst þegar haldinn var stærsti úti- fundur á Íslandi til þess tíma, á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október 1975, í annað sinn er Vig- dís Finnbogadóttir var kjörin for- seti og í þriðja sinn er kvenna- listar hófu göngu sína að nýju. Samfylkingin – fundur í Há- skóla Íslands Dagana 20.–23. janúar verða þingmenn Samfylk- ingarinnar með fundi og á ferðinni í Háskóla Íslands. Fundað verður með fulltrúum allra deilda skólans og Stúdentaráði Háskólans. Þess á milli verða þingmennirnir á kaffistofum skólans og ræða þar málefni HÍ við nemendur og kennara, kynna menntasókn Sam- fylkingarinnar. Föstudaginn 23. janúar kl. 12 verður opinn fundur í Odda, undir yfirskriftinni: Menntasókn eða skólagjöld, fjár- svelti og fjöldatakmarkanir. Ávörp flytja: Össur Skarphéð- insson formaður Samfylking- arinnar, fulltrúar Röskvu og Vöku, ásamt fulltrúa félags há- skólakennara. Einnig verður pall- borð og fyrirspurnir úr sal. Fund- arstjórar: Björgvin G. Sigurðsson og Katrín Júlíusdóttir, þingmenn Samfylkingarinnar. Í DAG Málbjörg heldur ungmenna- kvöld sitt fyrir ungmenni á aldr- inum 15-30 ára á morgun, mið- vikudaginn 21. janúar. Hist verður í keiluhöllinni í Öskjuhlíð kl. 18.30 þar sem farið verður í keilu en síðan verður pöntuð pizza og spjallað. Á fundinum verður sér- stakur gestur frá Englandi sem nokkrir Íslendingar kynntust á Ungmennafundi ELSA í Hollandi sl. sumar. Upplýsingingar gefur Árni Þór á netfanginu arnitb- @isl.is Á MORGUN LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að árekstri á gatnamótum Flókagötu og Lönguhlíðar mánu- daginn 19. janúar kl. 9:45. Þar rákust á tvær fólksbifreiðir, Lada og Skoda. Vitni að atvikinu, og þá sérstaklega að því hver staða umferðarljósanna við gatnamótin var þegar óhappið varð, eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum RANGLEGA var sagt í frásögn af afhjúpun minnisvarða um Hannes Hafstein ráðherra á Ísafirði um helgina að athöfnin hefði hafist á ávarpi Birnu Lárusdóttur. Hið rétta er að hún hófst með ávarpi Ingu Ólafsdóttur, formanns menningar- nefndar Ísafjarðarbæjar. Sama villa kom einnig fyrir í myndatexta þar sem sagði að á myndinni mætti m.a. sjá mætti Birnu Lárusdóttur. Hið rétta er að þar var um að ræða Ingu Ólafsdóttur. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.