Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 50
EKKERT lát er á framleiðslu áhugaverðra og vandaðra sjón- varpsmynda hjá stóru kapalsjón- varpsstöðvunum vestanhafs, HBO, Showtime o.fl. með þekktum Holly- wood-stjörnum í aðalhlutverkum. Í vikunni kemur út ný sjónvarps- mynd sem vel er þessi virði að kynna sér. Og Pancho Villa leikur sjálfan sig (And Starring Pancho Villa as Himself) er mynd byggð á sannsögulegum atburðum frá 1914 þegar byltingarmaðurinn mexík- óski Pancho Villa fékk kvikmynda- framleiðendur í Hollywood til að fjármagna uppreisn hans gegn her- stjórninni gegn því að fá að fylgja honum eftir og taka upp bíómynd þar sem hann yrði sjálfur í aðal- hlutverki og ljóslifandi hetja hvíta tjaldsins. Útkoman varð grimmi- legri en þeir í Hollywood höfðu gert sér í hugarlund. Ekki nóg með það heldur varð myndin ein sú fyrsta í sögu kvikmyndanna til að ná „fullri lengd“ eða 90 mínútum, en fram að því höfðu flestar myndir verið 40 mínútur að lengd. Antonio Banderas leikur bylting- arhetjuna goðsagnakenndu en með önnur hlutverk í myndinni fara Al- an Arkin, Jim Broadbent og Com Feore. Leikstjóri er Ástralinn Bruce Beresford sem m.a. gerði Óskarsverðlaunamyndina Driving Miss Daisy. Fjölskyldubönd (It Runs in the Family) er merkileg mynd fyrir þær sakir að trúlega hafa aldrei                                                                !  !  "#"$% !  "#"$%  & " "#"$% "#"$% "#"$% "#"$% !  !  "#"$% "#"$%  & " !  !  "#"$% "#"$%  & " ' "  ( ' "  ( ( ( ' "  ( ) " ( ' "  ( ( ' "  ' "  ' "  ) " ' "  ( (                                     "# $  %& '( & !)  !)   $ !*     +   ,-    $       .    %       jafnmargir úr sömu fjölskyldu farið með helstu hlutverk. Ekki nóg með að hún skarti þeim feðgum Kirk og Michael Douglas í hlutverki feðga heldur er eiginkona Kirks og Mich- aels leikin af Diane Douglas, sem í reynd er móðir Michaels og fyrr- verandi eiginkona Kirks. Þá er son- ur Michaels einmitt leikinn af Cameron Douglas, syni Michaels. Geri aðrar fjölskyldur betur. Stóru myndir vikunnar sem detta inn á leigurnar eru svo nátt- úrlega Pörupiltar 2 (Bad Boys 2) og Brúsi almáttugur (Bruce Al- mighty). Má þá einnig nefna spennumyndina Doktor Svefn með Goran Visnjic úr Bráðavaktinni. Fjórar barna- og unglingamyndir koma svo sterkar inn; gaman- myndin Holur, S Club (7) myndin Séð tvöfalt og teiknimyndirnar Ólátabelgirnir í vestri (Rugrats Go West) og Villt þyrniber (Wild Thornberrys). Tíu myndbönd koma á leigurnar í vikunni Pancho Villa í Hollywood skarpi@mbl.is Þrjár kynslóðir Douglas-a í Fjöl- skylduböndum. 50 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8. B.i. 12.Sýnd kl. 5.50 og 8. Frábær rómantísk gamanmynd með ótrúlegum leikkonum  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ „Besta mynd ársins.“ SV MBL HJ MBL VG. DV Yfir 80.000 gestir Sýnd kl. 6 og 10.10. Stranglega bönnuð yngri en 16 ára. HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4. Með ísl. tali. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12. kl. 6 og 10. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“ HJ MBL  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 80.000 gestir Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. VG. DV Frábær rómantísk gamanmyndmeð ótrúlegumleikkonum Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning.  Kvikmyndir.com HAYAO Miyazaki sýndi það með Mononoke prinsessu – eða sýndi mér það því það var fyrsta myndin sem ég sá eftir þennan japanska teikni- myndahöfund – að hann er í algjörum sérflokki á sínu sviði, að meðtöldum öllum hans kolleg- um í Hollywood. Önnur eins tak- markalaus hug- myndaauðgi er vandfundin í þess- um kvikmynda- heimi, beisluð af ótrúlegri kunnátt- usemi Miyazakis og hans hæfileika- fólks. Enn sækir hann í japanska þjóðsagnahefð eftir efnivið og vísun- um og nú í sögu af hinni tíu ára gömlu Chihiro sem uppgötvar rétt eins og Lísa í Undralandi í sögu Lewis Carr- olls undraveröld sem hún sogast inn í og verður að örlagavaldi áður en hún veit af. Foreldrar hennar umbreytast í svín og til þess að komast hjá því að fara sömu leið þarf hún aðeins að muna nafnið sitt – sem er hægar sagt en gert á þessum andans ævintýra- slóðum þar sem fyrirfinnast fleiri furðuverur en sést hafa í hreyfimynd. Á vit andans hefur farið sigurför um heiminn, var að mati margra helstu gagnrýnenda á Vesturlöndum ein besta mynd síðasta árs og skaut teiknimyndum Disneys og Spielbergs ref fyrir rass er hún fékk Óskarinn sem besta teiknimyndin á síðasta ári. Allt þetta átti hún þó skilið – og meira til. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Ævintýri gerast enn Á vit andans (Sen to Chihiro no kamikakushi/ Spirited Away) Teiknimynd Japan 2001. Sammyndbönd VHS. Bönn- uð innan 12 ára. (125 mín.) Leikstjórn Hayao Miyazaki. HINN fjörugi söngleikur Chicago var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á sunnudag. Þar gera Sveinn Geirs- son, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir allt fyrir frægðina í hlutverkum sínum sem Billi Bé, Roxí og Elma. Verkið er í leikstjórn Þórhildar Þorleifs- dóttur. Mikið er lagt í útlit sýning- arinnar og glysið í fyrirrúmi. Sigurjón Jóhannsson hannar leik- mynd, Elín Edda Árnadóttir bún- inga og tónlistarstjóri er Jón Ólafs- son. Mikið er dansað í sýningunni og spilar Íslenski dansflokkurinn líka stórt hlutverk. Morgunblaðið/ÞÖK Jóhann Gunnar, umsjónarmaður Stundarinnar okkar, og kona hans, Guðrún Kaldal, ásamt Eggerti Þorleifssyni leikara á frumsýningunni. Morgunblaðið/ÞÖK Leikararnir þakka áhorfendum fyrir sig að loknu uppklappi. Fjör í Borgarleikhúsinu Söngleikurinn Chicago frumsýndur flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.