Morgunblaðið - 20.01.2004, Síða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 23
Þórshöfn | Þrátt fyrir hríðarveður
og ófærð var fjölmennt í íþóttamið-
stöðinni Verinu á laugardaginn en
þá voru fimm ár liðin frá byggingu
hússins. Í tilefni afmælisdagsins
var hátíðardagskrá í Verinu auk
þess sem boðið var upp á veitingar
og frítt í tækjasal og sund.
Dagskráin hófst strax snemma
morguns með sundleikfimi og ung-
barnasundi og sundlaugargestir
nutu einnig tónaflóðs í lauginni
þegar nemendur tónlistarskólans
léku á flautur frammi í sundlaug-
arsal. Fyrir morgunhana var morg-
unverður á boðstólum og síðan
haldið áfram í badminton í salnum.
Uppi í félagsmiðstöðinni Tungl-
inu steig skólahljómsveitin Jarð-
strengir á svið og flutti tónlist af
ýmsu tagi en eftir hádegi hófst há-
tíðardagskrá í salnum. Börn úr
leikskóla og yngstu bekkjum
grunnskólans fylktu liði og gengu
inn fánum og blöðrum prýdd en
síðan var hátíðarræða sveit-
arstjóra, Björns Ingimarssonar. Í
máli hans kom m.a. fram að það
væri í raun mikilvæg byggðastefna
að hafa svo vel búna íþróttamiðstöð
í plássinu og þeir sem á sínum tíma
hefðu tekið ákvörðun um bygg-
inguna hefðu sýnt dugnað, fram-
sýni og von.
Tískusýning stúlkna í 10. bekk
var einnig á dagskrá en því næst
„hreppabolti“ þar sem fulltrúar úr
hreppsnefndum Svalbarðs- og
Þórshafnarhrepps kepptu í blöðru-
fótbolta við mikinn fögnuð áhorf-
enda. Þá var einnig keppt í fótbolta
þótt liðin frá Kópaskeri og Rauf-
arhöfn hafi ekki komist vegna
ófærðar. Hindrunarbraut og kas-
saklifur var einnig í salnum og
uppi í Austursal voru vöfflur og
heitt súkkulaði í boði.
Eyþór Atli Jónsson, for-
stöðumaður Versins, segir að nú
eftir áramót sé greinileg aukning á
komu fólks í húsið og ekki spillir að
ný æfingatæki komu í desember í
tækjasalinn. Verið á sér ýmsa vel-
unnara á staðnum og Verkalýðs-
félag Þórshafnar gaf 300.000 til
þessara kaupa og hefur áður styrkt
húsið með rausnarlegum fram-
lögum, einnig niðurgreiðir það
kortin í íþróttahúsið til fé-
lagsmanna sinna og stuðlar þannig
að meiri þátttöku.
Í landlegum hafa sjómenn á
loðnuskipum nýtt sér aðstöðuna og
skipverjar bæði á Júpíter og Þor-
steini hafa verið daglegir gestir í
húsinu síðustu daga og snúa eflaust
í fínu formi til skips aftur.
Þessi 5 ára afmælisdagur var vel
heppnaður hátíðisdagur og góður
samkomustaður fyrir þorpsbúa og
nærsveitunga í vetrarveðri þegar
lítið viðraði til útivistar.
Morgunblaðið/Líney
Glæsileg innkoma yngstu barnanna í salinn með blöðrur og fána í upphafi hátíðadagskrár.
Afmæli í íþróttamiðstöð
Hljómsveitin Jarðstrengirnir frömdu tónlist í Tunglinu.
Búðardalur | Ráðstefna um samspil
milli skógarþekju og lífs í ám og vöt-
unum var haldin að Laugum í Sæ-
lingsdal dagana 15.–16. janúar.
Félögin sem stóðu að ráðstefnunni
eru Vesturlandsskógar, Félag Skóg-
arbænda á Vesturlandi, Skógrækt
ríkisins, Veiðimálastofnun og Land-
búnaðarháskólinn á Hvanneyri. Tveir
gestafyrirlesarar komu auk annarra,
þau Colin Bean frá Skotlandi, og var
erindi hans um skógrækt og fersk-
vatnsfiskistofna á Skotlandi, mat á
umhverfisáhrifum og leit að lausnum,
og Eva Ritter sem fjallaði um Líf-
jarðefnafræði og vatnsgæði skógar-
vistkerfa Norður-Evrópu. Eva Ritter
er í doktorsnámi í Danmörku og ætlar
að kom hér aftur og þá til dvalar og
starfa við rannsóknir á Mógilsá og
kennslu við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri. Um kvöldið var hátíðar-
kvöldverður að hætti Gunnars
Björnssonar veitingamanns í Dala-
kjöri og kvöldvaka, þar sem heima-
menn, þau Sigvaldi Fjelsted og Mel-
korka Benediktsdóttir, sáu um
tónlistarflutning. Alls voru boðaðir
108 manns á ráðstefnuna en tæplega
90 manns mættu og má kenna slæmu
veðri um allt land þessi forföll. Ráð-
stefnuhaldarar hældu Hótelinu á
Laugum og töldu staðinn mjög góðan
til fundarhalda en hótelið hefur ný-
lega verið gert upp og eru þar bæði
ráðstefnusalir, sundlaug, sauna og
íþróttasalur.
Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir
Skógarráð-
stefna á
Laugum í
Sælingsdal
Dökkblá herrataska sem inniheldur
Blue Lagoon sturtugel, næringarkrem og
greiðu. Tilvalin í ferðalagið eða sportið.
lagoon@bluelagoon.is • www.bluelagoon.is • 420 8800
á bóndadaginn
Fyrir hann
Bláa Lónið – verslun, Aðalstræti 2
Verð 2.590 kr.
Minnum á gjafakortin
– ávísun á einstaka upplifun.
Boðsmiði fyrir tvo
í Bláa lónið – heilsulind
fylgir öllum töskum.