Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 28
Þeir Jónas og Adrian hafanú verið vel á annan mán-uð að störfum í Írak fyrirÍslensku friðargæsluna, en áður en þeir fóru þangað voru þeir í mánuð við þjálfun og annan undirbúning í Danmörku. Þeir búa á herstöðinni Camp Eden, með um 500 hermönnum sem koma frá Dan- mörku, Bretlandi, Litháen, og Fiji- eyjum. Þar búa þeir við sömu að- stæður og hermenn, deila gámi sem merktur er íslensku sprengjuleitar- deildinni. Þeir klæðast herbúning- um í eyðimerkurfelulitunum með íslenska fánann á öxlinni, eru í skot- heldu vesti og ganga með vopn. „Það kemur ekkert annað til greina, þótt þetta sé mjög friðsamt svæði er ekki hægt að taka neina sénsa hérna,“ segir Jónas. Báðir hafa þeir starfað sem sprengjuleitarsérfræðingar hjá Landhelgisgæslunni í nokkur ár. Adrian er fæddur í Bretlandi og hefur heilmikla reynslu af hernað- araðgerðum af þessu tagi, hann var 22 ár í breska flughernum og var m.a. sendur til Kúveit og Saudi-Ar- abíu. Hann hefur nú fengið íslensk- an ríkisborgararétt og segist ánægður með að starfa undir ís- lenskum fána. Það er ljóst að það er ekkert sældarlíf að vera í Írak, þeir Jónas og Adrian vinna myrkranna á milli. „Við vinnum alla daga vikunnar. Við byrjum yfirleitt klukkan átta á morgunfundi svo er farið af stað og við vinnum framundir kvöldmat. Þá er komið myrkur, en svo erum við með viðbragðssveit sem fer út ef eitthvað kemur upp, hryðjuverk eða eitthvað annað. Þá erum við alltaf klárir, alltaf á bakvakt tilbún- ir að fara út af herstöðinni ef svo ber undir. Svo geta verið handtökur eða húsleitir, þá eru alltaf sprengju- sérfræðingar með til öryggis til að styðja aðgerðirnar,“ segir Jónas. Alls eru sex sprengjusérfræðing- ar í Camp Eden, Jónas, Adrian og fjórir Danir. Jónas segir að þótt þeir Adrian hafi sótt sömu nám- skeið og Danirnir og hafi sömu starfsreglur starfi Íslendingar og Danir aldrei saman til að koma í veg fyrir misskilning eða einhvers kon- ar tungumálaörðugleika, sem geti verið stórhættulegt þegar verið er að vinna með vopn. Engin hætta á að við verðum atvinnulausir hérna Jónas segir gífurlegt magn af vopnum í Írak. Haldin er sameig- inleg skrá yfir það sem sérfræðing- arnir sex finna og eyðileggja. Frá því Danirnir komu fyrst til landsins fyrir þremur mánuðum hafa 170 tonn af sprengjum verið fjarlægð. Það er þó bara toppurinn af ísjak- anum. „Það er af nógu að taka, það er engin hætta á að við verðum atvinnulausir hérna,“ segir Jónas. Svæðið sem íslensku sprengjusérfræðing- arnir og Danirnir fjórir vinna við að hreinsa í S-Írak er 3,300 ferkílómetrar að flatarmáli og nær alla leið að landamærum Íran. „Við vinnum bæði kerfisbundið í því að hreinsa svæðið og svo fáum við tilkynningar um hluti sem við þurf- um að kíkja á. Ef okkar mat er að almenningur sé í hættu eyðum við sprengjunni strax. Þetta er mjög stórt svæði og alveg rosalegt magn af drasli hérna enda hafa hér verið háð mörg stríð. Við erum að hreinsa inni í þorpum og höfum séð ótrúlega hluti. Um daginn fórum við í heimahús þar sem flugvélasprengja hafði farið í gegnum þakið. Sprengjan er grafin einhverja fimm metra ofan í jörðina, undir húsið. Fólkið sat þarna við matarborðið og borð- aði með gat í loftinu og niður í gegnum gólfið,“ segir Jónas. Segir Jónas að þeir verði að forgangsraða vopnum, þessi flugvélasprengja hafi t.d. ekki verið fjarlægð enn þar sem það sé mjög mikil aðgerð og sprengjan sé nokkuð örugg þar sem hún sé, fái hún að vera í friði. Hann segir að stundum geti þeir fjarlægt sprengj- urnar en yfirleitt séu þær sprengd- ar upp þar sem þær finnast, eftir að svæðið hefur verið rýmt og gengið úr skugga um að það sé öruggt. „Við þurfum þó að meta það í hvert sinn. Við erum t.d. með eina flugvélasprengju sem við getum ekki fært. Hún er undir aðalhá- spennulínunum til Bagdad, nálægt aðalhraðbrautinni sem liggur í gegnum Írak og um 300 metra frá stóru þorpi svo við getum ekki sprengt hana. Við munum aftengja þessa sprengju í þessari viku. Það er hluti af þjálfunni hjá okkur að læra þá hluti, en það er svakaleg að- gerð,“ segir Jónas. Hann segir sprengjur úr svokölluðum klasa- sprengjum vera eitt af því sem er í miklum forgangi en mörg börn hafi fallið í valinn eftir að handfjatla slík vopn. „Þetta eru pínulitlar sprengj- ur sem er varpað á jarðveg, það koma 100 litlar úr einni stórri. Mik- ið af þessu liggur á yfirborðinu og hefur einhverra hluta vegna ekki sprungið. Þetta er lítið í margs kon- ar litum og he af leiðandi bö eru mjög vi sprengjur. Þe um við fundið þorpum,“ seg og bætir við a legt sé að þessar spren snerta þær og að sprengja staðnum. Seg að slys séu a yfirleitt eigi bö Á því svæði séu að vinna þeir um þrjú á síðasta ári. Ekkert sm Aðspurðir þeir Jónas og ekki vera smeykir þegar höndum um sprengjur. „ náttúrlega bara hluti af svo lengi sem maður fylg reglunum og fer eftir þj sem maður hefur fengið á vera öruggt,“ segir Jóna þegar þeir fara út af hers verkefni eru þeir með sjú brynvörðum trukk með s hafi þeir túlka þegar sprengja nálægt mannaby rýma svæði. Segir Jónas að þeim sé tekið af íbúum á þessu sv irleitt er fólk mjög ánægt birtumst. Írakar vita hverj um. Ef við erum á ferðinni oft sýna okkur eitthvað hafa fundið eða vilja losna ar við erum að vinna á sam einhvern tíma er alltaf haugur af dóti á morgnana þeir séð okkur, tínt spreng an sjálfir og vilja losna v segir Jónas. Fátæktin í Írak er sl hans sögn. „Fólk er að ber lífi sínu hérna, það er ro tækt og maður sér hversu verið farið með fólk meða stjórn Saddams Hussei Flokkur Saddams, Bath inn, var með bækistöðvar bygging er undir danskri dag. Við notum hana sem Svæðið sem íslensku sprengjusérfræðingar Vinna myrk Íslensku sprengjusérfræðingarnir í Írak, Jónas Þorvaldss og Adrian King, sem komust í heimspressuna þegar þeir fu vopn sem talið var að innihéldu sinnepsgas, segja gífurleg magn af vopnum í landinu. Á þremur mánuðum hafa 170 to af sprengjum verið fjarlægð á þeirra svæði, sem er aðein toppurinn af ísjakanum. Nína Björk Jónsdóttir sló á þráði til þeirra til að heyra af lífinu í Írak. 28 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. „Við erum að hreinsa inni í þorpum og höfum séð ótrúlega hluti, Jónas Þorvaldsson, sem hér sést um borð í þyrlu. Adrian King hefur mikla reynslu af hern- aðaraðgerðum af þessu tagi. Hann var m.a. 22 ár í breska flughernum. Ekki hægt að taka neina sénsa hérna RÍFUM HVERFAMÚRANA Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar-stjóri í Garðabæ, ritaði einkar at- hyglisverða grein í Morgunblaðið í gær, þar sem hún benti á „hinn ósýni- lega hverfamúr“ sem reistur væri á þeirri hugmyndafræði flestra sveitar- félaga, að íbúarnir yrðu að nota þjón- ustuna, sem veitt er í því hverfi og í því sveitarfélagi, þar sem þeir eiga lög- heimili. Ásdís Halla nefnir dæmi af út- hlutun plássa í leikskólum og grunn- skólum, heimaþjónustu við aldraða og heimsendum mat; íbúarnir eiga ekki val, heldur ákveður sveitarfélagið við hvern þeir skuli skipta. Bæjarstjórinn bendir jafnframt á að vilji menn breyta þessu verði sveitar- félögin að vinna saman að slíkum breytingum. Samvinna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafi aukizt á und- anförnum árum, t.d. á sviði almenn- ingssamgangna og sorphirðu, en sé lít- il sem engin þegar um sé að ræða jöfn tækifæri íbúanna til að velja þá þjón- ustu, sem þeir helzt kjósa. Ásdís Halla vekur athygli á að ný stjórntæki, t.d. bætt upplýsinga- streymi með aðstoð Netsins og nýjar reikningsskilareglur, auðveldi sveitar- félögum að brjóta niður múrana, sem þau hafa reist í kringum þjónustu sína, með því að láta fjármagnið fylgja þjón- ustuþeganum. Í því efni hefur Garða- bær nú þegar gengið á undan, með því að leyfa foreldrum í bænum að velja annan skóla fyrir börn sín en endilega þá, sem Garðabær rekur sjálfur, og greiða með börnunum sömu upphæð og það kostar að meðaltali að mennta barn í grunnskólum Garðabæjar. Hugmyndir Ásdísar Höllu Braga- dóttur eru allrar athygli verðar og verðskulda umræðu hjá sveitarstjórn- armönnum á höfuðborgarsvæðinu og mun víðar. Morgunblaðið hefur oft vakið máls á því hversu fráleitt það er að skikka fólk til að setja börnin sín í einn tiltekinn skóla, þegar það liggur fyrir að stefna og fyrirkomulag skóla í öðru hverfi kann að henta barninu og þörfum þess betur. Auðvitað liggur í augum uppi að það sama á við um margvíslega aðra þjónustu sveitarfé- laganna, ekki sízt á höfuðborgarsvæð- inu og á öðrum þéttbýlissvæðum þar sem samgöngur á milli hverfa og sveit- arfélaga eru greiðar og vegalengdir litlar. Af hverju ættu t.d. íbúar í Foss- vogshverfi eða Seljahverfi í Reykjavík ekki að sækja sér þjónustu í Kópavog ef þeim hugnast hún betur en þjón- ustan í eigin hverfi – eða öfugt? Kostn- aðarþáttinn má leysa með því að heimasveitarfélagið greiði fyrir þjón- ustuna samkvæmt fyrirfram skil- greindum viðmiðum, eins og Ásdís Halla bendir á. Fyrirkomulag af þessu tagi myndi væntanlega leiða til auk- innar samkeppni í þjónustu sveitarfé- laga og hvetja þau þar með til að veita sem bezta þjónustu á sem hagstæð- ustu verði. Eingöngu sá möguleiki, að íbúar sveitarfélagsins eða hverfisins geti leitað annað, séu þeir óánægðir með þjónustuna, mun veita aðhald, sem skortir í núverandi kerfi. Fleiri sveitarstjórnarmenn mættu gjarnan ganga í lið með bæjarstjóran- um í Garðabæ að rífa hina ósýnilegu hverfamúra – enda byggjast þeir fyrst og fremst á gömlum hugsunarhætti. Verði það viðhorf ofan á hjá þeim sem stjórna, að hagsmunir og val íbúanna sé í fyrirrúmi, falla múrarnir. MARGFÖLDUNARÁHRIF Í MYNDLIST Mikið hefur verið rætt á undan-förnum misserum um nauð-syn þess að koma íslenskri myndlist að í hinum alþjóðlega mynd- listarheimi. Markmiðið er auðvitað fyrst og fremst að efla innviði mynd- listarlífsins hér og skapa tækifæri fyrir þá myndlistarmenn er eiga erindi með verk sín út fyrir landsteinana á alþjóð- legum markaði. Eins og ítrekað hefur verið bent á í þessu sambandi er afar mikilvægt að hvetja erlenda sýningar- stjóra, safnara, gagnrýnendur og ann- að fjölmiðlafólk til að kynna sér hvað hér er á seyði og hefur þegar verið lagður grunnur að verkefnum sem hafa alla burði til að skila árangri. Nefna má stofnun Kynningarmiðstöðvar ís- lenskrar myndlistar og Listahátíð í Reykjavík með sérstakri áherslu á myndlist, sem fyrirhuguð er vorið 2005. Ánægjulegast af öllu er þó þegar það er einfaldlega aðdráttarafl listarinnar sjálfrar, á vel heppnaðri sýningu, sem dregur fagaðila á þessu sviði til lands- ins, eins og raunin varð um síðustu helgi þegar mikill fjöldi erlendra gesta lagði leið sína hingað í tilefni af sýningu Ólafs Elíassonar, „Frost Activity“ eða „Frostvirkni“, í Listasafni Reykjavík- ur. Eins og fram kemur í frétt í Morg- unblaðinu í dag notuðu þessir gestir tækifærið til að kynna sér myndlist annarra íslenskra listamanna í leiðinni, og til að það mætti takast lögðu margir hönd á plóginn; svo sem Listasafn Reykjavíkur, Dorrit Moussaieff, for- setafrú, gallerí og auðvitað myndlist- armenn sjálfir – auk Ólafs Elíassonar. Áþreifanlegur ávinningur af þessu kynningarstarfi kemur m.a. fram í því sem haft er eftir Eddu Jónsdóttur í samtali við blaðið, en hún rekur gallerí i8, þar sem verk Ólafs hafa verið sýnd um árabil. „Megnið af þessu fólki keypti bæði verk eftir Ólaf Elíasson og nokkra aðra listamenn gallerísins,“ segir hún. Sú staðreynd felur auðvitað í sér athyglisverða staðfestingu á mik- ilvægi faglega rekinna gallería fyrir myndlistarmenn. Edda segir gestina einnig hafa sýnt áhuga á frekara sam- starfi við i8 og ýmsa möguleika verið rædda í því sambandi. Hún bendir á að ekkert af þessu fólki hefði komið hing- að til Íslands ef ekki hefði verið fyrir sýningu Ólafs; „[hann hefur] þegar haft geysileg áhrif á áhuga þess á Íslandi og íslenskri myndlist, sem mjög líklega heldur áfram. Vonandi verður hægt að koma á fleiri tengslum til framtíðar.“ Sá stórhugur sem Listasafn Reykja- víkur, í samstarfi við framsýna stuðn- ingsaðila, hefur sýnt með þessu verk- efni, er því gott dæmi um þau margföldunaráhrif sem listviðburður á heimsmælikvarða getur haft í litlu samfélagi á borð við okkar, myndlist- arlífinu og öllum faglegum burðarstoð- um þess til framdráttar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.