Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
YNGSTU börnin í Langholtsskóla
fengu óvænta og óvenjulega heim-
sókn í gær. Hópur amerískra frum-
byggja frá Norður-Dakota í Banda-
ríkjunum, sýndi ýmsar listir á
bókasafninu og börnin horfðu
gagntekin á.
Hópurinn samanstendur af fjór-
um indíánum sem tilheyra ólíkum
ættbálkum. Þeir voru hingað komn-
ir í boði Icelandair til að kynna
menningu sína og heimkynni.
Ramon Malnourie sem er af Ank-
ara-ættum hóf sýninguna með
dansi í fullum skrúða; í litríkum
búningi skreyttum bjöllum, fjöðr-
um og fleiru. Í kjölfarið steig
flautuleikarinn Matthew Schan-
andore á svið og spilaði á óvenju-
legar flautur. Matthew hefur gefið
út tvær plötur með indíánatónlist í
minningu ömmu sinnar sem var
þekkt sagnakona.
Dakota Wind Goodhouse, af
Hunkpapa Lakota-ættum, kenndi
krökkunum í Langholtsskóla tákn-
mál indíána. Ýmis tákn þekktu
börnin, t.d. þegar fingur er borinn
að munni til merkis um að hljóð
skuli ríkja. Þetta fannst krökk-
unum skemmtilegt og tóku vel und-
ir þegar Dakota kenndi þeim að
heilsa og kveðja á sínu máli.
Að síðustu steig á svið Kandi Lea
Marie. Hún var klædd búningi úr
elgskinni og leyfði krökkunum að
snerta búninginn og ýmsa aðra
hluti sem hún kom með sér. Hún
leyfði þeim að spila á flautuna sína
og sagði þeim frá uppruna þeirra
hluta sem hún var með í farteskinu.
Hópurinn var aðeins í stuttri
heimsókn á Íslandi eftir að hafa
dvalið í Svíþjóð og Finnlandi við að
kynna heimahaga sína. Hann hélt
af landi brott í gær.
Indíánar af ýmsum ættum heimsóttu Langholtsskóla í gær og léku listir sínar fyrir nemendur
Dansað, spilað og
talað á táknmáli
Kandi Lea Marie, sem var klædd búningi úr elgsskinni, leyfir ungri stúlku í
Langholtsskóla að koma við hluti gerða úr hjartarskinni. Hún leyfði þeim
líka að leika á flautuna sína sem hún hafði með sér frá heimaslóðum sínum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ramon Malnourie dansar þjóðdans
síns fólks en hann er af Ankara-
ættum og hann hóf sýninguna.
UNNSTEINN Stef-
ánsson, fyrrverandi
prófessor við Háskóla
Íslands, andaðist á
hjúkrunarheimilinu í
Sunnuhlíð að morgni
mánudagsins 19. jan-
úar.
Unnsteinn var son-
ur Herborgar Björns-
dóttur, húsmóður, og
Stefáns Þorsteinsson-
ar, bónda og síðar
verslunarmanns.
Hann fæddist 10. nóv-
ember 1922 í Sóma-
staðagerði í Reyðar-
firði, lauk stúdentsprófi frá MR 1942,
MS-prófi í efnafræði frá Wiscons-
inháskóla í Bandaríkjunum 1946 og
varð dr. phil. í haffræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1962 auk þess
sem hann stundaði nám við hafrann-
sóknastofnanir í Danmörku, Noregi,
Englandi og Bandaríkjunum.
Að loknu mastersnámi var Unn-
steinn efnafræðingur á rannsókna-
stofu Íslands 1947 til 1948, efnafræð-
ingur við fiskideild Atvinnudeildar
HÍ 1948 og sérfræðingur við sömu
deild 1949 til 1962. Hann var gisti-
fræðimaður hjá haffræðideild Wash-
ingtonháskóla í Seattle í Bandaríkj-
unum 1962 til 1963, sérfræðingur í
haffræði hjá Hafrannsóknastofnun
1963 til 1965 og deildarstjóri sjó-
fræðideildar stofnunar-
innar 1965 til 1974. Unn-
steinn var aðstoðar-
prófessor við Duke-
háskólann í Bandaríkj-
unum 1965 til 1970,
yfirmaður í haffræði hjá
UNESCO í París 1970 til
1973 og prófessor í haf-
fræði við HÍ frá 1975 til
1992.
Unnsteinn var í stjórn
Verkfræðingafélags Ís-
lands 1951 til 1953, vara-
formaður Hins íslenska
náttúrufræðifélags 1957
til 1960, forseti Vísinda-
félags Íslendinga 1984 til 1986 og for-
seti raunvísindadeildar HÍ 1989 til
1991. Eftir hann hafa komið út bæk-
urnar Hafið 1961, North Icelandic
Waters, doktorsritgerð 1962, Haf-
fræði I 1991, Haffræði II 1994, og
Hafið, 2. útgáfa og mikið endurskrif-
uð, 1999 auk fjölda ritgerða í innlend-
um og alþjóðlegum vísindatímarit-
um.
Unnsteinn hlaut heiðursverðlaun
Verðlaunasjóðs Ásu Guðmundsdótt-
ur Wright 1985, heiðursmerki Verk-
fræðingafélags Íslands 1988 og ridd-
arakross hinnar íslensku fálkaorðu
1991.
Eiginkona hans var Guðrún Ein-
arsdóttir, sem lést 1995, og eignuðust
þau þrjú börn, sem lifa foreldra sína.
Andlát
UNNSTEINN
STEFÁNSSON
SIÐANEFND Blaðamannafélags
Íslands telur að ríkisútvarpið og
fréttamennirnir Sveinn Helgason
og Pálmi Jónasson hafi ekki brotið
gegn siðareglum BÍ er þeir fjöll-
uðu um skattamál Jóns Ólafssonar.
Hann kærði tvær fréttir sem flutt-
ar voru þann 19. nóvember, og þá
sérstaklega frétt kl. 8 þar sem um-
fjöllunarefni Morgunvaktarinnar
var kynnt, þ.e. skattamál Jóns
Ólafssonar. Í fréttinni kom eftir-
farandi fram: „Þá á hann fangels-
isvist yfir höfði sér og aðeins virð-
ist tímaspursmál hvenær mál hans
fer til lögreglunnar.“ Í frétt kl.
12:20 sem byggðist á umfjöllun
Morgunvaktarinnar sagði m.a.:
„Fangelsisvist vofir yfir Jóni
Ólafssyni, fyrrum aðaleiganda
Norðurljósa vegna meintra skatt-
svika, sé miðað við umfang málsins
og þá dóma sem kveðnir hafa verið
upp hér á landi fyrir skattsvik.“
Síðar í sömu frétt sagði: „Aðeins
virðist tímaspursmál hvenær lög-
reglan fær málið til meðferðar.“ Þá
sagði í fréttinni: „Jón ber líka
refsiábyrgð sem stjórnarformaður
nokkurra félaga þar sem grunur
leikur á skattsvikum.“ Að lokum
segir í fréttinni: „Miðað við að
menn hafi verið dæmdir til fang-
elsisvistar hér á landi fyrir miklu
umfangsminni skattalagabrot gæti
Jón átt yfir höfði sér að lenda bak
við lás og slá.“
Hefðu getað vandað betur til
framsetningar fréttarinnar
Í úrskurði sínum telur Siðanefnd
eðlilegt að í fréttum sé fjallað um
hugsanleg viðurlög við meintum al-
varlegum brotum verði þau sönn-
uð. Siðanefnd telur aftur á móti að
þessir sömu fyrirvarar hefðu mátt
koma skýrar fram í inngangi
fréttar ríkisútvarpsins kl. 12:20.
Siðanefnd telur því að fréttamenn-
irnir hefðu getað vandað betur til
framsetningar í fyrrnefndri frétt
með því að láta þá fyrirvara sem
síðar koma fram, fylgja með í inn-
gangi.
Jón Ólafsson kærir RÚV fyrir
fréttir um skattamál sín
Fréttamenn
RÚV brutu ekki
siðareglur
TUTTUGU og einn umsækj-
andi er um embætti prests í
Mosfellsprestakalli í Kjalar-
nesprófastsdæmi. Um er að
ræða nýja stöðu prests í presta-
kallinu en fyrir er sóknarprest-
urinn sr. Jón Þorsteinsson. Um-
sóknarfrestur rann út hinn 15.
janúar síðastliðinn.
Umsækjendur eru: Aðal-
steinn Þorvaldsson guðfræðing-
ur, séra Arna Ýrr Sigurðardótt-
ir, Arndís Ósk Hauksdóttir
guðfræðingur, séra Auður Inga
Einarsdóttir, séra Baldur Gaut-
ur Baldursson, Bryndís Val-
bjarnardóttir guðfræðingur,
séra Elínborg Gísladóttir,
Gunnar Jóhannesson guðfræð-
ingur, Halldóra Ólafsdóttir guð-
fræðingur, séra Helga Helena
Sturlaugsdóttir, Karítas Krist-
jánsdóttir guðfræðingur, Klara
Hilmarsdóttir guðfræðingur,
Lena Rós Matthíasdóttir guð-
fræðingur, séra Ragnheiður
Jónsdóttir, Sigríður Munda
Jónsdóttir guðfræðingur, Sig-
ríður Rún Tryggvadóttir guð-
fræðingur, Sjöfn Þór guðfræð-
ingur, Sólveig Jónsdóttir
guðfræðingur, Svanhildur Blön-
dal guðfræðingur, séra Yrsa
Þórðardóttir og Vigfús B. Al-
bertsson guðfræðingur. Emb-
ætti prests í Mosfellsprestakalli
er veitt frá 1. mars 2004.
21 umsókn
um Mosfells-
prestakall
STJÓRN Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis hefur samkvæmt lögum
stofnað sjálfseignarstofnunina
SPRON-sjóðinn sem verður eigandi
að því hlutafé í bankanumn sem ekki
fellur til stofnfjáreigenda við fyrir-
hugaða umbreytingu hans í hluta-
félag.
Ný stjórn hefur tekið við hjá
sjóðnum. Formaður stjórnar sjóðs-
ins er Hildur Petersen, stjórnarfor-
maður ÁTVR. Auk hennar sitja í
stjórninni Hildur Njarðvík lögfræð-
ingur sem er varaformaður stjórn-
arinnar, Ágústa Hjartar, formaður
stjórnar Starfsmannafélags
SPRON, Guðrún Agnarsdóttir lækn-
ir, Hallgrímur Snorrason hagstofu-
stjóri, Hjálmar H. Ragnarsson, tón-
skáld og rektor Listaháskóla
Íslands, og Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða Kross Íslands.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Guð-
mundur Hauksson, sparisjóðsstjóri
SPRON.
Í fréttatilkynningu segir að gangi
fyrirætlanirnar um að breyta bank-
anum í hlutafélag eftir verði heildar-
eign sjóðsins 6 milljarðar króna og
um leið verði hann langstærsti sjóður
sinnar tegundar á landinu. Sjóðurinn
muni ráðstafa árlegri ávöxtun af höf-
uðstól sínum, um 300-400 milljónum
króna árlega, til menningar- og líkn-
armála í Reykjavík og nágrenni. Að
auki sé sjóðnum heimilt að ganga á
höfuðstól sinn þyki ástæða til.
Ný stjórn SPRON-sjóðsins
Nýskipuð stjórn sjálfseignarstofnunarinnar SPRON-sjóðsins.
SAMNINGANEFND Reykjavíkur-
borgar ætlar um miðja þessa viku að
svara kröfum sem Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar, Efling stéttar-
félag og Kjarafélag tæknifræðinga
hafa beint að borginni vegna fram-
kvæmdar kjarasamninga félaganna.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, segist vonast eftir að þá skýr-
ist með hvaða hætti starfsmönnum
Reykjavíkurborgar verður bætt upp
þær tafir sem orðið hafa á fram-
kvæmd samninganna.
Tímafrek vinna
Ákvæði samninga borgarinnar við
félögin um starfsmat og hæfnislaun
áttu að taka gildi 1. desember 2002,
en þeim var frestað vegna þess að
vinna við starfsmatskerfið hefur
reynst viðameiri og tímafrekari en
búist var við. Fundað var um málið
um helgina og segir Sigurður að á
þeim fundi hafi borgin óskað eftir
fresti í nokkra daga til að ljúka
vinnslu gagna sem varða þetta mál.
Fulltrúar borgarinnar hafi sagt að
þegar þessari vinnu sé lokið geti
borgin svarað þeim erindum sem fé-
lögin hafi beint að samninganefnd-
inni. Sigurður segir slæmt að það
skuli hafa þurft að koma til seink-
unar á framkvæmd samningsins.
Það sé ljóst að við undirritun kjara-
samninganna í ársbyrjun 2001 hafi
menn vanmetið þá vinnu sem þurfti
að fara í gegn um áður en hægt væri
að taka upp starfsmat. „Það er svo
þegar menn ganga frá samningum
að þá vilja menn að tímasetningar
standist sem skrifaðir eru á samn-
ingana.“
Bíða eftir svari
borgarinnar