Morgunblaðið - 24.01.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
TF-LÍF sótti hjartveikan sjó-
mann til Vestmannaeyja aðfara-
nótt föstudags. Beiðni barst frá
íslensku fiskiskipi sem statt var
suður af Dyrhólaey, en ekki var
hægt að hífa manninn um borð í
þyrluna vegna veðurs. Siglt var
með manninn til Vestmannaeyja
og flutti þyrlan hann þaðan á
Landspítala við Hringbraut.
Sótti veikan
sjómann
ÓVENJU mörg óhöpp urðu í um-
ferðinni á höfuðborgarsvæðinu í
gær að sögn lögreglu. Alls höfðu
fleiri en 30 árekstrar verið tilkynnt-
ir til lögreglu á höfuðborgarsvæð-
inu öllu í gærkvöldi, en ekki urðu al-
varleg slys á fólki. Að sögn lögreglu
er engin sérstök ástæða fyrir þess-
um fjölda óhappa, veður var gott og
hiti vel yfir frostmarki.
Fjöldi um-
ferðaróhappa
SAMNINGUR sem er í burðarliðnum milli Alcoa og
Bechtel/HRV annars vegar og arkitektahópsins TBL hins
vegar um hönnun álversins í Reyðarfirði mun vera sá
stærsti sem gerður hefur verið hér á landi við íslenska
hönnuði og arkitektastofur. Mun samningurinn gilda allt
til þess tíma þegar taka á álverið í notkun árið 2007, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, og jafnvel lengur.
Þrjár íslenskar arkitektastofur standa að tillögu TBL,
þær T.ark-Teiknistofan, Batteríið og Landslag. Hún var
valin sú besta úr hópi fjögurra tillagna frá jafnmörgum
hópum íslenskra arkitektastofa. Hafa arkitektar TBL, um
tíu talsins, verið valdir til að hanna útlit, umhverfi og innra
rými fyrirhugaðs álvers Fjarðaáls í Reyðarfirði. Alls
starfa ríflega 40 manns hjá þessum arkitektastofum, en
þær hafa áður unnið saman í samkeppnum. T.ark-
Teiknistofan hefur m.a. hannað Nesjavallavirkjun og vinn-
ur nú að hönnun Hellisheiðarvirkjunar. Batteríið hefur
m.a. komið að hönnun fjölmargra skóla og Landslag hlaut
nýlega alþjóðleg verðlaun fyrir hönnun á snjóflóðavarna-
garði á Siglufirði.
Hópurinn sendi inn tillögu í hönnunarsamkeppni sem
Alcoa á Íslandi og Bechtel/HRV efndu til á síðasta ári.
Sem fyrr segir bárust fjórar tillögur frá keppendum sem
áður höfðu verið valdir í forvali. Auk TBL voru það í fyrsta
lagi Arkitektastofan OÖ og Suðaustanátta landslags-
arkitektúr, í öðru lagi ATL Design Group, sem samanstóð
af Arkís, THG og Landark, og í þriðja lagi VA-arkitektar,
Arkitektur.is, Landmótun og Holm & Grut Architects.
Vandaðar tillögur
Sérstök valnefnd mælti með tillögu TBL á grundvelli
listræns gildis hennar og vegna þess að hún þótti samrým-
ast vel markmiðum um sjálfbærni. Valnefndin var skipuð
fulltrúum frá Alcoa á Íslandi, Bechtel/HRV, Fjarðabyggð
og ráðgjöfum Alcoa frá Carnegie Mellon-háskólanum, að
því er segir í tilkynningu Alcoa.
Þar segir ennfremur að aðstandendur keppninnar leggi
áherslu á að hún hafi einungis snúist um val á hugmynd að
hönnun álversins. Endanlegt útlit álversins muni ekki
nauðsynlega endurspegla vinningstillöguna. Þóttu tillög-
urnar hafa verið faglegar og vandaðar og verða almenn-
ingi til sýnis á Stríðsminjasafninu á Reyðarfirði dagana 31.
janúar til 8. febrúar. Einnig stendur til að sýna þær í
Reykjavík en verður það auglýst síðar.
Viðamikill hönnunar-
samningur í bígerð
Horft inn í álversbygginguna í tillögu TBL-hópsins.
Tillaga TBL-arkitektahópsins að útliti álversins í Reyðarfirði, þar sem megináhersla var lögð á að byggingin félli
vel inn í umhverfið og byggingarefnið yrði umhverfisvænt. Fyrir ofan álverið er gert ráð fyrir stórri mön.
Tillaga arkitektahópsins TBL
að hönnun álversins í Reyðar-
firði valin sú besta í samkeppni
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur með
breytingum á reglugerðum ákveðið að
koma til móts við þá sjúklinga sem
þurftu að greiða umtalsverðan lækn-
iskostnað og eru tekjulágir á meðan
sérfræðilæknar deildu við heilbrigðis-
yfirvöld nú í janúar. Hann segir að
kostnaður hins opinbera vegna þessa
gæti numið sex til sjö milljónum
króna.
Þeir sem greiddu fullt verð fyrir
þjónustu sérfræðilækna þá átta virku
daga sem deilan stóð yfir geta notað
þá upphæð að fullu til að eiga rétt á af-
sláttarskírteini í samræmi við há-
markshlutdeild sjúklinga í læknis-
kostnaði utan sjúkrahúsa. Þá er gerð
breyting á greiðslureglum sem
gagnast fyrst og fremst tekjulágum
fjölskyldum og komið til móts við þær í
hlutfalli við fjölskyldutekjur. Í þriðja
lagi verða öll útgjöld slysatryggðra
endurgreidd á umræddu tímabili og í
fjórða lagi heimilar reglugerðarbreyt-
ingin Tryggingastofnun ríkisins að
taka þátt í ferðakostnaði þess sem
sótti sér sérfræðilæknishjálp þann
tíma sem enginn samningur var í gildi.
„Þetta nær ekki yfir alla,“ segir heil-
brigðisráðherra heldur þá sem helst
þurfa á að halda. „Þetta nær yfir þá
sem urðu fyrir umtalsverðum kostn-
aði. Lögunum er ekki breytt.“
Þeir sem greiddu sérfræðilæknis-
hjálp að fullu á þessum tíma í janúar
geta haft samband við Trygginga-
stofnun ríkisins til að kanna stöðu sína.
Sjö til tíu milljónir
endurgreiddar
RAFVEITUR landsins munu minn-
ast þess með ýmsum hætti í ár að lið-
in eru 100 ár frá því rafvæðing hófst
á Íslandi. Hápunktur hátíðarhald-
anna á afmælisárinu verður svo í
Hafnarfirði 12. desember en þann
dag eru liðin 100 ár frá því að hug-
sjóna- og framkvæmdamaðurinn Jó-
hannes J. Reykdal stóð að fyrstu
virkjuninni hér á landi er hann virkj-
aði Lækinn í Hafnarfirði og lýsti upp
16 hús í bænum.
Atburðir í hverjum mánuði
í tilefni tímamótanna
Samorka, samtök raforku- hita og
vatnsveitna, kynnti dagskrá afmæl-
isársins á fréttamannafundi í gær
sem haldinn var í Rafheimum, minja-
safni Orkuveitu Reykjavíkur í El-
liðaárdal. Friðrik Sophusson, stjórn-
arformaður Samorku, og Eiríkur
Bogason, forstjóri Samorku, fjölluðu
þar um sögu rafvæðingar á Íslandi.
Jóhann Már Maríusson, formaður
afmælisnefndar, kynnti dagskrána á
afmælisárinu og sagði hann að eitt-
hvað yrði um að vera í hverjum mán-
uði allt afmælisárið. Munu íslensku
orkufyrirtækin m.a. efna til kynn-
inga og fræðslu hvert á sínu orku-
veitusvæði. Þá verða orkuverin opin í
sumar þar sem almenningi verður
gefinn kostur á að skoða þau og
kynna sér starfsemi þeirra.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, greindi frá hátíðarhöld-
unum sem efnt verður til í desember.
Fram kom í máli Lúðvíks að ákveðið
hefur verið að endurbyggja gömlu
virkjunina sem Jóhannes J. Reykdal
byggði, í upprunalegri mynd. Jafn-
framt verður auglýst samkeppni á
næstunni um gerð minnisvarða um
Jóhannes J. Reykdal.
Samorka gefur út afmælisblað af
þessu tilefni sem ber nafnið Kveikt á
perunni. Rafmagn á Íslandi í 100 ár.
Er blaðinu dreift með Morgun-
blaðinu um allt land í dag.
Í blaðinu er að finna greinar um
sögu rafvæðingar á Íslandi, viðtöl og
ýmsan fróðleik um nýtingu rafork-
unnar og þær miklu þjóðfélagsbreyt-
ingar sem fylgt hafa nýtingu orku-
lindanna.
Þá hefur verið opnað sérstakur
vefur, www.rafmagn100.is, með fjöl-
mörgum upplýsingum í tilefni af-
mælisársins og sögulegum fróðleik
um rafmagn á Íslandi í 100 ár. Þar
munu einnig verða birtar upplýsing-
ar um alla þá viðburði sem rafveitur
landsins standa að í tilefni afmælis-
ins.
100 ár eru liðin síðan rafvæðing Íslands hófst
Fjölbreytt afmælisdagskrá
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíðarhöld vegna 100 ára rafvæðingar Íslands kynnt í minjasafni Orku-
veitu Reykjavíkur. F.v. Jóhann Már Maríusson, formaður afmælisnefndar,
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Friðrik Sophusson, stjórn-
arformaður Samorku, og Eiríkur Bogason, framkvæmdastjóri Samorku.
HALLDÓR Guðbjarnason, fram-
kvæmdastjóri Vísa á Íslandi, segir
korthöfum af og til send bréf í tölv-
una eða með pósti þar sem reynt sé
að lokka þá til að gefa upp númer
greiðslukorts. Notendur greiðslu-
kortanna eigi ekki að gefa upp núm-
erin nema þeir séu fullvissir hver
viðtakandinn sé. Oftast séu þetta er-
lendir glæpahringir sem noti það við
póstverslun eða búi til nýtt kort með
sama númeri en á nafni annars.
Notandi Vísa korts hér á landi
fékk í vikunni sent með tölvupósti
bréf þar sem sagt var að upp hefði
komist um misnotkun á korti hans
erlendis. Sagði að það stafaði líklega
af því að viðkomandi hefði verslað á
vefnum og einhver óæskilegur kom-
ist yfir kortanúmerið. Var honum
boðið að skrá sig á þar til gerðri síðu
til að koma í veg fyrir frekari mis-
notkun á kortinu. Var bréfið sagt
vera frá Visa Support Assistant og
endaði netfang sendana á visa-secu-
rity.com. „Þetta eru glæpahringir
sem nota öll tiltæk ráð til að komast
yfir kortanúmer,“ segir Halldór.
Varhugaverð tölvubréf
til greiðslukorthafa