Morgunblaðið - 24.01.2004, Blaðsíða 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKI - FÉLAGASAMTÖK
Til sölu tvær tveggja herbergja íbúðir í miðbæ Akureyrar. Tilvalið
fyrir fyrirtæki, starfsmannafélög eða félagasamtök. Íbúðirnar eru
vandaðar og fallegar ca 50 fm hvor. Ásett verð 6,5 m. Áhvílandi
mjög hagstæð lán frá L.Í. Uppl. í síma 898 4657 eða hjá FM 550-
3000. 14341
!
"#$%
&$ ' ( %$#
%)& $*+,
-.+ /0
ÞEGAR Tung Chee-hwa, æðsti
embættismaður Hong Kong, flutti
árlega stefnuræðu sína fyrr í mán-
uðinum gat hann þess í framhjá-
hlaupi að hann hefði frestað því að
ákveða hvenær lýðræðisumbótum
yrði komið á. Nokkrum mínútum
síðar reyndi kínverska stjórnin að
tryggja að allir skildu hvaða þýðingu
þetta hefði.
Opinber fréttastofa Kína birti þá
yfirlýsingu þar sem talsmaður
stjórnarinnar í Peking sagði hana
hafa skýrt Tung frá því að hann ætti
að hafa „náið samráð við viðkomandi
ráðuneyti kínversku stjórnarinnar“
og gæti ekki tekið ákvörðun um
„starfstilhögunina í þessu máli“ fyrr
en samráðinu lyki.
Með öðrum orðum lýsti kínverska
stjórnin því yfir að hún hygðist ráða
því hversu hratt yrði komið á póli-
tískum umbótum í Hong Kong. Er
þetta í fyrsta skipti sem leiðtogar
Kína segja þetta opinskátt frá því að
um hálf milljón Hong Kong-búa tók
þátt í mótmælum gegn stjórninni 1.
júlí í fyrra.
Með yfirlýsingunni staðfestu kín-
versku leiðtogarnir það sem marga
hafði grunað: stjórnin í Peking tekur
nú mikilvægustu ákvarðanirnar í
málefnum Hong Kong þrátt fyrir
loforð hennar um að breska nýlend-
an fyrrverandi fengi sjálfstjórn í eig-
in málum. Yfirlýsingin markar upp-
haf nýs kafla í tengslum kínversku
stjórnarinnar og Hong Kong og hún
tekur nú fullan þátt í deilunni um
hvort kjósa eigi leiðtoga borg-
arinnar í almennum kosningum.
Gagnrýninni beint að
kínversku stjórninni?
Yfirlýsingin hefur þegar orðið til
þess að lýðræðissinnar í Hong Kong
íhuga nú að taka upp nýjar aðferðir í
baráttu þeirra fyrir því að æðsti
embættismaðurinn verði kjörinn í
almennum kosningum árið 2007 og
allt þingið ári síðar.
Reiði umbótasinnanna hefur hing-
að til beinst að Tung, óvinsælum
auðkýfingi sem kínversk stjórnvöld
fólu að stjórna Hong Hong eftir að
borgin varð aftur hluti af Kína árið
1997. En nú þegar kínversku leið-
togarnir hafa tekið skýrt fram að
Tung hlýði fyrirmælum þeirra þurfa
andstæðingar hans í Hong Kong að
ákveða hvort þeir eigi að beina
gagnrýninni að stjórninni í Peking.
Umbótasinnarnir hafa hingað til
verið tregir til að gagnrýna stjórn
Kína og reynt að fullvissa hana um
þeir krefjist aðeins kosninga í Hong
Kong, ekki á meginlandi Kína. Í
mótmælagöngunni 1. júlí, hinni fjöl-
mennustu í Kína frá mótmælunum á
Torgi hins himneska friðar 1989, var
þess krafist að Tung og ráðherrar
hans segðu af sér, en lítið sem ekk-
ert var minnst á Hu Jintao, forseta
Kína, og aðra leiðtoga landsins.
Áherslan sem lögð hefur verið á
að gagnrýna Tung endurspeglar al-
menningsálitið í Hong Kong þar
sem Hu og Wen Jiabao, forsætisráð-
herra Kína, eru álitnir ljá máls á
pólitískum umbótum. Þessi áhersla
er þó einnig til marks um raunsæi
því að leiðtogar Kína eiga lokaorðið
um pólitísku umbæturnar í Hong
Kong og þess vegna er ráðlegt að
reita þá ekki til reiði.
Samkvæmt stjórnarskrá Hong
Kong, sem Kínverjar og Bretar
sömdu, verður ekki hægt að efna til
almennra kosninga eftir 2007 nema
tveir þriðju þings Hong Kong, æðsti
embættismaðurinn og kínverska
stjórnin samþykki það. Umbótasinn-
arnir höfðu vonast til þess að með
því að virkja almenning í baráttunni
gætu þeir fengið þingið á sitt band
og knúið Tung til að fallast á um-
bæturnar, þannig að mjög erfitt yrði
fyrir kínversku stjórnina að hafna
tillögu sem nyti almenns stuðnings í
Hong Kong.
Með því að hafa bein afskipti af
málinu hefur kínverska stjórnin í
raun lýst því yfir að hún treysti því
ekki lengur að Tung geti komið í veg
fyrir að þetta gerist, að sögn Allens
Lee, sem á sæti í kínverska þinginu.
Hann segir að kínversku leiðtog-
arnir kenni Tung um fjöldamótmæl-
in í júlí, sem komu þeim í opna
skjöldu. „Þeir vilja tryggja að þetta
gerist ekki aftur. Þeir efast um að
C.H. Tung geti stjórnað þessum
pólitísku umbótum fyrir þá,“ segir
Lee. „Þeir hafa áhyggjur af því að
almenningur rísi upp aftur og krefj-
ist kosninga 2007.“
Christine Loh, fyrrverandi þing-
maður sem styður lýðræðislegar
umbætur, segir að Tung hafi brugð-
ist íbúum Hong Kong og kínversku
stjórninni. „Það er ekkert leynd-
armál að kínverska stjórnin hefur
áhyggjur af því að pólitísku umbæt-
urnar verði of örar og við þurfum
þess vegna mann sem getur útskýrt
málið og sefað ótta kínverskra
stjórnvalda. Vanhæfni Tung kann að
hafa leitt til ástands sem er öllum í
óhag. Fólkið verður vonsvikið og
heldur áfram að mótmæla og ótti
kínverskra stjórnvalda getur jafnvel
magnast.“
Ágreiningur meðal
umbótasinna
Meðal umbótasinnanna er ágrein-
ingur um hvernig bregðast eigi við
yfirlýsingu kínversku stjórnarinnar.
Nokkrir þeirra hafa hvatt til fjölda-
mótmæla í því skyni að knýja hana
til að gefa eftir en flestir beina enn
gagnrýninni að Tung. Búist er við
efnt verði aftur til fjöldamótmæla 1.
júlí, þegar sjö ár verða liðin frá því
að Hong Kong varð aftur hluti af
Kína.
Næstu þingkosningar verða í
september og þá verða 30 af 60
þingmönnum Hong Kong kjörnir, en
nú eru aðeins 24 þingmannanna
þjóðkjörnir. Samtök, sem styðja oft-
ast kínversku stjórnina, velja hina
þingmennina 30. Umbótasinnar eru
nú með 22 þingsæti og bæti þeir við
sig átta sætum í kosningunum geta
þeir hindrað frumvörp og ef til vill
knúið kínversku stjórnina til samn-
ingaviðræðna um pólitískar umbæt-
ur.
Stjórnin í Kína tefur
fyrir lýðræðisum-
bótum í Hong Kong
Kommúnistastjórnin talin óttast að breytingar verði of
örar og lýðræðissinnar eflist mjög á þingi borgarinnar
Reuters
Ung kona heldur á mynd af Tung Chee-Hwa, æðsta embættismanni Hong
Kong, á mótmælafundi fyrir utan þinghúsið í borginni á dögunum.
Peking. The Washington Post.
’ Stjórnin í Pekingtekur nú mikilvæg-
ustu ákvarðanirnar í
málefnum Hong
Kong þrátt fyrir lof-
orð hennar um að
breska nýlendan
fyrrverandi fengi
sjálfstjórn í eigin
málum. ‘