Morgunblaðið - 24.01.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
milljónum króna á síðasta ári.
Um áramót átti Straumur
32,68% hlut í Flugleiðum og 6,06 í
Íslandsbanka. Straumur átti 1,23%
í Pharmaco, 17,34% í SH og
26,16% í Opnum kerfum um ára-
mót, auk hlutdeildar í fleiri fé-
lögum.
Þórður Már segir að árið 2003
hafi verið hagstætt fyrir Straum
Fjárfestingarbanka og hluthafa
hans. En afkoman er sú besta frá
upphafi Straums.
Í hálf fimm fréttum KB-banka
HAGNAÐUR Straums Fjárfest-
ingarbanka hf. nam 3.815 millj-
ónum króna á síðasta ári. Árið
2002 nam hagnaður félagsins 812
milljónum króna. Hagnaðurinn
jókst því um 370% á milli ára. Á
árinu 2003 tók Straumur yfir Brú,
fjárfestingar (áður Íslenski hug-
búnaðarsjóðurinn) og Framtak
fjárfestingarbanka. Straumur seldi
hins vegar Framtak til Íslands-
banka í byrjun desember fyrir um
51/2 milljarð króna. Áður en við-
skiptin áttu sér stað keypti
Straumur þær eignir Framtaks
sem teljast til áhættufjárfestinga,
þar með talið nánast öll skráð og
óskráð hlutabréf út úr Framtaki
Arðsemi
eigin fjár 39%
Innleystur hagnaður af verð-
bréfaeign Straums nam 3.379
milljónum króna á síðasta ári sam-
anborið við 952 milljónir króna ár-
ið 2002. Óinnleystur hagnaður af
verðbréfaeign nam í árslok 1.285
milljónum króna.
Arðsemi eigin fjár nam 39% á
árinu 2003 og hagnaður á hlut var
1,17 krónur samanborið við 0,30
krónur árið 2002.
Stjórn félagsins mun leggja til
við aðalfund að hluthöfum verði
greiddur arður að fjárhæð 1.452
milljónir króna eða sem nemur
35% af nafnverði hlutafjár. Arð-
greiðslan er 38% af hagnaði ársins.
Laun og hlunnindi fram-
kvæmdastjóra Straums, Þórðar
Más Jóhannessonar, námu 27,3
kemur fram að gott uppgjör
Straums helgist fyrst og fremst af
góðri afkomu á fjármálamörkuð-
um. Félagið jók verulega eign sína
í hlutabréfum á árinu og hefur það
borið góðan ávöxt enda hækkaði
Úrvalsvísitalan um 56,4% og
helstu markflokkar skuldabréfa
hækkuðu um 10-18%. Straumur
nýtti meðbyrinn á mörkuðum og
jók hlutafé sitt fjórum sinnum á
árinu, samtals um tæpar 1.130
m.kr. að nafnvirði og nam aukn-
ingin 37,4% af hlutafé félagsins í
upphafi ársins. Gengishagnaður,
innleystur og óinnleystur, á verð-
bréfa- og gjaldeyrisviðskiptum á
árinu nam 4.664 m.kr.,“ að því er
segir í hálf fimm fréttum.
Þar kemur einnig fram að nýtt
ár fari vel af stað hjá Straumi en
samtals hafa skráð innlend hluta-
bréf félagsins hækkað um 1.292
milljónir króna frá upphafi ársins.
Gengi Straums í byrjun þessa
árs var 4,93 og markaðsverðmætið
því 16.750 milljónur sem er lít-
illega meira en eigið fé félagsins.
Gengið í lok dagsins í gær var 6,1
og markaðsverðið því komið í
24.900 milljónir króna. Markaður-
inn virðist binda vonir við að félag-
ið fari að bjóða nýja virðisskapandi
þjónustu með fjárfestingabanka-
leyfi sínu þar sem hækkun
Straums er töluvert meiri en virð-
ist vera hægt að skýra með hækk-
un á verðbréfamörkuðum, nánar
tiltekið 3,76 sinnum meira, að því
er fram kemur í hálf fimm frétt-
um.
Hagnaður Straums
3.815 milljónir króna
Innleystur hagnaður af verðbréfaeign 3.379 milljónir
!"
#
# $$
# %$
& '!(
) (
*+
!
%,-
,
,#-
#
%#
#
#
,%-
, $
%,%-
!
"#
LANDSBANKI Íslands er orð-
inn fjórði stærsti hluthafi Ís-
landsbanka, á orðið rúmlega
4,9% hlutafjár í bankanum.
Lífeyrissjóður verslunar-
manna, Lífeyrissjóðurinn Fram-
sýn og Straumur fjárfestingar-
banki eru enn sem fyrr þrír
stærstu eigendur Íslandsbanka,
samkvæmt nýjum hluthafalista
frá Íslandsbanka. Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7 hafa hins vegar
færst í sjöunda sæti úr því fjórða
frá listanum sem Morgunblaðið
birti í gær, enda hefur sjóðurinn
selt 50 milljón hluti í bankanum
eða 0,4% heildarhlutafjár.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær seldu MP fjár-
festingarbanki, Fjárfestingar-
félagið Atorka og Afl
fjárfestingarfélag alla hluti sína
í Íslandsbanka á miðvikudag,
alls 3,5% hlutafjár í bankanum.
Þess má geta að Hrómundur
ehf. sem situr í tíunda sæti hluthafa-
listans er félag í eigu Einars Sveins-
sonar.
Landsbankinn átti áður ríflega
2,9% hlutafjár eða tæplega 310 millj-
ónir hluta. Bankinn á nú rúmlega 517
milljónir hluta í Íslandsbanka en
miðað við lokaverð bréfanna í Kaup-
höll Íslands í gær (7,10) er andvirði
hlutar Landsbankans tæpir 3,7 millj-
arðar króna.
Viðskipti með bréf í Íslandsbanka
námu rúmum einum milljarði í gær,
þar af voru tvö stór viðskipti, annars
vegar með 55 milljónir hluta og hins
vegar með 50 milljónir hluta (sam-
tals 1% hlutafjár) á genginu 7,15.
Kaupverðið nam því samtals um 751
milljón króna.
KB banki með 3% í
Landsbankanum
KB banki hefur keypt 2% eignar-
hlut Vátryggingafélags Íslands
(VÍS) í Landsbanka Íslands. KB
banki á nú 3% hlutafjár í Lands-
bankanum og er fjórði stærsti hlut-
hafi hans.
Hlutir KB banka eru samkvæmt
hluthafalista frá Landsbankanum í
gær rúmlega 225 milljónir talsins.
Miðað við lokaverð bréfanna í Kaup-
höll Íslands í gær (6,90) er verðmæti
bréfanna 1,5 milljarðar króna.
Landsbanki fjórði
stærsti í Íslandsbanka
Bankinn á nær 5% hlutafjár
!
"#
$%&'
"#
$%()'
(%*
+',
"'+'-',
.+,
((%*
+',
"#
$%/' -'+',
"#
$%%''
0',
$# %
& ' #
(
)
# HAGNAÐUR Nýherja á
árinu 2003 var 34% minni en á
árinu 2002. Hagnaður síðasta
árs nam 107,2 milljónum
króna eftir skatta en var 70,6
milljónir árið áður.
Uppgjörið er verra en KB
banki gerði ráð fyrir í afkomu-
spá sinni, en þar áætlaði bank-
inn að hagnaður yrði 83 millj-
ónir króna.
Tekjur Nýherja á síðasta ári
námu 4.569 milljónum króna
en voru 4.442 milljónir árið áð-
ur, og jukust því um 3% milli
ára. Hagnaður samstæðunnar
fyrir fjármagnsgjöld og af-
skriftir – EBITDA – nam
205,5 milljónum en var 231,7
milljónir króna árið áður.
Í fréttatilkynningu frá fé-
laginu kemur fram að hlutfall
EBITDA af veltu var 4,5% á
árinu, en var 5,2% árið áður.
Þar segir jafnframt að launa-
kostnaður hafi hækkað um
9,1% milli ára, en meðalfjöldi
stöðugilda hjá félaginu var
242. Annar rekstrarkostnaður
og afskriftir hækka um 6,1%
milli ára, m.a. vegna aukinna af-
skrifta á viðskiptavild fyrirtækja
sem Nýherji hefur keypt, að því er
fram kemur í tilkynningunni.
Samkvæmt samstæðureikningi
dótturfélaga nam tap af rekstri
þeirra 4,3 milljónum króna á árinu.
Hörð samkeppni
„Hörð samkeppni ríkti á upplýs-
ingatæknimarkaðinum á árinu 2003,
auk þess sem umhverfi fyrirtækja á
þessum markaði hefur að mörgu
leyti verið erfitt á liðnum árum. Árið
einkenndist helst af vaxandi sam-
keppni, samhliða minni eftirspurn á
markaðinum eftir netþjónum og
lausnum þeim tengdum. Jafnframt
hafa fyrirtæki lítið ráðist í uppsetn-
ingar á stærri hugbúnaðarkerfum
sem og í breytingar á stærri heildar-
upplýsingakerfum. Þá var eftirspurn
eftir vörum og þjónustu í upplýs-
ingatækni hægari á síðari árshelm-
ingi en áætlanir félagsins gerðu ráð
fyrir.“
Í tilkynningunni segir að svo virð-
ist sem eftirspurn og afkoma á fyrri
árshelmingi þessa árs kunni að verða
með svipuðum hætti og á síðari
helming síðasta árs. „Vonir standa til
þess að á síðari hluta ársins verði
upplýsingatæknimarkaðurinn líf-
legri, þó að ekki sé að vænta neinna
verulegra umskipta frá því sem verið
hefur á liðnum tveimur árum.“
Ársuppgjör Nýherja hf.
Hagnaður dregst
saman um 34%
+
.('
$ #%
$ $
!"
$
/
!"!( ) 01!"!( !(
!
#
$#,-
$ $$
$ %
$#
#
!
$
,-
!
,- .
STJÓRN líftæknifyrirtækisins
Urðar Verðandi Skuldar, UVS,
hefur ráðið Kanadamanninn Dana.
B. Hosseini sem forstjóra fyr-
irtækisins. Þá hefur Róbert
Wessman, forstjóri Pharmaco, tek-
ið við stjórnarformennsku í félag-
inu.
Á stjórnarfundi UVS í gær var
jafnframt ákveðið að auka hlutafé
félagsins um 5 milljónir Banda-
ríkjadala, jafnvirði tæplega 350
milljóna íslenskra króna. Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson hefur
látið af starfi forstjóra UVS og
Bernhard Ö. Pálsson hefur vikið úr
sæti stjórnarformanns.
UVS sérhæfir sig í krabbameins-
rannsóknum. Rannsóknir fyrirtæk-
isins beinast að erfðafræðilegum
orsökum krabbameins og hefur
það nú yfir að ráða gagnagrunni
með upplýsingum um fleiri en 20
þúsund krabbameinssjúklinga.
Fyrirtækið er í eigu íslenskra
fjárfesta. Stærstu hluthafarnir eru
Pharmaco, Burðarás og Straumur.
Vonir bundnar við Hosseini
Róbert Wessman segir að
gagnagrunnur UVS sé mjög öfl-
ugur og gefi mikil tækifæri til
sóknar á því sviði sem fyrirtækið
starfar. Hann segir að Pharmaco
verði stærsti einstaki hluthafinn
eftir hlutafjáraukninguna. Ætlunin
sé þó ekki að Pharmaco eigi þenn-
an hlut til lengdar, heldur sé stefnt
að því að styðja við bakið á félag-
inu á meðan á uppbyggingu þess
stendur og þar til aðrir munu
koma að því.
Að sögn Róberts bindur stjórn
UVS miklar vonir við ráðningu
Hosseini í starf forstjóra. Hann
segir að Hosseini hafi miklar
reynslu af því að hjálpa litlum líf-
tæknifyrirtækjum til að ná fótfestu
og árangri og vonir standi til að
það muni honum einnig takast með
UVS.
Í San Diego og Reykjavík
Dana B. Hosseini segir að hjá
UVS sé allt sem þurfi til að hægt
sé að ná góðum árangri á líf-
tæknisviðinu. Markmið fyrirtæk-
isins séu skýr og þær rannsóknir
sem starfsmenn þess hafi unnið að
séu mikilvægar. Hann hafi tölu-
verð tengsl við fyrirtæki í þessum
geira sem geti nýst UVS vel til
frekari sóknar á alþjóðamarkaði.
Tækifærin séu stórkostleg. Þá
muni hlutafjáraukning félagsins
koma sér vel.
Hosseini verður með aðsetur
bæði í San Diego í Bandaríkjunum
og í Reykjavík. Hann segir að
ástæðan sé sú að til að byrja með
muni starf hans að stærstum hluta
snúast um að styrkja sambönd
UVS við samstarfsaðila í Banda-
ríkjunum og koma á nýjum sam-
böndum.
Hosseini starfaði hjá líftækni-
fyrirtækjunum Cyntellect og
Sequenom áður en hann réðst til
starfa hjá UVS.
Nýr for-
stjóri
ráðinn
til UVS
Morgunblaðið/Þorkell
Dana B. Hosseini, nýr forstjóri Urðar Verðandi Skuldar, segir að hjá UVS
sé allt sem þurfi til að hægt sé að ná góðum árangri á líftæknisviðinu.
Róbert Wessman
tekur við sem
stjórnarformaður