Morgunblaðið - 24.01.2004, Qupperneq 24
SUÐURNES
24 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Keflavík | Leikfélag Keflavíkur
frumsýnir barnaleikritið Með álfum
og tröllum laugardaginn 31. janúar
næstkomandi. Leikendur eru ungt
fólk, frá fimmtán til tuttugu og fimm
ára.
Með álfum og tröllum er eftir
sænska leikarann og leikritaskáldið
Staffan Westerberg sem hefur sam-
ið barnaefni fyrir leikhús og sjón-
varp. Steinn Ármann Magnússon
leikari leikstýrir.
Jón Marinó Sigurðsson, formaður
Leikfélags Keflavíkur, segir að Með
álfum og tröllum sé sannkallað æv-
intýraleikrit, á léttum nótum. Fjallar
það um ungan dreng sem fær æv-
intýrabók að gjöf og dregst inn í æv-
intýrið. Atli Kristjánsson leikur aðal-
hlutverkið.
Hópurinn hóf æfingar fyrr í vetur
og æfði þá í sal Myllubakkaskóla.
Eftir jólahlé var allt sett á fulla ferð
og segir Jón Marinó að undirbúning-
urinn gangi vel.
Um þrjátíu manna hópur vinnur
að þessu verkefni og vinna leikararn-
ir sjálfir að sviðsmynd og búningum.
Með álfum og tröllum verður
frumsýnt í Frumleikhúsinu laugar-
daginn 31. janúar næstkomandi
klukkan 15.
Með álfum og tröllum
Barnaleikrit sýnt í Frumleikhúsinu
Reykjanesbær | Björgunarsveitin
Suðurnes fékk í gær afhentan nýj-
an björgunarbát. Báturinn er
keyptur frá Bretlandi og gaf Eim-
skip flutning hans til landsins.
Báturinn er keyptur notaður frá
sjóbjörgunarfélaginu RNLI í Bret-
landi. Þar hefur hann reynst vel, að
sögn Gunnars Stefánssonar, for-
manns Björgunarsveitarinnar Suð-
urnesja. Báturinn er harðbotna
slöngubátur, 6,5 metrar að lengd.
Hann er heldur stærri en mun öfl-
ugri en sá bátur sem hann leysir af
hólmi. Gunnar segir mestu skipta
að hann sé búinn tveimur vélum og
verði því mun öruggari við björg-
unaraðgerðir en sá báturinn sem
sveitin hefur nú yfir að ráða.
Báturinn er keyptur án véla en
þegar búið verður að standsetja
hann verður kostnaðurinn kominn
hátt á þriðju milljón, að sögn Gunn-
ars. Það er fjármagnað með tekjum
af flugeldasölu og styrkjum frá vel-
unnurum björgunarsveitarinnar.
Eimskip keypti á síðasta ári
Skipaafgreiðslu Suðurnesja og hef-
ur hug á því að efla starfsemi sína á
Suðurnesjum, að sögn Jóns Norð-
fjörð framkvæmdastjóra. Þá er
Eimskip að taka við meirihluta
varnarliðsflutninganna og mun
skip félagsins þess vegna koma við í
Helguvík. Jón segir að vegna þessa
og tíu ára afmælis Björgunarsveit-
arinnar Suðurnesja hafi Eimskip
ákveðið að flytja bátinn frá Bret-
landi án endurgjalds.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Björgunarbáturinn kominn: Gunnar Stefánsson, formaður sveitarinnar, segir hann kosta á þriðju milljón.
Björgunarsveitin fær nýjan bát
Reykjanesbær | Brimborg opnar í
dag nýtt útibú undir eigin nafni í
Reykjanesbæ. Útibúið er til húsa í
Njarðarbraut 3 í Njarðvík.
„Brimborg hefur ákveðið að fara
að óskum bíleigenda á Suðurnesjum
um nýja og betri þjónustu frá Brim-
borg,“ segir í frétt á heimasíðu Brim-
borgar. Þar segir enn fremur:
„Brimborg fagnar nú mestu vinsæld-
araukningunni meðal bílaumboða en
Brimborg jók sölu sína mest meðal
fimm stærstu bílaumboða á Íslandi
eða um 93,4%, á síðasta ári. Með opn-
un Brimborgar í Reykjanesbæ er
verið að bæta þjónustu við íbúa á
Suðurnesjum og vonast Brimborg til
að eiga gott samstarf við Suður-
nesjamenn í framtíðinni.“
Opið verður hjá Brimborg Reykja-
nesbæ alla virka daga frá kl. 10 til 18
og á laugardögum frá 12 til 16.
Brimborg opnar útibú
undir eigin nafni
Sandgerði | Fyrsta húsið er risið í nýju hverfi í Sand-
gerði sem kennt er við Lækjarmót. Hverfið er rétt ofan
við gamla íþróttavöllinn í bænum.
Í hverfinu er gert ráð fyrir 63 íbúðum í einbýlis-, rað-
og parhúsum. Þegar er búið að úthluta þrettán lóðum og
um þessar mundir er verið að leggja lagnir og götur.
Fyrsta húsið er risið. Það er parhús sem Marvík ehf. í
Garði byggir. Er það timbureiningahús sem flutt er inn
frá Eistlandi og reist er á stuttum tíma.
Marvík hefur byggt nokkrar íbúðir af þessari gerð í
Garðinum. Þær eru litlar og tiltölulega ódýrar og hefur
ungt fólk, aðallega úr Garði, keypt íbúðirnar þar.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Fyrsta húsið: Parhús sem Marvík byggir er fyrsta húsið sem rís í nýju íbúðarhverfi í Sandgerði.
Fyrsta húsið í Lækjarmótahverfi
r upp
Nú er tækifærið til að láta sína villtustu bíladrauma rætast. Komdu og reynsluaktu
nýjum glæsilegum *Avensis. Veglegir vetrarpakkar að verðmæti 125.000 krónur fylgja
fyrstu 8 beinskiptu RAV4 sem seljast. Í markaði jeppamannsins í Arctic Trucks verður
frumsýndur nýr 38 tommu *LandCruiser með sérstakri túrista breytingu. Skoðaðu
*Yamaha vélsleðana og
*Yamaha vélhjólin og líka 38
tommu *Hilux bílana sem eru
á tilboðsverði. Lexus *RX300 og
Það verður allt opið upp á gátt hjá okkur á Nýbýlaveginum um helgina
*
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
23
39
4
01
/2
00
4