Morgunblaðið - 24.01.2004, Side 27
Fetinu lengra en aðrir
Morgunblaðið/Hafþór
Torfærutæki: Nýr bíll björgunarsveitarinnar er öflugur og vel útbúinn.
Húsavík | Björgunarsveitin Garðar
á Húsavík hefur tekið í notkun nýja
og fullkomna björgunarbifreið. Þar
er um að ræða Toyota Hilux Double
Cab jeppa, fullbreyttan á 38" dekkj-
um með öllum hugsanlegum auka-
búnaði. Bílnum var að mestu breytt
hjá Artic Trucks, enn er þó eftir að
fullklára breytingarnar og verður
það gert hjá Bílaleigu Húsavíkur.
Þá voru tveir dekkjagangar undir
bílinn keyptir hjá Bílaþjónustu
Húsavíkur.
„Það er búið að prófa bílinn við
slæmar aðstæður og hefur hann
reynst mjög vel. Þessi bíll sem
kemur í stað Land Rover-jeppa
sem við áttum er hugsaður sem
undanfararbíll. Hann á að vera, og
er fullbúið torfærutæki sem á að
komast það sem flestir aðrir kom-
ast ekki. Með þessu erum við að
leitast við að komast fetinu lengra
en allir aðrir,“ segir Þórir Örn
Gunnarsson, gjaldkeri björgunar-
sveitarinnar.
„Eftir að hafa ráðfært okkur við
jeppakarlana í 4x4 klúbbnum hér á
Húsavík, sem allir voru boðnir og
búnir að leiðbeina okkur í þessum
málum, varð þessi bíll fyrir valinu,“
segir Þórir Örn. Kaupin á bílnum
eru fjármögnuð með sölu á eldri bíl
auk annarrar fjáröflunar en björg-
unarsveitin hefur verið að safna
fyrir honum í nokkur undanfarin ár.
„Þetta ásamt ómetanlegum
stuðningi frá konunum okkar í
kvennadeildinni gerði okkur kleift
að ráðast í kaupin. Þær, eins og
venjulega, standa eins og klettur að
baki okkar og væri róðurinn erfiður
án stuðnings þeirra,“ sagði Þórir
Örn að lokum.
Kraftmikill: Tryggvi Hjaltason,
söngvari Post mortem, þótti kraft-
mikill og líflegur á sviðinu.
Hann hefur hingað til verið þekkt-
ur fyrir afrek í frjálsum íþróttum.
Vestmannaeyjar | Það var rokkað af
miklum krafti í Höllinni í Vest-
mannaeyjum á laugardagskvöldið
fyrir viku á tónleikunum Allra
veðra von þar sem komu fram níu
hljómsveitir, sjö úr Vestmanna-
eyjum og tvær úr Kópavogi. Tón-
leikarnir voru bráðskemmtilegir og
bera vitni mikillar grósku í tónlist-
arlífi ungs fólks í Vestmannaeyjum.
Um leið var þetta óformleg
hljómsveitarkeppni þar sem stór-
sveitin Post Mortem fór með sigur
af hólmi. Fá þau þrjá klukkutíma í
hljóðveri frá Rás 2 og svo einnig
umfjöllun og spilun á Rás 2. Valin
var hljómsveit til að koma fram á
Þjóðhátíð og varð Amos fyrir val-
inu.
Er þetta þriðja árið í röð sem tón-
leikarnir Allra veðra von eru haldn-
ir og hefur fyrirtækið Gullrót haft
yfirumsjón með tónleikunum í sam-
vinnu við Tónsmíðafélagið, Fé-
lagsmiðstöðina Féló og Húsið,
menningarmiðstöð ungs fólks, að
ógleymdri Rás 2 en hennar fulltrúi
var Heiða í Heiðingjunum og var
hún kynnir.
Rúmlega 200 manns mættu á tón-
leikana, flest ungt fólk en nokkrir
foreldrar litu við til að fylgjast með
framgöngu barna sinna í tónlistinni.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Tónleikar: Gunnar, söngvari Amos, lifði sig inn í hlutverkið. Hljómsveit
hans var valin til þess að koma fram á næstu þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Allra veðra von
í Vestmannaeyjum
Góð skemmtun: Heiða var kynnir á tónleikunum og skemmti sér vel.
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 27
Borgarnes | Skólameistari Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, Hörður
Helgason, heimsótti 10. bekkinga í
Grunnskólanum í Borgarnesi nýlega.
Hann hélt kynningarfund um fram-
haldsnám að loknum grunnskóla og
kynnti Fjölbrautaskólann á Akranesi.
Hörður upplýsti nemendur um náms-
framboð og svaraði spurningum.
Um 50–60% nemenda úr Borgar-
nesi fer að jafnaði í framhaldsnám á
Akranes og næsta haust opnast
möguleiki fyrir þá á að dvelja á
heimavistinni. Ástæðan er sú að Eyr-
arsveit, Snæfellsbær og Stykkis-
hólmsbær hafa sagt samningnum upp
því nýr framhaldsskóli á norðanverðu
Snæfellsnesi hefur störf næsta haust
og því losna pláss.
Þau sveitarfélög sem áfram eiga
aðild að Fjölbrautaskóla Vesturlands
eru 14 talsins. Það eru Akraneskaup-
staður, Borgarbyggð, Borgarfjarðar-
sveit, Dalabyggð, Eyja- og Mikla-
holtshreppur, Helgafellssveit,
Hvalfjarðarstrandarhreppur, Hvítár-
síðuhreppur, Innri-Akraneshreppur,
Kolbeinsstaðahreppur, Leirár- og
Melahreppur, Saurbæjarhreppur,
Skilmannahreppur, Skorradals-
hreppur.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Kynningarfundur: Nemendur í tíunda bekk í Borgarnesi fylgjast með
kynningu á námsframboði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Breytingar
hjá Fjöl-
braut á
Akranesi
lgina!
Toyota Betri notuðum bílum verða 80 bílar á sérstöku tilboðsverði. Einnig mikið úrval af notuðum
vélsleðum. Sölumenn okkar eru í hátíðarskapi, nýttu þér það. Komdu á Nýbýlaveginn um helgina, - það
verður bara skemmtilegt. Boðið er upp á glæsilegar veitingar alla helgina. Opið laugardag kl. 12-16 og
sunnudag kl. 13-16. www.toyota.is
*
IS 200
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04