Morgunblaðið - 24.01.2004, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 31
SALSA EINS OG SALSA Á AÐ VERA
26., 27., 28. og 29. janúar, fjórum sinnum einn og hálfur tími.
Pantaðu tíma í síma 551 3129 milli klukkan 16 og 22.
Salsa fer sigurför um heiminn.
Stine og Reynold
frá Kúbu
halda 6 tíma Salsanámskeið
fyrir börn (yngst 10 ára),
unglinga og fullorðna.
Sértímar fyrir dömur.
Aðstoðarkennarar verða
Heiðar Ástvaldsson,
Harpa Pálsdóttir og Erla
Haraldsdóttir, sem öll hafa
lært SALSA á Kúbu.
Brautarholti 4
47. starfsár
Hann er svartur, hún er hvít. Þau eru frábærir dansarar og kennarar.
Þau fá aðstoð frá íslenskum toppkennurum, sem lært hafa salsa á
Kúbu. Hefurðu betra tækifæri til að læra salsa?
BOÐIÐ verður upp á leiðsögn um
sýninguna á verkum Elíasar Hjör-
leifssonar alla sunnudaga meðan
sýning stendur en henni lýkur 14.
mars. Fyrsta leiðsögn verður kl. 14 á
morgun sunnudag.
Flestar myndirnar eru frá árunum
1989 til 2002, en það ár féll Elías frá.
Myndefnið er aðallega náttúra Ís-
lands. Þau svæði sem voru honum
sérstaklega hugleikin eru svæðið í
nágrenni Heklu, að fjallabaki, við
Hraunvötn og móbergsgljúfrin við
Sólheimajökul. Sumar af þessum
myndum málaði hann á staðnum, úti
í náttúrunni. En myndefnið er ekki
eingöngu landslag, heldur leitar
hann víða fanga og tekur sér fullt
frelsi til framsetningar. Einnig eru
nokkur verk er þeir feðgar Ólafur og
Elías unnu saman.
Leiðsögn um
sýningu
Hafnarborgar
FÉLAGSFUNDUR Félags Nýlista-
safnsins sem haldinn var sl. miðviku-
dag samþykkti kauptilboð í húseign
félagsins að Vatnsstíg 3. Ljóst er því
orðið að Vatnsstígurinn verður innan
tíðar kvaddur en þar hefur Nýlista-
safnið verið til húsa í 26 ár, þar af 23 í
bakhúsinu nr. 3b en síðan í nr. 3.
Geir Svansson, framkvæmdastjóri
Nýlistasafnsins, segir að vegna ófyr-
irséðra annmarka á húsnæðinu að
Vatnstíg 3 og breyttra viðhorfa til
safneignar Nýlistasafnsins hafi verið
ákveðið að leita eftir hentugri íveru-
stað fyrir starfsemi Nýlistasafnsins.
„Ekki er tímabært að skýra frá nýrri
staðsetningu safnsins en ljóst er að
það verður áfram í hjarta miðborg-
innar þar sem það mun halda áfram
að vera einn af hornsteinum menn-
ingarlífs Reykjavíkurborgar og út-
vörður séreinkenna íslenskrar sam-
tímamyndlistar í heiminum öllum,“
segir Geir. „Jafnframt flutningunum
standa til breytingar á innra skipu-
lagi Nýlistasafnsins í samræmi við
breytta tíma. Nefndir meðlima
safnsins um alla þætti í starfsemi fé-
lagsins hafa verið að störfum und-
anfarna mánuði í þeim tilgangi að
marka stefnuna og skerpa á mark-
miðum Nýlistasafnsins.“
Að mati stjórnar Nýlistasafnsins
er hlutverk safnsins jafn mikilvægt
og áður, að sinna og hlúa að sam-
tímamyndlist og öðrum framsækn-
um listum á Íslandi. „Nýlistasafnið/
The Living Art Museum er eitt
þekktasta „vörumerkið“ í íslenskri
myndlist og ætlar sér að viðhalda því
um ókomna tíð.“
Nýlista-
safnið selur
Vatnsstíg 3
Listasafn Reykjavíkur
– Kjarvalsstaðir
Tveimur sýningum lýkur á sunnu-
dag á Kjarvalsstöðum. Annars vegar
er um að ræða afmælissýningu Kjar-
valsstaða, Myndlistarhúsið á Mikla-
túni – Kjarvalsstaðir í 30 ár, þar sem
stiklað er á 30 ára sögu sýningar-
halds á Kjarvalsstöðum, deilum um
rekstur, stjórnun og sýningarstefnu.
Sýningarstjórar eru Aðalsteinn Ing-
ólfsson, forstöðumaður Hönnunar-
safns Íslands, og Eiríkur Þorláks-
son, forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkur. Hin sýningin sem um
ræðir er farandsýningin Ferðafuða –
sýning á míníatúrum, sem hófst í
Slunkaríki á Ísafirði haustið 2001 og
lýkur nú á fimmta viðkomustaðnum
á Kjarvalsstöðum.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir eru opnir daglega frá kl. 10–
17. Alla sunnudaga kl. 15 er leiðsögn
um sýningarnar. Einn aðgangseyrir
gildir samdægurs í öll hús Listasafns
Reykjavíkur, þ.e. auk Kjarvalsstaða
í Hafnarhús og Ásmundarsafn. Á
mánudögum er aðgangur ókeypis.
Sýningum lýkur
LJÓÐATÓNLEIKAR verða í Saln-
um í dag kl. 16. Helga Rún Indr-
iðadóttir sópran og Elisabeth Föll
píanóleikari flytja verk eftir íslensk
tónskáld, Schumann, Grieg og
Sibelius.
„Við flytjum Liederkreis op. 39
eftir Schumann við ljóð eftir
Eichendorff. Ljóðin eru þannig, að
það er eins og að fara til skiptis í
heita og kalda sturtu; tilfinning-
arnar eru svo miklar og marg-
breytilegar milli ljóðanna. Lögin
eru stutt, en samt er hvert lag eins
og heil ópera. Við verðum með
Grieg, ópus 48, lögin sem hann
samdi við þýsk ljóð – meðal annars
eftir Uhland og Geibel, og í lokin
syngjum við þekkt lög eftir Sibelius,
meðal annars Flickan kom ifrån sin
älsklings möte.“ Tónleikana ætlar
Helga Rún þó að byrja á fjórum ís-
lenskum söngperlum, Kveðju eftir
Þórarin Guðmundsson, Drauma-
landið eftir Sigfús Einarsson, Vor-
gyðjan kemur eftir Árna Thor-
steinsson og Sofðu sofðu góði eftir
Sigvalda Kaldalóns. Hún segir
Kveðju og Draumalandið bera tals-
verðan dám af þeirri staðreynd að
hún býr fjarri Íslandi – í Þýskalandi.
Hún segir norrænu ljóðin eiga
talsvert sameiginlegt. „Þetta eru
rómantísk ljóð og náttúrudýrkunin
mikil. Sibelius mótaði þó sinn eigin
heim, og er ekki eins þjóðlegur í stíl
og Grieg. Það sama má segja um ís-
lensku lögin, þau eru ekki mjög
þjóðlagaleg.“
Helga Rós hefur verið í fastaliði
óperunnar í Stuttgart frá árinu
1999 þar sem hún debúteraði sem
Freyja í Rínargulli Wagners. „Í vet-
ur hef ég verið að syngja hlutverk
Zerlinu í Don Giovanni, ég syng
Ines í Il trovatore, ég syng fyrstu
dömu í Töfraflautunni og Evridísi í
Orfeo eftir Monteverdi. Á næsta ári
verð ég í Niflungahringnum, þar
sem ég verð aftur í hlutverki
Freyju, og ein af Rínardætrum í
Ragnarrökum. Þegar maður er
fastráðinn er maður ekkert alltaf að
syngja draumahlutverkin. Hins veg-
ar er andrúmsloftið við óperuna hér
ákaflega gott og starfsandinn góð-
ur. Það skiptir svo miklu máli upp á
það að sýningar og tónleikar gangi
vel.“
Óperuhúsið í Stuttgart var nú
valið óperuhús ársins í fjórða sinn af
tímaritinu Opernwelt. Önnur hlut-
verk sem Helga Rún hefur verið að
syngja þar eru Woglinde í Ragn-
arrökum, Venus í Artúri konungi
eftir Purcell, og Ninetetta í Ást á
þremur appelsínum eftir Prokofij-
ev. Þær Helga Rós og Elisabeth
ljóðapíanisti, hafa átt náið samstarf
frá árinu 2002.
Listrænn stjórnandi
LiedKunst KunstLied
Elisabeth Föll lauk tónmennta-
kennaraprófi og píanónámi í Karls-
ruhe og Stuttgart, auk þess sem hún
stundaði nám við ljóðadeild háskól-
ans í Stuttgart hjá prófessor Kon-
rad Richter. Síðar naut hún leið-
sagnar Gérard Weiss í Basel og
Irwin Gage í Zürich, en báðir höfðu
þeir mjög mótandi áhrif á hana sem
flytjanda ljóðatónlistar. Í samvinnu
við söngvara á hún langan tónleika-
feril að baki bæði í Þýskalandi og
víðar í Evrópu. Elisabeth leikur
reglulega á námskeiðum hinar al-
þjóðlegu Bachakademíu í Stuttgart
en er einnig virkur flytjandi kamm-
ertónlistar. Elisabeth er stofnandi
og jafnframt listrænn stjórnandi
LiedKunst KunstLied, en það er fé-
lagsskapur um ljóðatónlist, kamm-
ermúsík og skáldskap. Á hans veg-
um hefur Elisabeth haldið tónleika
með nafntoguðum söngvurum eins
og Sybillu Rubens, Helenu Schneid-
erman, Brittu Schwarz, Lothar Od-
inius, Michael Volle og Andreas
Weller.
Ljóðrænt sturtubað, heitt og kalt
Morgunblaðið/Þorkell
Elisabeth Föll og Helga Rós Indriðadóttir í Salnum.
Í HET Domein galleríinu í Sitt-
ard í Suður-Hollandi stendur nú
yfir sýning á fossaverki Rúríar,
„Archive – endangered waters“.
Rúri var fulltrúi Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum sl. sumar og
vakti verk hennar mikla athygli.
Í kjölfarið fékk hún boð um að
sýna verkið m.a. í Hollandi.
Halldór Björn Runólfsson list-
fræðingur komst svo að orði í
Morgunblaðinu þann 18. sept-
ember sl., um fossaverk Rúríar er
hann hafði skoðað það í Fen-
eyjum.
„Rétt eins og væru þeir að taka
bók úr bókaskáp grípa sýning-
argestir um kjöl hvers ramma og
draga út undir dunandi hljóði úr
viðkomandi vatnsfalli. Þegar
hamagangurinn er hvað mestur
má heyra unaðslegan íslenskan
náttúrusymfón glymja um skál-
ann.
Samstundis og römmunum er
aftur rennt inn í skápinn hljóðna
fossarnir.“
Het Domain galleríið í Hollandi
er framsækið, tiltölulega ungt
safn. Safnstjórinn þar situr í sýn-
ingarnefndum víða um heim,
meðal annars í Museum of Mod-
ern Art, MoMA, í New York.
Morgunblaðið/Kristinn
Rúrí við verk sitt „Archive – endangered waters“.
Fossverk Rúríar
Í Borgarskjala-
safni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15,
stendur nú yfir sýn-
ing um Hestamanna-
félagið Faxa í Borg-
arfirði. Sýningin
kemur frá Héraðs-
skjalasafni Borgar-
fjarðar og er liður í
samstarfi safnanna.
Sýndir eru verð-
launagripir, skjöl og
ljósmyndir sem veita innsýn í
hið fjölbreytta og merka starf
félagsins í gegnum árin. Nýlega
fékk Héraðsskjalasafnið að gjöf
skjöl Ara Guðmundssonar sem
var einn af stofnfélögum Hesta-
mannafélagsins og gegndi for-
mennsku þar í 22 ár. Mikill
fengur er fyrir héraðsskjala-
safnið að fá skjölin til varð-
veislu, en til stendur
að rita sögu félags-
ins.
Sýningin stendur
til 3. febrúar.
Ólíkt – en líkt
Á 6. hæð Borgar-
skjalasafnsins stend-
ur nú yfir ljósmynda-
sýningin Ólíkt – en
líkt og eru verkin úr
fjölskyldualbúmum
frá Birmingham, Alabama.
Sýningin er í samvinnu við
Borgarskjalasafnið í Birming-
ham í Alabamaríki Bandaríkj-
anna. Sýningunni lýkur 2. febr-
úar.
Sýningarnar eru opnar mán.–
fim. 10–20, fös. 11–19 og um
helgar 13–17. Aðgangur er
ókeypis.
Saga og starf
hestamanna-
félagsins Faxa
Maður og hestar.
♦♦♦
♦♦♦