Morgunblaðið - 24.01.2004, Page 32
FERÐALÖG
32 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Útsala
útsala
20%
aukaafsláttur
við kassa
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar.
(Afgr. gjöld á flugvöllum).
Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið - Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
ÞAU segjast vera algjörir byrj-
endur í golfíþróttinni, en eru sam-
mála um að hér geti verið um
skemmtilegt hjónasport að ræða
sem þau ætla að leggja rækt við í
framtíðinni. Hjónin Ari Bergmann
Einarsson, útibússtjóri hjá SPRON,
og Ólöf Erla Óladóttir, ritari hjá
Verslunarráði Íslands, fóru um
páskana í fyrra til Spánar í þeim til-
gangi að læra golf. Þau höfðu aðeins
tekið í kylfu áður en að Spánarferð-
inni kom, en ekki náð neinum ár-
angri svo heitið geti fyrr en að hafa
verið í læri í Golfskóla Úrvals-
Útsýnar á Spáni. Nú eru þau orðnir
félagar í Golfklúbbi Kópavogs og
Garðabæjar og stefna að því að taka
golfið með trukki með hækkandi
sól.
Hver var tilurð ferðarinnar og af
hverju völduð þið golfferð?
„Við höfum oft notað páskana til
ferðalaga innanlands sem utan og
að þessu sinni langaði okkur að
komast í sumar og sól þar sem við
gætum einbeitt okkur að golfíþrótt-
inni. Því höfðum við samband við
golfdeild Úrvals-Útsýnar og slógum
til ásamt vinafólki okkar sem var á
svipuðu róli og við í golfinu.“
Hvenær var ferðin farin og
hversu lengi stóð hún?
„Við fórum með leiguflugi 13.
apríl til Faro-flugvallarins í Portú-
gal, sem er rétt við landamæri
Spánar, en þaðan er tveggja tíma
akstur um Andalúsíuhéraðið til
Madalascanas. Þó hér sé um ferða-
mannabæ að ræða er hann mest
fyrir Spánverja og er algengt að Se-
villabúar eigi þarna sumarhús. Það
var áberandi að ferðatími inn-
fæddra var ekki hafinn. Vafalaust
var enn of kalt fyrir þá, en loftslagið
á þessum tíma hentaði okkur ágæt-
lega enda var hitinn 20–25° og að
mestu heiðskírt þá fjórtán daga sem
við vorum þarna.“
Hvar dvölduð þið og hvernig
reyndist aðbúnaðurinn?
„Við vorum á Hótel Tierra Mar
Golf, sem er við ströndina, en samt í
göngufæri frá golfvellinum. Her-
bergin voru með sjávarsýn og að-
búnaður allur hinn besti, enda hót-
elið nýuppgert. Góð sundlaug og
sólbaðsaðstaða var í sundlaug-
argarðinum, en þar fyrir framan
var sandströndin og Atlantshafið
fyrir þá sem kusu að synda í sjón-
um.
Hvernig var golfkennslan upp
byggð og hverjir sáu um hana?
„Golfkennslan var vel upp byggð
og stóð yfir í sex daga. Byrjað var á
helstu reglum, siðavenjum og und-
irstöðuatriðum íþróttarinnar. Síðan
var hópnum skipt í tvennt og tók
hvor kennari sinn hóp. Fór annar
hópurinn í pútt og stutta spilið á
meðan hinn æfði löngu höggin og
svo öfugt. Eftir kennsluna, sem fór
formlega fram frá 8.45 til 13.30, var
algengt að nemendur spiluðu 18
holur. Í lokin var síðan golfkeppni,
en í lokahófi voru veittar viðurkenn-
ingar og verðlaun. Umsjón með
kennslunni höfðu golfkennararnir
Magnús Birgisson og Hörður Arn-
arson, en Ólafur Jóhannesson far-
arstjóri var einnig til aðstoðar. Golf-
völlurinn, Golf Dunas Donana, er í
útjaðri þjóðgarðsins El Codo de
Donana, sem er náttúruperla útaf
fyrir sig með óvenjulegum gróðri og
fjölskrúðugu fuglalífi. Þar mátti
meðal annars sjá farfuglana ís-
lensku, sem millilentu þarna á leið
sinni frá Suður-Afríku til Norður-
Evrópu. Umgjörð og ástand golf-
vallarins var eins og best verður á
kosið, en brautir eru þarna mun
lengri en við eigum að venjast hér
heima. Á móti kom að völlurinn var
léttur á fótinn vegna sléttlendis.
Fóruð þið í skoðunarferðir um
nágrennið?
„Við fórum í tvær skipulagðar
skoðunarferðir, til Sevilla og til lítils
og mjög sérstaks og forns bæjar,
sem heitir El Rocio. Við rétt misst-
um af Andalúsíuhátíðinni, sem hald-
in er tveim vikum eftir páska í Se-
villa, en fyrirtækjum og stofnunum
er þá lokað vegna vikulangrar gleði
sem fram fer í borginni með stans-
lausum flamenco-dönsum, hestasýn-
ingum og tilheyrarandi áti og
drykkju. Að koma til Rocio er eins
og að fara hundrað ár aftur í tím-
ann, til dæmis er yfirborð allra
gatna þar úr sandi, aðallega vegna
mikillar hestaumferðar, en bærinn
er frægur fyrir hrossarækt og góða
reiðskóla. Miklar uppákomur fara
einnig fram í Rocio. Til dæmis fjöl-
menna Spánverjar þangað í píla-
grímsferðir um hvítasunnuna og
blanda saman trúarhita og léttleika
með Andalúsíubúum. Á þessa
stærstu trúarhátíð Spánverja mæta
ár hvert yfir ein milljón manna.
Flestir koma akandi á hefðbundinn
hátt, en sumir vilja enn fara píla-
grímsferðina, fótgangandi, ríðandi á
hestbaki eða í fornum kerrum sem
dregnar eru af uxum. Pílagrímarnir
koma saman á laugardegi og þessi
þriggja daga hátíðarhöld ná há-
marki þegar líkneski af Maríu mey
er tekið af stalli sínum í frægri
kirkju staðarins og borið út undir
lúðrablæstri og mikilli viðhöfn. At-
höfn þessi varir klukkustundum
saman. Við leigðum okkur bíl og
vorum viðstödd svipaðar athafnir
sem fóru fram í bæjunum Aya-
monte og Isla Cristina í tilefni
páskanna.“
Eruð þið dugleg að ferðast?
„Ætli megi ekki segja að við
séum dugleg að ferðast. Áður voru
okkar uppáhaldsstaðir tengdir
skíðasvæðum á Ítalíu og ýmsum fal-
legum siglingastöðum, en golfið hef-
ur nú ruglað þetta allt saman og nú
eru það golfvellirnir sem heilla,
bæði innanlands sem utan. En ef
við ættum að nefna einn uppáhalds-
stað væru það Bresku jómfrúareyj-
arnar í Karíbahafi.“
Þið eruð sögð mikið skútusigl-
ingafólk. Tengist sá áhugi ykkar
ferðalögunum?
„Skútuáhuginn tengist vissulega
ferðalögum og vitum við fátt
skemmtilegra en að leigja okkur
skútu og ferðast um heimsins höf í
góðra vina hóp, en það er nú önnur
saga.“
Lærðu að spila
golf á Spáni
EFTIRMINNILEG FERÐ
Netklúbbur Íslenskra fjallaleiðsögumanna
Í TILEFNI af 10 ára afmæli Ís-
lenskra fjallaleiðsögumanna
hefur félagið ákveðið að auka
við þjónustu sína og er fyrsta
skrefið stofnun netklúbbs Ís-
lenskra fjallaleiðsögumanna.
Netklúbburinn mun sam-
kvæmt upplýsingum frá ÍFLM
bjóða upp á áhugaverðar og
ódýrar ferðir utan aðalferða-
tímans á Íslandi. Netklúbb-
urinn mun einnig bjóða upp á
ýmiskonar tilboð í hverjum
mánuði eins og dagsferðir,
kennslu á gönguskíði og jökla-
ferðamennsku, myndasýningar og kvöldgöngur.
Nánari upplýsingar um netklúbbinn er hægt að nálgast á www.mountainguide.is/
netklub/frett.htm.
Síðastliðin 10 ár hafa Íslenskir fjallaleiðsögumenn boðið upp á ferðir á Íslandi og
Grænlandi og nú síðustu ár til Niger og Marakkó í N-Afríku Í fréttatilkynningu frá
ÍFLM kemur fram að eigendur fyrirtækisins séu meðal reyndustu fjalla- og leið-
sögumanna landsins og hjá fyrirtækinu starfi margir af færustu fjallamönnum Ís-
lands.
ÍT ferðir kynna gönguferðir
Kynningarfundur ÍT ferða um gönguferðir sem vera átti laugardaginn 24. janúar
hefur verið færður til sunnudagsins 25. janúar af óviðráðanlegum ástæðum.
Klukkan 20 verða gönguferðir erlendis kynntar m.a. á Spáni og í Noregi og þar á
eftir verða gönguferðir innanlands kynntar. Kynningin fer fram í félagshúsi Þrótt-
ar við gervigrasvöllinn í Laugardal.
Sérferð til Jamaica
Boðið verður upp á sérferð
með Heimsferðum til Ja-
maica í Karíbahafinu í beinu
leiguflugi 22. febrúar.
Á Jamaica eru drifhvítar
sandstrendur og gott veð-
urfar og alls staðar hljómar
reggae-tónlistin. Dvalið
verður á ferðamannastaðn-
um Ocho Rios á norður-
strönd eyjunnar, en aðal-
hótel Heimsferða er
Renaissance Jamaica Grand
Resort við ströndina. Stór garður umlykur hótelið og í honum eru þrjár sundlaug-
ar, veitingastaðir, barir og skemmtistaðir. Í nágrenninu er hægt að fara í golf og
stunda sjósport. Boðið er upp á kynnisferðir með íslenskum fararstjórum, meðal
annars til Dunn’s fossanna, Port Antonino, að æskuheimili Bob Marleys, siglingar
á bambusflekum og ferð á markaði heimamanna.
VÍTT OG BREITT
HIN færeysk/danska Barbara Wade
kom til Íslands í fyrsta skipti nú í jan-
úar til að heilsa upp á ættingja sína
sem hún hafði aldrei hitt. Færeysk
ömmusystir hennar, Ingeborg, flutt-
ist hingað til lands á fyrri hluta síð-
ustu aldar, giftist íslenskum manni,
Vigfúsi Guttormssyni, og átti með
honum sex börn. Barbara er ánægð
með ferðina þar sem hún hitti afkom-
endur Ingeborgar og Vigfúsar. „Ég
virðist eiga fleiri skyldmenni hér en í
Danmörku,“ segir hún og hlær, en
Barbara býr í Kaupmannahöfn.
Hún ákvað með stuttum fyrirvara
að koma til Íslands og er þakklát ætt-
ingjum sínum fyrir hlýjar og góðar
móttökur. „Sumir tóku sér frí og fóru
með mér í skoðunarferðir, allir hafa
verið svo indælir við mig,“ segir
Barbara.
Aðalstarf Barböru er líklega frá-
brugðið því sem íslenskir ættingjar
hennar hafa, en hún hefur undanfarin
þrettán ár selt skartgripi á Gammel
Torv á Strikinu í Kaupmannahöfn, á
markaði sem opinn er sex daga vik-
unnar allan ársins hring. Barbara sel-
ur bæði eigin hönnun og annarra og
flytur aðallega inn skart frá Asíulönd-
um. Hálsmen úr silfri og skraut-
steinum eins og ónyx, ametyst og
aquamarine hannar hún í samvinnu
við enskan hönnuð. Búðin og Barbara
heita sama nafni og er hún ein af átta
í sölutjöldum þar sem seldir eru
skartgripir og fylgihlutir.
Íslendingar eru meðal þeirra sem
keypt hafa hálsmen og annað skart
hjá Barböru á Strikinu og hún ákvað
því að hafa með sér sýnishorn í nokk-
urra daga ferðalag hingað til lands.
Ekki er komið í ljós hvort við-
skiptatengsl eru komin á um skart-
gripasöluna en nokkrir sýndu a.m.k.
áhuga.
Barbara er sjálfmenntuð í skart-
gripahönnuninni og hefur fengist við
hana í mörg ár. Hún kom sér síðan
upp sölubás undir eigin nafni á mark-
aðnum á Strikinu fyrir þrettán árum
en hafði þar til þá selt annars staðar.
Íslendingar þekkja Strikið sem að-
algötu Kaupmannahafnar og víst að
margir sem eiga leið um koma við hjá
Barböru og líta á hálsmenin hennar.
Barbara er á leið til Asíu í næsta
mánuði en ákvað að fara fyrst til Ís-
lands eins og hana hafði lengi langað
til. Hún segist hafa haft gaman af að
koma til Íslands að vetri til, þar sem
hún hafi alltaf séð Ísland fyrir sér
snævi þakið. „En næst ætla ég að
koma að sumri, þetta er meira að
segja of kalt fyrir mig,“ segir Barb-
ara sem vonast til að halda sambandi
við ættingja sína hér á landi.
Ættingi Íslands með
skartgripi á Strikinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barbara Wade: Kom til Íslands til
að hitta ættingja og kynnti skart-
gripina sína í leiðinni.