Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 39
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 39
Finnsk berjabaka
(Marjakaisa Matthíasson)
Deig:
200 g smjör,
1 dl sykur,
1 egg,
3 dl hveiti (má nota 1/3 heilhveiti
ef vill),
1 tsk. lyftiduft.
Fylling:
4–5 dl fersk eða frosin ber (bláber,
rifsber, títuber ofl.),
1 dós sýrður rjómi (10%),
1 egg,
½ dl sykur,
1 tsk. vanillusykur.
Smjöri og sykri blandað saman,
egginu bætt við og að lokum hveiti
og lyftidufti. Deigið breitt út í eld-
fast mót. Berin sett ofan á deigið.
Egg, sykri og vanillusykri blandað
saman við sýrða rjómann og hellt yf-
ir berin. Bakað við 200°C í um það bil
25 mínútur. Deigið nægir í frekar
stórt form, en hægt er að nota tvö
hringlaga form, 22 cm í þvermál.
Enskur karamellubúðingur
(Pamala Hansford)
1 bolli saxaðar döðlur,
1 tsk. lyftiduft,
1 bolli soðið vatn,
2 msk. smjör,
1 bolli púðursykur,
2 egg
1½ bolli hveiti
Karamellusósa:
1 bolli púðursykur,
¾ bolli rjómi,
½ tsk. vanillidropar,
2 msk. smjör.
Döðlum og lyftidufti blandað sam-
an og sett í eldfasta skál og sjóðandi
vatninu hellt yfir og látið standa.
Smjör og sykur hitað saman í potti,
eggjunum bætt út í, einu í einu, og
hitað vel á milli. Hveitinu sáldrað
saman við og síðan er döðlumassinn
hrærður út í. Öllu hellt yfir í smurt
eldfast mót, um 18 cm í þvermál.
Bakað í forhituðum ofni í 30–40 mín.
Karamellusósan er gerð með því
að hita saman sykur, rjóma, vanillu-
dropa og smjör. Hrært vel í og þeg-
ar suðumark næst er minnkað undir
og látið smásjóða í 5 mínútur. Búð-
ingurinn borinn fram með sósunni
og þeyttum
rjóma.
Mexíkóskar tortillur
(Hilda Torres)
Hvítar tortillur
skinkusneiðar
mozzarellaostur
Skinku raðað ofan á tortillu og
síðan vel af osti ofan á skinkuna.
Önnur tortilla sett ofan á. Bakist í
ofni við 180°C þar til osturinn fer að
bráðna. Borið fram með guacamole
og/eða chillisósu.
Guacamole:
3 lárperur (avocado),
ferskt koríander,
½ hvítur salatlaukur,
2 tómatar (helst buff- eða plómu-
tómatar),
salt og pipar eftir smekk.
Skafið er innan úr lárperunum.
Tómatar og laukur skornir niður.
Koríander saxað og öllu blandað
saman. Guacamole geymist illa og
því er best að útbúa það rétt áður en
það er borið fram.
Kólumbískar pönnukökur
(Rosenda Guerrero)
2 bollar mjólk,
2 bollar maísmjöl,
1 egg,
l tsk. sykur,
1 lítil tsk. salt,
ostur,
smjör eða smjörvi.
Mjólkin sett í skál ásamt sykri og
salti. Maísmjöli blandað út í smátt
og smátt og hrært á meðan. Egginu
bætt út í og hnoðað. Deiginu skipt í
10–12 litlar bollur og þær flattar út í
lófanum svo þær verði þykkar og
flatar. Panna smurð með olíu og hit-
uð. Bollurnar steiktar. Þær eru
klofnar í tvennt á hliðinni og borð-
aðar með smjöri og osti eða öðru
áleggi eftir smekk. Kólumbíumenn
kalla þessar pönnukökur „arepas“
og borða þeir þær gjarnan í morg-
unmat og oft eru þær bornar fram í
kaffitímum og þá gjarnan með heitu
kakói.
Dönsk ávaxtalagkaka
(Marianne Skovsgärd)
Lagkökubotnar:
3 egg,
2 dl flórsykur,
1 dl hveiti,
1 dl kartöflumjöl,
1 tsk. lyftiduft.
Ofninn hitaður í
190°C og þrjú lag-
kökuform smurð.
Egg og flórsykur
þeytt saman þar
til blandan verð-
ur létt og ljós.
Hveiti, kartöflu-
mjöl og lyftiduft
sigtað saman og
eggjablöndunni
hrært saman við
hveitiblönduna. Gæta
þarf þess að hræra ekki
of mikið því þá fer loftið úr
deiginu. Deiginu hellt í þrjú lag-
kökumót og bakað í 10 mín. Botn-
arnir kældir í mótunum og þeim síð-
an hvolft á kökurist.
Kökukrem:
1 egg,
1 msk. sykur,
½ msk. maizenamjöl,
1¼ dl mjólk,
½ tsk. vanillusykur.
Egg og sykur hitað saman í þykk-
botnuðum potti. Mjöl og mjólk bætt
út og suðan látin koma upp. Hrært í
stöðugt á meðan. Bragðbætt með
vanillusykri og kælt. Sykri stráð yfir
kremið á meðan það kólnar svo ekki
myndist himna á kremið.
Fylling:
½ lítri rjómi,
400–500 g ávextir,
100–150 g muldar makkarónur,
portvín eða koníak.
Lagkökubotnarnir vættir með 3
msk. af portvíni eða koníaki. Rjóm-
inn þeyttur. Ávextirnir gróflega sax-
aðir og þeim ásamt makkarónum og
rjóma blandað saman við kremið.
Fyllingin sett á milli kökubotnanna.
Kakan skreytt með rjóma og jarð-
arberjum.
join@mbl.is
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Glæsilegir seiðandi litir við öll tækifæri.
Einnig nýr ilmur með sól í hjarta!
Vor- og sumarlitirnir 2004
Fred Farrugia
Heimsækið www.lancome.com
Útsölustaðir LANCÔME um allt land.
Kynning í dag í Hygeu Kringlunni, Smáralind og Laugavegi.