Morgunblaðið - 14.02.2004, Síða 8
BLÁFUGL tekur í sumar í notkun
B757-200-fraktvél en til þessa hefur
félagið eingöngu rekið B737-vélar í
fraktflugi sínu. Þórarinn Kjartans-
son, framkvæmdastjóri Bláfugls,
segir 757-þotuna verða notaða í flugi
til og frá Íslandi og 737-þotan sem
annast hafi það flug verði sett í önn-
ur verkefni.
B757-200-þotan sem Bláfugl fær
afhenta í júní í sumar var farþega-
þota sem nú er verið að breyta til
fraktflugs. Tekur hún kringum 34
tonn af frakt eða fimm palla en 737-
þoturnar bera um átta tonn af frakt á
átta pöllum. Þórarinn segir að unnt
verði með nýju vélinni að anna auk-
inni þörf og veita betri þjónustu í
fraktflugi frá Íslandi. Vélin er leigð
af flugvélaleigufyrirtækinu Boullio-
un Aviation. Auglýst hefur verið eft-
ir flugstjórum með réttindi á 757-
þotuna og kveðst Þórarinn bjartsýnn
á að fá nægar umsóknir.
Bláfugl rekur nú fjórar B737-þot-
ur og bætast þrjár við í sumar, ein í
júní, ein í júlí og ein í september.
Segir hann þá hugsanlegt að ein-
hverri af eldri 737-þotunum verði
skilað.
Í Bandaríkjunum er verið að breyta B757-200 þotu sem Bláfugl hefur tekið á leigu til fraktflutninga.
Bláfugl fær B757-þotu í sumar
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nú dugar mér ekki lengur glott út í annað, læknir, ég verð að geta glott allan hringinn ef
mér á að takast að vinna þetta tap upp.
Námskeið frumgreinadeildar THÍ
Færri komast
að en vilja
FrumgreinadeildTækniháskóla Ís-lands býður í þess-
um mánuði upp á nokkur
námskeið fyrir almenning.
Námskeiðin hefjast mánu-
daginn 23. febrúar næst-
komandi. Ýmsar upplýs-
ingar varðandi námskeiðin
er hægt að nálgast á vef
Tækniháskólans, www.thi-
.is, undir símenntun/fjar-
nám, en Málfríður Þórar-
insdóttir er deildarstjóri
Frumgreinadeildar
Tækniháskólans og Morg-
unblaðið ræddi við hana
um þetta námskeiðahald á
dögunum. Svör Málfríðar
fara hér á eftir.
– Segðu okkur fyrst eitt-
hvað um frumgreinadeild
Tækniháskóla Íslands,
hvenær var hún stofnuð, í
hvaða tilgangi og hverjar
eru þessar frumgreinar?
„Frumgreinadeild, sem
er allt að fjögurra anna
nám, tók til starfa árið 1964 um
leið og Tækniskólinn. Markmið
deildarinnar hefur ætíð verið að
treysta almenna menntun iðnað-
armanna svo þeir geti hafið há-
skólanám. Deildin er valkostur
iðnlærðs fólks og fólks með starfs-
reynslu sem stefnir á áframhald-
andi nám við skólann. Aðsóknin á
undanförnum árum hefur sýnt að
það er full þörf fyrir deildina.
Þurft hefur að vísa frá allt að
helmingi umsækjenda, sem er
sárt þegar þjóðfélagið kallar á
tæknimenntað fólk. Margir hnjóta
um orðið frumgreinadeild en ef
við tökum líkingu af húsi í bygg-
ingu þá er frumgreinadeildin
grunnurinn. Þar eru kenndar
raungreinar og huggreinar. Mikil
áhersla er lögð á stærðfræði og
raungreinar en jafnframt eru
kennd tungumál og fleiri greinar.
Náminu lýkur með raungreina-
deildarprófi sem er stúdents-
prófsígildi. Það er svo einstak-
lingsbundið hversu margar annir
þarf að taka áður en háskólanám
getur hafist.“
– Hvaða námskeið eru það sem
frumgreinadeild Tækniháskóla
Íslands er að hleypa af stokkun-
um?
„Til þess að brydda upp á nýj-
ungum og vekja enn frekar at-
hygli á því starfi sem fer fram inn-
an frumgreinadeildar hefur verið
ákveðið að bjóða upp á nokkur
námskeið fyrir almenning. Þessi
námskeið eru framsögn og ræðu-
mennska, stærðfræðinámskeið,
íslensk stafsetning og tækni-
þýska.
Námskeiðið framsögn og ræðu-
mennska er ætlað fólki sem vill ná
betri tökum á því að koma fyrir
sig orði og tala á fundum. Allir
þátttakendur fá að spreyta sig í
ræðustól. Þetta námskeið er í
höndum Önnu Bragadóttur kenn-
ara og Sigurþórs A. Heimissonar
leikara.
Stærðfræðinámskeiðin eru
fjögur. Þetta er hagnýt stærð-
fræði og upplagt fyrir
þá, sem vilja dusta ryk-
ið af kunnáttu sem fall-
in er í gleymsku og dá
að skella sér á nám-
skeið. Námskeiðin eru:
Almenn brot og tuga-
brot; jöfnureikningur;
hlutfalls-, prósentu- og
vaxtareikningur; flatarmál, rúm-
mál, einingar. Kennari er Jens
Arnljótsson
Námskeiðið í íslenskri stafsetn-
ingu er hagnýtt námskeið þar sem
farið er yfir grunnatriði stafsetn-
ingar. Farið er yfir reglur um eitt
eða tvö -n, rætt um stofn orða og
stafsetningu, helstu y-reglur rifj-
aðar upp auk þjálfunar í greina-
merkjasetningu. Kennari er
Soffía Guðný Guðmundsdóttir.
Námskeiðið í tækniþýsku er
ætlað þeim er hafa undirstöðu-
þekkingu í þýsku, t.d. tvo til þrjá
áfanga í framhaldsskóla, en vilja
rifja upp og ná nokkrum tökum á
að skilja texta um ýmis tæknileg
atriði. Lesnar verða nokkrar
greinar um vélar, tæki og verk-
færi, orku og endurvinnslu. Reynt
verður að koma til móts við þarfir
þátttakenda eftir því sem tök eru
á. Byrjað verður á almennum at-
riðum um bíla. Kennari er Steinar
Matthíasson.“
– Hverjum eru þessi námskeið
ætluð og hvernig verða þau sam-
ansett, meðal annars með tilliti til
misjafnrar kunnáttu þátttakenda?
„Námskeiðin eru ætluð öllum
þeim sem vilja bæta kunnáttu sína
á þessum sviðum. Fyrir þá sem
hafa hugsað sér að sækja um í
frumgreinadeild gæti þetta verið
góð leið til að byrja og treysta
undirstöðurnar.“
– Hefur frumgreinadeild THÍ
áður gengist fyrir slíkum nám-
skeiðum?
„Frumgreinadeildin hefur und-
anfarin misseri boðið upp á nám-
skeið í íslensku fyrir útlendinga.
Þau námskeið hafa tek-
ist vel, og nú eru nýhaf-
in námskeið 1. og 2. stig
og hægt er að bæta við
fleirum ef menn gefa
sig fram strax eftir
helgi. Hægt er að taka
allt að 150 tíma hér.“
– Hvað er að segja
um skráningu og kostnað?
„Námskeiðskostnaði er stillt í
hóf og hægt er að nálgast allar
upplýsingar og jafnframt skrá sig
á vef skólans, www.thi.is. Nám-
skeiðin hefjast mánudaginn 23.
febrúar og þriðjudaginn 24. febr-
úar og eru frá kl. 20– 21.30.“
Málfríður Þórarinsdóttir.
Málfríður Þórarinsdóttir
fæddist í Reykjavík árið 1953.
Hún er MA í dönsku frá Háskóla
Íslands og með próf í uppeldis-
og kennslufræði frá sömu stofn-
un. Málfríður hóf störf við
Tækniskóla Íslands, nú Tæknihá-
skóla Íslands, sem dönskukenn-
ari og hefur starfað þar síðan.
Málfríður tók um áramótin 2001
við stöðu deildarstjóra frum-
greinadeildar Tækniháskóla Ís-
lands sem hún gegnir núna. Eig-
inmaður Málfríðar er Sigurgeir
Þorgeirsson og eiga þau tvær
dætur.
Ef við tökum
líkingu af húsi
í byggingu , er
frumgreina-
deildin grunn-
urinn