Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 17

Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 17 Golfdeild Úrvals-Úts‡nar Hlí›asmára 15, Kópavogi • sími 585 4116 e›a 585 4117 www.urvalutsyn.is • peter@uu.is • signhild@uu.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 23 43 09 /2 00 3 Golffer›in flín er í öruggum höndum reyndra fararstjóra! 27.3 - 3.4 Golffer› afrekskylfinga til Matalascanas - UPPSELT 2. - 15.4 Mojacar á Spáni (páskar) - 6 sæti laus 3. - 14.4 Islantilla á Spáni (páskar) - UPPSELT 3. - 14.4 Matalascanas (páskar) - UPPSELT 3. - 14.4 Golfskóli á Matalascanas - UPPSELT 14. - 24.4 El Rompido á Spáni og Islantilla í sömu fer› - UPPSELT 14. - 24.4 El Rompido - ÓTAKMARKA‹ GOLF - 10 sæti laus 14. - 24.4 Tavira í Portúgal - UPPSELT 14. - 24.4 Islantilla - UPPSELT 14. - 24.4 Matalascanas - UPPSELT 14. - 24.4 Golfskóli á Matalascanas - UPPSELT 15. - 25.4 Mojacar - 6 sæti laus 15. - 25.4 Golfskoli á Mojacar - 4 sæti laus 24.4. - 2.5 Matalascanas - UPPSELT 24.4. - 2.5 Golfskóli á Matalascanas - UPPSELT 24.4. - 2.5 Islantilla - ÓTAKMARKA‹ GOLF - 6 sæti laus 24.4. - 2.5 El Rompido - ÓTAKMARKA‹ GOLF - 12 sæti laus 24.4. - 2.5 El Rompido og Islantilla í sömu fer› - ÓTAKMARKA‹ GOLF - 6 sæti laus 24.4. - 2.5 Tavira - 8 sæti laus Íslenskir kylfingar kunna svo sannarlega a› meta okkar fljónustu, gæ›i og hagstætt ver›. Bókunarsta›an í vor: fiökkum frábæra r vi›töku r! Sigur›ur Hafsteinsson Einar Lyng Hjaltason Peter Salmon Signhild Borgflórsdóttir Kjartan L. Pálsson Ólafur Jóhannesson Ingi Rúnar Gíslason Ottó Ö. Pétursson Magnús Birgisson Hör›ur Arnarson MYND sem bandarískt Mars-farartæki tók og var birt á fimmtudag. Hún sýnir hnöttótta steina við Grjótfjall á Meridiani-sléttu á plánetunni. Nú verður rannsakað hvað valdið hafi þessari óvenjulegu lögun á steinunum. Reuters Listræn hönnun á Mars HUGBÚNAÐARRISINN Micro- soft Corp. skýrði frá því á fimmtu- dag að hluta af grunnkóðum Wind- ows-stýrikerfisins hefði verið lekið út á Netið og tölvuþrjótar kynnu því að geta notað vitneskjuna til að finna öryggisbresti. Sagði Microsoft að hlutar af Windows NT 4.0 og Wind- ows 2000 gengju kaupum og sölum á Netinu, en um væri að ræða örlítinn hluta þeirra milljóna kóða sem lægju á bak við stýrikerfið. Atburðurinn er samt talinn vera áfall fyrir Micro- soft. Mörg hundruð milljónir tölva nota Windows-stýrikerfi. Sérfræðingar segja útilokað að segja fyrir um áhrifin af lekanum vegna þess að ekki sé vitað hve um- fangsmikill hann sé. Enginn geti í reynd svarað þeirri spurningu nema fyrirtækið sjálft en Microsoft segir að ekkert bendi til þess að lekinn hafi komið upp í fyrirtækinu sjálfu. Heimildarmenn segja að í reynd hafi mátt búast við því að svona færi þar sem Microsoft hefur um árabil af- hent ákveðnum fyrirtækjum, banda- rískum stjórnarstofnunum, erlend- um ríkisstjórnum og háskólum vissa hluta af grunnkóðanum. Þótt sett hafi verið ströng skilyrði um öryggi og áðurnefndum aðilum sé bannað að birta upplýsingarnar sé ljóst að aðeins hafi verið tímaspursmál hve- nær einhvers staðar kæmi brestur í kerfið. Vilja hert lög gegn ólöglegum afritunum Microsoft er öflugasta hugbúnað- arfyrirtæki heims og hefur þrýst á stjórnvöld í Bandaríkjunum um að herða lög og reglur gegn ólöglegum afritunum sem kosta hugbúnaðar- fyrirtæki stórfé árlega í töpuðum viðskiptum. Er talið að tap banda- rískra fyrirtækja vegna þess athæfis sé 13 milljarðar dollara, um 880 milljarðar króna, á ári. En sem fyrr segir er enn óljóst hvort lekinn muni gagnast þeim sem reyna að komast með ólöglegum hætti yfir hugbúnað. Microsoft í vanda með stýrikerfi Grunnkóðum var lekið á Netið Seattle. AP, AFP. ÍRANAR stefna enn að því að smíða kjarnavopn, þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða. Kom þetta fram hjá Richard Armitage, aðstoðarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, í fyrradag. „Við höfum fylgst mjög grannt með Íran og efumst ekki um, að Ír- anar vinna enn að því að koma sér upp kjarnavopnum,“ sagði Armitage í viðtali við Salem Radio Network í Washington. Nokkru áður sama dag lét John Bolton, sem fer með afvopnunarmál í utanríkisráðuneytinu, svipuð um- mæli falla í Berlín. Sagði hann, að Ír- anar hefðu ekki sýnt IAEA, Alþjóða- kjarnorkumálastofnuninni, fullan samstarfsvilja þrátt fyrir samninga um það. „Þetta samstarf verðum við að tryggja í samvinnu við evrópska vini okkar,“ sagði Armitage. IAEA skýrði frá því á fimmtudag, að fundist hefðu í Íran teikningar af nýju og fullkomnu tæki til að fram- leiða kjarnorkueldsneyti en frá því hefðu Íranar ekki skýrt í trássi við fyrri fyrirheit. Gruna Íransstjórn enn um græsku Washington. AFP. ZELIMKHAN Jandarbíjev, fyrr- verandi forseti héraðsins Tétsníu í Rússlandi, lét lífið í sprengjuárás sem gerð var á bíl hans í borginni Doha, höfuðborg Persaflóalandsins Katar, í gærmorgun. Jandarbíjev hefur dvalið í Katar undanfarin ár en Rússar hafa krafist þess að fá hann framseldan vegna gruns um að hann hafi staðið að baki gíslatöku í leik- húsi í Moskvu fyrir tveim árum en hún endaði í blóðbaði. Rússar neita aðild Talsmenn rússneskra stjórnvalda neituðu harðlega í gær ásökunum Tétsena um að Rússar eða flugu- menn þeirra hefðu staðið að baki til- ræðinu í Doha. Jandarbíjev var á ferð í jeppa ásamt lífvörðum sínum, að sögn sjónarvotta, þegar sprenging varð í bílnum. Jandarbíjev var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést. Jandarbíjev var forseti Tétsníu um tíma, eftir að Dzhokhar Dúdajev féll í átökum við rússneska hermenn árið 1996. Dúdajev var fyrrv. hers- höfðingi í sovéska hernum. Aslan Maskhadov, núverandi forseti upp- reisnarmannam í Tétsníu, tók við af Jandarbíjev árið 1997. Jandarbíjev myrtur Doha. AFP. SVARTIR svanir í dýragarði í borg- inni Wuhan í Hubei-héraði í Kína. Valentínusardagurinn er í dag. Reuters Tilhugalíf REYKINGAR draga verulega úr frjósemi karla og kvenna og reyk- ingar á meðgöngutíma geta haft al- varlegar afleiðingar fyrir börnin, að sögn BBC. Í skýrslu frá bresku læknasam- tökunum segir, að reykingar valdi ófrjósemi hjá fjölda karla á aldrinum 30 til 50 ára og eigi sök á allt að 5.000 fósturlátum árlega. Konur, sem reykja, eru 40% ólík- legri til að verða ófrískar en konur, sem ekki reykja, og börn kvenna, sem reykja, eru oft mjög létt við fæðingu. Þá geta reykingar ef til vill átt þátt í fæðingargalla. Áætlað er að auki, að í Bretlandi komi árlega á sjúkrahús 17.000 börn undir fimm ára aldri með sjúkdóma í öndunarfærum, sem rekja megi til reykinga í návist þeirra. Tóbak skað- ar frjósemi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.