Morgunblaðið - 14.02.2004, Síða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 19
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, hefur hug á að velja sjálfur
arftaka sinn í embætti en allt
bendir til að hann vinni sigur í for-
setakosningum, sem fara fram í
Rússlandi 14. mars nk., og ríki til
ársins 2008.
„Það ætti að vera markmið allra
leiðtoga, einkum og sér í lagi svo
valdamikilla sem forseta, að mæla
með vænlegum eftirmanni,“ sagði
Pútín á fréttamannafundi í
Moskvu en segja má að kosninga-
barátta hans hafi þar með hafist
formlega. Hvatti Pútín rússnesku
þjóðina til að fylkja liði á bak við
þann mann, sem hann veldi til að
taka við af sér, í því skyni að
„tryggja framhald þess sem við
höfum nú“.
Ekki kom þó fram hvern Pútín
teldi hæfan til að feta í fótspor sín.
Alls eru sjö í framboði í forseta-
kosningunum en öruggt er talið að
Pútín tryggi sér réttinn til að sitja
fjögur ár í viðbót í embætti. Pútín
lagði áherslu á það í ávarpi sínu á
fimmtudag að hann væri ekki hrif-
inn af hugmyndum um að gera
breytingar á stjórnarskránni til að
honum verði kleift að sitja lengur
en til 2008, en rússneska þingið
mun greiða atkvæði um það síðar í
þessum mánuði hvort lengja skuli
kjörtímabil forsetans úr fjórum ár-
um í sjö.
Vill velja arftakann sjálfur
Moskvu. AFP.
Reuters
Allar helstu sjónvarpsstöðvarnar í
Rússlandi voru með beina útsend-
ingu frá fréttamannafundi Pútíns.
KJÓSENDUR í Sviss hafa samþykkt
í þjóðaratkvæðagreiðslu ný lög sem
leiða sjálfkrafa til lífstíðarfangelsis-
dóms yfir mönnum sem dæmdir eru
fyrir alvarleg kynferðisbrot eða gróft
ofbeldi og eru taldir óforbetranlegir.
Þótt svissneska ríkisstjórnin sé
andvíg lögunum voru þau samþykkt
um liðna helgi með 56% greiddra at-
kvæða og í meirihluta kantónanna 26.
Stjórnin og þingið þurfa nú að ákveða
hvernig koma á lögunum í fram-
kvæmd þar sem í þeim er ekki tekið
fram í hvers konar fangelsum halda
eigi föngunum.
Lögin gilda um fanga, sem dæmdir
hafa verið fyrir kynferðisbrot eða of-
beldi, eru taldir mjög hættulegir og
óforbetranlegir. Þeir eiga að vera í
fangelsi til æviloka og gildir þá einu
hvernig þeir hegða sér í fangelsi.
Tveir óháðir sérfræðingar þurfa að
komast að þeirri niðurstöðu að af-
brotamaður sé mjög hættulegur og
óforbetranlegur þegar dæmt er í máli
hans til að hann verði dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi.
Hertar refs-
ingar við
kynferðis-
brotum í Sviss
FRANSKIR saksóknarar hafa hafið
rannsókn á máli, sem hugsanlega
snýst um peningaþvætti, en svo virð-
ist sem hundruð milljóna ísl. kr. hafi
verið flutt á reikning í eigu eiginkonu
Yassers Arafats, leiðtoga Palestínu-
manna.
Það var franski seðlabankinn, sem
fór fram á rannsóknina, en þá hafði
komið í ljós, að mánaðarlega var flutt
frá Sviss nærri ein milljón evra, um
87 millj. ísl. kr., og inn á reikning
Suha Arafat í París þar sem hún býr.
Suha Arafat var ekkert að skafa af
hlutunum þegar hún lýsti skoðun
sinni á þessum fréttum í gær. Hún
sagði um uppspuna að ræða og að
fréttirnar væru runnar undan rifjum
Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels. Sharon væri „að reyna að
búa til sams konar hneyksli í kring-
um fjölskyldu Arafats forseta til að
hylma yfir hneykslismál er tengdust
honum sjálfum og fjölskyldu hans“.
Fjármál Suha
Arafats könnuð
París. AP.
HÁTTSETTUR starfsmaður
sænska tryggingarisans Skandia,
sem sætir nú lögreglurannsókn
vegna svimandi hárra kaupauka til
forsvarsmanna, svipti sig lífi á hót-
elherbergi í miðborg Stokkhólms
fyrr í vikunni, að því er sænska Aft-
onbladet greindi frá.
Blaðið nafngreinir manninn ekki,
en segir að lögreglan hafi fundið í
peningaveski hans skjöl um
greiðslur á kaupaukum. Hann
skráði sig inn á Elite Hotel Plaza á
sunnudag, en þegar ræstingakona
fór inn í herbergið á þriðjudaginn
kom hún að manninum látnum, seg-
ir Aftonbladet.
Maðurinn var einn af allra æðstu
stjórnendum Skandia, og einn
þeirra rúmlega 80 manna sem
rannsókn á meintum, ólöglegum
kaupaukagreiðslum beinist að.
Yfirmaður
hjá Skandia
svipti sig lífi
♦♦♦
♦♦♦
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111