Morgunblaðið - 14.02.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.02.2004, Qupperneq 28
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 28 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þorlákshöfn | Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölf- uss samþykkti nýlega fjárhagsáætlun fyrir árið 2004. Áætlunin byggist á forsendum sem sam- þykktar hafa verið af bæjarstjórn og breyt- ingum á launum og verðlagi eins og hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga gerir ráð fyr- ir. Framkvæmdir á árinu eru miklar á mæli- kvarða ekki stærra sveitarfélags, um 540 millj- ónir króna, sem skiptast að stærstum hluta milli framkvæmda í höfninni í Þorlákshöfn og við- byggingar við grunnskólann. Til að mæta þess- um framkvæmdum er gert ráð fyrir láni að upp- hæð rúmar kr. 200 millj. Eftir lántöku eru skuldir á íbúa um 252 þúsund krónur sem er svipað og meðaltal sambærilegra sveitarfélaga. Útsvar stærsti tekjuliðurinn Tekur bæjarins eru áætlaðar 569 milljónir króna og er útsvarið stærsti einstaki tekjulið- urinn, 345 milljónir. Rúmar 97 milljónir fást hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og 56 milljóna króna tekjur eru af fasteignasköttum. Útgjöld eru áætluð 513 milljónir króna, um 287 vegna launa og launatengdra gjalda og 225 milljónir eru ann- ar rekstrarkostnaður. Á sviði félagsþjónustu má nefna að byggja á átta íbúðir fyrir aldraða við Egilsbraut. Er það samstarfsverkefni sveitarfélagsins og félags sem stofna á um rekstur og eignarhald íbúðanna. Þá verður breytt rekstrarfyrirkomulagi á sambýli við Selvogsbraut og verður hann á vegum Svæð- isskrifstofu um málefni fatlaðra á Suðurlandi. Heimreiðar lýstar upp Verja á 1,5 milljónum króna til endurbóta á leikskólanum Bergheimum og unnið verður fyrir um 180 milljónir króna við stækkun grunnskól- ans. Áfram verður samstarf við Hveragerði um fræðslumál fyrir börn úr dreifbýli Ölfuss. Þá hefur starfsemi lúðrasveitar í bænum verið end- urvakin og verður 400 þúsund krónum varið til hennar. Verja á 7–8 milljónum króna til endurbóta á þaki íþróttahúss bæjarins og fyrir haustið á að ljúka gerð gervigrasvallar í bænum. Gert er ráð fyrir að það kosti kringum 30 milljónir króna. Ljúka á við gatnagerð og frágang í nýju hverfi sunnan Berga og varið til þess um 22 milljónum króna. Áfram verður veitt fé í heimreiðar í dreif- býli sveitarfélagsins og til að lýsa þær upp. Verja á um einni milljón króna til gerð deili- skipulags milli Selvogsbrautar og fyrirhugaðs Suðurstrandarvegar. Þá verður 30 milljónum króna varið til frá- veitu og 1,5 milljónir kr. á að nota til kynningar á sveitarfélaginu. Stefnt er að því að halda íbúa- þing 28. febrúar næstkomandi. Framkvæmdir fyrir rúmlega hálf- an milljarð í Ölfusi á þessu ári Morgunblaðið/Jón H.Sigurmundsson Byggt við skólann: Framkvæmdir eru fyrir nokkru hafnar við viðbyggingu grunnskólans. Byggja á fjórtán nýjar kennslustofur og verður helmingur þeirra tekinn í notkun í lok þessa árs. Hveragerði | Í vikunni var sett upp ný lista- verkasýning í anddyri Grunnskólans. Til sýn- is eru verk nemenda, sem þau hafa málað á flísar. Myndmenntakennari skólans, Lilja Guðmundsdóttir, sagði að svo mikið hefði verið af flísum að sú hugmynd hefði kviknað að nota þær í sköpunina. Akrýllitir eru not- aðir í verkin sem eru mörg hver afar vel heppnuð, svo ekki sé meira sagt. Lilja samdi við smíðakennarann Snorra Baldursson um að smíða þríhyrninga, sem flísarnar eru síð- an límdar á og þá er kominn standur undir verkin. Óvenjuleg og falleg verk prýða skól- ann, öllum til mikils sóma. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Afrakstur starfs nokkurra nemenda. Listsýning í Grunnskólanum Selfoss | „Það er ákaflega gefandi að vinna náið með fólki í skapandi umræðu að ákveðnu markmiði eins og maður gerir í leikhúsi. Það endurnærir mann og gerir það einhvern veginn að verkum að maður er eins og nýr í hverju verkefni,“ segir Ólafur Jens Sigurðsson sem leikstýrir leikurum hjá Leik- félagi Selfoss í verkinu Gaukshreiðrinu sem frumsýnt var í gærkvöldi í Leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Ólafur er fæddur og uppalinn á Selfossi og hefur starfað með Leikfélagi Selfoss frá því hann var 16 ára. Hann gat sér strax gott orð í leiklistinni og lék samfellt með félaginu frá 1988–1996 en þá færði hann sig yfir í það að leikstýra og nýtur þess greinilega að tak- ast á við slík verkefni. Hann fór síðan til Bristol Old Vic á Englandi þar sem hann nam leikstjórn og útskrifaðist þaðan fyrir einu ári. „Ég var mjög heppinn að koma ungur inn í félagið og hef kynnst mörgum sem voru upphafsmenn að félaginu og starfaði með þessu fólki í stjórn og lék með því á sviðinu. Mér finnst ég hafa kynnst kjarnanum í félag- inu og þar með hjarta þess. Það er einhvern veginn þannig að það er erfitt að útrýma því sem byggir á hefð. Leikfélagið er jafngamalt bæjarfélaginu, leikfélagsfólkið hefur smitað út frá sér og áhuginn hefur haldist þannig að starfið heldur áfram. Það er góður kjarni í leikfélaginu sem er driffjöðrin í starfinu. Það er auðvitað verulega skemmtilegt að starfa með þessu fólki sem leikstjóri en eins og gefur að skilja er margt þetta fólk mjög tengt mér og mér finnst það gott fyrir leik- verkið sem unnið er að hverju sinni. Það er úrvalsfólk í þessum harða kjarna hérna sem er með í Gaukshreiðrinu. Ég þekki auðvitað vel til aðstæðna og eins og alls staðar geng- ur þetta út á að fólk vinni á sömu línu. Það auðveldar manni að vita á hvaða bylgjulengd fólkið er og ég þekki vel þessa bylgjulengd hér á Selfossi. Hér talar maður eins og heima hjá sér og fólkið skilur mig og ég skil það. Þegar svo náið samband er þarf ekki mörg orð til að lýsa hlutunum. Ég er til dæmis alveg óhræddur við að segja þeim til og það er merki um gott traust að fólkið tekur vel því sem ég segi. Þau hafa að sjálfsögðu leyfi til að tjá sig og þannig næst fram góð sköpun sem unnið er að í samvinnu og samræðan skiptir öllu máli og einnig að einlægni og traust ríki meðal fólks. Við komumst alltaf að samkomulagi en auðvitað hefur leikstjórinn alltaf úr- slitavaldið.“ „Eins og annars staðar þá er leikhúsið hér lifandi miðill sem á að vekja spurningar og taka á öllum þáttum mannlífsins, það á að snerta mann,“ segir Ólafur Jens sem á sér þann draum eins og margir að komast í leik- hússalinn í Hótel Selfossi en þar er unnt að koma fyrir kjöraðstæðum til að takast á við stærri verkefni í leik og söng. „Við megum þó ekki gleyma því að leik- hús er ekki bara hús heldur það sem fram fer í því. Hér í þessu gamla húsi við Sigtún hafa verið unnin þrekvirki. Það eflir andann og ýtir undir ákefðina að komast í fyrsta flokks aðstæður,“ segir Ólafur Jens sem greinilega vill alltaf gera betur. Sextán leikendur eru í Gaukshreiðrinu en alls koma 40 manns að því að setja upp verk- ið. Frumsýning var í gær en svo er önnur sýning á morgun, sunnudag, og næstu sýn- ingar í framhaldi af því. Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir Gaukshreiðrinu á Selfossi Auðveldar manni að vita á hvaða bylgjulengd fólkið er Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Leikstjórinn: Ólafur Jens Sigurðsson á sviðinu í gamla Leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Selfoss | Árleg undirritun samninga um plöntufram- leiðslu fyrir Suðurlandsskóga fór fram á Selfossi á fimmtu- dag. Um er að ræða ræktun á 1.317.500 trjáplöntum sem af- hentar verða vorið 2005 til gróðursetningar hjá skógar- bændum sem þátt taka í Suð- urlandsskógum. Níu aðilar undirrituðu rækt- unarsamning að þessu sinni og eru það eftirtaldar gróðrar- stöðvar: Árbakki Biskupstung- um, Barri Egilsstöðum, Dilks- nes Hornafirði, Furubrún Biskupstungum, Hvammur 2 Flúðum, Kvistar Biskupstung- um Laxárhlíð Flúðum og Mörk í Reykjavík. Ríkiskaup bjóða árlega út um sjötta hluta plöntufram- leiðslunnar fyrir Suðurlands- skóga þannig að framleiðend- um og Suðurlandsskógum gefst kostur á að framlengja árlega ræktunarsamninga allt að fimm sinnum án útboðs ef allt gengur eftir sem um er samið, að því er fram kemur á vef Bændasamtakanna. Helstu trjátegundir í þess- um samningum nú eru;· sitka- greni 320.000, birki 280.000 alaskaösp 200.000, stafafura 130.000 og elri 120.000 auk um 25 annarra tegunda. Reikna má með að gróðursetning fari fram á 200 lögbýlum innan vé- banda Suðurlandsskóga á árinu 2005. Framleiða skógar- plöntur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.