Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. H áskóli Íslands er ríkisstofnun og eins og ríkisstofnanir eiga að gera þá verða þær að halda sig innan þess ramma sem fjárlögin eru.“ Þannig mæltist nýjum menntamálaráð- herra í viðtali við Ísland í dag á Stöð 2 fimmtudaginn 5. febrúar. Ummælin féllu í kjölfar umræðu Samfylkingarinnar á Al- þingi um það hvort fjöldatakmarkanir og skólagjöld væru framtíðarmúsík Sjálfstæð- isflokksins í málefnum Háskólans. Með orðum menntamálaráðherra á sér stað gagnger stefnubreyting í málefnum Háskóla Íslands. Þjóðskólinn er ekki lengur opinn þeim sem þangað sækja. Það er háð pólitískum geðþótta ráðherra menntamála og ríkisstjórnar hvað margir fá aðgang að þjóðskólanum ár hvert. Þetta eru tímamót. Þjóðskólinn hefur hingað til verið opinn þeim sem þangað sækja og hafa til þess til- skilda menntun. Nú eru fjöldatakmarkanir við hann staðfestar sem fyrsta meginverk- efni nýs ráðherra menntamála. Auk fjöldatakmarkana hefur ráðherra slegið í og úr hvað varðar upptöku skóla- gjalda. Sjálfstæðismenn hafa vaðið hver af öðrum fram á völlinn að undanförnu með stóryrðum um að gjaldtaka leysi vandann. Án nokkurs rökstuðnings og án þess að ræða um takmark, markmið og mögulegar afleiðingar af slíkri gjaldtöku. Að þessu fram komnu lýsti ráðherra því yfir að menntasókn Sjálfstæðisflokksins væri löngu hafin. Þó að hún hafi með öllu farið fram hjá þjóðinni og sé því ein sinnar tegundar sökum þess hve hljótt hún fór hjá. Enda ósýnileg með öllu þar sem hún hefur ekki átt sér stað. Markmið Samfylkingarinnar Markmið Samfylkingarinnar með menntasókn sinni er tvíþætt: Í fyrsta lagi að fjölga um 25% þeim sem útskrifast með framhaldsskólapróf úr hverjum árgangi, og í öðru lagi að fjölga þeim sem útskrifast með háskólapróf úr hverjum árgangi sömuleiðis um 25%. Markmið sem há skólagjöld á grunnnám vinna fullkomlega gegn. Þeir, sem hafa betri menntun, fá hærri laun. Aukið framlag til menntamála eykur framleiðni í hagkerfinu og landsframleiðslu. Reynslan hefur leitt í ljós að þær þjóðir, sem verja meiru í menntamál, hafa hærri lands- framleiðslu. Þessar aðgerðir Samfylkingarinnar munu leiða til varanlegrar hækkunar á landsfram- leiðslu á mann um 3–6%. Gangi boðuð menntasókn okkar eftir í stað fjársveltis, fjöldatakmarkana og skólagjalda Sjálfstæð- isflokksins má búast við því að vöxturinn nemi tæplega 1%, eða næstum því jafn- miklum varanlegum hagvexti og við munum njóta af álveri við Reyðarfjörð og virkjun við Kárahnjú Fjárfesti tíðinni. Morgu fara miki aukin skó lands. Þó ákaflega það sterk Þá dró hú á Alþingi út fyrir v talaði þá arafstöðu undanbr Hvort breiða yf isstjórna málefnum hugsjóna og jöfnuð engar vit Ósýnilega menntasó Eftir Björgvin G. Sigurðsson ’ Það er háð pólitískumgeðþótta ráðherra mennta- mála og ríkisstjórnar hvað margir fá aðgang að þjóð- skólanum ár hvert. ‘ Þjóðskólinn er ekki lengur opinn þeim sem þangað sækj D eilur þær sem hafa sprottið upp vegna samþjöppunar í viðskiptalífi þjóðarinnar hafa að vonum vakið athygli. For- ystumenn Sjálfstæðisflokks- ins hafa að undanförnu lagt á það áherslu í ræðu og riti að ekki komi til greina að við- skiptalíf okkar Íslendinga verði njörvað niður í viðjar fákeppni eða einokunar. Við- skiptafrelsið, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forgöngu um að innleiða á und- anförnum áratug, er frelsi hinna mörgu en ekki hina fáu. Jafnframt hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins bent á nauðsyn þess að lagaumhverfi fjölmiðla sé með þeim hætti að tryggt sé að þeir fái gegnt mikilvægu hlutverki sínu. Fyrir liggur vilji forystu Sjálfstæðisflokksins um að Alþingi láti þessi mál til sín taka og kom hann fram með skýrum hætti í ræðu forsætisráðherra á Viðskiptaþingi á dögunum. Hlutverk Sjálfstæðisflokksins Saga Sjálfstæðisflokksins geymir mörg dæmi þess að forystumönnum hans hafi þótt ástæða til að gera alvarlegar at- hugasemdir við framgöngu fyrirtækja og afstöðu forráðamanna þeirra. Ólafur Thors tók fast á íslenskum útgerðarmönnum þeg- ar honum þótti ástæða til þess. Bjarni Benediktsson var einnig fastur fyrir þegar grípa þurfti til erfiðra efnahagsaðgerða 1967. Nefna má ýmis önnur dæmi, en ljóst má vera að skoðanir formanns Sjálfstæð- isflokksins á hættunni af hringamyndun og valdi einstakra stórfyrirtækja á fjölmiðla- markaði eru í samræmi við sögulega hefð og stefnu Sjálfstæðisflokksins allt frá stofn- un hans. Styrkur Sjálfstæðisflokksins og það fjöldafylgi sem hann nýtur hvílir á þeirri meginstoð að þjóðin treystir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé málsvari heil- brigðs atvinnulífs og einstaklingsfrelsis. Frelsið og einkaframtakið hafa skilað al- menningi meiri hagsbótum en nokkurt ann- að hagskipulag. Fyrir því skipulagi hefur Sjálfstæðisflokkurinn barist alla tíð. At- vinnulífið og umgjörð þess verður að vera í sátt við fólkið í landinu. Sú sátt er grund- völluð á e og tillitss Sjálfstæð haldi. Ha verða að allir. Frelsi hinna mörgu, Eftir Illuga Gunnarsson Davíð Oddsson forsætisráðherra heldur ræðu á Viðskip BROTTFÖR EFTIRLITSVÉLA Utanríkisráðuneytið hefur ósk-að skýringa á því hvers vegnaengar kafbáta- og skipaeftir- litsflugvélar hafa verið hér á landi síðan 5. febrúar og hvort og hvenær slíkar vélar verði sendar til landsins á ný. Fjórar eftirlitsvélar af gerðinni P-3 Orion hafa verið hér á landi und- anfarin ár á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og hafa flugsveit- ir Bandaríkjaflota skipst á að leggja varnarliðinu þær til hálft ár í senn. Utanríkisráðuneytið frétti fyrst af því í fyrradag að vélarnar voru farn- ar. Bandaríkjamenn hafa haft kafbáta- og skipaeftirlitsflugvélar á Íslandi allt frá 1951 og á dögum kalda stríðs- ins var eftirlit þeirra snar þáttur í starfsemi varnarliðsins í Keflavík og hluti af neti, sem teygði sig víða um Atlantshaf. Er kalda stríðinu lauk dró eðlilega úr mikilvægi þessa eft- irlits, en engu að síður þótti ástæða til að halda því áfram. Um þessar mundir standa yfir við- kvæmar viðræður um framtíð varn- arliðsins á Íslandi. Bandaríkjamenn hyggjast nú endurskoða uppbygg- ingu herja sinna og með hvaða hætti þeim verði beitt. Liður í þessari end- urskipulagningu er endurskoðun á bandarískum herstöðvum um heim allan. Segja Bandaríkjamenn að skoða eigi framtíð varnarliðsins í Keflavík í samhengi við þessa endur- skoðun. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins liggur ekki fyrir hvort önnur sveit verður tilnefnd til að koma hing- að í stað þeirra sem farin er og verður í þeim efnum meðal annars tekið mið af þörf á slíkum vélum annars staðar. Einnig kemur fram að Bandaríkja- menn hafi misreiknað endingu Orion- vélanna og þurfi því að spara þær á meðan beðið er nýrrar eftirlitsvélar, sem ætlað er að leysa þær af hólmi. Fyrir vikið sé meiri samkeppni um að nota vélarnar, en gert hafði verið ráð fyrir. Hér er um tæknilegar forsendur að ræða, sem í sjálfu sér er ekki ástæða til að draga í efa. Hins vegar vekur furðu hvernig þetta ber að. Vélarnar hverfa af landi brott fyrir níu dögum án þess að íslenskum stjórnvöldum sé gerð nokkur grein fyrir því hvað sé í vændum. Utanríkisráðuneytið biður um skýringar, en hefur enn ekki fengið svar. Bandarísk yfirvöld mega ekki gleyma því að samningurinn um veru varnarliðsins á Íslandi er ekki einhliða. Ákvarðanir af þessu tagi skapa óvissu um fyrirætlanir Banda- ríkjamanna og eru ekki til þess falln- ar að liðka fyrir viðræðum um varn- arliðið eða skapa andrúmsloft trausts í samskiptum Bandaríkjanna og Ís- lands. TETRA OG PENINGAR SKATTGREIÐENDA Nokkra lærdóma virðist megadraga af hinni undarlegu at- burðarás í kringum fyrirtækið Tetra Ísland undanfarna daga. Í fyrsta lagi er augljóslega ekki alltaf vænlegt til árangurs að semja við lægstbjóðanda í opinberum útboðum. Á sínum tíma buðu ríkið og Reykjavíkurborg út Tetra-þjónustu fyrir lögreglu og slökkvilið. Irja, forveri Tetra Ísland, bauð miklu lægra en keppinautarnir og gengið var til samninga við fyrir- tækið. Nú, um fjórum árum síðar, þeg- ar grundvöllur fyrir rekstrinum virð- ist vera að bresta, kemur fyrirtækið og fer fram á það við viðsemjendur sína að þeir þrefaldi greiðslur sínar til þess, vegna þess að það sé farið að veita þeim svo mikla þjónustu umfram samninginn, sem gerður var, að því er fram kom í samtali við framkvæmda- stjóra Tetra Ísland hér í blaðinu fyrr í vikunni. Þetta verður að teljast afar sér- kennileg tillaga og brýtur í bága við flestar viðteknar hugmyndir um það hvernig opinber útboð eiga að virka; þar er skilgreind tiltekin þjónusta, sem veita á og greitt fyrir hana fyr- irfram ákveðið verð, einmitt til að verja skattgreiðendur fyrir bakreikn- ingum af þessu tagi. Hefði dómsmála- ráðuneytið gefið eftir og fallizt á þess- ar hugmyndir forsvarsmanna Tetra Ísland hefði það verið afar vafasamt fordæmi fyrir samskipti opinberra að- ila og verksala í útboðum í framtíðinni. Í öðru lagi virðist staðan, sem Tetra Ísland er nú í, vera enn ein staðfest- ingin á lánleysi borgarstjórnarmeiri- hlutans í Reykjavík þegar kemur að ákvörðunum um fjárfestingar í fjar- skiptarekstri. Lína.Net, dótturfyrir- tæki Orkuveitu Reykjavíkur, sem hundruðum milljóna af peningum Reykvíkinga hefur verið dælt í án þess að einhver raunverulegur ávinningur sé sjáanlegur á móti, keypti á sínum tíma Irju og afskrifaði raunar mestallt kaupverðið fljótlega eftir það. Þegar kaupin voru gagnrýnd, svöruðu for- svarsmenn Línu.Nets því til að kaupin væru mjög arðbær. Eiríkur Bragason, þáverandi framkvæmdastjóri Línu.- Nets, sem enn situr í stjórn Tetra Ís- land, skrifaði hér í blaðið 4. maí 2001: „Til dæmis hefur því verið slegið upp að Lína.Net hafi kastað 250 milljónum út um gluggann með kaupum sínum á fyrirtækinu Irju. Í ljósi áætlaðrar árs- veltu er ótvírætt, að hafi 200 milljón- um verið kastað út um glugga, eins og fullyrt er, þá er ljóst að ríflegt hlutfall af 700 milljón króna árstekjum mun koma árlega inn um glugga með til- heyrandi ábata fyrir félagið.“ Guð- mundur Þóroddsson, forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur, sem á nú stærstan hlut í Tetra Ísland, skrifaði nokkrum vikum áður: „Þvert á móti hef ég fulla trú á að Lína.Net muni hagnast á því að hafa farið út í rekstur á Tetra- kerfi.“ Ekkert af þessu hefur gengið eftir. Árstekjur Tetra Ísland eru ekki 700 milljónir heldur 100 milljónir. Borg- arstjórnarmeirihlutinn og forsvars- menn OR hljóta að vera farnir að velta því fyrir sér hvort þeim sé ekki margt betur gefið en að standa í fjarskipta- rekstri. Það virðist blasa við að reka þarf Tetra-kerfi áfram í landinu, þar sem lögregla og slökkvilið treysta á kerfið. Ef Tetra Ísland treystir sér ekki til þess þurfa aðrir að koma þar til sögu, vonandi með sem minnstum aukreitis tilkostnaði fyrir skattgreiðendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.